Morgunblaðið - 17.08.2002, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ENGIN aðstaða er fyrir skólastarf í
húsnæði Klébergsskóla á Kjalarnesi
þrátt fyrir að skóli eigi að hefjast þar
eftir rúma viku þar sem verktaki við
nýbyggingu og endurbætur á eldra
skólahúsnæði hefur ekki staðið við
verkáætlun. Formaður Fræðsluráðs
Reykjavíkurborgar segir málið hafa
klúðrast.
Foreldrafélag og foreldraráð Klé-
bergsskóla buðu blaðamönnum í
heimsókn í skólann í gær þar sem
þeim var sýnt skólahúsnæðið sem
töluvert er í land að verði tilbúið und-
ir skólastarf. Skólahúsnæðið saman-
stendur af gömlu skólahúsi, sem hef-
ur verið lokað af heilbrigðisyfir-
völdum, kennsluálmu, sem að hluta
er færanlegar kennslustofur og við-
byggingu sem er ekki lokið.
Að sögn Sigþórs Magnússonar
skólastjóra er forsagan sú að í des-
ember í fyrra var foreldrum og
starfsfólki skólans greint frá því að á
þessu ári stæði til að glerja og klæða
nýbygginguna en meira yrði ekki
gert að sinni. Foreldrar hafi verið
ósáttir við þau málalok enda hafi
húsnæðismál skólans verið í ólestri
um árabil. Eftir undirskriftasöfnun
þar sem krafist var frekari aðgerða,
hafi verið samþykkt að ljúka skrif-
stofuálmu nýbyggingarinnar í sum-
arbyrjun. „Vinnu þar átti að vera lok-
ið um miðjan júní. Þá áttum við að
flytja skrifstofuna þangað og verk-
takarnir áttu að fara í að ganga frá
kennslustofunum. Við vorum búin að
tala um að við þær aðstæður hefði
verið í lagi að því verki lyki í kring
um 18. ágúst því þá hefðum við haft
tvo daga til að ganga frá þessum
tveimur stofum fyrir kennsluna,“
segir Sigþór.
Ekki hægt að komast
í kennslugögn
Þessi áætlun stóðst hins vegar
ekki og í gær greindi Morgunblaðið
frá því að nýr verktaki hafi verið
fenginn að málinu sem Sigþór segir
vera allt of seint. Þegar gengið er um
húsið blasir við að búið er að ryðja út
úr eldri stjórnunarhluta hússins og
koma gögnum þaðan fyrir í hrúgu í
einni kennslustofunni. Stjórnunar-
álman í nýbyggingunni er ekki tilbú-
in og kennslustofur eru þaktar
þykku iðnaðarryki. Lóð skólans er
ófrágengin, húsgagnastaflar þekja
sameiginleg rými í kennsluálmunni
og loks er gangur, sem átti að tengja
kennsluálmuna og stjórnunarálmuna
ekki tilbúinn.
„Það er engin launung á því að við
höfum margsinnis reynt að ýta á
verkið og að því væri haldið áfram,“
segir Sigþór. „Því miður höfum við
ekki alltaf fengið svör sem okkur lík-
aði og jafnvel verið gefið í skyn að
okkur kæmi þetta ekki nægilega
mikið við af því að verkið væri í svo
góðum höndum hjá Fasteignastofu
borgarinnar. Staðan í dag er sú að
það er ekkert húsnæði hér sem ég
get sest niður með mínum kennurum
að hefja undirbúning fyrir skóla-
starf. Það er heldur ekki hægt að
fara í nein gögn því þau eru öll í köss-
um og ekki hægt að koma þeim fyrir
af því að það húsnæði sem þau eiga
að fara í er ekki tilbúið. Aðstaða nem-
enda er ekki fyrir hendi þannig að við
getum ekki einu sinni sest niður og
unnið í henni.“ Þá bendir hann á að
tölvur, sem geymi mikið af gögnum
skólans, séu ótengdar þannig að ekki
sé einu sinni hægt að útbúa stunda-
töflu fyrir veturinn.
Lélegt aðhald og eftirlit
Síðustu tvo daga hefur Sigþór
stefnt kennurum sínum 30 kílómetra
leið á Fræðsluskrifstofu Reykjavík-
ur til að funda með þeim og í gær-
morgun var haldinn fundur með
kennurum, varaformanni fræðslu-
ráðs í fjarveru formanns, fræðslu-
stjóra og yfirmanni Fasteignastofu.
