Morgunblaðið - 31.07.2002, Side 33
mennskuna og bara um daginn og
veginn.
Litlu dætrum mínum Hrefnu og
Söru þótti líka gaman að koma til
ykkar ömmu og vildu fá að klappa
honum Tinna sem var þó ekki eins
glaður að þiggja klappið.
Ég er þakklátur fyrir að hafa
verið í landi þegar þú kvaddir okk-
ur, elsku afi minn, og ég bið guð að
gæta hennar ömmu og gefa henni
styrk í sorginni.
Að lokum langar mig að láta
fylgja bænina sem ég lærði hjá ykk-
ur:
Faðir vor, þú sem ert á himnum,
helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji, svo á jörðu sem á
himni. Gef oss í dag vort daglegt
brauð og fyrirgef oss vorar skuldir,
svo sem vér og fyrirgefum vorum
skuldunautum. Eigi leið þú oss í
freistni, heldur frelsa oss frá illu,
því að þitt er ríkið, mátturinn og
dýrðin að eilífu, Amen.
Hvíldu í friði,
þinn sonarsonur
Ólafur Ingvar og fjölskylda.
Elsku langafi, nú ertu kominn
upp til Guðs og líður vonandi vel. Þú
varst alltaf svo góður við okkur
barnabarnabörnin, faðmaðir okkur
og kysstir. Við eigum eftir að sakna
þín mikið. Við biðjum Guð og engl-
ana að vaka yfir þér, elsku langafi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Saknaðarkveðjur við sendum
þér.
Anna Valgerður, Pálmi
Larsen og Steinar Ingi.
Kæri vinur, frændi og uppeldis-
bróðir, margar minningar leita á
hugann þegar litið er til baka. Þú
byrjaðir fljótlega á því að passa mig
í vagni þegar ég var lítill angi og
varst þá gjarnan í bílaleik með
barnavagninn, okkur báðum til
mikillar gleði. Seinna varð það ann-
að aðalstarf þitt að aka stórum bíl-
um, ásamt sjómennsku á sumrin og
þá aðallega á síld. Mér er líka minn-
isstætt hvað bílarnir voru alltaf vel
bónaðir og gljáandi. Það var ekki
hægt annað en taka eftir því, þegar
stóra tunnan á steypubílnum var
stífbónuð. Alltaf varstu glaður og
alltaf sástu skoplegu hliðarnar á líf-
inu og tilverunni í kringum okkur.
Ég minnist líka hve fallega rithönd
þú hafðir, sem hafði áhrif á dreng-
inn sem var að byrja að draga til
stafs. Árin liðu og við stofnuðum
okkar heimili. Fyrir nokkrum árum
fórum við ásamt eiginkonum okkar
vestur að Fossi þar sem Júlíana
amma var fædd og alin upp. Við
skoðuðum staðinn vel og rifjuðum
upp hennar bernsku, allt sem hún
hafði sagt okkur frá, en það var oft
erfitt. Hansína móðir hennar dó
þegar hún var fjögurra ára og faðir
hennar þegar hún var rétt ófædd,
Guðrún amma hennar tók hana þá í
fóstur, en hún þurfti að fylgja níu
börnum sínum í gröfina út af barna-
veiki sem þá var mjög skæð. En
þessi ferð var góð og mjög ánægju-
leg þar sem við sátum og grilluðum
í kvöldsólinni, Við kveðjum þig,
kæri vinur, og vottum Petreu, börn-
um og barnabörnum, okkar innileg-
ustu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði.
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Guðmundur T.
og Petrína Rósa.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 33
Elsku afi, nú er kom-
ið að kveðjustund mun
fyrr en ég átti von á.
Þið amma komuð í
heimsókn til okkar í Bólstaðarhlíðina
í upphafi vikunnar og voruð í tvo
daga. Þá voruð þið bæði hress og kát
eins og alltaf og grunaði mig ekki að
þetta væri í síðasta sinn sem ég ætti
eftir að sjá þig, afi minn.
Ég man þegar ég var lítill strákur
og kom í heimsókn til afa og ömmu á
Akureyri var það alltaf það fyrsta
sem við afi gerðum að fara út í búð og
kaupa íspinna til að eiga í frystinum
á meðan á heimsókninni stæði. Einn-
ig var alltaf gaman að fara með afa út
í bílskúr og sjá hvað hann var að
dunda sér við þar því alltaf hafði
hann eitthvað fyrir stafni í bílskúrn-
um.
Þegar ég kom til ykkar núna
seinni árin var ég alltaf á hálfgerðri
hraðferð því þá var ég að fara að
keppa á Akureyri og hafði því ekki
mikinn tíma. En samt sem áður hafði
ég það sem sið að kíkja alltaf í smá
heimsókn því það var alltaf voða
notalegt að setjast inn í eldhús hjá
ykkur og ræða um daginn og veginn.
