Morgunblaðið - 17.08.2002, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 2002 59
DAGBÓK
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggi-
legan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Einkatímar í sjálfstyrkingu - Áhrifarík meðferð fyrir eyrnaveik börn
Námskeið í Reykjavík
21.-23. ágúst 1. stig. kvöldnámskeið
31. ágúst-1. sept. 2. stig. kvöldnámskeið
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Leggðu þig fram um að
breyta til í dag og njóta lífs-
ins, fara til dæmis í bíó eða
íþróttaleik eða -mót.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Taktu þér tíma í að koma
röð og reglu á hlutina
heimafyrir. Hikaðu ekki við
að færa mublur úr stað eða
breyta til.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Stutt ferðalag í dag mun
bæði gleðja þig og uppörva.
Hringdu í vandamenn, þetta
er gráupplagður dagur til að
rækta tengsl við þá.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Hugsaði þig um tvisvar áður
en þú ráðstafar peningum í
dag. Láttu skynsemina ráða
ferðinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Öðrum finnst kraftur þinn
helst til mikill og stendur
ógn af þér í dag. Fylgstu
með viðbrögðum vina til að
kanna hvort sú sé raunin.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Njóttu þess að versla í dag,
hvaðeina sem þú kaupir fyr-
ir sjálfan þig eða ástvini
verður fallegt og lengi þakk-
að.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Rómantískt daður eflir and-
ann í dag, skipuleggðu
draumastund við kertaljós
og blómaskraut með ein-
hverjum sem þú unnir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ræddu við aðra um áform
þín um breytingar sem þú
vilt að líf þitt taki. Þú munt
öðlast meiri frama á næstu
mánuðum en undanfarinn
áratug.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Reyndu að komast í burtu
um helgina eða gera eitt-
hvað allt annað en hið
venjulega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sumum hættir við að fella
ást á yfirmann sinn eða ein-
hvern æðri í dag, algengt er
að steingeitin felli ást á sér
miklu eldri.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Deilur við aðra setja þig út-
af sporinu; líttu í eigin barm
og athugaðu hvort þar sé að
finna lausn vandans því
sjaldan veldur einn þá tveir
deila.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Haltu áfram þeirri viðleitni
að koma röð og reglu á líf
þitt. Þú hefur hvötina og
kraftinn til að framfylgja
áætlunum í þeim efnum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins kemur
sér beint að hlutunum og er
eðlilegt og jarðbundið. Orku
þess skynja allir. Þótt það
virðist félagslynt vill það
standa vörð um einkalíf sitt
og hafa það útaf fyrir sig.
LJÓN
Árnað heilla
95 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 17.
ágúst, er níutíu og fimm
ára frú Kristín Hannibals-
dóttir frá Önundarfirði.
Kristín bjó í áratugi á Bú-
staðavegi 57 í Reykjavík
ásamt eiginmanni sínum,
Kristjáni Kristmundssyni,
sem lést árið 1982. Kristín
býr nú á hjúkrunarheim-
ilinu Eiri, Hlíðarhúsum 2,
Grafarvogi. Hún býður ætt-
ingjum og vinum í afmæl-
iskaffi á Eiri sunnudaginn
18. ágúst frá kl. 15.30.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júní sl. í Hafnar-
fjarðarkirkju af sr. Þórhildi
Ólafs þau Guðrún Halla
Hafsteinsdóttir og Eðvarð
Þór Gíslason.
Ljósmynd/ Mynd, Hafnarfirði
Þessar glaðlegu stelpur söfnuðu 3.073 kr. til styrktar
Rauða krossi Íslands. Þær heita Hildur Birna, Guðrún Mar-
grét, Stefanía, Rannveig Sif og Ingunn.
Morgunblaðið/Jim Smart
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
e6 4. O-O Rge7 5. He1 a6 6.
