Morgunblaðið - 17.08.2002, Blaðsíða 57
MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 57
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11:00. Kór
Áskirkju syngur. Organisti Guðný Ein-
arsdóttir. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Organisti Guðmundur Sigurðsson. Pálmi
Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur. Org-
anisti Marteinn H. Friðriksson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Kirkjukór Grensásirkju syngur.
Organisti Árni Arinbjarnarson. Sr. Ólafur
Jóhannsson.
GRUND DVALAR- OG HJÚKRUNARHEIM-
ILI: Messa kl. 14. Sr. Lárus Halldórsson
messar. Organisti Kjartan Ólafsson. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Menningarnótt í
Hallgrímskirkju laugard. 17. ágúst. Fjöl-
breytt dagskrá í Hallgrímskirkju frá kl. 17
til 22.30. Messa sunnudag kl. 11. Sr. Jón
Bjarman prédikar og þjónar ásamt sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni. Orgelleikari Hörður
Áskelsson kantor. Hópur úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti
Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveins-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands
biskups. Morgunbænir með hugvekju kl.
11. Árni Svanur Daníelsson guðfræðingur
annast bænagjörðina. Kaffisopi eftir
stundina. Vegna sumarleyfa verður skrif-
stofa kirkjunnar lokuð frá 21. júlí–2. sept-
ember. Sóknarprestur verður í sumarleyfi
til 20. ágúst. Sr. Pálmi Matthíasson, sókn-
arprestur Bústaðakirkju, þjónar Lang-
holtssöfnuði á meðan.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks Laugarneskirkju er bent á
guðsþjónustur í nágrannakirkjunum.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Kór Neskirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti Reynir Jón-
asson. Sr. Örn Bárður Jónsson. Kynning-
arguðsþjónusta fyrir fermingarbörn og for-
eldra þeirra sunnudagskvöld kl. 20.
Prestar sr. Frank M. Halldórsson og sr.
Örn Bárður Jónsson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngur. Organisti Viera Manásek. Prestur
sr. Sigurður Grétar Helgason.
ÁRBÆJARKIRKJA: Messa kl. 11. Org-
anisti Pavel Manásek. Kirkjukórinn syng-
ur. Ferming. Fermd verður: Natasha Björk
Brynjarsdóttir, Hraunbæ 124. Alt-
arisganga. Prestur sr. Þór Hauksson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Kjartan Jónsson messar. Fermd
verður: Dagmar Lárusdóttir, Leirubakka
16. Organisti: Sigrún Þórsteinsdóttir.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa kl.
20.30. Prestur sr. Magnús B. Björnsson.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 20. Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni þjón-
ar. Organisti: Lenka Mátéová. Félagar úr
kór kirkjunnar leiða í söng.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Organisti: Hörður Braga-
son. Kór Grafarvogskirkju syngur. Guðs-
þjónusta á Hjúkrunarheimilinu Eir kl.
14.15. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og
þjónar fyrir altari. Organisti: Hörður Braga-
son. Kór Grafarvogskirkju syngur.
HJALLAKIRKJA: Tónlistarguðsþjónusta kl.
20. Jón Ólafur Sigurðsson, organisti kirkj-
unnar, leikur Toccötu og fúgu í d-moll eftir
J.S. Bach, prelúdíu í G-dúr eftir Mendels-
sohn og kóraforspil „Leiftrar þú sól“ eftir
Jón Ásgeirsson. Þorgils Hlynur Þorbergs-
son, guðfræðingur, flytur hugleiðingu. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar leiða safn-
aðarsöng. Sr. Íris Kristjánsdóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks verður ekki messað í kirkjunni
í ágústmánuði og er fólki bent á guðsþjón-
ustur í öðrum kirkjum í Kópavogi. Kirkjan
er opin á hefðbundnum tíma og getur fólk
leitað eftir upplýsingum eða aðstoð kirkju-
varðar eða átt rólega stund í kirkjunni.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Sr.
Valgeir Ástráðsson þjónar. Organisti er
Gróa Hreinsdóttir. Altarisganga.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Almenn
samkoma kl. 20 með lofgjörð, fyrirbænum
og hugleiðinguút frá orði Guðs. Ágústa
Ósk Óskarsdóttir syngur einsöng. Ungir
menn í kirkjunniflytja ávörp. Allir velkomn-
ir.
FRÍKIRKJAN VEGURINN: Smiðjuvegi 5,
Kópavogi. Athugið breyttan samkomu
tíma. Almenn samkoma kl. 16.30, Högni
Valsson predikar, lofgjörð, fyrirbænir,
deildaskipt barnastarf á sama tíma. Allir
velkomnir. Bænastund kl. 16.
