Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ NÚVERANDI rekstraraðilar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er marg- ir hverjir ósáttir við að ákveðið hafi verið að efna til forvals á rekstr- araðilum á brottfararsvæði flug- stöðvarinnar en samningar um verslunarrekstur, veitingasölu og ýmsa aðra þjónustu á svæðinu renna út um næstkomandi áramót. Enn- fremur eru lagðar til breytingar á verslunar- og þjónustusvæðinu og kemur það til með að aukast um 50%, en stjórnendur flugstöðvarinn- ar gera ráð fyrir talsverðri aukningu í farþegafjölda á næstu árum. Nú- verandi rekstraraðilar sjá hins veg- ar margir hverjir ekki fram á aukn- ingu og óttast að stækkunin muni ekki standa undir sér. Kynning á forvalinu fór fram sl. fimmtudag en Höskuldur Ásgeirs- son, framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hf. (FLE), sagðist í Morgunblaðinu í síðustu viku von- ast til að fyrirhugðar breytingar bættu afrakstur og veltu flugstöðv- arinnar. Þá væri tilgangurinn með forvalinu að fá fram nýjar hugmynd- ir um rekstur í flugstöðinni og gera núverandi og nýjum rekstraraðilum kleift að koma hugmyndum sínum á framfæri. Hann sagði umsækjendur verða metna meðal annars út frá reynslu þeirra og getu. Sum svæðin ná ekki til farþeganna Rekstraraðilar í flugstöðinni voru almennt tregir til að tjá sig um for- valið við Morgunblaðið í gær m.a. þar sem það gæti mögulega haft áhrif á mat á umsóknum þeirra í for- vali. Einn þeirra sagði að rekstur í flugstöðinni hefði verið mjög erfiður og dýr skóli. Rekstrarumhverfið væri mjög sérstakt og rekstrarað- ilarnir geti haft lítil áhrif þar á held- ur þurfi þeir að vinna úr einhliða ákvörðunum FLE. Annar sagði óeðlilegt að FLE ætli sér, þ.e. frí- hafnarrekstri sínum, öll bestu versl- unar- og þjónusturýmin en aðrir verði að láta sér lynda það sem eftir er. Hann orðaði það sem svo að þarna væru svæði sem borin von væri að gætu náð til farþeganna. Verslanir á þeim svæðum mundu missa af farþegunum enda væri ver- ið að keppa um mjög knappan tíma þeirra á svæðinu. Staðsetningin skipti því öllu máli. Aftur á byrjunarreit Sævar Jónsson, kaupmaður í Leonard, er einn frumkvöðlanna í verslunarrekstri í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann segir ákvörðun stjórnar FLE um forval á rekstr- araðilum hafa komið sér verulega á óvart. „Þær verslanir sem tóku af skarið á sínum tíma fóru út í mikinn áhætturekstur og hafa fórnað miklu til að ryðja brautina. Maður er bú- inn að byggja þarna upp í fimm ár og stendur nú frammi fyrir því að aðrir geti komið, ýtt manni út og tekið upp þráðinn. Mér finnst ekki alveg sanngjarnt að verið sé að breyta ákveðnum línum sem fyrri stjórn FLE var búin að leggja. Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með þetta forval og hvernig fyrirkomu- lagið á að vera á þessu. Samkvæmt því eru menn komnir aftur á byrj- unarreit.“ Sævar hefur einu sinni flutt versl- un sína innan flugstöðvarinnar á leigutímanum. Hann segir það hafa verið mjög kostnaðarsamt en sam- kvæmt forvalsgögnum FLE, sé gert ráð fyrir að FLE fái til umráða nú- verandi verslunarrými Leonard. Sævar gæti þannig staðið frammi fyrir því að þurfa að flytja verslun sína á ný með tilheyrandi kostnaði. Hann tekur þó fram að gefið hafi verið í skyn á kynningarfundi á for- valinu að einungis væri um tillögur að skipulagi að ræða en ekki end- anlega ákvörðun. Ríkið hætti verslunarrekstri samhliða breytingunum Um fyrirhugaða stækkun á versl- unar- og þjónustusvæði flugstöðvar- innar segist Sævar ekki sjá fram á mikla aukningu í farþegafjölda á næstu árum enda hafi farþegum fækkað um hundrað þúsund á síð- asta ári. FLE geri hins vegar ráð fyrir talsverðri aukningu og hafi þar fyrir sér British Airport Authorities (BAA). Verði ekki talsverð aukning á farþegafjölda sér Sævar ekki að grundvöllur verði fyrir stækkun svæðisins. Það leiði einungis til þess að fleiri aðilar bítist um sama bit- ann. Þá telur hann fráleitt að FLE, sem er í eigu ríkisins, eigi í sam- keppni við einkaaðila í flugstöðinni og hagi því svo að fríhafnarverslun þeirra megi ein selja arðbærustu vöruflokkana, sem séu áfengi, tóbak og sælgæti. „Það hlýtur að vera tímaspursmál hvenær ríkið hættir þessum versl- unarrekstri og mér finnst eðlilegt að það gerist samhliða fyrirhuguðum breytingum. FLE mætti gjarnan huga betur að öðru máli, sem hefur verið í ólestri sl. tvö ár en það er aðkoma farþega að flugstöðinni. Biðraðir hafa aukist mjög, bæði við innrit- unarborð og í vopnaeftirliti. Það þýðir einfaldlega að fólk hefur minni tíma til að versla og á meðan kaup- menn eru