Morgunblaðið - 17.08.2002, Page 49

Morgunblaðið - 17.08.2002, Page 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 49 aldrei heyrðum við þig kvarta. Varst mismunandi löt, eins og þú kallaðir það. Veikindunum tókst þú af sama æðruleysi og þú lifðir lífinu. Margs er að minnast í gegnum tíð- ina. Þú varst búin að vinna hér lengi og vinna vel. Alltaf hrókur alls fagn- aðar, þar sem við komum saman. Svo við tölum ekki um fastan lið hér á þorrablótunum á Kirkjuhvoli, þegar þið Jón tjúttuðuð af hjartans lyst eins og unglingar og við horfðum dolfallin á. Það er stundum sagt að maður komi í manns stað, en hér kemur aldrei önnur Lilla. Okkur langar að kveðja þig með þessum ljóðlínum sem lýsa þessu svo vel: Er dimmum skuggum yfir byggðir brá, sló bjarma út um allan hennar glugga. Þá bar hún hæst, er byljir skullu á, og braust gegn þeim, sem væri hríðarmugga. Með fórn og elsku vann hún vegsemd þá, er veitist þeim, sem gefa líf og hugga. Hún fann, hvað þegn og þjóðir mestu varðar, var þerna guðs, en dóttir sinnar jarðar. (Davíð Stefánsson.) Guð geymi þig, kæra vinkona. Innilegar samúðarkveðjur til þín Jón minn og allrar fjölskyldunnar. Vinnufélagar Kirkjuhvoli. Mín kæra vinkona, Jónína Jóns- dóttir frá Velli, eða Lilla á Velli, er fallin frá langt um aldur fram. Lilla fæddist að Velli en þar bjuggu for- eldrar hennar á undan henni. Hún bjó á Velli og í Vellinum alla sína ævi. Þegar ég kom fyrst að Velli 1986 hitti ég fyrir fjallmyndarlega fjöl- skyldu í næsta húsi, þau Lillu, Jón Ben og börnin þeirra fimm, sem eru hvert öðru myndarlegra eins og for- eldrar þeirra. Stax tókst vinátta með fjölskyldum okkar, og samgangur mikill. Árin hafa liðið og vináttuböndin styrkst. Við Lilla tókum oft saman í giðingar, fórum saman í útreiðartúr, bíltúr, heyjuðum, sátum og drukkum kaffi. Margt var þá spjallað og mörg gullkorn hrutu af vörum þínum. Þitt einstaka jafnaðargeð og þitt góða skap vakti hvað eftir annað aðdáun mína. Í seinni tíð, að sjá til þín á göngu- ferð um Völlinn, og þegar fór að nálgast kaffitíma, að sjá þig rölta yfir Lækjartúnið í átt til mín. Þess mun ég sakna. Fyrir síðustu jól elduðum við sam- an herlega máltíð heima hjá mér, þar sem við buðum til okkar vinum okkar í Vallarkróknum. Þá kenndir þú mér að brúna kartöflur að jólasið. Þetta varð til þess að fjölskylda mín taldi mig hafa verið að lesa mér til um eldamennsku og steig ég heldur í áliti fyrir þessa kunnáttu þína. Og pönnukökuuppskriftin þín hefur heldur betur slegið í gegn. Ég veit að þér fannst ansi fyndið að vera að kenna öðrum eitthvað sem þú sagðir sjálf að þú hefðir aldrei lært, „maður gerir bara eins og mað- ur sá gert heima á meðan einhver annar en ég eldaði“. Elsku Lilla mín, það hefur svo margt rifjast upp fyrir mér síðan á föstudag að Jón hringdi og sagði mér að nú værir þú farin. Þínu stutta dauðastríði lauk aðeins einum sólarhring eftir að þú varst lögð inn á líknardeild Landspítalans. Þú varst umvafin ást og vináttu barna þinna og eiginmanns. Síðusti þrír og hálfur mánuður, síðan þú greindist með ólæknandi krabbamein, voru bæði góðir og slæmir. Æðruleysi og kvíðaleysi voru þín aðalsmerki, sátt við Guð og menn. Þú varst sönn hetja. En í þessu stríði voru fleiri hetjur. Jón Ben vakti yfir þér og vék aldrei frá þér, lærði að elda mat og var vak- inn og sofinn yfir velferð