Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKnattspyrnumaður grunaður um
neyslu ólöglegra lyfja / B1
Valsmenn komnir upp í efstu
deild á ný / B3
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM Morgunblaðinu í dag fylgir auglýsingablað,SUÐUR UM HÖFIN frá Heimsklúbbi Ingólfs.
Blaðinu er dreift um allt land.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra situr fund forsætisráð-
herra Norðurlanda og Eystra-
saltsríkjanna í Riga í Lettlandi
á mánudag.
Í tilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu segir að Davíð
haldi frá Lettlandi til Litháens í
tveggja daga opinbera heim-
sókn.
Í tilkynningunni kemur fram
að hinn 21. ágúst verði haldinn
fundur forsætisráðherra Ís-
lands, lögmanns Færeyja og
formanns grænlensku heima-
stjórnarinnar í Þórshöfn í Fær-
eyjum. Dagana 22.–23. ágúst
verður Davíð í opinberri heim-
sókn í Færeyjum.
Davíð í opin-
berri heim-
sókn í Litháen
og Færeyjum
VÍÐTÆK leit björg-
unarsveitarmanna
Slysavarnafélagsins
Landsbjargar að
ítalska ferðamannin-
um Davide Paita á
Látraströnd í Eyja-
firði bar engan ár-
angur í gær. Leitin
fór fram við erfiðar
aðstæður, þar sem
þoka var á torfæru
leitarsvæðinu. 70
björgunarsveitar-
menn leituðu í gær á
svæðinu milli Látra-
strandar og Hval-
vatnsfjarðar en án ár-
angurs.
Í gærkvöld og nótt áttu 70 leit-
armenn frá björgunar-
sveitum í Skagafirði,
Suður-Þingeyjarsýslu
og af höfuðborgarsvæð-
inu að bætast í hópinn.
Eru þeir allir vanir
fjallamenn með útbún-
að sem gerir þeim
kleift að vera við leit í
allt að sólarhring án ut-
anaðkomandi hjálpar.
Átti leit með viðbótar-
liðinu að hefjast klukk-
an 7 í morgun.
Vísbendingar hafa
borist sem gefa mynd
af ferðum Paita í síð-
ustu viku en þar á með-
al sást hann á umferðarmiðstöðinni
á Akureyri auk þess sem hann fékk
far með ökumönnum milli Akureyr-
ar og Grenivíkur. Hann lagði upp
frá Grenivík fótgangandi síðastlið-
inn laugardag og skrifaði í gesta-
bók í skála á Látrum. Talið er að
hann hafi síðan ætlað að ganga yfir
í Keflavík, þekkta gönguleið, og
enda förina í Hvalvatnsfirði en
grunur leikur á að hann hafi villst
af leið á Uxaskarði þar sem vara-
samt getur verið fyrir ókunnuga að
vera.
Ítala enn saknað
á Látraströnd
!
"
#
$ %
!
"
Davide Paita
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
staðfest úrskurð tollstjórans í
Reykjavík um að hafna beiðni Land-
helgisgæslunnar um niðurfellingu á
aðflutningsgjöldum af nætursjón-
aukum. Úrskurðurinn byggist á því
að þyrlubjörgunarsveit Landhelgis-
gæslunnar sé ekki björgunarsveit í
skilningi laga og reglugerða sem
kveða á um niðurfellingu aðflutn-
ingsgjalda af björgunarbúnaði.
„Okkur kemur úrskurðurinn ekki á
óvart miðað við gildandi lög og reglu-
gerðir. Þó var talið rétt að láta á
þetta reyna og vonumst við til að í
framhaldinu verði lögum breytt á
þann veg að við sitjum við sama borð
og björgunarsveitir í Slysavarna-
félaginu Landsbjörg,“ sagði Dagmar
Sigurðardóttir, lögfræðingur og
upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar.
Í úrskurðinum er bent á að í tolla-
lögum sé kveðið á um að tollur skuli
lækka, falla niður eða endurgreiðast
af björgunarbúnaði og björgunar-
tækjum, enda liggi fyrir samþykki
landssamtaka björgunarsveita á að
búnaðurinn verði einungis nýttur til
starfsemi björgunarsveita. Í reglu-
gerð um undanþágu aðflutnings-
gjalda er gerður fyrirvari um að und-
anþága verði aðeins veitt ef
samþykki samstarfsnefndar um end-
urgreiðslu aðflutningsgjalda liggi
fyrir en nefndin er skipuð fulltrúum
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og bíla- og vélanefndar ráðuneytis-
ins. Ráðuneytið taldi að skilyrðið um
samþykki nefndarinnar, þar sem
fulltrúar björgunarsveitanna eiga
sæti, fæli í sér afmörkun þeirra
björgunarsveita sem geta sótt um
niðurfellingu á aðflutningsgjöldum.
