Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍRAKAR UPP VIÐ VEGG
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í gær einróma ályktun
um vopnaeftirlit í Írak. Írökum er
gefinn sjö daga frestur til að fallast á
kröfur öryggisráðsins.
ESB vill meira í þróunarsjóð
Evrópusambandið vill að framlög
ríkja EFTA í þróunarsjóð fyrir fá-
tækari ríki ESB verði gerð varanleg
og þau leggi auk þess til margfalt
meira fé en nú, sem gæti þýtt að Ís-
land þyrfti að greiða hálfan til tvo
milljarða króna. Tildrög kröfunnar
eru stækkun ESB og þar með EES.
Áhersla á alræði
Jiang Zemin, forseti Kína, lagði
áherslu á að kommúnistaflokkurinn
ætti að halda alræðisvaldi sínu þegar
hann setti 16. þing flokksins í gær. Á
þinginu hefst fyrsta uppstokkun for-
ystunnar síðan 1989 og er gert ráð
fyrir að Jiang víki eftir þingið úr for-
ystu flokksins fyrir Hu Jintao og láti
síðan eftir forsetastólinn í vor.
Atkvæðin ógild
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi hefur
ákveðið að ógilda 60 utankjörstaða-
atkvæði, sem safnað var saman í fyr-
irtæki á Akranesi. Vilhjálmur Eg-
ilsson, sem gerði athugasemd við
hvernig staðið var að atkvæða-
greiðslunni, kvaðst í grundvall-
aratriðum sáttur, en þó væru ekki öll
kurl komin til grafar.
Gagnrýnandinn gagnrýndur
Deila er sprottin upp vegna um-
mæla rithöfundarins Mikaels Torfa-
sonar um Úlfhildi Dagsdóttur gagn-
rýnanda og umsagnar hennar um
bók hans. Þau hafa deilt á net-
miðlum og fleiri blandast í um-
ræðuna. Nú er spurt hvort rithöf-
undar geti notað hnjóðsyrði um
gagnrýnendur til að gera þá van-
hæfa til að fjalla um bækur þeirra.
Liverpool áfram taplaust?
Liverpool er eina liðið í ensku úr-
valsdeildinni, sem enn er án taps, en
nú reynir á hvort liðið heldur sínu
striki og fyrsta sætinu eftir leik
dagsins við Middlesbrough. Snilling-
arnir í Arsenal virðast hins vegar
skyndilega mannlegir, eru dottnir í
annað sætið og munu eiga fullt í
fangi með frakka liðsmenn New-
castle, sem koma fullir sjálfstrausts í
heimsókn á Highbury í dag.
2002 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER BLAÐ B
KVENNARÁÐ körfuknattleiksliðs
Njarðvíkur sagði í gær upp samn-
ingi við bandaríska leikmanninn
Sacha Montgomery. Forráðamenn
liðsins telja að Montgomery hafi
ekki staðið undir væntingum sem
til hennar voru gerðar, hvorki inn-
an vallar né utan.
Ekki hefur verið ákveðið end-
anlega hvort annar erlendur leik-
maður muni spila með Njarðvík-
ingum. Montgomery lék 5 leiki með
Njarðvík og skoraði 23 stig að með-
altali í leik.
Þess má geta að karlalið félags-
ins á von á bandarískum leikmanni,
G.J. Hunter, á næstu dögum sem á
að fylla skarð Pete Philo sem er
meiddur á hné og þarf að gangast
undir aðgerð.
Montgomery sagt
upp hjá Njarðvík
ÞAÐ hefur lengi verið ljóst að fjárhagur ítalska félagsins
Lazio er ekki uppá marga fiska, en nú virðist staða þess
vera vonlítil eftir að matvælaframleiðandinn Cirio fór fram
á greiðslustöðvun í gær, en fyrirtækið á meirihluta verðlít-
illa hlutabréfa í Lazio. Að auki hafa Manchester United og
Valencia sett sig í stellingar þess efnis að sækja rétt sinn
gagnvart Lazio sem hefur enn ekki gert upp við enska og
spænska félagið vegna leikmannakaupa. Enska félagið á
enn eftir að fá um 1,6 milljarða ísl. kr. frá Lazio vegna söl-
unnar á hollenska varnarmanninum Jaap Stam og Spán-
verjarnir eru í sömu sporum vegna sölunnar á Gaizka
Mendieta sem var seldur á rúman milljarð ísl. kr.
