Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VOLVO SE - SPECIAL EDITION ER GLÆSILEG AFMÆLISÚTGÁFA AF VOLVO S40 OG
V40 SEM ÍSLENDINGUM BÝÐST NÚ AÐ PANTA ÁÐUR EN HÚN FER Í FRAMLEIÐSLU.
MEÐ ÞVÍ LÆKKUM VIÐ VERULEGA KOSTNAÐ OG SKILUM HAGRÆÐINGUNNI AÐ
FULLU TIL ÞÍN Í LÆGRA VERÐI. AÐEINS 10% INNBORGUN OG VIÐ TÖKUM GAMLA
BÍLINN UPP Í. TAKMARKAÐ MAGN. GRÍPTU TÆKIFÆRIÐ!
STAÐALBÚNAÐU R M .A. : AB S-H E M LAK E R F I , S E X Ö RYG G I S PÚÐAR M EÐ LO FTPÚÐATJ Ö LD U M
FYR I R H L IÐAR G LU G GA, LO FTKÆ LI N G, D SA-S PÓLVÖ R N, ÁLF E LG U R O G M E I RA T I L .
VO
LVO
S
4
0
&
V
4
0
INNIFALIÐ Í SE – SPECIAL EDITION
ÁN AUKAKOSTNAÐAR ER:
• LEÐU RÁK LÆÐI
• ÞO K U L JÓS Í F RAM STUÐARA
• VI N D S K E IÐ AÐ AFTAN
• SAM LIT I R L I STAR Á H L IÐU M
O G STUÐU R U M
• MÁLM LITU R
VOLVO S40 2,0i SE – SPECIAL EDITION KOSTAR FRÁ 2.490.000 KR. KOMINN Á GÖTUNA.
REKSTRARLEIGA FYRIR FYRIRTÆKI FRÁ 46.913 KR.
A
B
X
/
S
ÍA
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
www.brimborg.is
LÁTTU DRAUMINN UM NÝJAN VOLVO RÆTAST.
Samevrópsk ráðstefna í Árnesi
Samstarf í þágu
kynjajafnréttis
BRÍET, félag ungrafeminísta, stendurfyrir lokaðri ráð-
stefnu í Árnesi í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi þar sem
rædd verður staða jafn-
réttis í nokkrum Evrópu-
löndum. Ráðstefnan ber
heitið „Samstarf í þágu
kynjajafnréttis“ og vísar
til mögulegra framfara í
jafnréttismálum með
auknu samstarfi Evrópu-
ríkja. Þátttakendur á ráð-
stefnunni koma frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Tékklandi
og Spáni, auk íslenskra
þátttakenda. Valgerður B.
Eggertsdóttir, félagi í
Bríeti, sagði Morgun-
blaðinu nánar frá ráðstefn-
unni, sem hófst í gær og
stendur til 25. ágúst.
– Hver er forsaga ráðstefnunn-
ar?
„Ástæða þess að við hjá Bríeti
réðumst í þetta verkefni var, að
okkur þótti skorta á að sjónarmið
ungs fólks kæmu fram í jafnrétt-
isbaráttunni. Hún hefur ein-
kennst af umræðu eldri kynslóða,
en vilji okkar er að auka veg ungs
fólks í jafnréttisumræðu og ræða
málin eins og þau standa í dag. Til
þess að skapa vettvang umræðna
sem næði út fyrir Ísland ákváðum
við að sækja um styrk til Evrópu-
sambandsins (ESB) um fjölþjóða-
verkefni.“
– Hvernig báruð þið ykkur að
við styrkumsóknina?
„Við sóttum um styrk, eins og
áður segir, til ESB, nánar tiltekið
til styrkjaáætlunarinnar Ungt
fólk í Evrópu. Skilyrði fyrir að
hljóta styrk er að allir þátttakend-
ur séu undir 25 ára aldri, og að um
samstarf Evrópulanda sé að ræða.
Hitt húsið sér um samskipti við
styrkjaáætlunina hér á landi og
hófum við umsóknarferlið í febr-
úar síðastliðnum. Eftir að við
fengum vilyrði ESB fyrir mynd-
arlegum styrk leituðum við sam-
starfs víða um Evrópu, og sýndu
Norðurlöndin langmestan áhuga.
