Morgunblaðið - 17.08.2002, Síða 50

Morgunblaðið - 17.08.2002, Síða 50
MINNINGAR 50 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Nokkur orð til míns elskulega bróður sem nú hefur kvatt okkur svo skyndilega. Mundi var mín fyrirmynd allt frá því ég man eftir mér í æsku og fram á unglingsár. 6 ára fékk ég að fara með honum á dansæfingar hjá Rigmor Hansen í Gúttó og var það upphafið að dansferli okkar bræðra allt fram til þessa dags. Ég var einnig 6 ára þegar ég fékk að fara með honum á handboltaæfingu í íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar og þar með var áhuginn á íþróttunum komin í fullan gang, þó enn liðu nokkur ár þar til ég fékk sjálfur að handleika boltann, þá skipti öllu máli að vera með Munda bróður. Síðar komu söfnunarárin, við söfnuðum frímerkjum, leikara- myndum, bíóprógrömmum, hasar- blöðum og töppum af gosflöskum sem við síðan notuðum í púkk og hark, fjárhættuspilin góðu. Í þá daga var sjónvarpið ekki til að trufla og taka tíma af athafnasöm- um drengjum sem nægði ekki sóla- hringurinn til náms, leikja og starfa. Á þessum árum var Mundi gríðarlega kröftugur strákur, hann byrjaði að selja blöð 6 ára, fór á sjóinn 12 ára og var bæði á fiski- bátum og togurum. Mundi og fé- lagar hans voru með spilaklúbb og spiluðu og tefldu, þangað elti ég Munda og fékk að spila með ef ein- hver hinna forfallaðist, þarna var skák- og spilaáhuginn mikill. Tefld- um við Mundi allt fram til hans síð- asta dags. Mundi fór síðan að sigla á fragt- skipum upp úr 1960, hann kom allt- ✝ GuðmundurIngvar Guð- mundsson stýrimað- ur fæddist í Reykja- vík 30. janúar 1945. Hann varð bráð- kvaddur í Danmörku 5. ágúst síðastliðinn og var útför hans gerð frá Árbæjar- kirkju 15. ágúst. af heim með nýjustu undratækin svo sem pínulítið vasaútvarp og síðast en ekki síst all- ar nýjustu plöturnar sem voru á toppnum úti, Brendu Lee, Conny Francis og Elv- is Presley, þar með hófst rokktímabilið á okkar heimili. Þá var Mundi farin að greiða í píku (spíss) með brilljantíni og adrett, ég hermdi eftir Munda og setti jafnvel í mig rúllur til að vera eins og Mundi rokk. Mér er minnisstæð ein gjöf frá Munda á þessum árum en það voru Wrangler (Blubell) gallabuxur, þær voru alltof síðar en það skipti engu, flottar voru þær. Síðan óx Mundi frá mér, hann fór í sjómannaskólann, gifti sig og eignaðist börn og buru og sá sinni fjölskyldu farborða með elju og dugnaði, en alltaf var hann í góðu sambandi við fjölskyldu og vini. Seinni árin átti Mundi við erfið veikindi að stríða, sem honum gekk illa að vinna bug á. Við misstum elsta bróður okkar fyrir tæpum þremur árum og það var gríðarlega erfiður tími fyrir Munda, þar sem hann lagði allt í sölurnar fyrir Birgi. Birgir hafði verið traustur bróðir sem Mundi átti margt að þakka. Mundi var síðustu árin gífurlega ættrækinn og þekkti öll börn og barnabörn okkar bræðra og frænd- systkina, hann elskaði þau öll, tók myndir af þeim við öll tækifæri sem gáfust og voru mörg börnin sem felldu tár þegar þau fréttu af andláti hans. Þess vegna var mikil synd að Mundi skyldi ekki fá tíma með sínum barnabörnum, hann eignaðist barnabarn 3 vikum fyrir andlátið og er von á öðru í næsta mánuði. Mundi