„Þar var farið yfir stöðuna eins og
hún er í dag og meðal annars lögð
áhersla á mikilvægi þess að stjórn-
endur stofnana, skólastjórar væru
alltaf hafðir með í ráðum en það hef-
ur ekki verið í lagi í þessu tilfelli.
Fyrsta skref í lausninni, sem er nú í
sjónmáli, er að það verði haldinn
fundur þar sem ég sem skólastjóri,
verktakinn og forstöðumaður Fast-
eignastofu koma saman. Við þrír
þurfum að setjast niður til að átta
okkur á því hver staðan er, hver sé
forgangurinn, hvað þurfi að gera til
að hér komist á skólastarf og hvaða
tímasetningar menn sjái fyrir sér í
því sambandi. Þetta átti náttúrlega
að vera búið að gera fyrir löngu.“
Aðspurður hverju sé um að kenna
að svona hafi farið segir Sigþór
þrennt koma til. „Það eru peningarn-
ir, ómögulegur verktaki og afskap-
lega lélegt aðhald og eftirlit af hálfu
Fasteignastofu, ég get ekkert skafið
af því. Ef aðhaldið
og eftirlitið hefði
verið í lagi þá hefð-
um við kippt þess-
um byggingaverk-
taka út fyrir
löngu.“
En hvað bíður
svo barnanna sem
eiga að byrja skóla-
starf eftir rúma
viku? „Þegar stórt
er spurt í alvarleg-
um málum verður
oft lítið um svör,“
segir Steinþór. „Ég
verð að segja eins
og er að ég reyni
þessa dagana að
taka einn dag í
einu. Næsta skref
er að halda þennan
fund og reyna að
átta okkur á því
hvað kemur út úr
honum. Við höfum
reynt hér, bæði
með skipulagi
skólastarfs og öðru,
að bjarga málum
undanfarin tvö
haust. Við tókum
t.d. upp haustferðir
með nemendum,
ekki bara af því að
það væri gott mál
heldur vegna þess að það var enginn
skóli til að fara inn í. Það leysir hins
vegar ekki málið núna því þá höfðum
við þó eitthvað húsnæði hér til að
undirbúa starfið fyrir kennarana.“
Oft ótrúlega mikið
gert síðustu dagana
Stefán Jón Hafstein, formaður
fræðsluráðs Reykjavíkur, tekur und-
ir áhyggjur starfsliðs skólans af hús-
næðismálum. „Ég fór þarna í gær
[fyrradag] og var nú ansi brugðið. Þó
veit maður að menn geta gert krafta-
verk og ég fékk tölvupóst í byrjun
vikunnar um það að þetta yrði í lagi.
Staðreyndin er hins vegar þessi að
þetta mál og þessi framkvæmd í
sumar hefur klúðrast.“
Hann bendir á að verktakinn hafi
ekki staðið í skilum en búið sé að
grípa í taumana og ráða nýjan verk-
taka að framkvæmdinni. Aðspurður
hvort eftirliti borgarinnar með fram-
kvæmdinni sé um að kenna segir
Stefán: „Ég veit ekki hvort það sé
eftirlitið eða úrræðin sem gripið var
til sem bregðast. Niðurstaðan talar
sínu máli: þetta hefur tafist úr hömlu
og er alveg óviðunandi – það er alveg
rétt hjá fólkinu. Ég verð hins vegar
að vona það og trúa því að það sem
þeir segja manni í dag standist. Þessi
starfshópur sem var myndaður í
morgun, skólastjóra, byggingafull-
trúa og verktaka, á eftir að funda
núna frá degi til dags og reyna að
bjarga málunum fyrir horn. En þetta
er náttúrlega ekki nógu gott.“
Hann segir peningum ekki um að
kenna að svona hafi farið, enda hafi
verið búið að veita fjármagni til
verksins. En er þá ekki óvissa um
hvað mætir börnunum þegar skólinn
á að hefjast. „Já og nei. Þeir segjast
ætla að klára þetta. Það trúa því nú
fáir sem koma þarna núna en það er
nú oft gert ótrúlega mikið síðustu
dagana. Það er alveg ljóst að þeir
verða að halda gríðarlega vel á spöð-
unum til að það takist. Ef ég væri
foreldri þarna væri ég með miklar
áhyggjur af þessu og ég tek alveg
undir það. En sé ekki að það stefni í
neitt neyðarástand fyrir börnin þó
mér þyki þetta afskaplega leiðinlegt
gagnvart kennurunum sem eiga
núna að vera að hefja störf.“
Skólalóðin er ófrágengin og gamla skólahúsinu
hefur verið lokað af heilbrigðisyfirvöldum.
