Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 69
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 69 DAGBLÖÐ í skólum er samstarfsverkefni Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og dag- blaðaútgefenda. Nem- endur vinna með dagblöð í skóla- tíma og heimsækja dagblað á Reykjavíkursvæðinu að verk- efnaviku lokinni. Fyrir skömmu heimsóttu 7. bekkingar úr Ártúns- skóla Morgunblaðið til að kynna sér starfsem- ina og skoða sig um. Blaðið vonar að þau hafi orðið einhvers vísari og þakkar þeim um leið fyrir komuna. Morgunblaðið/Golli 7. bekkur H.G. í Ártúnsskóla í heimsókn hjá Morgunblaðinu. HRINGURINN heldur sinn árlega handavinnu- og kökubasar í Perl- unni 10. nóvember kl. 13:00. Þar verða til sölu margir fallegir munir og heimabakaðar kökur. Basar- munir eru til sýnis í glugga Herra- garðsins, Laugavegi 13. Jólakort Hringsins árið 2002 verða einnig til sölu í Perlunni. Kortið er hannað af Hringskonunni Önnu Lovísu Tryggvadóttur. Allur ágóði af fjáröflun félagsins rennur í Barnaspítalasjóð Hringsins. Hringskonur vilja þakka öllum velunnurum félagsins bæði ein- staklingum og fyrirtækjum fyrir stuðning og traust sem félaginu hefur verið sýnt í gegnum árin. Morgunblaðið/Þorkell Jólabasar Hringsins GEÐHJÁLP fagnar því að stjórn Hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands hefur óskað eftir viðræðum við sam- starfsnefnd ríkisstjórnarinnar um málefni geðfatlaðra, en greint var frá því í Morgunblaðinu á fimmtu- dag. „Tekið skal undir þá sýn manna að húsnæðivandinn sé hluti þeirra brýnu úrlausnarefna í málefnum geðsjúkra sem hrint verður í fram- kvæmd. Það er því ósk Geðhjálpar að aðrir þættir sem ræddir hafa ver- ið og lagðir hafa verið fyrir opinbera aðila og flokkast undir brýn úrlausn- arefni í ofangreindu samhengi, s.s. umönnunarstofnun, hreyfanlegt teymi (með þverfaglegri aðkomu) og skoðun lagaumhverfisins verði jafn- framt sett í forgang,“ segir m.a. í frétt frá Geðhjálp. Fagna við- ræðum um húsnæðismál geðfatlaðra LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir eftir vitnum að árekstri sem varð laugardaginn 2. nóvember sl. á gatnamótum Hjallahrauns og Reykjavíkurvegar. Klukkan 18:40 skullu þar saman bifreiðirnar XG 630 (hvítur VW Golf CL) og OO 170 (dökkblár Dodge Stratus). Við áreksturinn kastaðist XG 630 á bifreiðina OY 453, sem var kyrrstæð við gatnamótin. Ágreining- ur er um stöðu umferðarljósanna þegar áreksturinn varð. Vitni að óhappinu eru beðin að hafa samband við lögreglustöðina í Hafnarfirði í síma 525-3300. Lýst eftir vitnum GUST & dísjón ný verslun með ís- lensk föt verður opnuð í dag, laug- ardaginn 9. nóvember, klukkan 11, á Laugavegi 39. Fatahönnuðirnir Guðrún Kristín Sveinbjörnsdóttir og Ásdís Jóns- dóttir,sem báðar hafa selt föt und- anfarin ár, hafa sameinað krafta sína og flutt sig í hjarta miðbæjarins á Laugaveg 39. Fjölbreyttur fatnaður fyrir ungar konur verður til sölu, allt frá flíspeysum til silkikjóla. Meðal annars föt unnin úr íslensku hráefni eins og ull, mokkaskinni og sjávar- leðri. Ný verslun með íslenskan fatnað Roðpils og jakki úr íslenskri ull. Kjördagur Samfylkingarinnar, 9. nóvember 2002 Reykjavíkurkjördæmi 1. Kjörstaður í sameiginlegu flokksvali í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur er Félagshús Þróttar, Engjavegi 7, í Laugardal, skáhallt á móti Laugardalshöllinni. 