Morgunblaðið - 10.09.2002, Blaðsíða 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FJÖGUR umferðaróhöpp hafa orðið
á gatnamótum Langatanga og Skeið-
holts í Mosfellsbæ síðan þau voru
opnuð í sumar og biðskyldumerking-
um þar breytt. Bæjarverkfræðingur
segir hafa dregist að koma fyrir
hraðahindrun á Langatanga austan
megin við gatnamótin.
Lífleg umræða hefur verið á
heimasíðu Mosfellsbæjar um gatna-
mótin undanfarnar vikur, þar sem
íbúar í bænum hafa gagnrýnt breyt-
ingarnar og þá sérstaklega það að
Bogatangi og Skeiðholt hafi verið
gerð að aðalgötum í stað Langatanga
áður. Samkvæmt upplýsingum, sem
Gylfi Guðjónsson, varaformaður um-
hverfisnefndar bæjarins, lagði til í þá
umræðu hafa alls orðið 16 umferð-
aróhöpp við Langatanga það sem af
er árs, sem flest teljast minniháttar.
Hörðustu árekstrarnir hafi hins veg-
ar verið við umrædd gatnamót.
Tryggvi Jónsson bæjarverkfræð-
ingur staðfestir að samkvæmt upp-
lýsingum hans hafi fjögur umferðar-
óhöpp orðið á umræddum gatna-
mótum. Hann segir að erfitt virðist
fyrir íbúa bæjarins að venjast breyt-
ingunum, jafnvel þótt þær hafi verið
vel auglýstar og settar hafi verið upp
sérstakar merkingar áður en komið
er að gatnamótunum. Hann segir að
dregist hafi hjá verktaka að koma
fyrir hraðahindrun á Langatanga
austan megin við gatnamótin en
vestan megin við þau sé slík hindrun,
sem dragi úr hraða ökumanna áður
en komið er að gatnamótunum. „Ég
veit svo sem ekki hvort það leysi
vandamálið. Ef fólk hugsar lítið í um-
ferðinni lendir það í óhöppum á
gatnamótum, þau eru helstu óhappa-
staðirnir. Það er kannski ekki mikið
meira sem við getum gert nema þá
að loka gatnamótunum og það er alla
vega ekki það sem stendur til að
gera.“
Fjögur óhöpp á
gatnamótunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mosfellsbær
SÍÐASTA vetur tóku nemendur
nokkurra grunnskóla Reykjavík-
ur þátt í verkefni sem ber yf-
irskriftina Lesið í skóginn. Af-
rakstur verkefnisins er nú til
sýnis í Café Flórunni í Grasa-
garðinum, en það fólst í skóg-
arferðum þar sem nemendur
lærðu að skoða skóginn og njóta
hans. Auk þess lærðu þeir að
nýta þann efnivið sem þar er að
finna. Síðan var farið með efni-
viðinn í smíðastofurnar og margs
konar hlutir búnir til.
„Verkefnið byggist á þeim
grunni að nemendur læri sam-
hliða um vistfræði skógarins og
nýtingu hans. Nemendur læra
þannig að meta það sem skóg-
urinn hefur fram að færa og um-
gangast hann af kunnáttu og
ábyrgð,“ segir í frétt frá aðstand-
endum verkefnisins, það er sam-
starfsverkefni Skógræktar rík-
isins, Grunnskóla Reykjavíkur,
Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur,
Umhverfis- og heilbrigðisstofu
Reykjavíkur, Kennaraháskóla Ís-
lands, Skógræktarfélags Reykja-
víkur og BYKO.
Ólíkar námsgreinar
tvinnaðar saman í skóginum
Í fréttinni segir ennfremur að
skógarsvæði innan borgarmark-
anna hafa verið nýtt í verkefninu
og þangað hafa nemendur sótt
sér fróðleik og hráefni. Verkefnið
byggist á þverfaglegri vinnu
nemenda og kennara í ólíkum
námsgreinum svo sem í nátt-
úrufræði, smíði og almennri
kennslu. Í ferðunum er tvinnuð
saman fræðsla um vistkerfið, eig-
inleika trjáa og nýtingu skógar-
ins. Athygli nemenda er vakin á
fegurð skógarins og þeir yrkja
ljóð, flytja tónlist, kveikja eld,
baka brauð og velja sér efnivið til
að vinna úr. Á sýningunni í Café
Flórunni er svo afrakstur skógar-
ferðanna til sýnis. Nemendur
tóku þátt í opnunardagskránni á
sunnudag með margvíslegum
hætti m.a. með því að baka brauð
og sýna færni sína í að tálga.
