Morgunblaðið - 17.08.2002, Side 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ás-
kell og Condick I koma í
dag. Vechtborg og Pos-
eidon fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Henri Kosan kemur og
fer frá Straumsvík í
dag. Novator og Ozern-
itsa fóru í gær. Eldborg
fer í dag.
Mannamót
Árskógar. Myndlist
byrjar mánudaginn 16.
sept. kl. 16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Morg-
unganga kl. 10 frá
Hraunseli, rúta frá
Firðinum kl. 9.50. Or-
lofsferð að Hrafnagili
við Eyjafjörð 19.–23.
ágúst, rúta frá Hraun-
seli kl. 9 stundvíslega
mánud. 19. ágúst. Or-
lofsferð að Höfðabrekku
10.–13. sept. Skráning
upplýsinga gefnar í
Hraunseli kl. 13–17.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Félagið
hefur opnað heimasíðu,
www.feb.is. Hringferð
um Norðausturland
laugardaginn 17. ágúst.
Brottför frá Glæsibæ kl.
8. Sunnudagur: Dans-
leikur kl. 20 í Ásgarði,
Caprí-tríó leikur fyrir
dansi. Mánudagur:
Brids kl. 13. Dans-
kennsla Sigvalda hefst
aftur eftir sumarfrí,
framhald kl. 19 og byrj-
endur kl. 20.30. Mið-
vikudagur: Gönguhrólf-
ar ganga frá Hlemmi kl.
9.45. Þjórsárdalur,
Veiðivötn, Fjallabaks-
leið nyrðri, 27.–30.
ágúst. Nokkur sæti
laus. Fyrirhugaðar eru
ferðir til Portúgals 10.
september í 3 vikur og
til Tyrklands 30. sept-
ember í 12 daga fyrir fé-
lagsmenn FEB, skrán-
ing er hafin,
takmarkaður fjöldi. Silf-
urlínan er opin á mánu-
og miðvikudögum kl.
10–12. Skrifstofa félags-
ins er flutt í Faxafen 12,
s. 588 2111. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ.
Uppl. á skrifstofu FEB.
Gerðuberg, félagsstarf.
Á mánudag vinnustofur
opnaðar kl. 9–16.30,
m.a. tréútskurður í
umsjá Hjálmars Th.
Ingimundarsonar.
Sund- og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug,
frá hádegi spilasalur op-
inn, kl. 15.30 dans hjá
Sigvalda.
Veitingar í Kaffi Bergi.
Glerskurður byrjar um
miðjan september. Mið-
vikudaginn 21. ágúst er
ferðalag í Rangárþing,
leiðsögn staðkunnugra,
kaffihlaðborð í Hlíð-
arenda, Hvolsvelli,
skráning hafin.
Allar upplýsingar á
staðnum og í síma
575 7720.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið alla virka daga
kl. 9–17, hádegismatur,
kaffi og heimabakað
meðlæti.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Púttað verð-
ur á Listatúni í dag,
laugardag, kl. 10.30.
Mætum öll og reynum
með okkur.
Vesturgata. Ferð til
Vestmannaeyja mið-
vikudaginn 21. ágúst.
Lagt af stað frá Vest-
urgötu kl. 10.30. Siglt
með Herjólfi fram og til
baka. Skoðunarferð um
eyjuna. Þriggja rétta
kvöldmáltíð og gisting
ásamt morgunverði á
hótel Þórshamri. Athug-
ið, greiða þarf farmiða í
síðasta lagi fyrir 19.
ágúst. Nánari upplýs-
ingar í síma 562 7077,
allir velkomnir.
Gönguklúbbur Hana-
nú. Morgunganga kl. 10
frá Gjábakka í Kópavogi
laugardagsmorgna.
Krummakaffi kl. 9. Allir
velkomnir.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla, kl.
18.15 á mánudögum í
Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í fræðslu-
deild SÁA, Síðumúla
3–5 og í Kirkju óháða
safnaðarins við Háteigs-
veg á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
á Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Kattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, er opinn þriðjud. og
fimmtud. frá kl. 14–17.
Leið 10 og 110 ganga að
Kattholti.