2. Kjörfundur hefst kl. 11 fyrir hádegi og lýkur kl. 22 að kvöldi. 3. Á kjörskrá eru allir þeir sem á kjördag eiga lögheimili í Reykjavík, eru fullra 18 ára að aldri og eru félagar í Samfylkingunni eða undirrita inntökubeiðni á kjörfundi. 4. Kosning fer fram með rafrænum hætti. Þeir sem vilja kjósa með hefðbundnu sniði geta notað prentaða kjörseðla sem munu liggja frammi. 5. Kosið er um átta sæti. Merkja skal við frambjóðendur með tölustöfum í sæti 1 til 8. Suðvesturkjördæmi 1. Kjörstaðir í flokksvali í Suðvesturkjördæmi eru sem hér segir: a. Hafnarfjörður (Hafnarfjörður og Bessastaðahreppur): Alþýðuhúsið, Strandgötu 32, kl. 10-20. b. Garðabær: Hofstaðaskóli kl. 14-18 c. Kópavogur: Þinghóll, Hamragötu 11 kl. 10-20 d. Seltjarnarnes: Mýrarhúsaskóli kl. 10-20 e. Mosfellsbær: Hlégarður kl. 10-18 2. Á kjörskrá eru allir þeir sem á kjördag eiga lögheimili í Suðvesturkjördæmi, eru fullra 16 ára að aldri og voru skráðir félagar í Samfylkingunni kl. 18 miðviku- daginn 6. nóvember 2002. 3. Kosið er um sex sæti. Merkja skal við frambjóðendur með tölustöfum í sæti 1 til 6. Suðurkjördæmi 1. Kjörstaðir í flokksvali í Suðurkjördæmi eru sem hér segir: a. Sandgerði: Miðhús, Suðurgötu 17 kl. 9-17. b. Reykjanesbær: Salur Verslunarmanna- félags Suðurnesja, Vatnsnesvegi 14 kl. 9-19. c. Grindavík: Víkurbraut 26 (Skálholt) kl. 9-17. d. Vogar: Lionshúsið kl. 9-17. e. Þorlákshöfn: Ráðhúsið kl. 9-17. f. Hveragerði: Samfylkingarhúsið, Reykjamörk 1 kl. 9-17. g. Selfoss : Hótel Selfoss, austursalur kl. 9-19. h. Flúðir: Félagsheimilið á Flúðum kl. 9-17. i. Hvolsvöllur (Hvolsvöllur, Hella, Vík, Kirkjubæjarklaustur og nærsveitir, póstnúmer 850, 851, 860, 861, 870, 871 og 880): Félagsheimilið Hvoll kl. 9-17. j. Hornafjörður: Víkurbraut 4, húsnæði Vökuls (póstnúmer 780, 781 og 785) kl. 9-17 k. Vestmannaeyjar: Alþýðuhúsið kl. 9-19. Gert er ráð fyrir að íbúar í póstnúmeri 801 kjósi í Þorlákshöfn, Hveragerði, á Selfossi. eða Flúðum. Atkvæðagreiðsla utan kjör- fundar fer fram á skrifstofu flokksins, Austurstræti 14, Reykjavík, kl. 9-17, en einnig á hverjum kjörstað fyrir sig. Þannig getur kjósandi búsettur í Reykjanesbæ kosið á Selfossi eða í Vestmannaeyjum, svo dæmi sé tekið. 2. Á kjörskrá eru allir þeir sem á kjördag eiga lögheimili í Suðurkjördæmi, eru fullra 16 ára að aldri og voru skráðir félagar í Samfylkingunni á miðnætti laugardaginn 2. nóvember 2002. 3. Kosið er um fjögur sæti. Merkja skal við frambjóðendur með tölustöfum í sæti 1 til 4. Norðausturkjördæmi 1. Atkvæðagreiðsla hefur farið fram með póstkosningu. Kosið var um tvö efstu sæti. Talning fer fram í Lárusarhúsi, Akureyri, laugardaginn 9. nóvember. Upplýsingar fyrir kjósendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.