Morgunblaðið - 17.08.2002, Page 1

Morgunblaðið - 17.08.2002, Page 1
191. TBL. 90. ÁRG. LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 17. ÁGÚST 2002 JÓHANNES Páll II. páfi kom í gær í heimsókn til föðurlands síns, Póllands, og er þetta í níunda sinn sem hann fer þangað eftir að hann var kjörinn páfi árið 1978. Hann fór að þessu sinni til heimaborgar sinnar, Kraká, en þar var hann erkibiskup áður en hann varð páfi. Hann veifar hér til aðdáenda sinna á Belice-flugvelli við komuna í gær. Karol Wotyla, eins og páfinn hét áður en hann varð eftirmaður Péturs postula í Róm, er nú orðinn 82 ára gamall og mjög heilsutæp- ur. Er talið að hann þjáist m.a. af Parkinsonsveiki. Reuters Páfinn á heimaslóðum DALAI Lama, andlegur leið- togi Tíbeta í útlegð, fær ekki að koma til Rússlands, eftir því sem talsmaður rússneska utan- ríkisráðuneytisins greindi frá í gær. Er þetta í annað sinn á innan við ári sem Dalai Lama er meinuð landvist í Rússlandi. Sagði talsmaðurinn, Borís Malakhov, að rússnesk stjórn- völd hefðu áhyggjur af því að hin áformaða heimsókn hefði pólitískan tilgang. „Er við íhuguðum þetta þurftum við auðvitað að taka tillit til afstöðu Kína, en stjórn- völd þar líta pólitíska starfsemi Dalai Lama mjög neikvæðum augum,“ sagði Malakhov og dró þar með enga dul á ástæðu landvistarneitunarinnar. Fulltrúar búddista í Rúss- landi mótmæltu ákvörðuninni. Rússland Dalai Lama vísað frá Moskvu. AP. JOHN Prescott, aðstoðarforsætis- ráðherra Bretlands, sagði í gær, að „skoðanaskipti“ um hugsanlega árás Bandaríkjamanna á Írak ættu sér stað innan stjórnarinnar en neitaði því, að mikill klofningur væri meðal ráðherranna. „Það er enginn alvarlegur ágrein- ingur innan stjórnarinnar,“ sagði Prescott en í sumum fjölmiðlum er fullyrt, að til „uppreisnar“ geti kom- ið í Verkamannaflokknum hyggist Tony Blair forsætisráðherra krefj- ast stuðnings við stefnu George W. Bush Bandaríkjaforseta í Íraksmál- um. Mark Seddon, ritstjóri tímaritsins Spectator, telur að Robin Cook, fyrrverandi utanríkisráðherra, sé líklegur til að fara fyrir uppreisn- inni en náinn vinur Cooks ber það til baka. Hann staðfesti hins vegar, að Cook hefði miklar áhyggjur af hugsanlegri árás á Írak. Þá er það haft eftir Gordon Brown fjármála- ráðherra, að hann óttist, að stríð í Írak geti haft mjög alvarleg áhrif á efnahagslífið í heiminum. Blair er sá evrópskur leiðtogi, sem helst hefur stutt Bush en marg- ir Bretar efast um lögmæti þess að ráðast á Írak án umboðs frá Sam- einuðu þjóðunum. Aðeins 28% breskra kjósenda styðja hugsanlega árás. Í Bandaríkjunum er líka vaxandi ágreiningur um árás á Írak, ekki síst meðal repúblikana sjálfra. Vaxandi ágreiningur um Írak í Bretlandi og Bandaríkjunum Blair sagður eiga á hættu „uppreisn“ London. AFP.  Vaxandi kurr/28 ÞÚSUNDIR íbúa Dresden, höfuð- borgar Saxlands, þurftu í gær að flýja heimili sín er flóðið í Saxelfi náði sögulegu hámarki. 33.000 Dresden- búar höfðust í gær við í bráðabirgða- skýlum, er flóðvatnið umlukti sögu- frægar byggingar borgarinnar og stefndi í að valda óbætanlegu tjóni á þeim, þótt vonir stæðu til að takast myndi að forða listaverkum sem þær hýsa frá varanlegum skaða. Liðsmenn björgunarsveita gáfust í gær upp á því að dæla mórauðu flóð- vatninu upp úr kjallara hins glæsi- lega Semper-óperuhúss, sem byggt var á 19. öld og miklu hafði verið til kostað að endurbyggja eftir eyði- leggingu síðari heimsstyrjaldar. Flóðhæð