var hress og bjartsýnn í síðustu göngu okkar stífluhringinn í Elliðaárdalnum, hann gaf álftar- ungunum, við skoðuðum laxagöng- ur og að sjálfsögðu heilsaði Mundi öllum sem á vegi okkar urðu, hann var glaður í bragði, var á leiðinni til Danmerkur í brúðkaup Birgis bróðursonar okkar, en hann átti því miður ekki afturkvæmt þaðan. Sonur minn dró fram bréf sem hann átti í fórum sínum sem Mundi hafði skrifað honum, þegar hann átti um sárt að binda vegna andláts vinar síns, þetta var fallegt bréf og sýndi hvað Mundi var góður dreng- ur. Hvíl í friði bróðir. Aðstandendum og vinum Munda votta ég samúð mína. Arnar Sigurbjörnsson. Í dag er kær vinur kvaddur. Mundi, eins og hann var alltaf kall- aður, fluttist í Vogana er hann var tíu ára gamall, síðan höfum við fylgst hvor með öðrum. Í byrjun var leikvöllurinn Langholtsvegur- inn og nágrenni. Oft var farið niður í Keili, gerðir tunnuflekar og haldið út á Elliðavoginn og veiddur koli, sem var hertur og étinn síðar. Æskudagarnir liðu fljótt við leik og störf, en Mundi var oft á Súg- andafirði á sumrin. Fjórtán ára fór Mundi á sjóinn, á togarann Guð- mund Júní. Veturinn eftir var farið á héraðsskólann á Núpi í landspróf, þar sem vð vorum herbergisfélagar ásamt tveim öðrum. Lærdómurinn síðan hvíldur og haldið til sjós, á fiskiskip, á millilandaskip og síðar í stýrimannaskólann, sem við klár- uðum 1967. Á stýrimannaskólaár- unum kynntist Mundi Gullý sinni, sem síðar varð eiginkona hans, eft- ir það var alltaf talað um Munda og Gullý saman. Mundi stundaði síðan sjóinn í nokkur ár, en hvarf í land á milli. Mundi var mikil félagsvera, og hafði gaman af mannfögnuðum hvers konar. Skemmtistaðir eins og Röðull voru um tíma vinsælir. Munda þótti gaman að hafa vín um hönd, en bara í hófi. Mannfagnaðir enduðu venjulega á blávatni. En líf- ið var ekki bara leikur. Mundi fékk sinn skammt af erfiðleikum og veikindum. Mundi gekk í Oddfell- owregluna og hafði mikla ánægju af veru sinni þar. Eftir að við báðir vorum komnir í land, höfum við tal- ast við í síma eða hist næstum dag- lega, en það voru nokkuð margir sem Mundi hafði samband við dag- lega. Nú að leiðarlokum þakka ég Munda samfylgdina, sem hefur var- að í 48 ár. Kæri Pálmi, Hrefna, Gullý, Salli og aðrir ástvinir. Við Guðlaug send- um ykkur innilegar samúðarkveðj- ur. Hafliði. Það hvíldi drungi yfir starfs- staðnum okkar daginn sem Frið- björn sundþjálfari færði okkur þær fréttir að Guðmundur væri dáinn. Grafarvogslaug var síðasti starfs- staður Guðmundar og hafði hann heimsótt okkur kátur og hress að vanda í vikunni á undan, hann var á leiðinni til Danmerkur. Yfir kaffi- bolla sagði hann okkur frá ferðinni og var mikill hugur í honum, en engan grunaði að hann ætti ekki afturkvæmt. Guðmundur hóf störf hér í laug- inni í ágúst 1998 og starfaði hér fram á mitt ár 2001 þegar hann lét af störfum af heilsufarsástæðum. Viðskiptavinir Grafarvogslaugar muna flestir eftir Guðmundi, sem var ræðinn um þjóðfélagsmálin og náði persónulegu sambandi við stóra hópa af fólki sem stundaði laugina. Hann var ánægður með sinn starfsstað og gekk jafnvel um með fólki til að sýna þeim mann- virkið og það gekk enginn út úr karlaklefanum án þess að