BOÐUNARKIRKJAN: Guðsþjónusta kl.
11. Frú Lilja Guðsteinsdóttir leiðir Guðs-
þjónustuna en predikun mun flytja dr.
Steinþór Þórðarson. Predikunin ber tit-
ilinn: „Þegar Guð bænheyrir suma en ekki
aðra,“ en það er efni sem brennur á
vörum svo margra. Barna- & unglingastarf
hefst í deildum um leið og predikunin byrj-
ar. Veitingar í boði að lokinni guðsþjón-
ustu.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Kl. 19 bæna-
stund, kl. 20 Hjálpræðissamkoma í um-
sjón Immu og Miriam. Ofurstarnir Carl og
Gudrun Lydholm taka þátt.
KEFAS, Vatnsendabletti 601: Samkoma
sunnudag kl. 14. Björg R. Pálsdóttir talar.
Bænastund fyrir samkomu kl. 13.30. Lof-
gjörð og fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1–7
ára börn. Þriðjud.: Bænastund kl. 20.30.
Miðvikud.: Samverustund unga fólksins
kl. 20.30. Mikil lofgjörð og Orð Guðs rætt.
Allir velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
kl. 17: Yfirskrift: „Get ég fengið annað
tækifæri?“ (Róm. 10,14–21).
Upphafsorð og bæn: Jón Magnús Kjart-
ansson, Ræðumaður: Margrét Jóhann-
esdóttir, hjúkrunarfræðingur Heitt verður
á könnunni á eftir. Allir eru hjartanlega vel-
komnir og hvattir til að koma og eiga sam-
an dýrmætt samfélag.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík – Krists-
kirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka:
Sunnudaga: Hámessa kl. 10.30. Messa á
ensku kl. 18. Alla virka daga: Messa kl.
18. Sunnudaginn 18. ágúst: Uppnumning
Maríu meyjar til himna, stórhátíð
Reykjavík – Maríukirkja við Raufarsel:
Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga:
Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga:
Messa kl. 18.30
Riftún í Ölfusi: Sunnudaga: Messa kl. 16.
Miðvikudaga kl. 20.
Hafnarfjörður – Jósefskirkja: Sunnudaga:
Messa kl. 10.30. Frá júlí til september
fellur messan á miðvikudögum kl. 18.30
niður.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa kl.
8.30. Virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík – Barbörukapella: Skólavegi 38:
Sunnudaga: Messa kl. 14. Fimmtudaga:
Skriftir kl. 19.30. Bænastund kl. 20.
Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka
daga: Messa kl. 18.30 Sunnudaga:
Messa kl. 10.
Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturskirkja,
Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa
kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum:
Sunnudagur 18. ágúst: Kl. 11. Guðsþjón-
usta og gott samfélag. Tvíburaskírn. Kaffi-
sopi á eftir.
Sr. Kristján Björnsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Bragi Friðriksson Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Guðsþjónusta
kl. 11. Kór Fríkirkjunnar leiðir söng og org-
anisti er Þóra Vigdís Guðmundsdóttir. Í
guðsþjónustunni verður fermdur Kári Þor-
kelsson sem búsettur er í Bandaríkjunum.
Einar Eyjólfsson.
GARÐAKIRKJA: Síðasta kvöldguðsþjón-
usta sumarsins kl. 20.30. Athugið breytt-
an tíma! Kirkjukórinn leiðir almennan
safnaðarsöng. Organisti Jóhann Baldvins-
son. Sr. Friðrik J Hjartar og Nanna Guðrún
djákni þjóna. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl.
20 og frá Hleinum kl. 20.10. Nú er síð-
asta tækifærið til að njóta kyrrðar sum-
arkvöldsins í guðsþjónustu í Garðakirkju.
Allir velkomnir!
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11, léttur há-
degisverður að messu lokinni. Morguntíð
sungin þriðjudag til föstudags kl. 10,
kaffisopi að henni lokinni. Foreldra-
samvera miðvikudag kl. 11.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Guðmundur Óli Ólafsson annast
prestsþjónustuna.
Sóknarprestur.
BRÆÐRATUNGUKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Guðmundur Óli Ólafsson ann-
ast prestsþjónustuna.
Sóknarprestur.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Svavar A. Jónsson. Félagar úr Kór
Akureyrarkirkju syngja. Organisti: Eyþór
Ingi Jónsson.
