Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 34

Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Að lokum eftir langan dag, er leið þín öll, þú sest á stein við veginn og horfir skyggnum augum yfir sviðið, eitt andartak. Og þú munt minnast þess, að eitt sinn endur fyrir löngu, lagðir þú upp frá þessum sama stað. (Steinn Steinarr) Þegar komið er að leiðarlokum í langri og sérstæðri ævi Siggu, eins og hún var ævinlega kölluð, langar mig að minnast hennar nokkrum orðum. Það er oft sagt að sumt fólk sé, eða hafi verið uppi á röngum tíma. Svo var um hana. Örlaganornir spunnu sinn vef við vöggu hennar. Það komu fljótlega í ljós skapgerðarbrestir, sem nú mundu flokkast undir geðfötlun – þá var þetta orð ekki til – engir fé- lagsfræðingar – engin eða lítil sam- félagshjálp, síst af öllu til sveita. Að þeirra tíðar hætti hlaut hún enga menntun, utan stuttrar barna- fræðslu, slíkt þekktist ekki þá um fátæk sveitabörn – allra síst stúlk- ur, en Sigga hafði góða náttúru- greind og óvenju trútt minni, sem hún hélt fram á síðustu stundu. Þegar Sigga var um þrítugt kom á heimilið kaupamaður – ungur maður ættaður sunnan með sjó. Sigga felldi ástarhug til þessa manns, sem mig grunar að ekki hafi verið gagnkvæmt. Þó fór svo að þau SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR ✝ Sigríður Einars-dóttir fæddist á Egilsstöðum í Flóa 25. febrúar 1914. Hún andaðist á Hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði 18. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Helga Hannes- dóttir og Einar Ein- arsson. Hún átti þrjú systkini, Einar, Sig- urþór og Sesselju Guðbjörgu. Sigríður eignaðist tvö börn, Sigurjón, f. 1944, og Guðrúnu Lilju, f. 1948, Ingvabörn. Útför Sigríðar fór fram í kyrr- þey 27. júlí. hófu búskap í skjóli móður hans og eign- uðust þau dreng fædd- an 1944. Er hún gekk með seinna barn þeirra, telpu fædda 1948, slitu þau samvistum. Í angist leitar hún til síns bernskuheimilis, en þar var engrar mis- kunnar að vænta. Án allrar vorkunnar voru börnin hennar tekin frá henni og ráðstafað til uppeldis annars staðar – sú ráðstöfun var þung byrði á viðkvæma og stór- brotna lund Siggu minnar. – Slíkum atburðum gat hún ekki gleymt og hatrið til þeirra sem verknaðinn framkvæmdu, var djúpt og sárs- aukafullt. Þá er það sem ég óafvitandi dregst inn í atburðarásina, því ég var nýbúin að tengjast fjölskyldu þess sem valdið hafði. Það var ekki nóg að börnunum væri komið fyrir – henni sjálfri þurfti að ráðstafa, svo hún gæti unnið fyrir brauði sínu. Á mínu bernskuheimili – Snæ- foksstöðum í Grímsnesi, stóð svo á að móðir mín var fallin frá fyrir fáum árum og ég nýfarin í búskap – þarna vantaði vinnukraft, þangað skyldi hún fara. Og þar með hófust okkar kynni, þó dvöl hennar heima yrði ekki löng, eða þrjú ár – slitnaði aldrei sá kunningsskapur, hvorki við mig né eldri bróður minn og hans konu, sem alla tíð reyndust henni trygg og góð og svo var um fleiri – þó engin nöfn verði nefnd. Næstu árin dvaldi hún á ýmsum bæjum í Árnessýslu, en vegna skap- gerðar hennar átti hún bágt með að umgangast fólk og það hana. Og til að gera langa sögu stutta – þá er hún komin inn á dvalarheim- ilið Ás í Hveragerði aðeins 48 ára gömul og er þá dæmd öryrki og er sú stofnun búin að vera