bæði að borga veltugjald og háa leigu þá segir sig sjálft að all- ir tapa peningum, líka ríkið. Þennan flöskuháls þarf að laga,“ segir Sæv- ar Jónsson. Byggist allt á farþegafjöldanum Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar á Keflavíkurflug- velli ehf. sem sér um veitingarekst- ur á svæðinu, segir að öll viðskipti í flugstöðinni byggist á þeim farþega- fjölda sem fer þar um. Flugþjón- ustan eigi eftir að skoða spár FLE og leggja mat sitt á þær. „Maður hefur þó ákveðinn fyrir- vara almennt á spám um aukningu á næstu misserum. Staðreyndin er sú að það hefur dregið verulega úr um- ferð um flugstöðina og ekki fyrirséð að nokkur vöxtur verði á næstunni. Allur rekstrargrundvöllur byggist á viðskiptamannafjöldanum og við getum ekki séð að hann komi til með að aukast á næstu misserum. Stærsti viðskiptavinur flugstöðvar- innar, Flugleiðir, hefur verið að breyta sínum áherslum, töluvert hefur dregið úr flugi yfir Atlants- hafið og önnur flugfélög hafa hætt flugi til og frá Íslandi. Þannig hefur dregið úr umsvifum á flugvellinum og þetta hefur allt áhrif á möguleika fyrir rekstur í húsinu.“ Gunnar segir þó ekkert óeðlilegt við það að verslunar- og þjónustu- rýmin verði boðin út enda sé samn- ingstími núverandi leigjenda að renna út. „Það er bara spurning um þær leiðir sem farnar eru og hvaða fyrirkomulag er haft á hlutunum en um það má alltaf deila,“ segir Gunn- ar Olsen. Ýmsar breytingar koma á óvart Magnús Ólafsson, stjórnarfor- maður Íslensks markaðar, segist ekki vilja tjá sig um forvalið á rekstraraðilum fyrr en eftir að fundað hefur verið með starfsfólki fyrirtækisins í næstu viku. Um fyrirhugaðar breytingar á verslunar- og þjónusturými segir hann þó að ýmislegt hafi komið á óvart á kynningarfundi FLE á fimmtudag og þá fyrst og fremst breytingar á norðurbyggingu. Þar sé gert ráð fyrir að eyjan sem hýst hefur bankann, Leonard og minja- gripaverslunina Memories hverfi auk þess sem Fríhöfnin fái svæði gleraugnaverslunarinnar Optical Studio en Fríhöfnin taki ekki þátt í forvali rekstraraðila. Í athugun hjá Samkeppnisstofnun Rekstraraðilar í flugstöðinni lögðu í sumar fram óformlegar at- hugasemdir til Samkeppnisstofnun- ar þar sem kvartað var undan því að flugstöðin væri að hygla eigin rekstri og velja sér rými áður en leitað væri til annarra auk þess að velja sér þá vöruflokka sem mest væri upp úr að hafa. Guðmundur Sigurðsson, yfirmaður samkeppnis- mála hjá Samkeppnisstofnun, segir að vegna þessara óformlegu athuga- semda hafi Samkeppnisstofnun ósk- að eftir ákveðnum gögnum frá flug- stöðinni. Þau gögn hafi nýverið borist stofnuninni og verið sé að vinna úr þeim. Guðmundur segir óljóst með framhaldið enda sé málið í athugun og óvíst hvenær niður- staða liggi fyrir. Núverandi rekstraraðilar ósáttir við forval og fyrirhugaðar breytingar á flugstöðinni Segja flugstöðina tryggja eigin rekstri bestu bitana Óánægja er meðal fyr- irtækja í Flugstöð Leifs Eiríkssonar með þá ákvörðun stjórnar stöðvarinnar að efna til forvals á rekstraraðilum á brottfararsvæði flug- stöðvarinnar. Fyrirhug- aðar breytingar á versl- unar- og þjónustusvæði eru líka gagnrýndar. GUNNAR Þórðarson, gítarleikari og lagahöfundur, heldur tónleika í samkomuhúsinu Bragganum á Hólmavík í kvöld og hefjast þeir kl. 21. Gunnar er fæddur og uppalinn á Hólmavík og hefur verið að gera upp húsið sem hann ólst upp í að undanförnu. Hann heldur nú tvenna tónleika og fóru þeir fyrri fram í gær. Tónleikarnir eru órafmagnaðir og spilar Gunnar mörg af sínum þekktustu dægurlögum. Honum til halds og trausts eru þrír söngvarar frá Hólmavík, þau Tinna Marína Jónsdóttir, Gunnlaugur Bjarnason og Aðalheiður Ólafsdóttir, en sjálf- ur syngur Gunnar þrjú lög. Myndin var tekin á æfingu í gær og var inn- lifun fjórmenninganna mikil. Með tón- leika á æskustöðv- unum Ljósmynd/Magnús Magnússon FISKISTOFA hefur svipt Jón forseta ÓF-4 veiðileyfi næstu þrjár vikur en eftirlitsmenn fiskistofu stóðu skipverja að því að landa rúmlega 7,5 tonnum af þorski fram hjá löndunarvigt á Dalvík í júní sl. Skipstjórinn játaði brotið. Veiðileyfissviptingin gekk í gildi á miðnætti í fyrrinótt en samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu hafði báturinn þá þegar verið sviptur veiðileyfi vegna fiskveiða umfram afla- heimildir. Hafði honum verið haldið til veiða en snúið aftur með heldur meiri afla en heim- ildir voru fyrir. Slík svipting gengur til baka séu aflaheim- ildir færðar á bátinn. Jón for- seti er 31 brúttótonns eikarbát- ur. Ekki með veiðileyfi þegar hann var sviptur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.