Sýningin mun standa í tvær
vikur.
Nemendur sýna verk sín
Lesið í skóginn
í Grasagarðinum
Sýnishorn úr smiðju nemend-
anna má finna á sýningunni í
Café Flóru næstu daga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nemendurnir lásu upp skógarljóð við opnun sýningarinnar sem þau
sömdu í tengslum við verkefnið Lesið í skóginn.
Laugardalur
BÆJARSTJÓRN Hafnar-
fjarðar hefur samþykkt álykt-
un þar sem lýst er verulegum
áhyggjum vegna þeirrar
stöðu sem ríkir í heilsugæslu-
málum í bæjarfélaginu. Segir
í ályktuninni að um „óþolandi
ástand“ sé að ræða.
„Á sama tíma og yfir 5.000
bæjarbúar eru án heimilis-
læknis, sem er alls óviðun-
andi, stefnir í mikla óvissu
um frekari læknisþjónustu á
heilsugæslustöðinni á Sól-
vangi vegna deilu lækna
stöðvarinnar við heilbrigðis-
yfirvöld um kjara- og rétt-
indamál,“ segir í ályktuninni.
Ávallt hafi verið lögð áhersla
á öfluga heilsugæsluþjónustu
í bæjarfélaginu og því verði
„ekki lengur búið við það
óþolandi ástand sem ríkt hef-
ur um allt of langt skeið“.
Leggur bæjarstjórnin ríka
áherslu á að allri óvissu um
læknisþjónustuna á Sólvangi
verði eytt hið fyrsta og jafn-
framt verði bætt úr brýnni
þörf fyrir bætta heilsugæslu
og læknisþjónustu í bænum
með fjölgun heilsugæslu-
lækna. Skorar bæjarstjórn
því á heilbrigðisyfirvöld að
taka nú þegar af festu á mál-
unum.
Áhyggjur vegna
heilsugæslu
Óþol-
andi
ástand
Hafnarfjörður
REGLUBUNDNAR mælingar
verða gerðar á skolpmengun í
skurðum í Bessastaðahreppi næstu
þrjú árin. Hreppsnefnd ákvað
þetta á síðasta fundi sínum. Þá var
samþykkt að hefja forhönnun á
næstu áföngum í uppbyggingu frá-
veitu sveitarfélagsins.
Að sögn Gunnars Vals Gísla-
sonar sveitarstjóra er fráveitumál-
um þannig háttað í sveitarfélaginu
að vegna flatlendis séu ekki mögu-
leikar á sjálfrennsli til sjávar og
því verður að dæla öllu skolpi frá
byggðinni. „Við erum búnir að
gera vinnuáætlun frá 1996 í frá-
veitumálum og höfum tekið viss
skref þar en ekki öll. Nú eru
næstu áfangar að forhanna og
kostnaðarreikna það sem eftir er.
Þannig geta menn gert sér grein
fyrir hvað næstu verkáfangar
kosta, hvernig þeir geta litið út og
hvaða framkvæmdum öðrum þeir
geta samræmst.“ Var þetta sam-
þykkt á fundinum að hans sögn.
Meira fé til málaflokksins
Þá samþykkti hreppsráð að
leggja til við stjórn Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga að taka til
umræðu á næsta landsþingi þess
fráveituframkvæmdir sveitarfélaga
með sérstakri hliðsjón af vanda
minni sveitarfélaga að sinna lög-
boðinni skyldu á þessu sviði.
„Markmið umræðunnar verði að
ná samstöðu meðal sveitarfélag-
anna um að knýja á ríkisvaldið að
veita meira fé til þessa málaflokks,
sérstaklega með tilliti til skorts á
framkvæmdafé í minni sveitar-
félögum og þar sem náttúrulegar
aðstæður gera framkvæmdir
kostnaðarsamari,“ segir í sam-
þykktinni.
Næstu áfangar
fráveitu forhannaðir
Bessastaðahreppur