þinni. Miss- ir hans er mikill þar sem þú varst ávallt rauði þráðurinn í lífi hans. Börnin þín fimm bera þér einstakt vitni, öll komin til manns, góðir og gegnir einstaklingar eins og til var stofnað. Missir ykkar allra er mikill. En minningin um góða eiginkonu, móð- ur og ömmu mun verma ykkur öllum um ókomin ár. Arndís Erla Pétursdóttir, Velli. ✝ Helga Bjarna-dóttir frá Beinár- gerði í Vallahreppi á Fljótsdalshéraði fæddist í Gíslastaða- gerði í sömu sveit 19. nóvember 1919. Hún lést á sjúkra- húsinu á Egilsstöð- um 7. ágúst síðastlið- inn. Helga var gift Benedikt Sigfússyni frá Vallaneshjáleigu, f. 18. ágúst 1920, d. 6. febrúar 1997. Þau hófu búskap á Eyj- ólfsstöðum í Vallahreppi 1942, en fluttu síðan í Kolstaðagerði í sömu sveit. Vorið 1949 fluttu þau í Beinárgerði og keyptu þá jörð árið 1955. Börn Helgu og Bene- dikts eru: 1) Birna Jónína, f. 1940. Hún á eina dóttur. 2) Sigfús Guðbergur, f. 1942, kvæntur Margréti Ásgeirsdóttur, nú látin, börn þeirra eru fjögur. Núverandi kona Sigfúsar er Hugrún Kristjáns- dóttir. 3) Klara, f. 1945, hennar sam- býlismaður er Tryggvi Sigur- björnsson. 4) Jó- hannes Óskar, f. 1946. Þórhallur, f. 1952, d. 2000. Hans kona var Sigríður Guðmundsdóttir og þeirra börn eru fimm. Þau skildu. Seinni sambýliskona hans var Elín Björg Valdórsdótt- ir. 5) Gunnar, f. 1960. Hans sam- býliskona er Kristín Hrönn Sæv- arsdóttir og á hún fjögur börn. Barnabarnabörnin eru ellefu tals- ins og eitt barnabarnabarnabarn. Útför Helgu fer fram frá Valla- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Úr hverju vildir böli bæta, brosið var sem skin af sól. Vildir hugga, verma og kæta, veita hrjáðum líkn og skjól. Göfugt allt og gott þú kenndir, góða elsku mamma mín, – bættir allt og blíðu sendir. Björtust allra’ er minning þín. (Þuríður Briem.) Þessi orð segja allt um hug okkar systkinanna er við nú kveðjum móð- ur okkar. Guð veri með þér, elsku mamma. Systkinin frá Beinárgerði. Þegar allt hefur verið sagt þegar vandamál heimsins eru vegin metin og útkljáð þegar augu hafa mæst og hendur verið þrýstar í alvöru augnabliksins – kemur alltaf einhver kona að taka af borðinu sópa gólfið og opna gluggana til að hleypa vindlareyknum út. Það bregst ekki. (Ingibjörg Haraldsdóttir.) Þetta hljóðláta og hógværa ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur um kon- ur kemur upp í huga minn, þegar ég nú kveð í hinsta sinn þá konu sem skipað hefur hvað stærstan sess í lífi mínu, ömmu mína Helgu Bjarna- dóttur. Amma var ekki kona sem barst mikið á í lífinu. Hennar hugur og kraftar voru helgaðir heimilinu og fjölskyldunni og á þeim vettvangi var það hún sem aldrei brást. Dugn- aður hennar, hlýja og fórnfýsi voru einhvern veginn svo sjálfsögð að stundum tókum við varla eftir því. Allt var frágengið og fyrir öllu séð og aldrei nein háreysti. Samt var persóna hennar og nærvera svo sterk að engum sem henni kynntist gat dulist að þar var engin með- almanneskja á ferð. Amma var hetja sem vann sínar dáðir í hljóði í sínum litla heimi, sem var samt svo stór og mikilvægur þeim sem í honum lifðu og hrærðust. Hún gekk hægt og hljótt um þennan heim og brást aldrei. Ömmu get ég þó ekki minnst án þess að minnast afa míns, Benedikts Sigfússonar, sem einnig er látinn, því svo samofin eru þau í huga mér. Ég á þeim mikið að þakka því þau veittu mér heimili