Erfiðara var að ná sambandi við
löndin sunnar í álfunni. Baráttan
er mun þróaðri hér norðurfrá og
meiri gróska í umræðunni, og ef
til vill er það ástæða þess að við
höfum þátttakendur frá tveimur
Norðurlandanna, og svo frá einu
landi Austur-Evrópu, og einu í
Suður-Evrópu. Alls verðum við
um 25 talsins á ráðstefnunni.“
– Fenguð þið einnig styrki frá
innlendum sjóðum?
„Við leituðum víða styrkja,
bæði til fyrirtækja og ríkisstofn-
ana. Félagsmála- og dómsmála-
ráðuneyti ákváðu að styrkja okk-
ur, Landsvirkjun og jafnréttis-
fulltrúi Kópavogs einnig, og
þökkum við þann stuðning. Önnur
fyrirtæki sáu sér ekki fært að
styðja við bakið á verkefninu. Það
voru mun minni viðbrögð en við
bjuggumst við, en ennþá er mögu-
leiki fyrir áhugasama að bætast í
hóp styrktaraðila.“
– Hver verða við-
fangsefni ráðstefnunn-
ar?
„Verkefni okkar
verður að bera saman
löggjöf, stefnumótun
og raunverulega stöðu jafnréttis-
mála í hverju landi fyrir sig, og
munum við hafa rammaáætlun
ESB í jafnréttismálum til hlið-
sjónar við þá vinnu. Hver og einn
hópur hefur undirbúið kynningu á
stöðu mála í sínu landi, sem verð-
ur eflaust mjög fróðlegt að fá að
kynnast. Í kjölfarið verður lagst í
samanburðarvinnu og tillögur til
úrbóta lagðar fram. Þar að auki
munum við skoða vel það sem vel
er gert, bæði hér heima og erlend-
is, og nýta okkur það góða starf til
gerðar góðra hugmynda fyrir
önnur lönd.“
– Hvaða fyrirheit gefur ramma-
áætlunin?
„Rammaáætlun ESB um jafn-
réttismál, öðru nafni Framework
Strategy on Gender Equality
2000-2005, er ætlað að vera
stefnumótandi fyrir löggjöf aðild-
arlanda ESB og meðlima EES, og
landa sem áforma að sækja um að-
ild að ESB. Hún er mjög víðtæk,
og var ákveðið að taka nokkra
þætti hennar til sérstakrar skoð-
unar í vinnuhópum. Íslensku þátt-
takendurnir munu skoða sérstak-
lega foreldraorlof, jafnréttislög-
gjöfina hér á landi og þátttöku
kvenna í stjórnmálum og atvinnu-
lífi. Við munum miðla af okkar
reynslu og stöðu mála hér heima,
og þiggja í staðinn ábendingar og
úttekt á öðrum þáttum í öðrum
löndum.“
– Hafið þið einhverjar tilgátur
um mögulegar niðurstöður rann-
sókna ykkar?
„Nei, ekki nema að litlu leyti.
Það gerir ráðstefnuna mjög
spennandi og lærdómsríka fyrir
þátttakendur. Við vitum þó að
Norðurlöndin standa framar en
löndin sunnar í álfunni hvað varð-
ar jafnréttismál, og forvitnilegt
verður til dæmis að sjá hvernig
Spánn, sem aðildarland ESB, hef-
ur brugðist við rammaáætlun-
inni.“
– Ráðstefnan er haldin í Árnesi,
hvernig kom það til?
„Við töldum nauðsynlegt að
hafa ráðstefnuna utan
höfuðborgarinnar
þannig að nægt næði
gæfist til samstarfsins.
Við viljum geta unnið
markvisst og afkastað
miklu.“
– Hvaða eftirmálar verða af
ráðstefnunni?
„Unnin verður lokaskýrsla ráð-
stefnunnar að henni lokinni og
hún send ESB og löndum þátttak-
enda til ráðgjafar. Með þeim hætti
mun rödd ungs fólks heyrast
varðandi jafnréttismál og allt
kapp lagt á að starf okkar hafi
raunveruleg áhrif á framtíðina.“
Valgerður B. Eggertsdóttir
Valgerður B. Eggertsdóttir
fæddist í Reykjavík árið 1981.
Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
vorið 2001. Í MR sat hún meðal
annars í ritstjórn Skólablaðsins
og var formaður leikfélagsins Á
Herranótt. Valgerður hefur ver-
ið virk í Bríeti í rúmt ár og tekið
þátt í ýmsum verkefnum á þess
vegum. Hún stundar nú nám við
lagadeild Háskóla Íslands.
Samanburður
á jafnrétti
í Evrópu
Þá er nú bara að koma sér upp réttu græjunum og skella framlengingu á stubbinn.