hennar heimili í 40 ár. Fyrstu tvo áratugina vann hún á heimilinu ef á þurfti að halda, svo sem að hjálpa til í eld- húsi, ýmis störf við garðyrkju, berjatínslu o. fl. og vann hún sér inn smá aukaþóknun með því. Hún fór sínar eigin leiðir í peningamálum, hún fór aldrei í búð, keypti sér aldr- ei neitt – hvorki fatnað né annað. Hún leit til „lilja vallarins og fugla himinsins“, eins og stendur í helgri bók. Hún fór aldrei til læknis fyrr en nú í banalegunni, hún tók aldrei nein meðöl, ekki einu sinni magnyl- töflu. Þegar aldur færðist yfir og flest- um þykir sjálfsagt að fá sér lesgler- augu – eða viðgerð á tönnum, það var Siggu framandi og ógnvekjandi og aldrei hafði hún inn á hár- greiðslustofu komið. Af eðlilegum orsökum gat hún ekki lesið eins og hún hafði gert áð- ur – eða horft á sjónvarp – því hún var í eðli sínu fróðleiksfús og hafði yndi af músík og með afbrigðum lagviss, en hún einangraði sig frá öllum mannfagnaði. Góðhjartað fólk rétti henni eina og eina flík, nýja eða notaða og var það undir hælinn lagt hvort hún vildi þiggja og nota, og fékk þetta sama fólk ekki alltaf blíðar mót- tökur og lét hún á stundum ýmis orð falla sem sveið undan. Þegar Tryggingastofnun ríkisins fór að senda íbúum dvalarheimila svokallaða vasapeninga, tók hún aldrei við þeirri greiðslu og runnu þessir aurar inn á bók á hennar nafni. Þegar þessi upphæð náði einni miljón króna var hætt að senda þessa peninga, þar sem sýnt þótti að hún þyrfti ekki á þeim að halda. Þá var henni ráðlagt að gefa þetta til heimilisins – og það gerði hún. Þetta var fyrir nokkrum árum, en ég hef ekki ennþá séð eða heyrt sagt frá þessu í neinum fjölmiðli, en ég reikna með að þetta sé einstakt. Hún bar djúpa virðingu fyrir kirkju og kristinni trú, en samt gaf sú trú henni enga sálarfró eða frið. Hún kveið dauðanum, vildi helst aldrei um hann vita. Hún þráði ljós- ið, en lifði í skugga alla ævi. Starfsfólk Dvalarheimilisins Áss í gegnum árin á þakkir skilið, því auðvelt hefur ekki verið að gera Siggu til hæfis, en hún hefur heldur ekki verið dýr dvalargestur, hún gerði ekki miklar kröfur til þæg- inda. Á þessari stundu verður mér hugsað til barnanna hennar og af- komenda, ég sendi þeim hlýjar kveðjur, þau hafa misst móður – móður sem þau aldrei áttu. – Bless- uð sé minning hennar. Rósa Sveinbjarnardóttir. ✝ Björn JónatanBjörnsson fædd- ist á Múla í Sanda- sókn í Dýrafirði 26.1. 1925. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 23. júlí síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Anna Jón- atansdóttir hús- freyja í Ásgarði, Tálknafirði, f. 3.8. 1889, d. 8.10. 1973, og Björn Filippus Andrésson, f. 8.6. 1889, d. 1924. Fóst- urfaðir Björns var Eggert Magnússon sjómaður, f. 12.4. 1904, d. 19.6. 1990. Björn ólst upp hjá móður sinni og fósturföð- hennar voru Jóhanna Bjarnadótt- ir og Helgi Símonarson frá Þing- eyri við Dýrafjörð, þá búsett á Patreksfirði. Börn Huldu og Björns eru: 1) Guðmundur Helgi, f. 16.12. 1947, hans maki er Hjör- dís Karlsdóttir og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. 2) Jó- hanna, f. 3.10. 1951, hennar maki er Erling Rafn Ormsson og eiga þau þrjú börn og fimm barnabörn. 3) Eggert, f. 9.4. 1954, hans maki er Ragnheiður Gísladóttir og eiga þau þrjár dætur og tvö barna- börn. 4) Gunnar Óli, f. 20.2. 