og ómælda ást í uppvexti mínum, og lífsviðhorf þeirra og gæska hafa reynst mér dýrmætt veganesti í lífinu. Þau afi og amma byrjuðu sinn bú- skap með tvær hendur tómar um 1940 en með dugnaði og samheldni tókst þeim að eignast jörðina Bein- árgerði á Völlum þar sem þau bjuggu meðan líf og heilsa leyfðu. Þau unnu þessari jörð afar heitt og var það ósk þeirra beggja að fá að leggjast þar til hinnar hinstu hvílu. Þar eiga þau sér nú friðsælan beð við hlið sonar síns í skjóli gömlu reyniviðartrjánna í grafreitnum heima. Með dauða ömmu er lokið langri göngu sem ekki var alltaf létt. Hún átti við mikið heilsuleysi að stríða þó lengi héldi hún í vonina um að kom- ast aftur á fætur. Sú von brást og urðu það henni sár vonbrigði. Með- an afi lifði stóð hann eins og klettur við hlið hennar og tók mikinn þátt í umönnun hennar. Dauði hans var henni mikið áfall og ekki var áfallið minna þegar sonur þeirra, Þórhall- ur, lést. Það var óhjákvæmilegt að sorgin og veikindin settu mark sitt á þessa sterku konu. Hún var bundin við hjólastól og öðrum háð um allt. Þetta var henni mikil raun en þrátt fyrir það tókst hún á við þetta allt af hljóðri þolinmæði eins og henni var líkt. En amma hafði ræktað garðinn sinn vel og hún átti samheldna og ástríka fjölskyldu sem reyndi eftir mætti að létta henni lífið með ein- stakri ræktarsemi. Þau sex ár sem hún dvaldi á sjúkrahúsinu á Egils- stöðum fékk hún mikið af heimsókn- um og varla leið sú helgi sem hún var ekki sótt og henni gert kleift að heimsækja sitt gamla heimili. Þess- ar heimsóknir voru henni afar mik- ilvægar. Við elskuðum hana öll og virtum mikið. Yngstu meðlimir fjölskyld- unnar vöndust á að faðma og kyssa þessa fallegu gráhærðu konu í hjóla- stólnum og í hvert sinn er litlar hendur vöfðust um háls hennar og hlýjar varir snertu vanga hennar, ljómaði hún og blíða brosið lék um varir hennar. Það vildi svo vel til að yngsti afkomandinn, Benedikt Nökkvi, kom í heimsókn rétt fyrir andlát langalangömmu sinnar og gladdi það hana mikið. Hún hafði orð á því hversu myndarlegur hann væri og hve fallegt blik væri í aug- um hans. Afi og amma eru bæði farin, hringnum er lokað og ég er tilbúin að kveðja þessar tvær manneskjur sem ég elskaði svo mikið. Við barna- börnin hefðum ekki getað óskað okkur betri ömmu og afa. Sérstakar þakkir vil ég að lokum færa öllu starfsfólki Sjúkrahússins á Egilsstöðum sem annaðist ömmu allt til síðustu stundar. Stefanía Ósk. HELGA BJARNADÓTTIR                           ! "#$%&""   # ' "       '    (  #  %&"" )  !      *+!,  "  #    $% ! &    ' ))  ! ' "    ))   ! *   !             "    " ! +# ! , " "  -# ! +  !  . ! +# !    / )!    !   0  ,  #   "1  # !+# !2 # 03  ..3 ' ,#  *   #    4 "5#  '    )(     #    ( -  ." /%  ," )! "#$%&""   ! " ( -%&""   ,"  ( -  , 0  %&""  "(   ( -   0 .",   %&""  1",     # ,    ) 6     !     (      2  3*   ,   -4 5 !&6     #    " 1   # ( $ ..3 (! ) &    1   7(%  #  %&""  &7 ')1  ! (4 ,"-$%&""  0 " 1  &,) (   ! " &%&""   (% ! ) (    '&  %&""  8//48  (  8//48 )           (  '  90 ,  : "(1 *#& % (         ,!  7  2 #( .  8" "" ", #!#  (   0 33 9 /  ;(    ,  < %&""   "7 '& ;(    ,    %&""  &/7(% (# ;(  %&""  ( -   ;(    ! ( ." ;(         4  48  4  4  48 )      3,  (#&/&   8((/ , "    #8 , -    ,   &7  , - %&""   &, -  ) Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.