Íþróttablaðið Gazzetta dello Sport segir að fari allt á
versta veg verði Lazio að selja alla sína bestu leikmenn nú
þegar en sl. sumar seldi félagið marga leikmenn til þess að
rétta af slæman fjárhag. Þrátt fyrir afleitt gengi á fjár-
málasviðinu eru leikmenn félagsins í ágætu standi og er
það í 4. sæti ítölsku deildarinnar.
Ítalska liðið Lazio er
á barmi gjaldþrots
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HELDUR SIGURGANGA LIVERPOOL ÁFRAM? / B4
Sigrún Gilsdóttir úr FH svífur inn í vítateig Vals og skorar í leik liðanna í 1. deild kvenna í handknattleik í gærkvöld. Valur sigraði, 26:25, í hörkuleik. Sjá nánar B3.
Morgunblaðið/Golli
FRAMKVÆMDANEFND UEFA, Knattspyrnu-
sambands Evrópu, ákvað á fundi sínum í gær að
skipta 1,8 milljónum dala á milli 52 aðildarlanda
sinna og á að nota féð til að koma í veg fyrir kyn-
þáttafordóma innan vallar sem utan.
Hvert aðildarland, þar með Knattspyrnu-
samband Íslands, fær sem nemur um þremur
milljónum króna til verksins og á að nota féð á
næstu tólf mánuðum.
Féð kemur úr sjóði UEFA sem safnast í vegna
agabrota sem aganefnd UEFA sektar einstök fé-
lög eða sambönd fyrir. Fyrirhugað er að veitt
verði úr þessum sjóði árlega til að berjast við
kynþáttafordóma sem mjög hafa aukist síðustu
misserin á knattspyrnuvöllum Evrópu. Hvert
samband mun senda tillögur til UEFA um hvern-
ig það ætlar að verja fénu og verður UEFA að
samþykkja það til að fjárveiting fáist.
„Þetta er mjög kærkomið því við höfðum uppi
áætlanir um að fara í átak á þessum nótum næsta
sumar. Við munum verja þessu fé í að minna fé-
lög og áhorfendur á að kynþáttafordómar eigi
ekki heima í knattspyrnunni frekar en annars
staðar. Sem betur fer er þetta ekki vandamál hér
á landi, en það hafa samt komið upp atvik af
þessu tagi og það er nauðsynlegt að við höldum
vöku okkar. Við höfum ekki mótað það ennþá
nákvæmlega hvernig að þessu verði staðið en
það verður um að ræða auglýsinga- eða áminn-
ingaherferð í einhverri mynd þegar næsta Ís-
landsmót hefst,“ sagði Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, við Morgunblaðið í gær.
UEFA berst gegn
kynþáttahatri
HRAFNKELL Helgason, knattspyrnu-
maður úr Fylki, hefur verið útnefndur varn-
armaður ársins í bandarísku háskóladeild-
inni America East, og er jafnframt valinn í
úrvalslið deildarinnar. Hrafnkell hefur verið
lykilmaður í liði Vermont háskóla, sem er
kominn í fjögurra liða úrslit deildarinnar og
mætir þar Hartford háskólanum á morgun.
Sigurliðið í deildinni kemst í úrslit um sjálf-
an meistaratitil bandarísku háskólanna.
Meðal samherja Hrafnkels í liði Vermont
á þessu tímabili er Skagamaðurinn Jóhann-
es Gíslason.
Hrafnkell er 24 ára og var fastamaður í
liði Fylkismanna í sumar, þar til hann þurfti
að fara vestur um haf til náms í Vermont um
miðjan ágúst. Hann hefur skorað 3 mörk í 16
leikjum á tímabilinu með Vermont í haust og
á drjúgan þátt í því að lið hans hefur fengið á
sig fæst mörk í deildinni.
Þetta er önnur viðurkenningin sem
Hrafnkell hlýtur í þessari deild en hann var
valinn í úrvalslið nýliða í deildinni haustið
2000.
