Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 23

Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 23
Lög Wolfs voru hvert öðru betra í flutningi dúósins, en síðasti skammtur finnskra laga – lög eftir Sibelius og samtímamenn hans var rismikill hápunktur tónleikanna. Lag Palmgrens, Virran reunalla, um stúlku sem situr við fljót og hugsar um ástina, var óskaplega fallegt í túlkun Petteris Salomaa – og sindrandi árniðurinn í hægri hönd Steinunnar Birnu hrífandi. Ástarljóð við lag eftir Kuula, um piltinn sem felur ástarsorgina með því að syngja – svo allir haldi hann hamingjusaman – var geysivel flutt. Lög Sibeliusar voru bæði þekkt og minna þekkt – topparnir þar Svart- ar rósir, með mikilli dramatík í túlkun og Demanturinn í mars- snjónum, sem er eitt besta lag tón- skáldsins. Það bar allt að sama brunni á þessum indælu tónleikum; - listræn nautn og gríðarleg stemmning í troðfullri kirkjunni. KAMMERTÓNLEIKAR á laug- ardagskvöldi voru hlaðnir því sem margir kalla konfektmola – þar sem leikið var úrval þekktra smá- verka. Gestur þeirra tónleika var Love Dervinger og mikil eftirvænt- ing að heyra í honum. Hann spilaði annars vegar prelúdíur eftir De- bussy, en hins vegar úr prelúdíum op. 28 eftir Chopin. Það voru nokk- ur vonbrigði að heyra Debussy, það var eins og Love Dervinger væri lengi í gang, og ekki fyrr en í La puerta del vino með súrrandi hab- añerurytma að hann komst á flug. Debussy var í heild of daufur og lit- laus hjá honum fyrir utan þetta verk, og þótt verkin beri almennt í sér fljótandi þokka impressjónism- ans verða þau að hafa meira svip- mót og karakter. Það var því enn meira gaman að heyra hann spila Chopin-prelúdíurnar. Þær voru geysilega vel leiknar, og sumar hverjar svo að eftir verður munað. Litla prelúdían nr. 4 – örfáir taktar af hreinni músíkalskri snilld tón- skáldsins – þar gerði Love hvorki of né van og skilaði þessum mola sem næst fullkomlega. Annað á tónleikunum var bæði gott og vel flutt, sérstaklega var þó dirfskan í flutningi Auðar og Bryndísar Höllu á Passacagliu Händels, kryddaðri rómantískri útsetningu Johans Hal- vorsens skemmtileg. Mýkt Háv- arðar í sónötu eftir Eccles var hreint ótrúlega falleg – það var eins og hann væri með fiðlu í hönd- unum en ekki kontrabassa og Bach í höndum Þórunnar Óskar var hreinn og tær. UPPISTAÐA lokatónleikanna voru tvö verk – Píanótríó op. 9 eftir Rakhmaninov og Silungakvintett- inn eftir Schubert. Inngangsverkið var Vókalísa Rakhmanonivs. Leikur Auðar, Bryndísar Höllu og Loves í Rakhmaninov var hreint með ólíkindum. Einbeiting hljóð- færaleikaranna var rafmögnuð og hljóðfæraleikurinn á ystu nöf í músíkölskum skilningi – þar sem allt var lagt í sölurnar til að skapa einsktaka músíkupplifun. Silungakvintett Schuberts var leikinn með því móti sem maður heyrir allt of sjaldan. Þetta verk má ekki taka of alvarlega, eða túlka með of miklum þyngslum. Kontra- bassinn gefur því líka svipmót di- vertimentos – eða skemmtitónlistar – og músíkefni Schuberts býður einmitt upp á léttleika og gleði. Tónn Sifjar á fiðluna er líka svo fín- legur og fágaður og ber vel uppi fyrstu fiðlu í þess konar túlkun verksins. Umfram allt var flutn- ingur verksins yndisleg skemmtun, og spilagleði hljóðfæraleikaranna bókstaflega smitandi. Þetta var frá- bært niðurlag á góðum tónleikum og enn einni afbragðs tónlistarhá- tíðinni í Reykholti. Auður Hafsteinsdóttir, Sif Tulinius, Þór- unn Ósk Marinósdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Hávarður Tryggvason, Love Dervinger og Steinunn Birna Ragn- arsdóttir fluttu verk eftir Jóhann Sebast- ian Bach, Henry Eccles, Händel, Ravel, Debussy, Piazzolla og Chopin. Laugardagskvöld kl. 21.00. KAMMERTÓNLEIKAR Auður Hafsteinsdóttir, Sif Tulinius, Þór- unn Ósk Marinósdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir, Hávarður Tryggvason, Love Dervinger og Steinunn Birna Ragn- arsdóttir fluttu verk eftir Rakhmaninov og Schubert. Sunnudag kl. 16.00. KAMMERTÓNLEIKAR LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 23 N O N N I O G M A N N I | Y D D A / si a .i s N M 0 6 7 2 3NÝJAR VÖRUR: Kjölur kvenflíspeysa Verð 7.990 kr. Flísskyrta Verð 7.490 kr. meistar inn. is ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI SEINNI tónleikar s.l. laugardags í Skálholti buðu upp á meistara meist- aranna, Johann Sebastian Bach. Stórmóðu vestræns tónskáldskapar og sameinandi ós allra áa fram að 1750 – þann er „hefði aldrei átt að heita „Læk- ur““, eins og Beethoven komst að orði, „heldur Haf“.