Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LYFJAÞRÓUN hf. og breska fyrir-
tækið Bespak hafa gengið frá samn-
ingi um rannsóknar- og þróunarsam-
starf á nýjum lyfjum og lyfjaformum.
Í tilkynningu frá Lyfjaþróun segir
að samningurinn skili fyrirtækinu
verulegum tekjum, hvort sem litið er
til skemmri eða lengri tíma. Fyrir-
tækin muni á næstu árum þróa röð af
lyfjum og muni þróunarvinnan fara
fram á Íslandi. Um sé að ræða rann-
sóknarvinnu, forklínískar tilraunir
auk klínískra prófana á fólki.
Magnús R. Guðmundsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Lyfjaþróunar,
segir að samningurinn sé ákaflega
mikilvægur og skapi fyrirtækinu
styrkari grundvöll.
Í febrúar á þessu ári var undirrit-
aður samstarfssamningur milli
Lyfjaþróunar og Bespak um þróun
nefúðalyfs. Hlutverk Lyfjaþróunar
samkvæmt þeim samningi var að
leggja þá tækniþekkingu, sem fyrir-
tækið hafði yfir að ráða, í samstarfið.
Segir í tilkynningu Lyfjaþróunar að
fljótlega hafi komið í ljós að árangur
samstarfsins, þar sem notaðar hafi
verið tæknilausnir Lyfjaþróunar, hafi
verið umfram væntingar og því hafi
verið ákveðið að gera umfangsmeiri
samning um fleiri lyf og til lengri tíma
en upphaflegi samningurinn kvað á
um. Hér sé því um að ræða mikla við-
urkenningu á því vísindastarfi sem
unnið hafi verið að innan Lyfjaþróun-
ar síðustu ár.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
þegar verði hafist handa við rann-
sóknir á þremur lyfjum, en að þeim
verði síðan fjölgað. Fram kemur í til-
kynningunni að ljóst sé að umfang
starfsemi Lyfjaþróunar muni aukast
verulega á næstunni.
Hjá Lyfjaþróun starfa nú 36 manns
og gera áætlanir ráð fyrir að á næsta
ári muni um 25 manns koma að þessu
samstarfsverkefni.
Í tilkynningu Lyfjaþróunar segir
að Bespak plc sé leiðandi fyrirtæki í
þróun á aðferðum til að koma lyfjum
niður í lungu og sem séu nýttar af
helstu lyfjafyrirtækjum heims.
Lyfjaþróun var stofnað árið 1991
og vinnur að þróun á nýjum lyfjum og
lyfjaformum, einkum bóluefnum, þró-
un á nýjum meðferðum gegn sjálfs-
ofnæmissjúkdómum og lyfjagjöf til
heila. Þessi samningur tekur til hluta
af einu af þeim sviðum sem Lyfjaþró-
un vinnur á og segir í tilkynningunni
að hann sé mikilvægur þáttur í nýt-
ingu þeirra tæknilausna sem fyrir-
tækið hefur verið að þróa síðustu ár.
Lyfjaþróun hf. útvíkkar
samstarf sitt við Bespak
LÍFEYRISSJÓÐIR eiga að vera
virkir fjárfestar á innlendum hluta-
bréfamarkaði en ekki hlutlausir.
Þetta er álit Gylfa Arnbjörnssonar,
framkvæmdastjóra Alþýðusam-
bands Íslands, sem flutti erindi á
haustráðstefnu Félags löggiltra end-
urskoðenda í gær.
Gylfi sagði lífeyrissjóðum nauð-
synlegt að hafa afskipti af þeim fyr-
irtækjum sem þeir fjárfestu í. Ekki
gengi að halda því fram að lífeyr-
issjóðir ættu eingöngu að vera hlut-
lausir fjárfestar sem létu sér nægja
að selja í fyrirtækjum ef þeim líkaði
ekki rekstur þeirra. Til þess sé
markaðurinn hér of grunnur og
þetta sé því óraunhæft. Þar að auki
muni aðrir hluthafar hafa óeðlilega
mikil áhrif á hluthafafundum ef líf-
eyrissjóðir séu ekki virkir fjárfestar.
Afskiptaleysi geti einnig leitt til
óvissu um arðgreiðslu þar sem aðrir
hluthafar geti notað aðrar leiðir til
þess að taka út arð. Hann sagði að
fyrirtæki yrðu í vaxandi mæli um-
komulaus og í raun eigendalaus ef
lífeyrissjóðir hefðu ekki afskipti af
þeim og að stórkostlega hættulegt
væri ef stærsti fjárfestirinn í ís-
lensku atvinnulífi ætlaði engin af-
skipti að hafa.
Gylfi sagði einnig að mikilvægt
væri að lífeyrissjóðir byggju yfir
þekkingu og gætu fylgt eigin fjár-
festingarstefnu. Þegar aðrir væru
fengnir til að ávaxta sjóðina hefði
reynslan sýnt að hagsmunir fjár-
vörsluaðilans og lífeyrissjóðsins
færu ekki alltaf saman. Þessir tveir
aðilar séu að hluta í samkeppni um
fjárfestingarkosti og kínamúrar
hefðu oft verið afar þunnir.
Mikill vöxtur framundan
hjá lífeyrissjóðunum
Albert Jónsson, forstöðumaður
eignastýringar Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins, LSR, sagði að sjóð-
urinn stundaði virka stýringu á er-
lendum hlutabréfum. Það fæli í sér
að sjóðurinn hefði skoðun á því hvert
verð bréfanna ætti að vera og keypti
og seldi eftir því, en Úrvalsvísitalan
væri höfð til viðmiðunar.
