Morgunblaðið - 09.11.2002, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
hræðslu. Hún kvaðst hafa ýtt manninum ofan af
sér og spurt hann hvað væri að gerast, en mað-
urinn hafi haldið áfram að ávarpa hana fullu
nafni. Hún sagðist hafa verið staðin upp úr rúm-
inu og komin fram í eldhús er hún áttaði sig á því
hver maðurinn var.
Reyndi að banka og hringja bjöllu
Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn hafi
bæði reynt að hringja dyrabjöllu og banka, áður
en hann fór inn um gluggann. Einnig braut hann
leirker á gólfinu í íbúðinni. Maðurinn hélt því
fram að konan hefði verið vakandi þegar hann
kom inn í svefnherbergið og að hún hefði boðið
honum umsvifalaust upp í rúmið til sín og allt
sem þar hefði gerst hefði verið með hennar sam-
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær
karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir kynferð-
isbrot gegn konu aðfaranótt laugardagsins 12.
janúar sl. Maðurinn braust heimildarlaust inn í
íbúð konunnar í Reykjavík og hafði við hana
samræði sem hún gat ekki spornað við sökum
svefndrunga.
Fram kemur í dómnum að maðurinn og konan
voru í sambúð fyrir um 15 árum. Konan sagðist
hafa farið að skemmta sér ásamt hópi af fólki
kvöldið fyrir atburðinn. Hún fór heim til sín um
klukkan 1:30 og lagðist til svefns en vaknaði um
nóttina við það að maðurinn lá ofan á henni og
hvíslaði í eyra hennar. Hún kvaðst hafa sofið
djúpum svefni og verið dálitla stund að átta sig,
en sér hafi brugðið og hún hafi fundið fyrir
þykki. Segir dómarinn að þessi framburður
mannsins og framburður hans í heild um það
sem gerðist eftir að hann kom í húsið inn um
gluggann um hánótt þyki svo ótrúverðugur að
hann sé að engu hafandi, enda í ósamræmi við
allt annað sem fram hafi komið í málinu.
Var maðurinn því sakfelldur fyrir að brjóta
með grófum hætti gegn friðhelgi heimilis kon-
unnar og kynfrelsi hennar og dæmdur til að
greiða henni 700 þúsund í miskabætur.
Málið dæmdu héraðsdómararnir Guðjón St.
Marteinsson dómsformaður, Sigríður Ingv-
arsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Verjandi
ákærða var Sveinn Andri Sveinsson hrl. Málið
sótti Kolbrún Sævarsdóttir fulltrúi ríkissaksókn-
ara.
Dæmdur í 15 mánaða
fangelsi fyrir nauðgun
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur sýknaði í gær karlmann af
ákæru fyrir kynferðisbrot með
því að hafa þröngvað konu með
ofbeldi til kynferðismaka.
Ákærði og konan hittust á
skemmtistað í Reykjavík í des-
ember sl. og fóru eftir það þau
heim til hennar. Báru þau bæði
fyrir rétti, að vel hefði farið á
með þeim uns þeir atburðir
gerðust á heimili hennar, sem
þau lýstu hvort með sínum
hætti.
Ákærði sagðist hafa haft
mök við konuna, en hætt þeim
þegar hún bað hann um að það,
enda hafi hún ekki viljað þau.
Konan sagði ákærða hins vegar
hafa hafa þröngvað sér til mak-
anna.
Dómurinn var fjölskipaður
og töldu tveir dómarar af þrem-
ur, þeir Guðjón St. Marteins-
son og Jón Finnbjörnsson, að
ósannað væri gegn staðfastri
neitun ákærða að hann hefði
gerst sekur um kynferðisbrot
sem ríkissaksóknari ákærði
hann fyrir. Þriðji dómarinn,
Þorgerður Erlendsdóttir, taldi
hins vegar að þegar atvik máls-
ins væru skoðuð í heild þætti
hafið yfir skynsamlegan vafa að
maðurinn hefði þröngvað kon-
unni til kynferðismaka. Verj-
andi ákærða var Brynjar Níels-
son hrl. en saksóknari Sigríður
Jósefsdóttir.
Sýknaður
af ákæru
fyrir kyn-
ferðisbrotHÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkursýknaði í gær karlmann af ákæru um
kynferðisbrot gegn konu, en maður-
inn var ákærður fyrir að hafa í októ-
ber á síðasta ári notfært sér ölvun og
svefndrunga hennar þar sem hann
hafði sofnað í íbúð eftir samkvæmi.
Segir héraðsdómur að engin gögn
séu til staðar sem geti stutt vitnis-
burð konunnar á þann hátt að unnt
sé að leggja vitnisburð hennar til
grundvallar sakfellingu gegn stað-
festri neitun ákærða frá upphafi.
