Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 27 Vika símenntunar í Rafiðnaðarskólanum Skeifan 11b · 108 Reykjavík · Sími 568 5010 · www.raf.is Fyrir þá sem vilja ná árangri Við tökum virkan þátt í eflingu símenntunar og verðum þátttakendur í Viku símenntunar vikuna 8. - 14. september. Á Degi símenntunar, fimmtudaginn 12. september, verður Opið hús í Rafiðnaðarskólanum. Verið velkomin í kaffi, vöfflur og fróðleik. Það verður eitthvað að gerast allan daginn frá kl. 10:00 til 18:00 m.a. ókeypis námskeið og kynningar.    DAGSKRÁ Á OPNU HÚSI 10:00 – 12:00 SharePoint Team Services, best varðveitta leyndarmálið í Office. Öryggismál í Windows 2000, tæknilegar nýjungar í öryggismálum W2K. Mismunandi gagnaflutningur, hver er munurinn á ISDN, ADSL o.s.frv. 12:00 – 13:00 Kynning á námsframboði skólans. Kynning á sérfræðinámi og alþjóðlegum vottunum. Kynning á meistaraskóla og réttindum rafiðnaðarmanna. 14:00 – 16: 00 Prófaðu Office XP, hvað er nýtt, hvað er gagnlegt? Vafrað um vefinn, Internetið fyrir byrjendur. Sigrastu á tölvufælninni, námskeið fyrir alvöru byrjendur. 16:00 – 18:00 Brellur og brögð í Office, vinnusparandi leiðir og faldir möguleikar. Öryggismál í Windows 2000, tæknilegar nýjungar í öryggismálum W2K. Mismunandi gagnaflutningur, hver er munurinn á ISDN, ADSL o.s.frv. Virkjaðu þátttakendur ...á fundinum, í hópnum eða í kennslustofunni.    Tryggið ykkur sæti á ókeypis námskeið í síma 568 5010. Einnig er hægt að mæta á staðinn og taka þátt í þeim námskeiðum sem eru í gangi. Gestum okkar á Opnu húsi og á Fræðsluhátíð í Smáralind laugardaginn 14. september bjóðast mjög hagstæð tilboð. LO G I NÝLEGA var opnuð sýningin Grasrótin í Nýlistasafninu. Er það sú þriðja í árlegum viðburði safnsins þar sem helstu straumar nýrrar kyn- slóðar myndlistarmanna eru kynntir almenningi. Alls taka 12 listamenn þátt í sýningunni. Hafa þeir nýlega útskrifast með BA gráðu eftir þriggja ára nám í Listaháskóla Ís- lands, lokið sambærilegu námi er- lendis eða eru þar í framhaldsnámi. Valið á listamönnunum kemur ekki sérlega á óvart. Flestir hafa verið virkir í sýningarhaldi og jafnvel tekið áður þátt í sýningum í Nýlistasafn- inu. Er því um unga listamenn að ræða sem hafa þegar staðsett sig í „grasrótinni“ um nokkurt skeið. Grasrót er mjög teygjanleg í ís- lenskum listheimi því fæstir mynd- listarmenn fá tækifæri til að vaxa upp úr moldinni og verða því með tímanum að ofvaxinni rót. Ekki vegna lítilla hæfileika heldur vegna lélegs aðhalds. Ísland eitt og sér er ekki fýsilegur kostur fyrir framsæk- inn myndlistarmann að búa við og brennur hann fljótt út við lítt hvetj- andi aðstæður. Segir það margt um listpólitíkina hérlendis að eini „Ís- lendingurinn“ sem er sýnilegur í hin- um alþjóðlega listheimi er Ólafur El- íasson, fæddur, uppalinn og skólaður í Danmörku og hefur því aldrei þurft að lifa við íslenskar aðstæður til að stunda listsköpun sína. Haldist ástandið óbreytt er óhætt að segja að sýnendur „Grasrótarinnar“ séu þá þegar komnir á toppinn í íslenskum listheimi. Grasrótin þetta árið eru þau Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Guðni Gunnars- son, Gunnhildur Hauksdóttir, Halla Kristín Einarsdóttir, Helgi Þórsson, Ingibjörg Magnadóttir, Margrét O. Leopoldsdóttir, Magnús Logi Krist- insson, Markús Þór Andrésson, Páll Banine, Ragnar Kjartansson og Sirra Sigrún Sigurðardóttir. Mynd- bönd eru mest áberandi tjáningar- miðillinn á sýningunni, sem er nokk- uð í takt við það sem gengur og gerist í hinum stóra heimi, en myndbönd hafa verið ráðandi á flestum stórsýn- ingum samtímalistar undanfarin ár. Nýta listamenn „grasrótarinnar“ miðilinn á einfaldan og skýran hátt þótt verkin séu í grunninn mjög ólík. Verk Gunnhildar Hauksdóttur, „Fræðsla“, er ágætur inngangur að sýningunni. Er það gerningur og myndbandsverk þar sem listakonan leiðir gesti um sýninguna og kennir þeim hvernig eigi að horfa á myndlist svo upplifun geti átt sér stað. Upp- lifun er viðfangsefni Ásdísar Sif Gunnarsdóttur, en hún hefur skapað myndbandsverk sem sýnir óljósar landslagsmyndir ásamt upptöku af samtali tveggja manneskja sem eru yfir sig numdar af hrifningu. Inn á milli