Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 77
KVIKMYNDIR/FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 77
ÞÝSKA spennumyndin Das
Experiment er forsýnd í Há-
skólabíói um helgina á vegum
kvikmyndaklúbbsins Film-
Undurs. Myndin naut mikilla
vinsælda í heimalandinu og
hefur hlotið fjölda verðlauna þar
sem víðar. Þess má geta að leikstjór-
inn Oliver Hirschbiegel fékk leik-
stjóraverðlaun á kvikmyndahátíð-
inni í Montréal í Kanada og aðal-
leikarinn Moritz Bleibtreu hlaut
áhorfendaverðlaunin á alþjóðlegu
kvikmyndahátíðinni í Seattle í
Bandaríkjunum. Bleibtreu er ekki
síst þekktur fyrir hlutverk sitt í
myndinni Hlauptu Lola, hlauptu.
Myndin, sem gerist í sam-
tímanum, er byggð á atburð-
um, er áttu sér stað í Stan-
ford-háskóla árið 1971 og
varða tilraunir á fólki. Bleib-
treu leikur rannsóknarblaða-
mann sem ákveður að taka þátt í
rannsóknarverkefni háskóla í
ónefndri stórborg Þýskalands. Háar
fjárhæðir eru í boði fyrir þátttak-
endurna 20. Tólf manns eru skipaðir
fangaverðir og átta manns eru í
hlutverki fanga. Í tilkynningu frá
Film-Undri segir að fyrr en varir
taki alvaran yfirhöndina. „Þykjustu-
leikurinn breytist því í hatramman
og blóðugan raunveruleika.“
Moritz Bleibtreu
í hlutverki sínu í
Das Experiment
en hann leikur
rannsóknarblaða-
mann, sem tekur
þátt í til-
raunaverkefni
ónefnds þýsks
háskóla.
Hatrammur
tilraunaveruleiki
JESSICA Stein er leitandi ung
kona. Í voninni – og vegna þrýstings-
ins – að finna hinn eina rétta fer hún á
ótal misheppnuð stefnumót við alls
konar mismisheppnaða karlmenn.
Dag einn svarar hún einkamálaaug-
lýsingu sem hljómar vel – jafnvel þótt
það sé kona að leita að konu. Og hún
byrjar með Helen, en rólega þó.
Á erfiðum tímum aðdáenda róman-
tískra gamanmynda ætti þessi kvik-
mynd að vera himnasending. Hún er
fyndin og skemmtileg, hún er frum-
leg, karakterarnir eru trúverðugir og
samúðarfullir, það gengur á ýmsu –
og svo er myndin auðvitað rómantísk.
Helen er eigandi gallerís, opin og af-
slöppuð kona sem yfirleitt sefur hjá
karlmönnum, en hefur líka prófað
konur og líkar vel. Jennifer er ofurná-
kvæmur prófarkalesari á dagblaði og
alveg kynvís (a.m.k. hingað til) og þótt
hún sé spennt fyrir Helen, sem henni
líkar strax vel við, tekur hún sinn tíma
til að gera meira en bara kyssa hana.
Helen sem er mikil kynvera lætur sér
það lynda – henni finnst Jessica
spennandi áskorun.
Eiginlega er ekki hægt að flokka
þetta sem lesbíumynd. Hún lendir
einhvers staðar á milli, þar sem hún
fjallar um fólk að reyna fyrir sér í ást-
inni og kynhvötinni. Ekki svart. Ekki
hvítt. En skemmtilegt! Og það er
kannski skrýtið að maður virðist
gleyma því strax að þetta séu tvær
konur. Strax fer maður að vona það
besta fyrir þeirra hönd, lifa sig inn í
þróunina í sambandinu og hlæja að
aumingja Jessicu, sem er mjög svo
jarðbundin og smámunasöm.
Aðalleikonurnar tvær eru einnig
handritshöfundarnir og þekkja
greinilega sína karaktera mjög vel,
sem gerir samband kvennanna mjög
sannfærandi. Aðrar leikkonur voru
einnig dásamlegar. Jackie Hoffman
leikur ófríska samstarfskonu Jessicu
og hún á marga góða spretti í mynd-
inni. Tovah Feldhuh er einnig stór-
kostleg sem móðir Jessicu sem vill
henni vel á sinn ákveðna og uppá-
þrengjandi hátt. Í raun er þetta
kvennamynd um vonir þeirra og
væntingar til sjálfs sín, makanna,
kynlífsins og fyrir hönd barna sinna.
Kissing Jessica Stein er ansi fín
mynd, sem ég vona bara að sem flest-
ir fari að sjá. Því ef hún vekur ekki
spurningar hjá manni um mann sjálf-
an, þá a.m.k. bendir hún á að hlutirnir
þurfa ekki að vera einmitt svona eða
hinsegin, heldur bara einhvern veg-
inn. Eins og maður sjálfur vill.
Ástkonur,
vinkonur,
hvað?
KVIKMYNDIR
KISSING JESSICA STEIN Regnboginn
Leikstjóri: Charles Herman-Wurmfeld.
Handrit: Heather Juergensen og Jennifer
Westfeld eftir eigin leikþætti
„Lipschtick“. Kvikmyndataka: Lawrence
Sher. Aðalhlutverk: Heather Juergensen,
Jennifer Westfeld, Scott Cohen, Tovah
Feldhuh og Jackie Hoffman. BNA. 97
mín. 20th Century Fox 2001.
Í umsögn um Kissing Jessica Stein
segir að myndin sé ekki lesbíumynd
heldur fyrst og fremst rómantísk
mynd um ástina og kynhvötina.
Hildur Loftsdóttir
UNNENDUR Nýrra danskra, gaml-
ir sem nýir, ættu að gleðjast yfir því
að sveitin mun halda tónleika í Þjóð-
leikhúsinu á þriðjudaginn.
Tilefni tónleikanna er að sveitin
fagnar um þessar mundir 15 ára af-
mæli sínu og það verður ekki ein-
asta gert með þessum tónleikum
heldur kemur einnig út á næstu
dögum ný geislaplata. Platan sú ber
nafnið Freistingar og mun inni-
halda vinsælustu og vanmetnustu
lög sveitarinnar í nýjum órafmögn-
uðum útsetningum. Daníel Ágúst
Haraldsson verður meðal þeirra
sem koma fram á plötunni en þar
mun Svanhildur Jakobsdóttir einnig
taka lagið „Sama tíma að ári“ með
Birni Jörundi Friðbjörnssyni. Bæði
munu þau Daníel Ágúst og Svan-
hildur koma fram með Ný dönsk á
þriðjudaginn ásamt fleirum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og
er miðasala hafin í Þjóðleikhúsinu.
Gömlu Nýju dönsku verða saman á
ný í Þjóðleikhúsinu á þriðjudag.
Ný dönsk í spariklæðum
í kvöld
Vesturgötu 2, sími 551 8900