Aðeins þær sveitir sem starfi innan
Landsbjargar geti sótt um slíka nið-
urfellingu.
Landhelgisgæslan hefur þegar
fest kaup á sex nætursjónaukum auk
sérstakra hjálma sem þeir eru festir
á. Að auki þarf að kaupa svonefnt
Hoffman-box sem er notað til að
stilla sjónaukana og varahluti í þyrl-
urnar til að hægt sé að breyta lýs-
ingu í stjórnklefum þeirra en núver-
andi lýsing truflar sjónaukana. Gert
er ráð fyrir að breytingar á lýsingu
kosti alls um 16 milljónir en sú upp-
hæð gæti breyst eitthvað. Áætlaður
heildarkostnaður við kaup á nætur-
sjónaukunum er 36 milljónir króna
og hafa rúmlega 24 milljónir safnast
til kaupanna. Þyrlusjóður Stýri-
mannaskólans í Reykjavík hefur gef-
ið fjórtán milljónir, Kvenfélagið Ald-
an og Sjóvá-Almennar hf. hafa gefið
eina milljón hvor, Rauði krossinn
hefur lagt fram eina milljón og 50
þúsund og framlag dómsmálaráðu-
neytisins nemur sjö milljónum.
Stefnt er að því að taka nætursjón-
aukana í notkun í haust.
Fjármálaráðuneytið fellir ekki niður aðflutningsgjöld af nætursjónaukum
Landhelgisgæslan vonast
til að lögum verði breytt
GUÐRÚN Kristinsdóttir Lund, 10
ára, og Rut Tómasdóttir, 7 ára,
voru í heimsókn í Marteinstungu í
Holtahreppi í vikunni og brugðu
sér að sjálfsögðu í fjósið. Ekki var
annað að sjá en að nautgripirnir
væru ánægðir með þessa heimsókn.
Það er helst af kúbændum að
frétta að sala á mjólkurafurðum
hefur verið góð á síðustu misserum
og því er þörf fyrir aukna fram-
leiðslu á nýju kvótaári sem hefst
um næstu mánaðamót. Heild-
arkvótinn verður því aukinn um
tæplega 2%.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimsókn
í fjósið
FIMMTUGUR karlmaður var
lagður inn á Landspítala – há-
skólasjúkrahús eftir að hann var
sleginn niður í Tryggvagötu um
hálftvö í fyrrinótt. Vegfarandi
tilkynnti um árásina og þegar
lögregla kom á staðinn lá mað-
urinn í götunni með áverka á
andliti.
Maðurinn mundi ekki eftir at-
vikum en vitnið gat gefið grein-
argóða lýsingu á árásarmannin-
um. Lögregla taldi sig kannast
við árásarmanninn og var lýst
eftir honum. Bíll hans fannst
nokkru síðar við Hamraborg í
Kópavogi og þar var hinn grun-
aði handtekinn um áttaleytið í
gærmorgun. Hann var yfir-
heyrður hjá lögreglunni í
Reykjavík í gær.
Handtekinn
grunaður um
líkamsárás
MAGNÚS Stefánsson, alþingismað-
ur Framsóknarflokksins og formað-
ur umhverfisnefndar Alþingis,
hyggst kalla nefndina saman til
fundar við fyrsta tækifæri til að fara
yfir þá stöðu sem upp er komin í kjöl-
far úrskurðar Skipulagsstofnunar
um Norðlingaölduveitu.
,,Þessi úrskurður er ítarlegur og
vandaður og að baki hans liggur mik-
il fagleg vinna færustu manna. Ég
geri engar athugasemdir við niður-
stöðuna í þessum úrskurði,“ segir
Magnús. Fyrir liggur að úrskurður-
inn verður kærður til ráðherra og
hefur Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra ákveðið að víkja sæti þegar
þar að kemur þar sem hún telur sig
vanhæfa í ljósi ummæla sem hún við-
hafði um málið fyrir hálfu öðru ári.
Magnús segir að þetta verði áreið-
anlega tekið til umræðu í umhverf-
isnefnd og segist telja það mjög ein-
kennilegt að ráðherra, sem hefur
tjáð sig um eitthvað í almennri þjóð-
félagsumræðu, teljist vanhæfur þeg-
ar málið komi til kasta hans löngu
síðar.
Umhverf-
isnefnd
verður köll-
uð saman