Þinn
Fannar Örn Þorbjörnsson.
Kristinn Steinsson er fallinn frá.
Ég átti því láni að fagna að starfa
með Kristni hátt á þriðja ártatug,
fyrst við nýsmíðar skipa en síðar við
ýmsar hliðar stálvirkisframkvæmda
hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri. Þar
var hann verkstjóri allan þann tíma
sem við unnum saman. Ég hitti
Kristin á förnum vegi skömmu fyrir
andlát hans. Þá var hann hress, glað-
ur og léttur í máli eins og hans var
vandi. Mér flaug fyrst í hug þegar ég
heyrði um lát hans nokkrum dögum
síðar að hér hefði það sem einatt ein-
kenndi Kristin enn komið fram.
Hann var vanur að framkvæma
hvaðeina, sem kannski vafðist fyrir
öðrum, af atorku og snerpu. Kristinn
var þátttakandi í því mikla, en oft
erfiða, ævintýri sem nýsmíðar skipa
voru. Þar nýttist vel glöggskyggni
hans og áræði. Heita má að nýsmíða-
tími stálskipa hafi verið samfelldur
þróunartími allt þar til úr þeim dró
um miðjan níunda áratuginn, er Ís-
lendingar höfðu ekki lengur dug, um
sinn, til að sinna svo erfiðum verk-
efnum. Kristinn lagði sitt til og tók
þátt í þessari þróun af lífi og sál. Það
var líkara að hér færi ungur maður
en ekki maður á seinni hluta starfs-
aldurs síns. Ég minnist þess ekki að
okkur greindi nokkurn tíma veru-
lega á meðan hann vann undir minni
stjórn. Það sýnir gerla hve vel hann
stillti skap sitt jafnan, en hann var
mjög skapmikill maður. Á sínum
KRISTINN
GUÐVARÐUR
STEINSSON
✝ Kristinn Guð-varður Steinsson
fæddist á Þverá í
Ólafsfirði 29. ágúst
1930. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 20.
júlí síðastliðinn og
var útför hans gerð
frá Akureyrarkirkju
30. júlí.
tíma var sett á stofn ný
deild, sem enn starfar, í
Slippstöðinni hf. til
þess að sinna þá ört
vaxandi markaði fyrir
smíðar úr ryðfríu stáli
um borð í fiskiskipum.
Þá var mikill vandi á
höndum að finna réttan
mann til að veita henni
forstöðu. Kristinn tók
þetta krefjandi starf að
sér og sinnti því yfir
áratug af alúð. Enn er
ótalið hve uppörvandi
það var að starfa með
Kristni. Hann var úr-
tölumaður enginn og ætíð reiðubú-
inn að varpa sér til höggs við ný
verkefni og reyna nýjar leiðir þótt
leikslok lægju ekki fyrir.
Að leiðarlokum óska ég honum
góðs á nýjum slóðum og sendi sam-
úðarkveðjur til Jóhönnu konu hans
sem ég kynntist lítillega, en mjög að
góðu. Einnig sendi ég samúðar-
kveðjur til barna hans og þeirra
tengslafólks.
Gott er að minnast góðs drengs.
Jóhannes Óli Garðarsson.
Þegar ég var níu ára flutti ég með
móður minni á sveitabæinn Garð í
Ólafsfirði. Þessi bær var í nær
þriggja km fjarlægð frá kauptúninu,
en þangað þurfti ég að ganga í skóla
næstu fimm vetur.
Pasturslitlum bæjardrengnum
sem undanfarna tvo vetur hafði
gengið eftir raflýstum götum nokkur
hundruð metra í skólann leist nú
ekki meira en svo á komandi skóla-
daga. Það hlutu að verða mikil við-
brigði að þurfa að ganga marga km
daglega í skólann eftir ómerktum,
óupplýstum og snjóþungum vegi
sem aldrei var mokaður.
Það er því viðbúið að skólasóknin
hefði orðið stopul hefðu örlögin ekki
hagað því þannig, að á næsta bæ,
Auðnum, sem var einum km fjær
skólanum en heimili mitt, flutti um
þetta leyti barnmörg fjölskylda.
Í barnahópnum var einn jafnaldri
minn, Kristinn Guðvarður Steinsson,
eða Kiddi í Auðnum eins og hann var
gjarnan kallaður.
Kidda skorti hvorki kjark né kraft
og það voru ekki margir dagar á
hverjum vetri sem hann var veður-
tepptur heima. Af þessu naut ég
góðs og allan skyldunámstímann
urðum við samferða í og úr skóla.
Væri veðrið það vont að Kiddi færi
ekki í skólann sat ég heima.