Hrafnkell varnarmaður ársins
L a u g a r d a g u r
9.
n ó v e m b e r ˜ 2 0 0 2
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 47/58
Viðskipti 18/22 Kirkjustarf 60/61
Erlent 24/28 Minningar 62/67
Höfuðborgin 30 Skák 68
Akureyri 31 Staksteinar 70
Suðurnes 32 Myndasögur 72
Árborg 33 Bréf 72
Landið 34 Dagbók 74/75
Neytendur 35 Leikhús 76
Listir 35/39 Fólk 76/81
Heilsa 40/41 Bíó 80/83
Forystugreinar 42 Ljósvakamiðlar 84
Viðhorf 46 Veður 85
* * *
ÞJÓÐVERJI á sextugsaldri og Íslendingur um
þrítugt voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til
29. nóvember vegna rannsóknar á smygli á um
900 grömmum af amfetamíni og um einu kílói af
hassi til landsins.
Að sögn Harðar Jóhannessonar, yfirlögreglu-
þjóns í Reykjavík fann tollgæslan á Keflavík-
urflugvelli fíkniefnin á Þjóðverjanum þegar hann
kom til landsins frá Frankfurt í Þýskalandi á
fimmtudag. Rannsókn fíkniefnadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík leiddi síðan til þess að tveir Ís-
lendingar voru handteknir um kvöldið. Öðrum
þeirra var sleppt eftir yfirheyrslur en farið var
fram á gæsluvarðhald yfir hinum og féllst Hér-
aðsdómur Reykjavíkur á það. Fyrir um þremur
vikum var 58 ára gamall Þjóðverji handtekinn á
Keflavíkurflugvelli með um 1½ kíló af kókaíni
innanklæða. Hörður vill ekki svara því hvort þessi
mál séu tengd, málið sé einfaldlega í rannsókn.
Hann vill ekki heldur svara því hvort Þjóðverjinn
sem handtekinn var á fimmtudag hafi vísað á Ís-
lendinginn sem nú situr í gæsluvarðhaldi.
Þjóðverjinn er að öllum líkindum burðardýr
fíkniefnanna og þar með eru erlend burðardýr
fíkniefna sem handtekin eru á Keflavíkurflugvelli
á innan við tveimur árum orðin 24. Skv. upplýs-
ingum frá lögreglunni er a.m.k. vel á annað ár síð-
an Íslendingur var síðast handtekinn í tengslum
við rannsókn slíkra mála.
Sýndi blaðamannapassann
Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslu-
manns á Keflavíkurflugvelli var Þjóðverjinn
sallarólegur við komuna til Íslands og sýndi ekki
nokkur merki geðshræringar. Hann gaf sig m.a. á
tal við tollverði og lögreglumenn meðan hann beið
eftir því að farangur hans væri fluttur inn í komu-
salinn. Þar kynnti hann sig sem blaðamann í
lausamennsku og sýndi þeim blaðamannapassa
sinn og spurði hvort þeir hefðu átt þátt í því að
tollgæslan lagði hald á verulegt magn kókaíns
fyrir þremur vikum. Maðurinn sagði þetta vera
afar vel af sér vikið hjá tollgæslunni. Þá fitjaði
hann upp á samræðum um álfa og huldufólk en
hann sagðist hafa mikinn áhuga á slíku og hér á
landi væri góður efniviður í greinar um slík mál-
efni. Kvaðst hann hafa komið hér áður til að afla
sér efnis í slíkar greinar. Jóhann segir að við toll-
eftirlit hafi maðurinn verið tekinn afsíðis þar sem
leitað var á honum og í farangri hans. Fíkniefnin,
eitt kíló af hassi og 900 gr. af amfetamíni, fundust
síðan á manninum innanklæða en hann hafði falið
þau við beltisstað. Í farangri mannsins voru ýmis
tæki og tól sem blaðamenn notast við, m.a. vesti
þar sem á stóð blaðamaður (presse) fartölva og
myndavélar að ógleymdum blaðamannapassan-
um. Ekki hefur þó verið staðfest hvort maðurinn
er í raun og veru blaðamaður.