Bf1 d5 7. d3 h6 8. Rbd2 g6
9. exd5 exd5 10. d4 cxd4
11. Rb3 Bg7 12. Rfxd4 O-O
13. Be3 He8 14. Dd2 Kh7
15. Rxc6 Rxc6 16. c3 Re5
17. Bd4 Bf5 18. Df4 Dg5
19. Dxg5 hxg5 20. Ra5 b5
21. Rb7 Rc4 22. b3 Rd2 23.
f3 Rxf1 24. Kxf1 g4 25.
fxg4 Bxg4 26. h3 Bf5 27.
Rd6 Hxe1+ 28. Hxe1 Be6
29. Rb7 Bf8 30. b4 Bf5 31.
He5 Bd3+ 32. Kf2 Bc4 33.
a3 Hc8 34. He3 g5
35. Hf3 Hc7 36. Rc5
a5 37. Ra6 He7 38.
bxa5 He2+ 39. Kg1
He1+ 40. Kh2 Bd6+
41. g3 f5 42. Bc5
Staðan kom upp á
Lost Boys mótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Amster-
dam. Loek Van
Wely (2645) hafði
svart gegn Emil Sut-
ovsky (2658).
42...d4! 43. Kg2 43.
Bxd6 gekk ekki upp
vegna 43...Bd5 og svartur
vinnur. Framhaldið varð:
43...Bd5 44. Kf2 Bxf3 45.
Kxe1 Bxg3+ 46. Kd2
dxc3+ 47. Kxc3 Be1+ 48.
Kd4 Bxa5 49. Bb4 Bd8 50.
Kc5 Be2 51. Rb8 Be7+ 52.
Kd4 Bf6+ 53. Ke3 Bf1 54.
Rd7 Bb2 55. Rf8+ Kh6 56.
h4 gxh4 57. Bd6 Kg5 58.
Kf3 Bc4 59. Be7+ Kh5 60.
Rd7 Bc1 61. Re5 Bd5+ 62.
Kf2 h3 og hvítur gafst upp.
Helgarskákmót Skáksam-
bands Íslands og Lands-
virkjunar hefst kl. 13.00 í
dag, 17. ágúst, í Ljósafoss-
stöð við Sogið. Vegleg
verðlaun eru í boði og öll-
um er heimil þátttaka.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
LJÓÐABROT
Bjössi litli á Bergi
Bjössi litli á Bergi,
bróðurlaus á jörð,
hljóður fram til fjalla
fylgdi sinni hjörð.
– Stundum verða vorin
vonum manna hörð.
Bjössi litli á Bergi
bjó við stopul skjól.
Hálsinn hamrasvartur
huldi vetrarsól.
Inni jafnt sem úti
einstæðinginn kól.
Ein með öllu gömlu
unga sálin hans
þoldi þunga vetur,
þögn og myrkur lands.
Löng er litlum þroska
leiðin upp til manns.
– – –
Jón Magnússon
TÍSKAN er ekki einskorð-
uð við sídd á pilsum eða
hanakambinn hans Beck-
hams – hún er alls staðar
viðloðandi og ekki síst við
spilaborðið. Tískusveiflur
eru mest áberandi í hindr-
unarsögnum, þar sem veik-
ir tveir og fjöldjöflar af
ýmsum toga hafa komið og
farið í tímans rás. Þessa
dagana er hins vegar eng-
inn maður með mönnum
nema hann spili „mini-
grand“.
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ 1085
♥ 1097
♦ Á98
♣ÁDG3
Vestur Austur
♠ Á3 ♠ G6
♥ ÁKG4 ♥ 86
♦ KG65 ♦ D742
♣K86 ♣97542
Suður
♠ KD9742
♥ D532
♦ 103
♣10
Spilið að ofan er frá Evr-
ópumóti ungmenna. Á
mörgum borðum vakti
norður á einu grandi (!) til
að lýsa yfir 10–12 punktum
og suður stökk hindrandi í
þrjá spaða. Því er ekki að
neita að mini-grandið er
beitt vopn.
Vestur Norður Austur Suður
– 1 grand Pass 3 spaðar
?