“ Hljóm- borðsverk Bachs voru í fyrirrúmi að þessu sinni, fyrst fyrir sembal en í seinni helmingi fyrir orgel. Um sembalverkin sá Carole Cerasi, fjöl- þjóðleg listakona af frönsku og tyrk- nesku bergi brotin, fædd í Svíþjóð en búsett í London. Meðal sembalverka Bachs í svítuformi má fremst telja Partíturnar, Frönsku svíturnar og þær Ensku, allar taldar samdar í síð- asta lagi á fyrstu kantorsárum hans í Leipzig eða um 1723–26. Úr þeim 6 verka bálki lék Cerasi fyrst svítuna í d-moll, BWV 811. Hún mun sú lengsta í öllu safninu, aðal- lega þökk sé heljarlangri og atgangs- samri prelúdíu. Á eftir föstu svítu- þáttunum Allemande, Courante og Sarabande (með Double-tilbrigði) kom innskots-Gavotte I–II (við skemmtilegan „sekkjapípu“-stíl í II) á undan lokagikknum. Cerasi lék af mikilli rytmískri fimi og var sú engu minni í seinna sembalverkinu, Tok- kötu í D-dúr BWV 912, sem rétt- nefndari væri Fantasía enda nánast í 5 ólíkum þáttum. Þetta sannkallaða virtúósastykki frá æskuárum Bachs (talið samið um 1710) lék í höndum Carole Cerasi, og þó að danskennd- ustu kaflarnir – einkum hin falda- feykjandi gikkfúga í lokin – væru stundum ívið rúbatóteygðir fyrir minn smekk, var eflaust frekar kalli tízkunnar að kenna en skorti á fingralipurð. Glæsileg, tandurskýr og gleðismitandi spilamennska. Litlu síðri var frammistaða brezka organistans í seinni hlutanum. James Johnstone, sem m.a. kennir í Guild- hall og Trinity College og leikur með fjölda fornmúsíkhópa, flutti fyrst tvo forleiki úr Das Orgelbüchlein, Wer nur den lieben Gott lä[ss]t walten BWV 642 og Wenn wir in höchsten Nöten sein BWV 641 frá um eða rétt fyrir 1714. Túlkun hans var snörp í fyrra stykkinu en fallega mjúkt líð- andi í því seinna, og hið litla 17 radda Frobenius-orgel Skálholtskirkju virtist falla ljómandi vel að bæði bar- okkstíl verkanna og öfundsverðum hljómburði guðshússins í smekklegri registrun Johnstones. Einnig hann lauk sínum hluta með virtúósasmíð, Prelúdíunni og fúgunni í e-moll BWV 548 frá Leipzigárunum 1725-28. Þetta glæsiverk er meðal þekktari orgelópusa Bachs, og þó að örlaði stöku sinni á votti af stirðleika í prelúdíunni, var á hinn bóginn ekki annað hægt að segja en að gneistað hafi flugeldum af túlkun Johnstones í fúgunni sem Bretar hafa uppnefnt „Fleyg-fúguna“ (Wedge) vegna hins skoppandi aðalstefs. Það gaf eins og nærri má geta einnig tilefni til sóp- andi tilþrifa á pedal, sem Johnstone leysti af fæti af heillandi fagmennsku. Í ofanálag heyrðist hver tónn skýrt og skilmerkilega, ólíkt því sem oft verður að þola í gímaldsheyrð Hall- grímshofsins mikla á Skólavörðuhæð í hröðum leik, og var það vissulega ekki minnst um vert. Meistari meistaranna TÓNLIST Skálholtskirkja Orgel- og sembalverk eftir J. S. Bach. Ca- role Cerasi, semball; James Johnstone, orgel. Laugardaginn 27. júlí kl. 17. SUMARTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Carole Cerasi DOUGLAS A. Brotchie, organisti Háteigskirkju, er næsti orgelleik- ari á hádegistónleikum í Hall- grímskirkju á morgun, fimmtudag, kl. 12. Hann er enn einn í röð nem- enda Harðar Áskelssonar sem í sumar leika á Klais-orgel kirkj- unnar á vegum tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið á fimmtu- dögum. Á fyrri hluta efnisskrárinnar eru tvö orgelverk sem má segja að séu dæmigerð fyrir Douglas en hann leitar gjarnan uppi orgelverk sem ekki hafa heyrst hér áður. Að þessu sinni er það umritun Davids Titteringtons á verki Pauls Dukas Fanfare La Péri og Hymne eftir Jo- seph Canteloube í umritun Jean Bonfils. Bæði eru verkin frá fyrri hluta 20. aldar, eftir tónskáld sem ekki skrifuðu fyrir orgel. Þar á eftir hljóma tveir þættir úr Orgelmessu Francois Couperin. Þetta eru Domine Deus, Rex coelestis og Agnus Dei – Dona nobis pacem. Síðast leikur Douglas tvo kafla úr L’Ascension eftir Olivier Messiaen. Í íslenskri þýð- ingu heita þættirnir Yf- irveguð allelúja sálar sem langar til himins og Tryllt gleði sálmar frammi fyrir dýrð Krists sem er sín eigin. Douglas A. Brotchie er Skoti, fæddur í Edinborg. Hann hefur haldið tón- leika víða um Evrópu, bæði sem meðleikari m.a. með Söngsveitinni Fílharmóníu og ein- leikari. Douglas A. Brotchie Að hætti Brotchie Bergþóra Jónsdóttir Síðumúla 24 • Sími 568 0606 Sjónvarpsskápur 139.000 Kr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.