Saxelfar reis upp fyrir níu metra í gær, sem er það mesta frá því mælingar hófust. Fyrra met var 8,76 m, en það mældist árið 1845. Talsmenn borgaryfirvalda greindu frá því í gær að búizt væri við því að flóðið næði hámarki í dag, laugardag. Vatnsmassinn sem nú berst niður með Saxelfi og hefur skapað neyðar- ástand í bæjum og borgum er við ána standa, er upprunninn í Tékklandi, þar sem hann olli m.a. miklum spjöll- um í höfuðborginni Prag. Í Magde- burg, sem er um 200 km niður með fljótinu, norðar í austurhluta Þýzka- lands, hefur um 20.000 manns verið gert að búa sig undir að yfirgefa hús sín. Kennslubyrjun eftir lok sumar- leyfa var frestað í skólum í fjölda sveitarfélaga sem að Saxelfi liggja. Hundruða milljarða tjón „Við eigum von á því að yfirborðið hækki í 9,5 m á næstu fimm tímum [sem er nærri fimm sinnum meira en meðalrennsli í ánni], og fari þá smám saman að lækka aftur,“ sagði Matth- ias Rössler, menningarmálaráðherra þýzka sambandslandsins Saxlands. Eftir fund með stjórnendum lista- safna borgarinnar sagði hann tjónið stefna í að verða gríðarlegt. Allt í allt muni að hans sögn verða þörf á allt að tveimur og hálfum milljarði evra, andvirði um 210 milljarða króna, til að gera við skemmdir í Dresden einni, ef flóðið í ánni rénar ekki fljótt. Heildartjónið í Saxlandi gizkaði hann á að yrði tvöfalt meira. Lögregla, slökkviliðs- og björgun- arsveitarmenn og sjálfboðaliðar kepptust við að hlaða sandpokavirki og bjarga listaverkum úr hættu á vatnsskemmdum í listaverkasöfnum eins og hinni frægu Zwinger-höll og Albertinum-safninu. Í Prag meinuðu yfirvöld enn íbú- um húsa í miðborginni að snúa aftur til heimila sinna, þar sem hætta er á að hús og hallir hrynji eftir að flóðvatnið gróf undan undirstöðum þeirra. Þetta gæti líka gerzt í Dresden. Fjöldi látinna vex Staðfestur fjöldi þeirra sem hafa látið lífið í flóðunum í Mið- og Austur- Evrópu undanfarna viku er nú kom- inn í 103, eftir að tékknesk yfirvöld fundu lík tveggja drukknaðra manna. Í Saxlandi hækkaði í gær opinber tala yfir fjölda fórnarlamba flóðanna Þýzkalands megin landamæranna í 12. Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, bauð í gær ríkisstjórn- arleiðtogum Austurríkis, Tékklands og Slóvakíu, auk forseta fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, á fund um viðbrögð við flóða- hörmungunum í kanzlarahöllinni í Berlín á sunnudaginn. Talsmenn framkvæmdastjórnar ESB sögðu það í gær of snemmt að meta hvort flóðin og sá kostnaður sem af þeim hlýzt muni spilla fyrir möguleikum þýzkra stjórnvalda á að standa við skilyrði stöðugleikasátt- mála Efnahags- og myntbandalags- ins (EMU), sem takmarkar mjög svigrúm aðildarlandanna til að reka ríkissjóð með halla. Fari hallinn upp fyrir 3% af landsframleiðslu á við- komandi land yfir höfði sér sektir. Fulltrúar þýzku stjórnarinnar ósk- uðu í gær eftir viðræðum við fram- kvæmdastjórnina um áhrif flóðanna á ríkisfjármálin. Staða þeirra er nú slík, að lítið má út af bregða til að hallinn fari upp fyrir 3%-mörkin. Mesta flóð sögunnar í Saxelfi veldur gríðarmiklu tjóni í Dresden og víðar í Þýzkalandi Stefnir í óbætanleg- an skaða Reuters Íbúar í Dresden vinna að byggingu sandpokavirkja til að verja byggingar í miðborginni fyrir flóðinu í Saxelfi. Neyðarástandi var lýst yfir í Saxlandi vegna flóðanna, sem eru hin mestu frá því mælingar hófust. Dresden, Prag. AP, AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.