Morgunblaðið - 10.09.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isDapurleg frammistaða gegn
Ungverjum / B3, B4, B5
Birkir Ívar Guðmundsson
löglegur með Haukum / B1
12 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
STÓRIR lyngflákar í innanverðum
Svarfaðardal eru skemmdir en það
eru fiðrildalirfur sem þeim valda.
Stundum hefur borið á skemmd-
um á bláberjalyngi á haustin þannig
að blöðin visna og berjalandið verður
brúnt yfir að líta. Nú í haust eru stór-
ir lyngflákar í innanverðum Svarf-
aðardal skemmdir og fóru þau Soffía
Arnþórsdóttir á Akureyrarsetri
Náttúrufræðistofnunar og Bjarni E.
Guðleifsson hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins á Möðruvöllum til
rannsókna á orsökum skemmdanna
á svonefndum Hnjótum í Svarfaðar-
dal. Kom í ljós að það er svört eða
dökkblá fiðrildalirfa, svonefndur
birkifeti, sem veldur skemmdunum.
Étur hann blöð á bláberjalyngi, og
reyndar einnig fjalldrapa, og vefur
þeim utanum sig. Lifir hann síðan
sem púpa til næsta sumars en þá
kemur fiðrildi úr púpunni sem verpir
eggjum sem verða að nýjum lirfum.
Líklegt er að mildir vetur tryggi
góða afkomu púpnanna og að það sé
ástæða faraldursins í Svarfaðardal.
Við þessu er ekkert að gera, einungis
að vona að náttúran grisji púpustofn-
inn í vetur.
Svarfaðardalur
Skemmdir
á bláberja-
lyngi
SÓLIN sá gestum á þessu
skemmtiferðaskipi fyrir stórbrot-
inni litadýrð þar sem þeir sigldu á
haf út eftir viðdvöl í höfuðborg-
inni. Kannski er það tákn um árs-
tíðina sem nú fer í hönd að skipið
siglir á brott, því skemmtiferða-
skipin eiga það sammerkt með far-
fuglunum að nýta sumarmánuðina
til heimsókna á þessa eyju elds og
ísa en kveðja þegar sumri tekur að
halla.
Morgunblaðið/Kristinn
Siglt á brott
KARLMAÐUR sem var stöðvaður á
Keflavíkurflugvelli á laugardag með
falsað vegabréf fannst látinn síðdeg-
is í gær á gistiheimili í Reykjanesbæ.
Skv. upplýsingum frá lögreglunni í
Keflavík er talið að um sjálfsvíg hafi
verið að ræða.
Skv. upplýsingum frá sýslumann-
inum á Keflavíkurflugvelli kom mað-
urinn til landsins með ferjunni Nor-
rænu á fimmtudag og fékk sam-
dægurs far til Reykjavíkur. Hann
hugðist fara til Minneapolis í Banda-
ríkjunum með áætlunarflugi á laug-
ardag en var stöðvaður við landa-
mæraeftirlit þar sem hann fram-
vísaði fölsuðum skilríkjum. Við leit
fannst jafnvirði hálfrar milljónar
króna í erlendum gjaldmiðli, aðal-
lega í breskum pundum. Jóhann R.
Benediktsson, sýslumaður á Kefla-
víkurflugvelli, sagði í samtali við
Morgunblaðið að maðurinn hafi
sagst vera frá Íran en hann hafi þó
ekki gert fullnægjandi grein fyrir
sjálfum sér. Maðurinn sagðist hafa
farið frá Íran og þaðan um Kúveit til
Íraks árið 1990. Síðan þá hefði hann
dvalið í Danmörku en hann gaf ekki
upp hvar hann dvaldi eða vann þar í
landi. Lögreglan á Keflavíkurflug-
velli hefur óskað eftir upplýsingum
frá dönsku lögreglunni um manninn
og að kröfu sýslumanns úrskurðaði
Héraðsdómur Reykjaness manninn í
farbann til nk. mánudags.
Hert eftirlit
Eftirlit á Keflavíkurflugvelli var
hert í síðustu viku. Jóhann segir að
ástæðan sé sú að á miðvikudaginn
verður ár liðið frá hryðjuverkunum í
Bandaríkjunum 11. september, auk
þess sem spenna fer nú vaxandi í
Mið-Austurlöndum. Brottfarareftir-
lit og almennt eftirlit hefur verið
aukið og starfsfólki við öryggiseft-
irlit fjölgað.