Nýja stjórnunarálman sem átti að vera tilbúin í
júní síðastliðnum. Þar sem hiti var settur á bygg-
inguna of seint er enn of mikill raki í henni til að
hægt sé að koma þar fyrir innréttingum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigþór Magnússon skólastjóri er hér innan um kennslubækur og önnur gögn úr stjórnunarálmu skólans. Eins
og staðan er núna er engin fundaraðstaða fyrir kennara í skólanum og tölvurnar eru óstarfhæfar.
Húsnæði
Klébergs-
skóla í ónot-
hæfu ástandi
Formanni fræðsluráðs er brugðið
yfir stöðunni í skólanum
Kjalarnes
KENNARALIÐI Bessastaðahrepps
barst veglegur liðsauki fyrri part
vikunnar þegar sextíu kennarar
hvaðanæva af landinu komu saman
í Álftanesskóla. Tilgangurinn var
að sækja sér innblástur fyrir vet-
urinn en um var að ræða námskeið,
sem Álftanesskóli stóð fyrir, í
breyttum áherslum í stærðfræði-
kennslu.
Að sögn Sveinbjörns Markúsar
Njálssonar skólastjóra eru for-
sendur námskeiðsins þróunarverk-
efni sem skólinn hefur tekið þátt í á
undanförnum þremur árum. „Þetta
byrjaði með átaki á Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar í breyttum áherslum
í stærðfræði. Þá þróaðist það þann-
ig hér að það varð til sérstök sér-
greinastofa í stærðfræði þar sem
safnað var saman hlutbundnum
stærðfræðigögnum. Síðan var unn-
ið með markvissum hætti með þessi
gögn á þann hátt að hver bekkjar-
deild fer inn í þessa stofu að lág-
marki einu sinni í viku.“
Í stofunni leysa börnin ýmiss kon-
ar þrautir og komið er upp nokkurs
konar stöðvahring, eins og sumir
kannast við úr líkamsræktartímum,
þar sem unnið er með stærðfræði-
hlutina. „Klukka er stillt á ákveðinn
tíma og þegar hún hringir fer nem-
andinn í næsta verkefni,“ segir
Sveinbjörn. „Okkur fannst kominn
tími til að við miðluðum af því sem
við höfum verið að byggja upp. Því
sóttum við um í Endurmennt-
unarsjóð og fengum styrk til að
halda svona námskeið og aug-
lýstum það þannig að það yrði að
hluta til fyrir kennara hér en líka
einhverja sem hefðu áhuga á að
sækja þetta hjá okkur. Undirtekt-
irnar voru svo góðar að við þurftum
að endurskipuleggja námskeiðið og
vorum því með þrjá tuttugu manna
hópa. Það hreinlega kúffylltist og
hér voru kennarar alls staðar að af
landinu.“Námskeiðinu lauk á mið-
vikudag en það stóð yfir í þrjá
daga. Það var miðað við yngsta stig
og miðstig grunnskólans en í Álfta-
nesskóla eru 1.–7. bekkur. „Meðal
annars var fjallað um það hvernig
lestrarörðugleikar og stærðfræði
tengist, við fjölluðum um bráðger
börn og stærðfræði, stærð-
fræðigögn og hugmyndafræði
Montessori og síðan vorum við með
stærðfræðistofuna, stöðvahringi og
loks þrautalausnirnar. Þannig fór
hver hópur í gegn um sex efn-
isflokka á þessum þremur dögum.“
En hvað þýðir það fyrir skólann
að standa fyrir námskeiði sem
þessu og fá svona góðar und-
irtektir? „Það eflir sjálfið að það
sem við erum að gera sé þess virði
að sýna það og segja frá því,“ segir
Sveinbjörn. „Þetta er svolítið
„kikk“ fyrir okkur eins og maður
segir á góðu máli.“ Hann bætir því
við að reyndar hafi undirbúningur
fyrir skólastarf vetrarins staðið yf-
ir á fullu á meðan námskeiðið var
en „maður getur alltaf á sig blóm-
um bætt“, segir hann og hlær.
Sextíu kennarar sóttu kennslunámskeið í stærðfræði í Álftanesskóla í vikunni
Stærðfræði í stöðvahringBessastaðahreppur
Kennarar á námskeiðinu sækja án efa innblástur fyrir kennsluna úr
þeim stærðfræðiþrautum sem þeir glímdu við í Álftanesskóla í vikunni.
Morgunblaðið/Þorkell