Jóhann segir afar ánægjulegt og mikilvægt að
lögreglunni í Reykjavík hafi tekist að handtaka
Íslendinga í tengslum við þetta smygl. Gott sam-
starf lögreglu og tollgæslu sé vonandi að bera
ávöxt.
Smyglarinn sagðist
vera blaðamaður
ÚTGERÐUM ber að greiða 1% af kaup-
tryggingu sjómanna innan aðildarfélaga
Sjómannasambands Íslands í séreignar-
sjóð, í samræmi við samkomulag ASÍ og
Samtaka atvinnulífsins frá 13. desember
sl. Félagsdómur kvað upp dóm þessa efnis
í gær.
Samkomulag ASÍ og SA, sem undirritað
var 13. desember í fyrra, kvað m.a. á um
1% greiðslu í séreignarsjóð launamanna
frá og með 1. júlí á þessu ári, án mótfram-
lags launamanns.
Að sögn Hólmgeirs Jónssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjómannasambands Ís-
lands, neituðu Samtök atvinnulífsins því á
sínum tíma að sjómenn á fiskiskipum ættu
rétt á þessari greiðslu, þrátt fyrir að Sjó-
mannasambandið hefði verið aðili að sam-
komulaginu. ASÍ höfðaði því mál fyrir Fé-
lagsdómi, sem kvað upp þann dóm í gær
að þetta samningsákvæði næði einnig til
fiskimanna innan Sjómannasambandsins
og ber útgerðum því að greiða 1% af kaup-
tryggingu sjómanna frá 1. júlí sl., þó svo
að viðkomandi sjómaður leggi ekki fram
mótframlag.
Félagsdómur dæmir í
máli ASÍ gegn SA
Greiða 1%
í séreign-
arsjóð
sjómanna
STARFSMENN við Reykjavíkurhöfn kasta
mæðinni – halla sér upp að veglegri sekkjastæð-
unni á bryggjunni og spjalla saman. Íbúar höf-
uðborgarinnar hafa ekki þurft að kvarta undan
veðrinu síðustu daga, en mjög milt hefur verið í
veðri. Hálkan er því horfin.
Morgunblaðið/RAX
Bryggjuspjall í Reykjavík
LÍFSTÍLL hf. samdi við Hótel Borg í gær um að
fyrirtækið tæki við veitingarekstri staðarins. Fyr-
irtækið, sem er í eigu Eyþórs Arnalds, Árna Þórs
Vigfússonar og Kristjáns Ra. Kristjánssonar á
Skjá einum auk Sveinbjarnar Kristjánssonar, hóf
starfsemi fyrr á árinu en í eigu þess eru Thorvald-
sen Bar, Prikið og Sportkaffi og líkamsrækt-
arstöðin Planet Reykjavík.
Samningurinn er gerður til tíu ára og að sögn
Lífstílsmanna er fyrst og fremst um að ræða vett-
vang fyrir fjölbreytt mannlíf miðborgarinnar.
Ætlunin er að bjóða upp á „lifandi kaffihús, veit-
ingahús sem þjónar jafnt kröfum þeirra sem vilja
njóta hádegisins og þeirra sem vilja drekka í sig
andrúmsloft Borgarinnar að kvöldi til, ásamt
þægilegri stemningu fyrir þá sem kjósa tilbreyt-
ingu frá hefðbundnu mynstri næturlífsins,“ að sögn forsvarsmannanna.
Fyrirtækið hefur í hyggju að leita leiða til frekara samstarfs milli hótels-
ins og annarra rekstrareininga undir hatti Lífstíls, ekki síst heilsurækt-
arstöðvarinnar Planet Reykjavík, en ráðgert er að bjóða gestum að nýta
sér þá aðstöðu sem þar er í boði. Hjá Lífstíl starfa alls yfir 100 manns en að
sögn Eyþórs Arnalds, framkvæmdastjóra félagsins, er verið að vinna í
ráðningu rekstrarstjóra og veitingastjóra á Hótel Borg. Hann segir einnig
liggja fyrir að fjölga þurfi starfsfólki á staðnum, en um 80 manns unnu á
veitingasviði hótelsins þegar mest var.
Taka við Borginni
Úlfhildur
Dagsdóttir
Mikael
Torfason