Maður stöðvaður með falsað vega-
bréf á leiðinni til Bandaríkjanna
Fannst látinn
á gistiheimili
COLUMBIA Ventures Corp., sem
rekur m.a. álver Norðuráls á Grund-
artanga og á stærstan hlut í Íslands-
síma eftir sameiningu við Halló-
Frjáls fjarskipti, er á lokastigi við-
ræðna við bandarískt fjarskipta-
fyrirtæki um kaup á tvöföldum
sæstreng sem liggur milli Bret-
lands, Írlands, Kanada og Banda-
ríkjanna.
Bjarni K. Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Col-
umbia Ventures, staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. Aðspurður um tengingu
strengsins við Ísland sagði hann
þann möguleika vera inni í myndinni
ef það reyndist hagkvæmt. Hér væri
þó um sjálfstæða fjárfestingu Col-
umbia Ventures að ræða en fyrir-
tækið er sem kunnugt er í eigu
Bandaríkjamannsins Kenneths Pet-
ersons.
Samkvæmt frétt á vefsíðu kanad-
íska blaðsins Globe and Mail hefur
fjarskiptafyrirtækið, er nefnist
360networks Inc., samþykkt kaupin
fyrir sitt leyti. Þau eiga þó eftir að
hljóta samþykki kanadískra dóm-
stóla sem taka málið fyrir í næsta
mánuði, en fyrirtækið hefur verið í
greiðslustöðvun að undanförnu
vegna rekstrarerfiðleika.
Fram kemur í frétt Globe and
Mail að fjárfesting við lagningu sæ-
strengsins og byggingu endastöðva
sinnar hvorum megin við Atlants-
hafið hafi verið upp á 800 milljónir
Bandaríkjadala, eða sem nemur
tæpum 70 milljörðum króna. Kaup-
verð sem um hefur verið rætt er þó
allt annað og minna en Bjarni vildi
aðspurður ekki gefa það upp, sagði
það trúnaðarmál. Að hans sögn hafa
viðræður við eigendur 360networks
staðið yfir um nokkurn tíma.
Eitt skref
tekið í einu
Strengurinn er sem fyrr segir
tvöfaldur og liggur samhliða annars
vegar beint á milli Bandaríkjanna,
Kanada og borgarinnar Liverpool á
Bretlandi og hins vegar sömu leið en
með viðkomu í Dublin á Írlandi.
Slitni annar strengurinn er unnt að
flytja fjarskiptasamband yfir hafið á
hinn. Gengur þessi tvöfaldi strengur
undir nafninu Hibernia. Til
samanburðar má geta þess að
Cantat-3 sæstrengurinn, sem Ísland
tengist, er einfaldur og slitni hann
leggst fjarskiptasamband niður.
„Við tökum eitt skref í einu. Col-
umbia Ventures er að kaupa sæ-
strenginn til að reka hann sjálfstætt
og selja fyrirtækjum og stofnunum
beggja vegna Atlantshafsins aðgang
að honum. Það verður að koma í ljós
síðar meir hvort önnur tækifæri
skapist kringum strenginn. Við vilj-
um ekki útiloka þann möguleika að
tengingu verði komið á við Ísland.
Áhugavert gæti orðið að skoða það
nánar. Það gæti orðið ódýrara en að
leggja nýjan streng frá Íslandi til
Bretlands eða annarra landa,“ sagði
Bjarni.
Á 28,7% hlut
í Íslandssíma
Samningur um sameiningu Ís-
landssíma og Halló-Frjálsra fjar-
skipta er frágenginn en áreiðan-
leikakönnun stendur yfir og eftir er
að boða til hluthafafunda til að sam-
þykkja sameininguna. Þegar sam-
einingin var tilkynnt kom fram að
hlutur eigenda Halló yrði 28,7% í Ís-
landssíma, sem gerir Columbia
Ventures stærsta einstaka hluthaf-
ann þar sem fyrirtækið á Halló al-
farið.
Stærsti hluthafi Íslandssíma í viðræðum um kaup á
tvöföldum sæstreng milli Bretlands og Bandaríkjanna
Tenging strengsins
við Ísland í myndinni