landslagsmyndanna birtast myndrammar úr kvikmyndinni „La Belle Noiseuse“, sem fjallar um list- málara sem kominn er til ára sinna og reynir að fanga „meistaraverkið“ í hinsta sinn með aðstoð ungrar fyr- irsætu. Markús Þór Andrésson vinn- ur með landslagshefðina á athyglis- verðan hátt í verkinu „Kom hér“. Hefur hann smíðað lítinn kofa og skreytt með gjafapappír og litlum fjallamálverkum. Í kofanum er gestabók sem gestir geta ritað ferða- sögu sína í eins og tíðkast í sæluhús- um víðsvegar um landið. Líkt og Markús er Páll Banine í útilegu í verki sínu „Hotel California“ sem hann byggir á sígildu popplagi sem listamaðurinn hefur óbeit á. Páll tjaldar í einu horni safnsins og hefur komið fyrir rauðleitu ljósi inni í tjald- inu sem flöktir í vatnsgárum svo skapast suðræn sólseturstemmning. Í öðru horni safnsins er innsetning Ingibjargar Magnadóttur, „Stóra málverkið mitt og ég að tala á bak við slæðu“. Er verkið formalískara en önnur verk á sýningunni. Þykir mér það ljóður hve illa heyrast orðaskil úr hátalaranum innan slæðunnar. Skúlptúr-innsetning Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur er án titils. Ljónshöf- uð hangir fyrir framan spegil og til móts við höfuðið standa tveir sirk- ussökklar. Detta mér helst í hug búddískar og indverskar dæmisögur, en í þeim er ljón tákn fyrir raunveru- legt eðli manna. Einfalt og prýðilega framsett rýmis-ljósmyndaverk Guðna Gunnarssonar, „Án titils (Hlaupið á vegg)“, er í anda hug- myndalistar áttunda áratugarins og sýnir myndröð af listamanninum hlaupa á vegg í safninu. Veggur spil- ar einnig mikilvægan þátt í vel heppnuðu verki Helga Þórssonar, en það er lítið módel af járnbrautarlest sem ekur í hringi inn og út um göng í veggnum. „Míní-kamera“ er fest á lestina og geta sýningargestir séð ferðalag hennar hinum megin við vegginn á sjónvarpskjá. Kurteisi er í hávegum höfð í myndbandsverkum Margrétar O. Leopoldsdóttur, „Eftir mínu höfði“, sem hneigja sig fyrir sýningargestum er þeir koma upp á aðra hæðina. Þar hljóma líka ætt- jarðarsöngvar í myndbandsverkinu „6 sýnishorn“ eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur. „Vandræðaástand“ er bráðsmellið myndband sem sýnir Magnús Loga Kristinsson fremja gerning í hollenskum sjónvarpsþætti og þurfa svo að líða kjánalegar spurningar sjónvarpsmanns að gern- ingi loknum. Ragnar Kjartansson er líka á gamansömum nótum í umfjöll- un um dauðann í verki sínu „Allir dánir“. Hefur listamaðurinn klætt sig í svart og tekið sér ljá í hönd til að hræða hóp barna á leikjanámskeiði. Er uppákoman sýnd á myndbandi ásamt líkkistuþrykki á flauel. Góð skrá fylgir sýningunni á margmiðlunardiski með viðtölum við listamennina. Ekki hafa allir sýnend- ur fundið sér þungamiðju til að vinna út frá og í einstaka tilfellum velti ég því fyrir mér hvort ekki séu aðrir listamenn sem eiga betur skilið að vera fulltrúar grasrótarinnar í ár. Er þó sýningin í heildina ánægjuleg upplifun og vænti ég þess að nýju ræturnar komi til með að næra flóru íslenskrar myndlistar enn frekar á næstu árum. Blómlegar rætur Titillaust verk eftir Helga Þórsson. MYNDLIST Nýlistasafnið Sýningin er opin frá miðvikudögum til sunnudags frá 13-17 og stendur til 29. september. Aðgangur ókeypis. BLÖNDUÐ TÆKNI TÓLF UNGIR MYNDLISTARMENN Jón B. K. Ransu HELGI Þorláksson sagnfræðingur heldur fyrirlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands í Nor- ræna húsinu á þriðjudag kl. 12.05– 13. Fyrirlesturinn er haldinn í sam- starfi við Borgarfræðasetur. Erindið nefnist „Upphaf og ekkert meira. Þéttbýlisvísar á Íslandi fram á 19. öld“. Eiginleg og varanleg bæjar- myndun varð ekki á Íslandi fyrr en á 19. öld en sums staðar var þó þétt- býlt. Í fyrirlestrinum verður kannað af hverju bæir urðu ekki til á Íslandi á fyrri öldum og dregnar fram líkleg- ar ástæður þess. Helgi Þorláksson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Fundurinn er öllum opinn. Upplýs- ingar um dagskrá hádegisfundanna er að finna á heimasíðu Sagnfræð- ingafélags Íslands http://www.aka- demia.is/saga og Borgarfræðaseturs http://www.borg.hi.is. Sagnfræð- ingar þinga í hádeginu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.