Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 43

Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 43 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S TO Y 18 31 3 07 /2 00 2 ÉG ER Í GÓÐU SAMBANDI Fyrsti smábíllinn með handfrjálsan búnað að staðalbúnaði. ÉG ER YARIS MOBILE - NÁÐU MÉR NÚNA! Ég er fáanlegur í takmarkaðan tíma með handfrjálsum búnaði, 14" álfelgum, vindskeið að aftan og skyggðum rúðum sem staðalbúnað. Ég er alltaf í sambandi, alltaf hreyfanlegur og kosta frá aðeins 1.129.000 kr. sem er sama verð og þegar ég er venjulegur. www.toyota.is Handfrjáls búnaður Álfelgur Vindskeið Skyggðar rúður ATHYGLI mín var nýlega vakin á ummælum í ritdómi um Skóg- ræktarritið 2002 er birtist í Morg- unblaðinu 18. júlí síðastliðinn. Þar ber ritdómarinn, Ágúst H. Bjarna- son, nokkuð saman hið nýútkomna rit við Ársrit Skógræktarfélag Ís- lands 1948 (eins og ritið hét þá). Hann segir þar m.a: „54 ár eru ekki langur tími í lífi trjáa. Engu að síður hafa mikil um- skipti orðið í skógrækt á þessum tíma. Í þá tíð var illvíg andstaða, ekki sízt meðal forvígismanna bænda, gegn skógrækt. Nú er öldin önnur og margir bændur sjá sjálfir gildi þessarar ræktunar. Það skyldi þó aldrei vera, að það hafi verið gæfa skógræktar í landinu, hvað hún fór hægt af stað vegna andróð- urs og því var unnt að fikra sig áfram og gæta vel að flestu.“ Mér brá við þessi ummæli, að forvígismenn bænda um miðja síð- ustu öld hafi verið í illvígri and- stöðu við skógrækt í landinu. Ann- ars minntist ég frá mínum uppvexti. Þá stofnuðu bændur og ungmennafélagar héraðsskógrækt- arfélag og deildir innan þess í flest- um sveitarfélögum. Mér varð einnig strax hugsað til þess hvernig stofnun Skógræktar- félags Íslands bar að árið 1930. Það var á fundi búfræðikandídata (NJF) sem tillaga um stofnun þess var fyrst flutt. Síðan voru það Sig- urður Sigurðsson búnaðarmála- stjóri og með honum ráðunautar hjá BÍ (samstarfsmenn Sigurðar) sem beittu sér einkum fyrir stofnun félagsins, vitanlega með stuðningi fleiri góðra manna. En hverjir eru forvígismenn bænda eða hafa verið á hverjum tíma? Ég hygg að engan ótvíræðari samnefnara fyrir þá megi finna en Búnaðarþing. Þar réðu kjörnir fulltrúar bænda málum og gera enn og þar höfðu ráðunautar Búnaðar- félags Íslands málfrelsi og tillögu- rétt. Hátíðarfundur Búnaðarþings er það varð fimmtíu ára var haldinn á Egilsstöðum á Völlum árið 1949. Ári síðar er ritið kom út sem vakti þær hugrenningar ritdómarans sem ég hef vitnað hér til. Önnur af tveimur ályktunum þessa hátíðarfundar fer hér á eftir: „Búnaðarþing haldið á Egilsstöð- um á Völlum dagana 1. og 2. sept. 1949, lítur svo á: Að skógræktin geti verið mikil- vægur þáttur í ræktunarmálum landsins, til jarðvegsverndar, land- græðslu og skjóls fyrir verðmætan nytjagróður og að takast megi er tímar líða, að framleiða gagnvið til mikilla hagsbóta og eflingar efna- legs öryggis fyrir landsmenn. Búnaðarþing lítur svo á, að rækt- un gagnviðarskóga hér á landi sé mjög merkilegur og þýðingarmikill þáttur í hagnýtingu á gróðurskil- yrðum landsins og að með þeirri starfsemi sé lagður grundvöllur að nýjum atvinnurekstri með þjóð vorri. Með tilliti til þessa lýsir Búnaðarþing yfir stuðningi við skóg- ræktarstarfsemina og vill beita sér fyrir því, að stjórn Búnaðar- félags Íslands, búnað- arsamböndin og hreppabúnaðarfélögin hafi ávalt náið samstarf við Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélag Ís- lands um hverskonar fyrirgreiðslu og stuðn- ing er miðar að eflingu skógræktarinnar.“ Hér þarf ekki lengur að leiða til vitni um afstöðu forystumanna bænda til skógræktar um miðja síð- ustu öld og svarið við spurningunni í fyrirsögn þessarar litlu greinar er því ótvírætt – nei. Það er líka alger óþarfi að taka svo til orða að nú sé öldin önnur og að margir bændur sjái nú sjálfir gildi þessarar rækt- unar. Þeir fjölmörgu skógræktaráhuga- menn í röðum bænda sem ég man frá því fyrir miðja síðustu öld „sáu sjálfir“ ótví- rætt gildi skógræktar – þess vegna voru þeir baráttumenn fyr- ir aukinni skógrækt, en ekki and- vígismenn hennar. Voru „forvígismenn“ bænda andstæðir skógrækt? Jónas Jónsson Skógur Bændur voru bar- áttumenn fyrir aukinni skógrækt, segir Jónas Jónsson, en ekki and- vígismenn hennar. Höfundur er fv. búnaðarmálastjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.