Setjum okkur í spor
vesturs. Á hann að láta
valta yfir sig og passa, eða
blanda sér í sagnir með
dobli? Segjum sem svo að
hann taki harðari kostinn
og dobli, hvað á þá aum-
ingja austur að gera? Þetta
er hræðileg staða, en ungu
mennirnir kunna greini-
lega að taka á þessum
vanda. Í leik Ísraels og
Tékklands doblaði Ísr-
aelinn í vestur og austur
sat sem fastast. Vestur
kom út með hjartaás og
skipti yfir í tígul í öðrum
slag. Sagnhafi tók með ás
og spilaði trompi á kóng og
ás. Austur hafði kallað í
tígli og vestur spilaði und-
an kóngnum, fékk hjarta í
gegn, tók þar tvo slagi og
spilaði hjarta í fjórða sinn.
Austur gat yfirtrompað
blindan með gosa, svo spil-
ið fór tvo niður.
Kannski maður haldi sig
bara við 15–17 punkta
grandið.
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
BRIDS
50 ÁRA afmæli. Ámorgun, sunnudag-
inn 18. ágúst, verður
Tryggvi Marinósson fimm-
tugur. Hann tekur á móti
gestum á heimili sínu, Æg-
isgötu 24 á Akureyri, í
kvöld, laugardagskvöld.
FRETTIR
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sumarbrids á Akureyri
Sumarbridge hefur gengið sinn
vanagang hjá Bridgefélagi Akureyr-
ar þótt sumarfrí spilara hafi stund-
um sett mark sitt á mætingu.
Hinn 23. júlí mættu 9 pör til leiks
og unnu grallararnir Stefán Stefáns-
son og Skúli Skúlason með nokkrum
yfirburðum:
1. Stefán – Skúli ....................64,6%
2. Sveinbjörn – Sigurður .....54,9%
3. Reynir – Örlygur ..............54,2%
Þrítugasta júlí mættu 8 pör og var
spennan aðeins meiri en valkyrjurn-
ar Brynja Friðfinnsdóttir og Ólína
Sigurjónsdóttir héldu forystunni:
1. Brynja – Ólína ....................................58,9%
2. Reynir – Soffía ...................................56,5%
3. Pétur – Una ........................................55,9%
Þriðjudaginn 6. ágúst (9 pör)
tróndi svo enn eitt parið á toppnum
en það voru hörkutólin Reynir Har-
aldsson og Örlygur Örlygsson:
1. Reynir – Örlygur ...............................59,7%
2. Sveinbjörn – Sigurður .......................57,6%
3. Sveinn – Jónas ...................................55,6%
Síðastliðinn þriðjudag urðu svo
hin sigursælu Pétur og Una hlut-
skörpust af þeim 11 pörum sem
börðust:
1. Pétur – Una ........................................63,0%
2. Anton – Jónas .....................................55,9%
3. Frímann St. – Stefán St. ...................55,2%
4. Reynir – Örlygur ...............................53,7%
Spilað er á þriðjudögum í sumar í
Hamri, félagsheimili Þórs, kl. 19:30.
Allir velkomnir og ekkert mál er að
mæta stakur.
Sumarbrids í Síðumúla
Miðvikudagskvöldið 14. ágúst var
spilaður 14 para Howell.
Efstu pör (meðalskor var 156):
Jóhann Stefánss. – Guðm. Baldurss. .......177
María Haraldsd. – Aron Þorfinnss. ..........174
Runólfur Jónss. – Steinberg Ríkarðss. ....172
Þórður Sigfúss. – Sævin Bjarnas. ............168
Jakob Haraldss. – Alfreð Kristjánss. ......161
Daginn eftir, fimmtudaginn 15.
ágúst, mættu 22 pör í Mitchell-tví-
menning.
Staða efstu para varð þessi (með-
alskor var 216):
NS
Daníel M. Sigurðss. – Ísak Ö. Sigurðss. ..268
Ragnh. Nielsen – Hjördís Sigurjónsd. ....260
Þórður Sigurðss. – Gísli Þórarinss. ..........239
Óli B. Gunnarss. – Soffía Daníelsd. ..........234
Ljósbrá Baldursd. – Matthías Þorvaldss. 221
AV
Vilhj. Sigurðss. jr. – Hermann Friðrikss. 268
Páll Valdimarss. – Eiríkur Jónss. ............262
Jón V. Jónmundss. – Þorvaldur Pálmas. .261
Gestur Halldórss. – Anton R. Gunnarss. .247
Guðlaugur Sveinss. – Þórður Björnss. ....231
Allar nauðsynlegar upplýsingar
um Sumarbrids 2002, lokastöðu
spilakvölda, bronsstigastöðu og
fleira má finna á heimasíðu Brids-
sambands Íslands, www.bridge.is.