GLERÁRKIRKJA: Kvöldhelgistundí kirkj-
unni kl. 21. Þriðjudaginn 20.8. verður
kvöldhelgistund kl. 21 leikin verður létt
tónlist í umsjá Þorvaldar Halldórssonar og
Margréta Scheving.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Kl.
19.30 bæn, Kl. 20 almenn samkoma. All-
ir velkomnir.
EIÐAKIRKJA: Kvöldmessa kl. 20.30 í um-
sjón sr. Láru G. Oddsdóttur á Valþjófs-
stað. Allir velkomnir.
Sóknaprestur og sóknarnefnd Eiðasókn-
ar.
Guðspjall dagsins:
Hinn daufi og málhalti.
(Mark. 7)
Morgunblaðið/Kristinn
Norðfjarðarkirkja
Hallgrímskirkja. Hádegistónleikar
kl. 12:00. Hannfried Lucke frá
Liechtenstein leikur á orgelið.
Menningarnótt í Hallgrímskirkju
með fjölbreyttri dagskrá frá kl.
17:00 til 22:30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9,
Kópavogi. Samkoma í dag kl. 11-
12.30. Lofgjörð, barnasaga, pré-
dikun og biblíufræðsla þar sem
ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og
svarað. Á laugardögum starfa
barna- og unglingadeildir. Létt
hressing eftir samkomuna. Allir
hjartanlega velkomnir. Biblíu-
fræðsla alla virka daga kl. 10, 13
og 22 á FM 105,5.
Safnaðarstarf
Craig M. Young í inngangserindi um
dreifingu lífvera við hverasvæði neð-
ansjávar.
Áhugavert að bera saman
hverasvæðin sunnan og
norðan Íslands
Tyler segir að áhugi hans á slíkum
svæðum sé einkum bundinn við
rannsóknir á því hvernig lífríki
þeirra viðhaldi sér og hvernig dreif-
ingu lífvera á milli hverasvæða á
sjávarbotni sé háttað. „Hverasvæði
neðansjávar má fella í það sem við
köllum jarðlíffræðileg svæði og líf-
ríki hverasvæðanna eru ólík eftir því
á hvaða svæðum þau eru. Sjávarlíf-
verur flakka ekki á milli þessara
hverasvæða heldur ala allan aldur
sinn þar. Engu að síður leggja þær
undir sig ný hverasvæði með lirfum
sem berast með hafstraumum. Hið
áhugaverða er að hverasvæðin er
fyrst og fremst að finna á miðsjáv-
arhryggjunum og því má segja að
mikið sé um landfræðilega þrösk-
ulda sem koma í veg fyrir að þessar
lirfur geti dreifst til annarra hvera-
svæða.
Ísland,“ heldur Tyler áfram, „er
þannig veruleg hindrun fyrir flutn-
ing á sjávarlífverum, þær geta ekki
farið hringinn í kringum landið og
landið er því jarðfræðileg hindrun í
dreifingu lirfanna frá hverasvæðum
á hrygggnum fyrir sunnan landið til
hverasvæðanna fyrir norðan Ísland.
Raunar vitum við enn sem komið er
ákaflega lítið um lífríki á hverasvæð-
unum fyrir norðan Ísland. Þetta
svæði er því mjög áhugavert rann-
sóknarefni, þ.e. að skoða lífríki
hverasvæðanna norðan Íslands og
bera saman við lífríkið á hverasvæð-
unum sunnan landsins.“
Tyler tekur þó fram að bæði fjar-
lægð og veðurfar á mjög norðlægum
hverasvæðum geri mönnum erfitt
um vik, siglingatíminn sé langur og
kostnaður samfara rannsóknum því
mikill.
UM TVÖ hundruð vísindamenn
sóttu 37. evrópsku sjávarlíffræðiráð-
stefnuna sem haldin var hér á landi í
síðustu viku en að ráðstefnunni
stóðu Hafrannsóknastofnunin og
Líffræðistofnun HÍ. Þátttakendur
voru frá um tuttugu löndum, víðs
vegar að úr heiminum þótt langflest-
ir þeirra kæmu frá Evrópu. Þeir Jör-
undur Svavarsson, Agnar Ingólfsson
hjá Líffræðistofnun og Gunnar
Karlsson á Hafrannsóknastofnun-
inni segja gildi ráðstefnunnar vera
tvíþætt. Í fyrsta lagi hjálpi þetta evr-
ópskum sjávarlíffræðingum að hitt-
ast og ræða um sín mál.