Eldri borgarar, Vest-
fjarðaferð dagana 28.–
31. ágúst, farið frá Hall-
grímskirkju kl. 10, gist í
Flókalundi, á Hótel Ísa-
firði og Reykjanesi,
heimferð um Stein-
grímsfjarðarheiði, í
Hrútafjörð og þaðan yf-
ir Holtavörðuheiði og
heim. Uppl. og skráning
hjá Dagbjörtu í s.
693 6694, 510 1034 og
561 0408, allir velkomn-
ir.
Orlofsnefnd húsmæðra
í Kópavogi. Vegna for-
falla eru örfá sæti laus í
ferð í Skagafjörð 23.–25.
ágúst. Upplýsingar hjá
Ólöfu í s. 554 0388 eða
Birnu í s. 554 2199.
Minningarkort
Minningarkort Félags
eldri borgara, Selfossi,
eru afgreidd á skrifstof-
unni í Grænumörk 5
miðvikudaga kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geir í Grænumörk 5,
sími 482 1134, og í versl-
uninni Írisi í Miðgarði.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S.
570 5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is.
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum kvennadeild-
ar RRKÍ á sjúkrahúsum
og á skrifstofu Reykja-
víkurdeildar, Fákafeni
11, s. 568 8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562 1581, og hjá Krist-
ínu Gísladóttur, s.
551 7193, og Elínu
Snorradóttur, s.
561 5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16, Reykja-
vík. Opið virka daga kl.
9–17. S. 553 9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningakort Breið-
firðingafélagsins eru til
sölu hjá Sveini Sig-
urjónssyni, s. 555 0383
eða 899 1161.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði. Minning-
arsjóður í vörslu kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði.
Minningarkortin fást nú
í Lyfjum og heilsu,
verslunarmiðstöðinni
Firðinum í Hafnarfirði.
Kortið kostar 500 kr.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma
552 4994 eða 553 6697.
Minningarkortin fást
líka í Háteigskirkju við
Háteigsveg.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju,
s. 520 1300, og í blóma-
búðinni Holtablóminu,
Langholtsvegi 126.
Gíróþjónusta er í kirkj-
unni.
Minningarkort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67, og í
Kirkjuhúsinu v/
Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í blóma-
búðinni Burkna, hjá
Sjöfn, s. 555 0104, og hjá
Ernu, s. 565 0152 (gíró-
þjónusta).
Í dag er laugardagur 17. ágúst,
229. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Orð dagsins: Og ég veit, að boðorð
hans er eilíft líf. Það sem ég tala,
það tala ég því eins og faðirinn
hefur sagt mér.
(Jóhannes 12, 50.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI ferðaðist töluvertum landið í sumar og hafði
gaman af. Þar sem ferðalagið var
nokkuð samfellt og gist í tjaldi alla
jafna þurftu Víkverji og fjölskylda
hans oft á þjónustu sundlauga að
halda. Er skemmst frá því að segja
að flestar eru þessar laugar til fyr-
irmyndar og sannkölluð nautn að
baða sig í þeim.
Ein þessara sundlauga, sem
virkilega var gaman að heimsækja,
var sundlaugin á Húsavík, sem ný-
lega hefur öll verið tekin í gegn og
það svo vel að Víkverji hefur sjald-
an komið í jafn þrifalega og
skemmtilega uppbyggða laug.
Sömuleiðis má nefna sundlaugina
í Hveragerði sem þrátt fyrir nokk-
urn aldur gæti sómt sér vel við
hvaða lúxushótel sem er. Sund-
laugin og sundlaugarhúsið eru
hönnuð með þeim hætti að Víkverji
fær alltaf á tilfinninguna að hann sé
kominn til sólarlanda þegar hann
sækir þessa laug heim. Þeir sem
hafa séð um viðhald þessa
mannvirkis eiga sannarlega hrós
skilið.
LENGI væri hægt að telja uppgóðar laugar á landsbyggðinni.
Þrátt fyrir það finnast í sundlauga-
flóru hennar einnig svartir sauðir.
Víkverji getur ekki látið hjá líða að
nefna sundlaugina á Reykjanesi á
Vestfjörðum sem hann slysaðist til
að heimsækja eftir meðmæli vinar
sem sagði hana svo sérstaka að ekki
mætti láta hana framhjá sér fara.