Ekki létum við alltaf nægja sam-
fylgdina í og úr skóla, því að oft
sáutm við einnig saman í tímum við
tveggja manna borð.
Á bernskuárum okkar gafst lítill
tími til leikja, því að oftast voru nóg
verkefni í sveitinni og tókum við þátt
í þeim eftir getu.
Leiðir okkar lágu því ekki mikið
saman utan skólagöngunnar.
Engu að síður varð Kiddi sá
bernskuvinur sem ég átti bestan. Í
fari hans var það sem einkennir góð-
an vin: óeigingirni, tillitssemi og
trygglyndi.
Eftir ferminguna skildi leiðir um
sinn. Kiddi fór ungur að heiman og
vann fyrir sér við ýmis störf, en ég
hélt skólagöngunni áfram.
Eftir allmörg ár hittumst við að
nýju. Þá hafði Kiddi eignast bráð-
fallega kærustu, hana Jóhönnu, sem
síðar varð eiginkona hans.
Og aftur áttum við samleið í skóla.
Kiddi var afar verklaginn og vand-
virkur maður. Það var því ánægju-
legt að hann dreif sig í iðnnám og
lærði vélvirkjun.
Þegar Kiddi hóf nám í Iðnskólan-
um í Ólafsfirði var ég kennari við
skólann. Ég get ekki neitað því að
heldur hefði ég nú viljað setjast við
hlið hans eins og forðum daga en
sitja andspænis honum og hlýða hon-
um yfir námsefnið, sem ég bjóst við
að yrði honum erfitt eftir svo langt
hlé frá námi.
En Kiddi lét það ekki á sig fá þótt
hann væri rúmum áratug eldri en
flestir bekkjarbræður hans og kæmi
mun verr undirbúinn til námsins.
Hann hafð t.d. aldrei lært dönsku og
ég man að ég hikaði við að láta hann
lesa danskan texta upphátt fyrir
bekkinn í fyrsta sinn. En hik mitt og
kvíði voru ástæðulaus því að iðn-
skólanámið leysti Kiddi af hendi af
sömu kostgæfni og allt annað sem
hann tók sér fyrir hendur.
Um nokkurra ára skeið bjuggu
Kiddi og Jóhanna í Ólafsfirði. Fjöl-
skyldur okkar bundust sterkum
vinaböndum. Börnin okkar léku sér
saman og konurnar okkar áttu
margar góðar stundir saman.
Eftir að Kiddi lauk náminu vann
hann um skeið við iðn sína hjá vél-
smiðju hér í bænum, en 1963 gerðist
hann verksmiðjustjóri síldar- og
beinamjölsverksmiðju hér og sá m.a.
um endurbætur og uppbyggingu
hennar.
Haustið 1967 flutti fjölskyldan svo
til Akureyrar þar sem Kiddi gerðist
starfsmaður Slippstöðvarinnar og
þar vann hann lungann úr starfsævi
sinni, eða í þrjá áratugi.
Þegar Kiddi lét af störfum þar,
vegna þess að hann hafði náð þeim
aldri er fyrirtækið setti endapunkt-
inn við, var hann enn með mikinn
starfsvilja og starfsþrek. Þessi
atorkusami maður hafði getið sér svo
gott orð með verkum sínum að marg-
ir, sem þurftu að breyta og bæta á
heimilum sínum, leituðu til hans.
Þeir vissu að í höndum þessa þús-
undþjalasmiðs var málum vel borgið.
Kidda skorti ekki verkefni, og allt
fram á síðasta dag var hann að verki.
Eftir flutninginn til Akureyrar
urðu samskipti okkar að sjálfsögðu
minni og samverustundirnar færri,
en margar ánægjustundir áttum við
þó saman í Litluhlíðinni og Lyng-
holtinu.
Þær stundir verða því miður ekki
fleiri, því Kiddi lést 20. þ.m.
Með honum er fallinn í valinn góð-
ur drengur, dagfarsprúður og
traustur.
Farðu í friði, vinur minn, og hafðu
þökk fyrir áratuga tryggð og vináttu.
Hreinn Bernharðsson.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284
Ný legsteinagerð
Einstakir legsteinar
Legsteinar og englastyttur
Helluhrauni 10 220 Hf., s. 565 2566
Englasteinar
!"# $$%
#&
!
"
#
$%&%
'#(# )* +
'#,* + -. *)# +
## + ./ +./ + 0)
##1/)0 ## #)+)+-
'(
23
456325
77# )) #, #
"6)+,
#7 #
) *
+
#
!
-
$$
/) ) +#1/)1#)#1/)
0 1#)#1#)#1/)-
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef
útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: Í sunnudags- og
þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. Í miðviku-
dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins til-
tekna skilafrests.
Skilafrestur
minningargreina