vera kvaddur og honum þakkað fyrir komuna. Þessi jákvæða framkoma Guðmundar er nokkuð sem aðrir mættu taka sér til eftirbreytni og er það á þessum nótum sem við geymum Guðmund í huga okkar. Við vottum aðstandendum Guð- mundar innilegrar samúðar á þess- um erfiðu dögum. F.h. starfsfólks í Grafarvogslaug, Hafliði Halldórsson forstöðumaður. GUÐMUNDUR INGVAR GUÐMUNDSSON Það kom mér heldur á óvart þegar tengda- dóttir Gunnu hringdi í mig og sagði mér að hún væri búin að kveðja þennan heim. Nei, mér fannst það ekki geta verið, hún sem var svo hress og kát. Mikið þótti mér það leiðinlegt að geta ekki tekið á móti henni þegar hún var hér síðast stödd í bænum, vegna veikinda minna. En hún sagði: ég kem bara aftur áður en langt um líður, svo dillaði í henni hláturinn sem smitaði alla sem voru í kringum hana. Ég man hvað mér þótti alltaf gaman að koma að Starrastöðum og rabba við þau hjónin. Palli var gam- ansamur og nokkuð stríðinn en Gunna ákveðin og stjórnaði öllu vel. GUÐRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR ✝ Guðrún Krist-jánsdóttir fædd- ist á Krithóli í Lýt- ingsstaðahreppi 11. júlí 1913. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Skagafjarðar hinn 17. júlí síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Mælifells- kirkju 27. júlí. Ég dáðist oft að henni hvað hún hafði alltaf gott lag á öllu og hvað hún hélt öllu í góðu standi þótt hún hefði fimm stráka að hugsa um. Ég kom oft til þeirra hjóna eftir að þau fluttu á Sauðár- krók og nokkrum sinn- um eftir að Páll dó og síðast í fyrrasumar kom ég til Gunnu og gisti ég hjá henni eina nótt. Það var mér mik- il ánægja að vera hjá henni þennan tíma því eins og æv- inlega var hún alltaf hress og kát. Þegar ég yfirgaf hana sagði hún: „Þú kemur nú aftur næsta sumar,“ en því miður varð ekkert af því. Hún tók alltaf fagnandi á móti mér frá fyrstu tíð. Elsku Gunna mín, hafðu þökk fyrir allan þinn kærleika í minn garð. Ég á eftir að sakna þín en eftir stendur minning um góða vinkonu. Börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum votta ég samúð mína. Bið Guð að blessa ykkur öll. Oddný Guðnadóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. 9   2         :     :    "             (   ,;**<90 ,  , ( 8"=> 1# ) ; -  (1#&(-%&""  0  ,"-$  " 1#&(-    : %&""          4  48  4  4  48 ) 5-      ,+!))  !,,;  - ?    / )!   /    2 #  .  4#8  %"%&"" 0 ((  /% ) %"  /% '&  %"   ) %"    ) %"  , -   %&"" ) 9  2      : :(        "             (        @A,   "8/ () ; -  ,   /%  " &7   (# ! " ,    &7   : (   ! "#$%&""  @."  &7   ,"  %&""     &7 %&""  3  &(-     &7 %&""  ,?  ( -  , 67. &7   ! /# /67  &  4#8  &7 %&""   &  &7 %&""  0  ! "#$%&""  & %"  /% ,     ! "  %&""  ! ",   %&""  &,"-$  4  48  4  4  48 ) <  2       2     ( :        "  3 <, ';,,  0  -(8"B   4?) , - 7  ( - /%  ""  (("  ( /%%&""  ( (("%&""  ,       ,   ( -%&""  /% /%  (  ( -   ((%9 / %&""   C ( -  ""  $  %&"" 4  48 ) 9   2         :      :     "  (  !"     "  "    "   + ,,,,; : 8" ,  )  7 ( %&""  ,       &  %&""  ' $9 "    (    ! " &%&""      %&""  *4  /         %&"" D  ,     ,/$     ! "  ((%& %&""  #8  &  4  48  4  4  48 )

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.