„Menn bindast tengslum, skiptast
á skoðunum o.s.frv. þannig að þetta
er mikilvægur evrópskur og raunar
alþjóðlegur vettvangur. Öll sam-
vinna á milli manna verður auðveld-
ari og svo er auðvitað mikilvægt að
sjá hvað er að gerast í faginu.“
Aðspurðir segja þeir að mjög
margir áhugaverðir fyrirlestrar hafi
verið fluttir á ráðstefnunni, hverjum
þyki sinn fugl að vísu fagur, en óneit-
anlega hafi verið fovitnilegt að hlusta
á prófessor Tyler og erindi hans um
hverasvæði neðansjávar. Þeir segja
Íslendinga hafa lítillega sinnt slíkum
rannsóknum en ljóst sé að Ísland
hafi upp á mikla möguleika að bjóða
að því er snertir slík hverasvæði neð-
ansjávar en taka þó fram að sjáv-
arlíffræði Íslands sé almennt séð
ákaflega forvitnileg.
Þeir viðurkenna að mikil vinna
hafi farið í undirbúning ráðstefnunn-
ar og þeirri vinnu sé í raun ekki lokið
þar sem stefnt sé að því að gefa út á
næsta ári 400–500 síðna bók þar sem
birt verði úrval greina um þær rann-
sóknir sem kynntar voru á ráðstefn-
unni. „Það var auðvitað talsverður
heiður fyrir okkur að fá að halda
þessa ráðstefnu enda er vanalega
búið að bóka hana mörg ár fram í
tímann.“
Paul Tyler, prófessor við háskól-
ann í Southampton, fjallaði ásamt
Sjávarlíffræði Íslands
mjög áhugaverð
Morgunblaðið/Þorkell
Líffræðiráðstefnan var vel sótt. Á myndinni eru f.v. Agnar Ingólfsson,
Jörundur Svavarsson, Paul Tyler og Karl Gunnarsson.
„HARMONIKKUFÉLAG Selfoss og
nágrennis heldur sumarbústaðad-
ansleik á Borg í Grímsnesi fimm-
tánda árið í röð hinn 17. ágúst
næstkomandi. Á Borg eru mjög
góðar aðstæður fyrir tjöld og felli-
hýsi, en síðast kom á þriðja hundr-
að manns á dansleikinn og margir
nýttu sér aðstöðuna.
„Fólk kemur hvaðanæva og tjald-
ar gjarnan við félagsheimilið og
endar þar jafnvel sumarfríið. Fólk
kemur gjarnan á föstudagskvöld og
hitar upp hjá Böðvari og Lísu á
Gömlu-Borg og kemur síðan til
okkar á laugardagskvöldinu,“
sagði Gísli Geirsson, bóndi í Byggð-
arhorni og formaður harmonikku-
félagsins.
Á dansleiknum koma fram Harm-
onikkufélag Selfoss, Steini spil,
Harmonikkufélag Rangæinga og
harmonikkuunnendur úr fleiri fé-
lögum. Þá hefur Hjördís Geirs-
dóttir ákveðið að vera á staðnum
ásamt hljómsveit sinni og taka lag-
ið, segir í fréttatilkynningu.
Sumarbústaða-
dansleikur
ÞÝSKI víngerðarmaðurinn Hanns-
Joachim Louis Guntrum verður hér
á landi vikuna 16. til 23. ágúst og
mun halda fyrirlestra og vínkynn-
ingar í öllum landsfjórðungum.
Guntrum er einn þekktasti víngerð-
armaður Þýskalands og er af tíundu
kynslóð Guntrum-ættarinnar sem
hefur stundað víngerð samfleytt frá
árinu 1648, segir í fréttatilkynningu.
Louis Guntrum mun taka þátt í að
bjóða upp vín á fyrsta vínuppboðinu
hér á landi sem haldið verður á Apó-
tekinu í tengslum við Menningarnótt
í miðborg Reykjavíkur 17. ágúst.
Hann mun einnig ferðast um landið
og kynna vín sín og halda fyrirlestra.
Á Egilsstöðum verður hann með
kynningu 20. ágúst kl. 18.30 í Egils-
stöðum Gistihúsi. Þaðan heldur hann
til Akureyrar og verður með kynn-
ingu 21. ágúst kl. 18.30 í Gamla
Lundi við Eiðsvallagötu. Síðasta
kynningin verður svo á Ísafirði 22.
ágúst þar sem hann mun kynna vín
sitt kl. 12 á hádegi á Hótel Ísafirði.
Vínframleiðandi
með fyrirlestra
víða um land
FRÉTTIR