Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 41
HEILSA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 41
Tóbak róm ræmir,
remmu framkvæmir,
tungu vel tæmir,
tár af augum flæmir,
háls með hósta væmir,
heilann fordæmir
og andlit afskræmir.
Þ
annig kvað Hallgrímur Pét-
ursson fyrir um það bil 350 ár-
um. Reykingar eru eitt
stærsta heilbrigðisvandamál
samtímans. Öll tóbaksnotkun
er skaðleg og skaðinn eykst því meira sem
reykt er og fyrr er byrjað. Reykingar eru
meginorsök 18–19% dauðsfalla í landinu eða 350–380 dauðsföll á ári. Margt
hefur unnist í baráttu gegn notkun tóbaks. Enn reykir þó fjórði hver Íslend-
ingur 15 ára og eldri. Reykingar barna og unglinga fóru að aukast aftur um
miðjan 9. áratuginn en talið er að dregið hafi úr þeim á ný.
Konur reykja nú meira en karlar. Í því sambandi hrópa á okkur nið-
urstöður af samanburði milli Evrópuþjóða á tíðni lungnakrabbameins sem er
hvergi algengari meðal kvenna en hér og er ástæða þess rakin til reykinga. Á
síðasta áratug hefur verið gripið til ýmissa ráðstafana í því skyni að hindra
tóbaksnotkun, s.s. að banna reykingar á ákveðnum stöðum og sölu tóbaks til
yngri en 18 ára. Það er gömul saga og ný að bilið milli þekkingar og hegðunar
er breitt. Aðgerðir sem miða að því að draga úr tóbaksnotkun eru m.a.:
Forvarnir sem beinast að börnum, ungmennum og fullorðnum.
Eftirfylgni við banni á tóbaksauglýsingum.
Niðurgreiðsla nikótínlyfja og verðstýring.
Aukið aðgengi að meðferðarúrræðum fyrir reykingasjúklinga.
Reyklaust umhverfi sem víðast.
Aukið eftirlit með sölu á tóbaki til unglinga.
Söfnun og úrvinnsla á tóbaksneyslu þjóðarinnar og þjóðfélagshópa.
Hagfræðistofnun metur þjóðfélagslegan kostnað vegna reykinga hér um 5
milljarða á ári. Sennilega er þetta vanmat. Sambærilegir útreikningar í
Bandaríkjunum yfirfærðir á Ísland sýna næstum helmingi hærri tölur.
Stefnt er að því að árið 2010 verði hlutfall reykingafólks undir 15% meðal
fólks 18–69 ára og undir 5% meðal barna og unglinga. Það fæli í sér um helm-
ings lækkun þjóðfélagslegs kostnaðar af reykingum og munar um minna.
Við getum átt þann draum að í lok aldarinnar lifi hér kynslóðir sem líti á
tóbaksreykingar sem sögulega forneskju rétt eins og við sullaveiki í dag.
Haukur Valdemarsson aðstoðarlandlæknir
Landlæknisembættið
Heilsan í brennidepli
Bannsett tóbakið!
Reykingar eru eitt stærsta
heilbrigðisvandamál
samtímans
BANDALAG vísindamanna, víðs
vegar úr heiminum, ýtti nýlega úr
vör verkefni sem auka á skilning á
breytilegum erfðaeiginleikum
mannsins. Vonir standa til að
hanna nýja gerð korts af erfða-
mengi mannsins sem hugsanlega
mun knýja áfram rannsóknir á
uppruna algengra sjúkdóma svo
sem hjartaáfalls, sykursýki og
ofáts. Þetta kemur fram á net-
útgáfu Washington Post.
Verkefnið er unnið í framhaldi
af genamengisáætluninni (Human
Genome Project) og er afar viða-
mikið, það mun standa yfir í þrjú ár
og kosta tæpar 8,6 milljarða króna.
Vísindamenn munu rannsaka
genabúskap Japana, Kínverja, Afr-
íkubúa og Bandaríkjamanna sem
þeir álíta gefa nægilega breidd og
muni leiða í ljós flest ef ekki öll al-
geng genamynstur.
Sundurgreining erfðaefnanna
mun fara fram á á tilraunastofum í
Bandaríkjunum, Bretlandi, Japan,
Kína og Kanada. „Verkefnið gæti
haft mikil áhrif á framtíð lækn-
isfræðinnar,“ er haft eftir Francis
Collins, framkvæmdastjóra Nation-
al Human Genome Research Inst-
itute í Bethesda í Maryland, sem er
einn aðalstyrktaraðili verkefnisins.
Áður hafa verið gerðar svipaðar
tilraunir og verkefni þetta felur í
sér, en ætla má að það sem nú fer í
hönd verði enn nákvæmara og
viðameira.
Morgunblaðið/Sverrir
Hanna nýtt kort af
erfðamengi mannsins
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn
alltaf á föstudögum
Íslenskt
náttúruafl
-
fy
ri
r
or
ku
na
www.sagamedica.com
meistar inn. is
ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI