Morgunblaðið - 10.09.2002, Qupperneq 38
HESTAR
38 ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Meistaramót Andvara haldið á
Andvaravöllum 6. til 8. september
A-flokkur
1. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Skafli
frá Norður-Hvammi, 8,64/8,64
2. Jón Olsen, Mána, á Loga
frá Ytri-Brennihóli, 8,53/8,62
3. Þórður Þorgeirsson, Andvara,
á Kolskeggi frá Oddhóli, 8,37/8,58
4. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Byl
frá Skáney, 8,48/8,50
5. Logi Laxdal, Andvara, á Fiðringi
frá Stóru-Ásgeirsá, 8,34/8,44
6. Sigurður V. Matthíasson, Fáki, á
Djákna frá Votmúla, 8,38/8,41
7. Erling Ó. Sigurðsson, Andvara,
á Draupni frá Tóftum, 8,37/8,39
8. Friðþjófur Ö. Vignisson, Geysi,
á Glymi, 8,22/8,23
9. Sigurður Kolbeinsson, Mána,
á Gylli frá Keflavík, 8,28/0,00
B-flokkur
1. Sigurður Sigurðarson, Herði,
á Fífu frá Brún, 8.73/8,80
2. Hulda Gústafsdóttir, Fáki,
á Kólfi frá Stangarholti, 8,47/8,58
3. Ragnar Ágústsson, Sörla,
á Hrólfi frá Hrólfsstöðum, 8,53/8,57
4. Þórður Þorgeirsson, Andvara,
á Brúnku frá Varmadal, 8,59/8,56
5. Katrín Stefánsdóttir, Andvara,
á Adam frá Ketilsstöðum, 0,00/8,54
6. Skapti Steinsbjörnsson, Stíganda,
á Muggi frá Hafsteinsstöðum, 8,50/8,51
7. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki,
á Húna frá Torfunesi, 8,46/8,47
8. Hinrik Þ. Sigurðsson, Sörla,
á Tenór frá Smáratúni, 8,46/8,47
9. Jón Styrmisson, Andvara,
á Gnótt frá Skolalgróf, 8,31/8,41
10. Jón Olsen, Mána, á Krumma
frá Geldingalæk, 8,53/8,40
Tölt/meistarar
1. Sigurður Sigurðarson, Herði,
á Hyllingu frá Kimbastöðum, 6,46/7,04
2. Jón Styrmisson, Andvara,
á Gnótt frá Skollagróf, 6,50/6,98
3. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki,
á Hirti frá Hjarðarhaga, 6,50/6,92
4. Hulda Gústafsdóttir, Fáki,
á Kólfi frá Stangarholti, 6,26/6,78
5. Tómas Ö. Snorrason, Fáki,
á Skörungi frá Bragholti, 6,30/6,61
Tölt/opinn flokkur
1. Sara Ástþórsdóttir, Fáki,
á Þyrnirós frá Álfhólum, 6,26/6,84
2. Þórður Þorgeirsson, Andvara,
á Brúnku frá Varmárdal, 6,20/6,55
3. Erlingur Erlingsson, Geysi,
á Léttingi frá Berustöðum, 6,23/6,44
4. Siguroddur Pétursson, Andvara,
á Sögu frá Sigluvík, 6,23/6,43
5. Sigurður Sæmundsson, Geysi,
á Esjari frá Holtsmúla, 6,00/6,42
6. Hugrún Jóhannsdóttir, Sleipni,
á Spretti frá Glóru, 6,06/6,37
7. Alexander Hrafnkelsson, Fáki,
á Gjafari frá Traðarholti, 5,86/6,27
8. Jón Ó. Guðmundsson, Andvara,
á Hvata frá Saltvík, 5,96/6,13
9. Valdimar Kristinsson, Herði,
á Lé frá Reynisvatni, 5,86/6,08
10. Hinrik Þ. Sigurðsson, Sörla,
á Tenóri frá Smáratúni, 5,70/6,03
150 metra skeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki,
á Neista frá Miðey, 14,67 sek.
2. Sigurður V. Mattíasson, Fáki,
á Ölver frá Stokkseyri, 14,69 sek.
3. Bjarni Bjarnason, Trausta,
á Kolbeini frá Þóroddsstöðum, 14,86 sek.
4. Jón Styrmisson, Andvara,
á Gasellu frá Hafnarfirði, á 15,03 sek.
5. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki,
á Röðli frá Norður Hvammi, 15,04 sek.
250 metra skeið
1. Svanhvít Kristjánsdóttir, Sleipni,
á Sif frá Hávarðarkoti, 22,44 sek.
2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki,
á Óðni frá Búðardal, 22,50 sek.
3. Sigurður Sigurðsson, Herði,
Fölva frá Hafsteinsstöðum, 22,70 sek.
4. Daníel Jónsson, Sleipni,
á Þoku frá Hörgslandi, 22,82 sek.
5. Sigurður V. Mattíasson, Fáki,
á Vaski frá Vöglum, 23,10 sek.
100 metra fljúgandi skeið
1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki,
á Óðni frá Búðardal, 7,55 sek.
2. Svanhvít Kristjánsdóttir, Sleipni,
á Sif frá Hávarðarkoti, 7,76 sek.
3. Logi Laxdal, Andvara,
á Eldjárni frá Efri-Rauðalæk, 7,93 sek.
4. Sigurður Sæmundsson, Geysi,
á Rosta frá Ormsstöðum, 7,95 sek.
5. Sigurður V. Matthíasson, Fáki,
á Kapteini frá Kálfhóli, 8,05 sek.
Úrslit
SIGUR í bæði A- og B-flokki, tölti
meistara er það helsta í uppskeru
Sigurðar Sigurðarsonar á meistara-
mótinu að þessu sinni og líkast til
einsdæmi. Með Fífu frá Brún efsta í
B-flokki og Skafl frá Norður-
Hvammi efstan í A-flokki og síðan
heldur sigurganga Hyllingar frá
Kimbastöðum áfram í tölti. Þá var
hann í fyrsta sæti í opnu tölti á
Hróki frá Bjarnanesi að lokinni for-
keppni en dró sig þar út þar sem
honum fannst klárinn hlífa sér lít-
illega. Ferill Sigurðar fer að minna
nokkuð á sigurgöngu Sigurbjörns
Bárðarsonar fyrir ekki mörgum ár-
um.
Yfirburðasigur Fífu
Í B-flokki má segja að sigur þeirra
Fífu og Sigurðar hafi verið býsna
öruggur, 0,22 vantaði næsta par til
að narta í hæla þeirra. Nú hefur Sig-
urður haldið þessari gæðahryssu
undir son Kringlu frá Kringlumýri
og Andvara frá Ey; Kjarna frá Þjóð-
ólfshaga, þannig að ef allt fer að ósk-
um ætti hún ekki að sjást í keppni á
næstunni og kannski aldrei meir.
Að Fífu frátaldri var keppnin
mjög jöfn og komu í einum hnapp
Hulda Gústafsdóttir með Kólf frá
Stangarholti, Ragnar Ágústsson
með Hrólf frá Hrólfsstöðum og
Þórður Þorgeirsson með Brúnku frá
Varmadal allt ólík hross en svo til
jöfn í einkunn. Í fimmta sæti kom
svo brúðkaupsgjöf Andvara til Katr-
ínar Stefánsdóttur en hún gekk í það
heilag um helgina og félagar hennar
voru svo rausnarlegir að bjóða henni
sæti í úrslitunum með gæðing sinn
Adam frá Ketilsstöðum. Stóðu þau
sig vel og sýndu að þar áttu þau vel
heima. Verður ekki annað séð en
þetta sé allt að smella saman hjá
þeim og má gera ráð fyrir þeim
sterkum á næsta keppnistímabili.
Hart barist í A-flokki
Í A-flokki var þetta jafnara þar
sem Sigurður var með hinn marg-
reynda Skafl frá Norður-Hvammi.
Ekki leit það vel út eftir misheppn-
aðan fyrri skeiðsprett hjá þeim fé-
lögum en Sigurður klúðrar ekki
tveimur sprettum í röð og sigurinn
var í góðri höfn þótt að þeim væri
sótt. Jón Olsen mætti til leiks með
hinn þéttviljuga Loga frá Brennihóli
en þrátt fyrir góða tilraun tókst
þeim ekki að ná sigrinum af Sigurði
og Skafli. En athyglisverðasta
hrossið í úrslitunum var án efa hinn
ungi Kolskeggur frá Oddhóli sem
Þórður Þorgeirsson sat í úrslitum
fyrir Sigurbjörn Bárðarson. Kol-
skeggur er aðeins fimm vetra
stóðhestur og vísast fer þar eitt at-
hyglisverðasta hrossið úr Oddhóls-
ræktuninni til þessa. Hann er undan
Gusti frá Grund og Golu frá Brekk-
um, bráðefnilegur foli enda skutu
þeir félagar Sigurbirni og Byl frá
Skáney aftur fyrir sig í úrslitunum.
Í skeiðinu gerðust þau tíðindi
helst að Sigurbjörn Bárðarson náði
frábærum tíma á Óðni frá Búðardal
7,55 sek. í 100 metra flugskeiði sem
talað er um að verði væntanleg
skráð sem Íslandsmet en við sjáum
hvað setur í þeim efnum.
Kona kveður sér hljóðs
Þá voru það ekki minni tíðindi að
kvenmaður kvaddi sér hljóðs í skeið-
inu svo eftir var tekið. Þar var á
ferðinni Svanhvít Kristjánsdóttir
sem gerði sér lítið fyrir og sigraði í
250 metrunum og varð önnur í flug-
skeiðinu á Sif frá Hávarðarkoti.
Þetta þættu ekki mjög stór tíðindi
erlendis en hér á Íslandi er annað
upp á teningnum því til undantekn-
inga heyrir að konur láti til sín taka
á þessum vettvangi.
Flugskeiðið fór að venju fram í
myrkri með lýsingu frá litlum köst-
urum þar sem Þorvaldur þulur fór á
kostum í stjórn keppninnar, en held-
ur hallaði á stemminguna, þegar
honum bættist vafasamur og óum-
beðinn liðsauki. Það gefur keppninni
fráleitt aukið gildi eða skemmtan að
hlusta á drukkinn þul reyna með
drafandi röddu að vera fyndinn og
skemmtilegur.
Veðurguðinn í Andvara
En þetta var lítið brot af vel-
heppnuðu móti þar sem veðrið var
hreint ótrúlegt. Gárungarnir sögðu
að sá veðurguðanna sem sæi um
góða veðrið væri félagi í Andvara og
tók einn af forsvarsmönnum félags-
ins fram að hann væri á fríu árgjaldi.
þar með skýringin á því hversu
heppnir þeir eru alltaf með veðrið á
meistaramótunum.
Með þessu móti lýkur væntanlega
keppnistímabili hestamanna. Hestar
hafa oft verið í betra formi á þessum
árstíma og má þar vafalítið um
kenna rigningartíð víða um land sem
hefur ekki verið hvetjandi til útreiða.
Nú er að sjá hvort einhverjir rjúki til
og skelli á móti næstu helgar eða
hvort hestamenn telji að nóg sé
komið að sinni. Minna má á að hesta-
menn hafa lengst verið að fram í
október þegar Fákur var með kapp-
reiðaátak fyrir nokkrum árum. Er
nú að sjá hvort hér sé punkturinn
kominn aftan við keppnistímabilið.
Meistaramót Andvara í fögru haustveðri
Fífa frá Brún kvaddi
með glæstum sigri
Morgunblaðið/Vakri
Kolskeggur hinn ungi frá Oddhól og Þórður Þorgeirsson
stóðu sig vel í úrslitum A-flokks.
Morgunblaðið/Vakri
Jón Olsen og Logi gerðu harða atlögu að sigursætinu í
A-flokki en herslumuninn vantaði þrátt fyrir góð tilþrif.
Morgunblaðið/Vakri
„Frjálsir í fasi, fram nú allir í röð,“ kyrja skólakrakkarnir þessa dagana og á það vel við breiðfylkingu B-flokks.
Keppnistímabili hesta-
manna lauk með pompi
og pragt um helgina
þegar Andvari hélt sitt
árlega meistaramót í
fallegu haustveðri.
Valdimar Kristinsson
brá sér í Garðabæinn og
fylgdist með góðu móti.
Morgunblaðið/Vakri
Hann er seigur, Skaflinn frá Norður-Hvammi, og sannar
vel að margur sé knár þótt hann sé smár.
Morgunblaðið/Vakri
Tæpast telst þetta vera brúðkaupsmynd Katrínar Stefánsdóttur en gæti
frekar kallast brúðkaupsgjafarmynd þar sem hún þenur Adam sinn til
hins ýtrasta en sæti í úrslitunum var brúðkaupsgjöf Andvara til hennar.