Vissulega er laugin sérstök fyrir
margra hluta sakir. Ber þar fyrst
að nefna sundlaugarstæðið, sem er
svo opið að hrikaleg fjöllin, sem ein-
kenna þennan landshluta, blasa við
svo unun er á að horfa.
Hins vegar er viðhaldi og þrifnaði
verulega áfátt svo það þarf sann-
kallað hugrekki til að hafa sig ofan í
laugina. Grænt slý flýtur á vatninu
og sömuleiðis einhvers konar olíu-
brák sem hugsanlega má rekja til
líkama laugargesta. Ekkert rennsli
virðist vera í þessari laug, sem vek-
ur spurningar um sóttkveikju-
hættu. Og þegar upp úr er komið er
farið inn í flísalagða búningsklefa,
sem einhverju sinni hafa verið
ágætir en eru vegna óþrifnaðar
varla mönnum bjóðandi.
Víkverji greinir ekki frá þessu
hér af illgirni heldur finnst honum
mikil synd að laug, sem gæti verið
ágætis aðdráttarafl fyrir ferða-
menn vegna náttúrunnar í kring,
skuli vera vanrækt á þennan hátt.
Vissulega eru fáir íbúar í sveitar-
félaginu sem um ræðir en varla er
það afsökun fyrir því að sniðganga
algerlega reglur um hreinlæti á al-
mennum baðstöðum.
x x x
VÍKVERJI hlakkar mikið til aðheimsækja miðborgina á
Menningarnótt í dag og í kvöld og
njóta allra þeirra uppákoma sem
þar verða í boði. Þetta kvöld er
sannarlega lofsvert framtak og hef-
ur unnið sér sess í huga borgarbúa
sem ómissandi hluti sumarsins.
Þetta er ekki síður góður vett-
vangur fyrir listamenn af öllum
stærðum og gerðum til að koma
sjálfum sér og list sinni á framfæri
og sýnist Víkverja af dagskrá sem
dreift var með Morgunblaðinu í
gær að Menningarnóttin í ár verði
ekki eftirbátur fyrri nátta.
Vonandi hangir hann svo þurr!
Flutningabílstjórar
sýni tillitssemi
MÉR hefur lengi verið
þyrnir í auga hve gjarnir
bílstjórar á malarflutn-
ingabílum eru á að aka um
með malarhlöss sín án
þess að verja nálæga um-
ferð fyrir lausri möl sem
hrunið getur af bílunum.
Ég veit að í því er fólgin
einhver fyrirhöfn fyrir þá
að breiða dúk yfir hlössin,
en sú fyrirhöfn er hjóm
eitt samanborið við þann
fjárhagslega skaða sem
möl og sandur getur valdið
á lakki og rúðum bifreiða.
Skemmst er einnig að
minnast banaslyss sem
varð þegar steinn aftan af
flutningabíl kastaðist inn
um bílrúðu fólksbíls sem
fyrir aftan fór svo ökumað-
urinn lést.
Að því ég best veit eru
ökumenn skyldugir til að
ganga svo frá varningi sem
þeir flytja að ekki hrynji af
bílunum, en bíljstórar virð-
ast oft ekki gera sér grein
fyrir að án þess að breiða
dúk yfir hlassið er mikil
hætta á að möl og sandur
fjúki yfir aðvífandi bíla.
Reyndar sá ég fyrst fyr-
ir nokkrum dögum nokkra
malarflutningabíla sem
höfðu breitt yfir farg sitt,
og eiga þeir bílstjórar hrós
skilið fyrir. Ég hvet al-
menna ökumenn til að
flauta við malarflutninga-
bílstjórum sem aka um
með nakin hlöss, til að
minna þá á þá tjónhættu
sem þeir bjóða heim.
Ökumaður.
Einstök þjónusta
ÞAÐ kom upp smá vanda-
mál í bílnum mínum um
daginn, en afgreiðslu-
mennirnir Óskar, Óli og
Tómas voru fljótir að
bjarga því sem bjarga
þurfti fyrir mig. Bíllinn
var dreginn inn á verk-
stæði Essó og þar tóku
herramennirnir Tómas og
Óli á móti mér og sinntu
starfi sínu mjög vel. Mér
finnst fólk of sjaldan fá
hrós fyrir gott verk og
langaði að þakka þeim þre-
menningunum kærlega
fyrir mig.
