Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 44
FÓLK Í FRÉTTUM
44 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSLIÐ plötusnúða Íslands
reyndi með sér í skífuskanki í
fimmta sinn í Tjarnarbíói um helg-
ina.
Keppt var í tveimur riðlum, syrpu-
og skankriðli, en sigurvegarar í þeim
fyrrnefnda munu taka þátt í Skand-
inavíuriðli Vestax Extravaganza-
plötusnúðakeppninnar sem fram fer
í Osló í Noregi, en þetta er í fyrsta
sinn sem Íslendingar taka þátt í
þeirri keppni.
Það var Dj Intro sem var hlut-
skarpastur í syrpu-riðlinum en á
hæla hans fylgdu Dj Nino og Dj Big
Gee. Í skank-riðlinum voru það svo
þeir Dj Mad, Dj Tveirablár og Dj
Intro sem röðuðu sér í efstu sætin.
All tóku tíu manns þátt í keppn-
inni, sem að sögn Ómars Ómars, liðs-
manns í áhugamannafélaginu TFA
og aðalskipuleggjanda Skífuskanks-
ins, tókst mjög vel.
Auk plötusnúðanna tíu kom fram
skrykkdanshópurinn The 5th Elem-
ent sem tók nokkur spor ásamt koll-
egum sínum í Sushi frá Noregi og
360 frá Bandaríkjunum.
Skífuskank
og Fimmta
frumefnið
TENGLAR
.....................................................
www.tfa.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Einbeitingin
leyndi sér
ekki.
Dj Intro stóð
uppi sem
sigurvegari
kvöldsins.
Auglýsing
um álagningu opinberra
gjalda á árinu 2002
Í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, er hér
með auglýst að álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds, á árinu 2002 er
lokið á alla einstaklinga sem skattskyldir eru samkvæmt framangreindum lögum,
sbr. I. kafla laga nr. 75/1981.
Álagning gjalda á lögaðila mun liggja fyrir síðar og verður auglýst sérstaklega.
Álagningarskrár með gjöldum einstaklinga verða lagðar fram í öllum skattumdæm-
um miðvikudaginn 31. júlí 2002. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers
skattumdæmis og hjá umboðsmanni skattstjóra eða þjónustuaðila hans í hverju
sveitarfélagi dagana 31. júlí til 14. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Skattseðlar er sýna álögð opinber gjöld 2002, vaxtabætur og barnabætur hafa verið
póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, vaxtabóta og barnabóta, sem gjaldend-
um hefur verið tilkynnt um með skattseðli 2002, þurfa að hafa borist skattstjóra eigi
síðar en föstudaginn 30. ágúst 2002.
Reykjavík, 31. júlí 2002
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Ólafur Páll Gunnarsson
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson
!
!
"# %# &!
!
''