Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Leiðsögunám Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra ferðamanna á ferð um Ísland. Stuðst er við námsskrá menntmálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.  Helstu námsgreinar:  Ferðalandafræði Íslands. Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.  Saga landsins, atvinnuvegir, stjórnmál, bókmenntir og listir.  Mannleg samskipti og hópasálfræði.  Skipulagðar ferðir, afþreyingaferðir og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum. Kennt er 3 kvöld í viku, en auk þess er farið í vettvangsferðir á laugardögum. Bíldshöfða 18, sími 567 1466 Opið til kl. 22:00 Nú er rétti tíminn tilað panta nýjaeldhúsinnréttinguog fá hana uppTÍMANLEGA fyrir jól V ilt u ek ki losn a við óþarfa stress? G et um líka tekið þá gömlu niður ELDASKÁLINN Brautarholti 3 • 105 Reykjavík Sími: • 562 1420 Persónulega eldhúsið Reykjanesbær Höfum til sölu litla og þægilega efnalaug á sérstaklega hagstæðu verði. Öll tæki til staðar og í mjög góðu standi. Dúkaleiga. Hægt að markaðssetja fyrirtækið mun betur. Þægileg, sjálfstæð vinna. Laus strax. Vantar þig örugga vinnu? Engin hætta á uppsögn. Vilt þú þéna sjálf- ur af þinni þekkingu og vinnusemi? Er með tvö mjög góð fjölskyldu- fyrirtæki sem allir þekkja í bænum og gefa góðar tekjur. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. Spennandi dæmi. Heildverslun Heildverslun með heimsþekkt merki óskar eftir meðeiganda. Þarf að hafa 10 millj.                             HRÚTFIRÐINGAR réttuðu fé sitt í nýrri rétt, sem byggð hefur verið í landi Hrútatungu. Það var bjart yfir mönnum þegar Morgunblaðið bar að garði og enginn barlómur í mönnum. Göngur gengu nokkuð vel og nú var gist í nýjum skála á afréttinum, en Húnaþing vestra keypti sæluhúsið á Holtavörðuheiði og flutt austur á af- réttinn síðla síðasta vetrar. Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu, sagði byggingu réttar- innar hafa gengið vel, gamla réttin var rifin í sumar og ný byggð síðla sumars. Vann hann við verkið, ásamt ýmsum fleiri sveitungum. Kostnað- arverð er rúmar þrjár milljónir króna, en áætlun var upp á um fjórar milljónir. Sveitarsjóður Húnaþings vestra greiðir um 40% hluta, en bændur hinn hlutann. Nýja réttin leysir af hólmi rétt, sem byggð var árið 1906, þá með torf og grjótvegg- um að utan, en timbur í dilkum og al- menningi. Sú rétt var síðan endur- gerð uppúr miðri öldinni, með timburumgjörð. Elsta réttin sem Gunnar veit um í sveitinni var hins vegar við Réttarfoss, sem er í Hrúta- fjarðará, innan við Grænumýrar- tungu. Sú rétt var að mestu náttúru- smíð. Gunnar sagði það sína skoðun, að réttin væri mun meira en staður til nota í einn dag. Mikill fjöldi fólks kæmi í sveitina í tengslum við réttir, þarna væru fjölskyldumót og einnig færðist í vöxt að útlendingar sæktu í réttir. Nú komu t.d. 20 Hollendingar og mynduðu allt í bak og fyrir. Einn- ig kæmi mikill fjöldi ungmenna og barna í réttir og ímyndin skipti því miklu máli í minningum um sveitina. Umgjörðin yrði því að vera sveitinni til sóma. Réttað í nýrri rétt Hvammstangi Ljósmynd/Karl Á. Sigurgeirsson Gunnar bóndi í Hrútatungu í nýju réttinni. STÓRFRAMKVÆMDIR hafa staðið yfir við sjóvarnargarðinn í Grímsey undanfarnar fjórar vikur. Sæfari, ferja Grímseyinga, hefur lagst skipti eftir skipti að bryggju, hlaðin risagrjóti sem sótt er í námu á Árskógsströnd. Mikið af grjóti hefur líka verið sprengt hér á flugvallarsvæðinu og stærstu steinarnir hirtir en grjót í Grímsey er lélegt þar sem það er mikið sprungið og má við litlu hnjaski. Lengi hafði staðið til að styrkja og efla sjóvarnargarðinn en eftir vestan áhlaupið mikla síðasta vetur var farið á fulla ferð og bættur varnargarður settur í fyrsta sæti hvað framkvæmdir snerti í eyjunni. Alls eiga 280 risasteinar að mynda garðinn en slíkur öldubrjótur er ákaflega þýðingarmikill fyrir höfn og athafnasvæði. Um 80 risasteinar eru ókomnir enn. Sæfari kemur með milli 12 og 17 hnullunga í ferð þannig að rúmur mánuður er í það að þessu stóra verki ljúki. Verktaki er Árni Helgason frá Ólafsfirði en Siglingamálastofnun borgar stærsta hluta framkvæmdanna. Síðan er það bara áframhaldandi vinna við höfnina, því sjóvarnargarðurinn er aðeins einn áfangi af mörgum, sögðu sveitarstjórnarmennirnir Garðar Ólason og Brynjólfur Árna- son. Sjóvarnar- garður end- urbættur Grímsey Morgunblaðið/Helga Mattína Garðar Ólason og Brynjólfur Árnason við sjóvarnargarðinn í Grímsey. SÍLDARVINNSLAN HF. hefur selt frystitogarann Barða NK til Namibíu og mun skipið verða afhent nýjum eigendum 11. september næstkomandi. Barði var keyptur til Neskaup- staðar árið 1989 frá Ísafirði en skipið hét áður Júlíus Geirmundsson ÍS. Það verður Snæfugl SU sem mun fylla skarð Barða en Síldarvinnslan eignaðist Snæfugl á síðasta ári þegar félagið keypti stóran hlut í Skipa- kletti á Reyðarfirði. Snæfugl mun fljótlega halda til Póllands þar sem skipið verður sand- blásið, málað og lagfært. Reiknað er með að Snæfuglinn sem þá mun bera nafnið Barði NK verði tilbúinn á veiðar eftir einn og hálfan til tvo mánuði. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Afla landað úr síðustu veiðiferð Barða NK. Barðinn seldur til Namibíu Neskaupstaður 640 ÞÁTTTAKENDUR voru í Brú- arhlaupi Selfoss sem fór fram í 12. sinn á laugardag og hófst á Ölfus- árbrú. Þátttakendur ýmist hlupu eða hjóluðu. Hjólreiðamenn fóru 5 og 12 kílómetra en hlaupararnir 2,5, 5,0, 10 og 21,5 kílómetra. Gott veður var á meðan hlaupið fór fram eins og reyndar hefur verið öll árin sem hlaupið hefur farið fram og hefur það sýnt sig að fyrsta helgin í september er nokkuð pottþétt hvað veðurblíðu varðar. Fyrsta hlaupið var haldið 1991 í tengslum við 100 ára afmæli Ölfusárbrúar og er orð- inn fastur liður sem íþrótta- viðburður og bæjarviðburður á Sel- fossi. Alls koma um 40 manns að framkvæmd hlaupsins. Ræsir að þessu sinni var Einar Njálsson bæj- arstjóri Árborgar. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Ölfusárbrú full af fólki eftir að rásmerki var gefið. 640 voru með í Brú- arhlaupi Selfoss Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.