Í Sumarbrids 2002 er spilað alla
virka daga kl. 19.00 í Síðumúla 37.
Allir eru hjartanlega velkomnir í
Sumarbrids og keppnisstjóri aðstoð-
ar við að mynda pör, mæti spilarar
stakir.
Bridsdeild Félag eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði í Glæsibæ mánud. 29. júlí 2002.
18 pör. Meðalskor 216 stig.
Árangur N-S:
Sæm. Björnss. - Oliver Kristóferss. .........280
Alfreð Kristjánsson - Birgir Sigurðss. ....233
Halldór Magnús. - Bergur Þorvaldsson ..225
Árangur A-V:
Sigtr. Ellertss. - Þórarinn Árnas. ............256
Magnús Oddsson - Björn E. Pétursson ...246
Ingibjörg Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 237
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 8. ágúst. 18 pör. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S:
Kristján Ólafsson - Ragnar Björnsson ....250
Sæmundur Björnss. - Oliver Kristóferss. 233
Ólafur Ingvarsson - Þorsteinn Sveinsson 223
Árangur A-V:
Magnús Oddss. - Magnús Halldórss. .......283
Albert Þorsteinsson - Bragi Björnss. ......259
Eysteinn Einarsson - Viggó Nordquist ...228
Í DAG verður sýndur í fyrsta sinn hjá
Ingvari Helgasyni nýr og gjörbreytt-
ur Nissan Double Cab-pallbíll, en op-
ið er frá kl. 12–16. Við smíði pallbíls-
ins nýtir Nissan sér áratugareynslu í
framleiðslu og þróun á pallbílum.
„Meginbreytingin frá forveranum
felst í nýju og endurhönnuðu útliti, en
það sem kann að þykja athyglisverð-
ast er ný og geysiöflug 2.5TDI-dís-
ilvél sem skilar 133 hestöflum við
3.600 snúninga og togi upp á 304 Nm
við aðeins 2.000 snúninga. Er þetta
um 30% aflmeiri vél en áður var í boði,
og þýðir þetta jafnframt að nýr Niss-
an Double Cab er um 30% aflmeiri en
aðrir pallbílar í sama stærðarflokki.
Með þessari nýju vél þykir ljóst að
nýr Nissan Double Cab getur talist
klár í hvað sem er, enda verða til sýnis
hjá Ingvari Helgasyni fjölmargar út-
færslur af bílnum, og þar á meðal
stórglæsileg 35" breytingaútfærsla,“
segir í fréttatilkynningu. Boðið verð-
ur upp á reynsluakstur.
Tvær útgáfur af bílnum verða í
boði; annars vegar grunngerðin sem
er Nissan Double Cab, en sú gerð
mun kosta kr. 2.590.000. Hins vegar
er það Nissan Double Cab E sem er
ríkulega búin vönduðum staðalbún-
aði, en hann kostar kr. 2.835.000. Nýr
Nissan Double Cab verður jafnframt
til sýnis hjá hjá Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar.
Breyttur
Nissan
Double Cab
frumsýndur
NÁMSKEIÐIÐ „lærðu að þekkja
þinn eigin mátt“ verður haldið frá
september 2002– júní 2003.
Kynning á námskeiðinu fer fram
þann 20. ágúst kl. 19 í Heilsuhvoli,
Flókagötu 65. Yfirgripsmikið 10
mánaða námskeið verður haldið í
þjálfun sálarafls og að þroska per-
sónuleika. Markmið námskeiðsins er
að kenna að þekkja og nýta til fulls
styrk sem heilari eða meðferðaraðili
og að læra að hjálpa fólki.
Lærðu að
þekkja þinn
eigin mátt
♦ ♦ ♦