Viðskiptavinur Essó.
Frábær þjónusta
hjá Víkurprjóni
VIÐ hjónin vorum stödd í
sumarbústað undir Eyja-
fjöllum um verslunar-
mannahelgina. Okkur datt
í hug, á sunnudeginum í
rigningunni, að skreppa til
Víkur og kaupa okkur
sokka. Ég keypti þarna
nokkuð mörg pör, en þeg-
ar heim var komið tók ég
eftir að ég hafði gleymt
sex pörum, eða einum
pakka af sokkum, í búð-
inni. Ég hringdi þriðjudag-
inn eftir helgina og tók
maðurinn sem svaraði mér
mjög vel, – spurði hvorki
um kvittun né annað slíkt.
Hann sagði ekkert mál að
senda sokkana og voru
þeir komnir heim að dyr-
um næsta dag, án nokkurs
vesens.
Ég vil þakka kærlega
fyrir þessa þjónustu, fyrir
utan hvað sokkarnir eru
frábærlega sterkir og góð-
ir.
Ágústa.
Mjög góð þjónusta
hjá Úrvali-Útsýn
MÓÐIR mín fór að heim-
sækja systur sína í Dan-
mörku á dögunum, en svo
illa vildi til að hún missti af
flugvélinni. Hún vill þakka
starfsmanni Úrvals-Útsýn-
ar sem útvegaði henni sæti
í annarri vél, sem hún gat
haldið áfram að ferðast
með til Billund.
Farþegi.
Færum verslunar-
mannahelgina til
ÉG HEF veitt því athygli
að á verslunarmannahelgi
eru dagarnir teknir að
styttast. Þannig er t.a.m.
alltaf myrkur á myndum af
bálkestinum á Þjóðhátíð í
Eyjum. Væri nokkru á því
að tapa að færa þessa há-
tíðarhelgi til, svo að hún
yrði t.a.m. í byrjun júlí? Þá
væru líkur á betra veðri,
en ekki hvað síst meiri
birta yfir nóttina, sem von-
andi myndi verka til að
draga úr kynferðisglæp-
um, þar sem þau ómenni
sem slíkt stunda gætu ekki
lengur stundað iðju sína í
skjóli myrkurs.
Óli.
Embla er fundin
KISAN Embla sem týnd-
ist frá Skólavörðustíg á
dögunum er komin í leit-
irnar. Eigandi hennar vildi
koma á framfæri þakklæti
til þess sem kom áleiðis
ábendingu um hvar Emblu
væri að finna.
Rauðs farsíma
saknað
RAUÐUR Nokia-sími var
skilinn eftir á róluvellinum
við Vesturgötu, miðviku-
daginn 7. ágúst sl. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband
við eiganda í síma 564 5075
eða 699 0557.
Lyklar í Galtalæk
LYKLAR á hring fundust
í Galtalæk um verslunar-
mannahelgina. Einn lykill-
inn virðist vera bíllykill og
er með svartan plasthaus.
Sá sem saknar lyklanna er
beðinn að hafa samband í
síma 692 1279.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT:
1 kuldaskjálfta, 4 stilltur,
7 Gyðingar, 8 samsinn-
um, 9 skýra frá, 11 lögun,
13 hugboð, 14 kjánar, 15
raspur, 17 svanur, 20 eld-
stæði, 22 manna, 23 nabb-
inn, 24 nagdýr, 25 mál.
LÓÐRÉTT:
2 óslétt, 2 minnist á, 3
numið, 4 áreita, 5 hljóð-
færi, 6 kvæðið, 10 hátíð-
in, 12 nestispoka, 13 hvít-
leit, 15 gangfletir, 16
gjafmild, 18 dáin, 19 áma,
20 árna, 21 tarfur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 vitskerta, 8 volar, 9 gamla, 10 góu, 11 terta, 13
rymja, 15 mótum, 18 kamar, 21 áll, 22 kapal, 23 aftan, 24
grunnfæra.
Lóðrétt: 2 illur, 3 sarga, 4 elgur, 5 tæmum, 6 hvít, 7 gata,
12 tíu, 14 yla, 15 maka, 16 tapar, 17 málin, 18 klauf, 19
mætir, 20 röng.
K r o s s g á t a
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16