Í dómi héraðsdóms kemur fram,
að ráða megi af skýrslu konunnar að
hún hafi sofnað í íbúðinni, en hún
kvaðst næst hafa munað eftir sér
þegar ákærði var að brjóta á henni.
Hún kvað sér hafa verið brugðið og
að maðurinn hefði síðan horfið á
brott.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Guðjón St. Marteinsson dómsfor-
maður, Hjörtur O. Aðalsteinsson og
Sigríður Ólafsdóttir. Verjandi
ákærða var Brynjólfur Eyvindsson
hdl. Málið sótti Kolbrún Sævarsdótt-
ir fulltrúi ríkissaksóknara.
Kynferðis-
brot ekki
sönnuð
VIÐ húsleit í einbýlishúsi í
Grafarvogi í fyrradag fann
fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík um 30 e-töflur, 30
grömm af kókaíni og 30 grömm
af hassi sem talið er að hafi ver-
ið ætluð til sölu. Eigandinn var
25 ára gamall fjölskyldufaðir.
Í annarri húsleit sama dag
var lagt hald á nokkurt magn af
amfetamíni og hassi.
Fíkniefni
í tveimur
húsleitum
SEX fullorðnar kindur frá Ytri-
Neslöndum hröktust á dögunum í
Mývatn þar sem heitir Grunnavík
við Dauðanes og fórust ærnar all-
ar. Staðurinn er syðst á Nes-
landatanga skammt frá Teiga-
sundi þar sem fljóta saman Ytri
og Syðri Flói vatnsins. Mývatn er
allt ísilagt síðan 26. október en
ísinn er viðsjárverður svo sem
þetta dæmi sannar.
Þær systur Álfdís og Stefanía
Stefánsdætur höfðu haldið fé sínu
til beitar á Dauðanesi daglangt
að undanförnu, svo sem venjulegt
er á þessum tíma árs. Þegar fjár-
skaðinn uppgötvaðist fóru þær
strax með dráttarvél og sóttu
skrokkana sem þá voru harð-
frosnir við ísinn á víkinni.
Óvanalegt er að fé farist með
þessum hætti í Mývatni, hitt ber
við að Neslandabændur missa fé
ofan um ótryggan haustís á ótelj-
andi tjörnum á Tanga.
Einhverju sinni missti Stefán
Axelsson faðir þeirra systra 30
kindur niður um ótryggan tjarn-
arís en náði þeim öllum lifandi á
land.
Morgunblaðið/BFH
Álfdís Sigurveig Stefánsdóttir bóndi stendur á vatnsbakkanum við
Grunnuvík þar sem hún missti 6 ær í vatnið.
Kindur hröktust í Mývatn
„AF HVERJU ertu að gera það sem
þú ert að gera?“ var spurt í mál-
stofu sem Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, tók þátt í ásamt
nemendum tónlistar- og leiklist-
ardeildar Listaháskóla Íslands í
gær. Tilefnið var heimsókn forset-
ans í skólann, þar sem hann kynnti
sér starfsemi hans og þá uppbygg-
ingu sem þar hefur átt sér stað síð-
an skólinn tók til starfa fyrir þrem-
ur árum.
Forsetinn heimsótti allar deildir
skólans, spjallaði við nemendur og
kynnti sér verkefni þeirra.
Morgunblaðið/Sverrir
Forsetinn sótti Listaháskólann heim
ÍSLENSKA karlalandsliðið á
Ólympíuskákmótinu í Slóveníu,
vann í gær sinn fjórða sigur í
röð í 13. og næstsíðustu umferð
þegar það sigraði sterkt lið
Kasakstan með tveimur og
hálfum vinningi gegn einum og
hálfum. Helgi Áss Grétarsson
og Helgi Ólafsson sigruðu í sín-
um skákum, Þröstur Þórhalls-
son gerði jafntefli, en Hannes
Hlífar Stefánsson tapaði.
Kvennaliðið vann góðan sigur á
liði Suður-Afríku með tveimur
og hálfum vinningi gegn hálf-
um. Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir og Harpa Ingólfsdóttir
unnu en Aldís Rún Lárusdóttir
gerði jafntefli.
Ekki liggur enn fyrir í hvaða
sæti íslenska liðið er, eða hverj-
ir verða andstæðingar þess í
lokaumferðinni. Rússar eru
efstir með 36½ vinning en Ung-
verjar í öðru sæti með 34½
vinning. Kínverjar eru efstir í
kvennaflokki með 27 vinninga.
Íslenska
skákliðið
vann
Kasakstan
og S-Afríku
Ólympíuskákmótið