1958, hans maki er Jóna Júlía Böðvars- dóttir og eiga þau þrjár dætur og eitt barnabarn. 5) Anna, f. 2.5. 1959, hennar maki er Sigurður Ingi Guðmundsson og eiga þau tvö börn, Anna á tvo syni frá fyrra hjónabandi. 6) Ingibjörg, f. 14.2. 1961, d. 28.12. 1962. Útför Björns fer fram frá Pat- reksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. ur í Tálknafirði. Hann var sjómaður frá 14 ára aldri, og tók próf í siglingafræði á Ísa- firði 1965. Hann var skipstjóri á eigin bát- um og var með útgerð á Patreksfirði allt til dánardags. Systkini Björns voru Aðalheið- ur Björnsdóttir, látin, Valdimar Bernódus Ottósson, Guðmund- ur, Magnús Jóhann Helgi, látinn, Guð- bjartur og Ari Egg- ertssynir. Björn giftist hinn 6.3. 1948 Huldu Guðbjörgu Helgadóttur, f. 5.10. 1925, d. 6.3. 2000. Foreldrar Elskulegur tengdafaðir minn er til moldar borinn í dag. Margs er að minnast þegar hugsað er til baka, en það eru rúm þrjátíu ár síðan ég kom á heimili tengdaforeldra minna. Það var alltaf mikil tilhlökkun hjá börnunum okkar Helga þegar ákveðið var að fara að heimsækja afa og ömmu á Patró, og auðvitað var strax farið á höfnina að líta á bátana hans afa, það kom fyrir að siglt var út á fjörðinn. Bjössi var farsæll sjómaður, hann var gætinn, og fiskaði alla tíð vel. Hann fór sína síðustu sjóferð sl. vor á grásleppu, með honum var Ingvar, sonur Hjartar Skúla- sonar, sem lengi var með Bjössa til sjós. Hjörtur og Bjössi voru miklir félagar, en Hjörtur lést fyr- ir nokkrum árum. Feðgarnir Eggert og Bjössi voru saman með útgerðina síðustu árin. Bjössi var farinn að finna til slappleika síðustu mánuðina og fann að hann gat ekki tekið til hendinni eins og hann var vanur, en var alltaf á bryggjunni þegar Eggert kom að landi og hjálpaði til við löndun og þess háttar. Sjó- mennskan átti hug hans allan og ég hef ekki tölu á hve marga báta hann átti, en hann hugsaði vel um þá, á vorin voru þeir teknir í gegn og málaðir áður en farið var til veiða. Snyrtimennskan kom fram á heimilinu líka, eftir að Hulda lést, en hún lést fyrir rúmum tveimur árum. Sá hann um að alltaf væri allt fágað og fínt, og allt væri eins og Hulda hefði viljað hafa það. Elsku tengdapabbi, við Helgi er- um þakklát fyrir þær ánægjulegu stundir sem við áttum með þér síð- astliðið vor þegar við vorum hjá þér á Patró. Við fjölskyldan kveðj- um þig með söknuði, en vitum að það hefur verið tekið vel á móti þér. Guð blessi þig og varðveiti. Hjördís. BJÖRN JÓNATAN BJÖRNSSON             8 38823  6 / $$ *#&   .   /  0 !  1   !      +!           $1%% # )8 #+    8## 0) ))#.#) +  '"))9 * 8## 0) 8 8## 0)  )) +  .#) )#8## +  :))10 .,#)) 0) 88## +  ;     0) ,"8## 0) # # .#+ +   /)) 0) 1#)#1/)0 1#)#1#)#1/)- 2  "    "   3     ! / !             . 5<6  * 7 # #- 4 *   5 /) ) +#1/) 1#)#1/)0 1#)#1#)#1/)- 2  " 5    / 3/ !     (     .        ' 4  38( = 38:<  8)+# #) #>? (0  1@- # )AB  +  0  / +- 6.  .5=23  = 3(    /  4  "   7    8    /      5 "5 #))#'") +  9))# 0)- 9  "  !   !   "  3 /   / 3/ !     8  23 =  #&/  C>  #&- .#+-#01 0)  1 / .#+ +  (# )* .##+ 0) #01.#+ 0) * #))# # #) +  )).#+ 0) 8# .# ) +  8*).#+ +  /.#+ +  ). # # 0) 1#)#1/)0 1#)#1#)#1/)- 6   38( .  2 7 C   '#'#+ -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.