Albert sagði að eignir lífeyrissjóð-
anna í landinu hefðu vaxið hratt á
undanförnum árum og gert sé ráð
fyrir að árið 2040 verði þær orðnar
150% af landsframleiðslu, en þær
eru nú 80% landsframleiðslunnar. Á
þennan mælikvarða gæti Ísland orð-
ið ein auðugasta þjóð heims, en mik-
ill munur væri á milli þjóða að þessu
leyti og væri hlutfallið til að mynda
lágt hjá Spánverjum, Frökkum og
Þjóðverjum.
Albert sagði að fjárfestingar líf-
eyrissjóðanna í erlendum hlutabréf-
um hefðu aukist mikið undanfarin ár
og það væri helsta skýring slakrar
ávöxtunar að undanförnu, því mark-
aðir erlendis lækkað mikið. Ísland
væri ekkert einsdæmi að þessu leyti
og lífeyrissjóðir annarra landa fjár-
festu tiltölulega meira í hlutabréfum
en íslenskir lífeyrissjóðir. Þrátt fyrir
að ávöxtun hefði verið léleg í hluta-
bréfum erlendis að undanförnu sagði
Albert að reynslan væri sú að til
langs tíma jafnaði ávöxtunin sig út
og að til lengri tíma næðist betri
ávöxtun með því að fjárfesta líka í er-
lendum hlutabréfum. Þá sagði hann
að vegna mikils fyrirsjáanlegs vaxt-
ar lífeyrissjóðanna væri ekki um
annað að ræða en halda áfram að
fjárfesta erlendis því fjárfestingar-
kostir innanlands nægðu ekki til að
mæta fjárfestingarþörfinni.
Staða lífeyrissjóðanna góð
Már Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabanka Íslands, sagði á
ráðstefnunni að það væri að ákveðnu
leyti erfitt hve umsvifamiklir lífeyr-
issjóðirnir væru á innlendum fjár-
málamörkuðum. Það hafi þó einnig
haft jákvæðar afleiðingar og orðið til
þess að fjármagnsmarkaðurinn hafi
dafnað. Már sagði að um síðustu ára-
mót hefðu 14% skráðra hlutabréfa
hér á landi verið í eigu lífeyrissjóða. Í
raun væri hlutfallið þó mun hærra
því mikið væri um að fyrirtæki hér á
landi ættu hvert í öðru.
Már sagði að á heildina litið væri
staða lífeyrissjóðanna góð þrátt fyrir
neikvæða ávöxtun að undanförnu.
Hann sagði að útlit væri fyrir að þeir
myndu eflast enn og að ávöxtun sjóð-
anna en ekki samþykktir þeirra
myndi ráða því hver lífeyrir fólks
yrði til lengri tíma litið. Ef sú ávöxt-
un næðist sem miðað væri við, 3,5%,
mætti reikna með að ellilífeyrisþeg-
ar yrðu í framtíðinni með 60%–70%
af tekjum vinnandi fólks þegar
grunnlífeyrir væri talinn með og það
væri mjög gott miðað við önnur lönd.
Veltuminnstu fyrirtækin af markaði
Edda Rós Karlsdóttir, forstöðu-
maður greiningardeildar Búnaðar-
bankans, sagði að veltuminnstu fyr-
irtækin á hlutabréfamarkaðnum
muni hverfa út af honum er fram líða
stundir. Það sé bæði fyrirtækjunum
og fjárfestum fyrir bestu. Hlutabréf
þessara fyrirtækja séu ekki að virka
vel sem gjaldmiðill í viðskiptum, t.d.
við samruna og yfirtökur, og hagur
þessara fyrirtækja af því að vera
skráð á hlutabréfamarkaði sé því
ekki svo mikill.
Fram kom í máli Eddu Rósar að
það sé orðinn frekar fámennur og
einsleitur hópur fjárfesta sem standi
á bakvið verðmyndun á hlutabréfa-
markaði í dag. Í því sambandi skipti
máli að lífeyrissjóðirnir séu aðallega
í því að kaupa og halda hlutabréfum.
Þetta sé þó að breytast og sé það
mikilvægt
Edda Rós sagði að þrátt fyrir hátt
vaxtastig og opinn fjármagnsmarkað
séu erlendir fjárfestar ótrúlega
áhugalitlir fyrir íslenskum skulda-
bréfum. Ástæðan sé m.a. smæð
skuldabréfaflokka en tæknileg
vandamál við skráningu og vörslu
bréfanna í erlendum uppgjörskerf-
um eigi þar einnig nokkra sök. Hún
sagði að þetta væri nokkuð sem
hægt væri að laga og verið væri að
vinna í. Ef það takist, sem hljóti að
gerast, þá muni afföll af húsbréfum
lækka. Það yrði ekki bara ávinning-
ur fyrir einstaklinga heldur einnig
fyrir fyrirtækin í landinu, því hús-
bréf myndi gólf fyrir þá ávöxtunar-
kröfu sem fyrirtækin fái á markaði.
Þetta sé því mikilvægt mál.
Markaðurinn mikilvægur
Páll Harðarson, forstöðumaður
rekstrarsviðs Kauphallar Íslands,
sagði að vægi hlutabréfamarkaðar-
ins í þjóðarbúskapnum væri mikið og
taka yrði tillit til hans. Verðþróun á
þessum markaði hefði áhrif á hag-
sveiflur og öfugt.
Hann greindi frá því að markaðs-
virði skráðra hlutabréfa hér á landi
væri um 65% af vergri landsfram-
leiðslu, sem sé svipað og í Svíþjóð en
töluvert hærra en í Danmörku, Nor-
egi og Þýskalandi. Þetta hlutfall
væri hins vegar töluvert hærra í
Englandi, þar sem markaðurinn í
Evrópu væri hvað þróaðastur.
Fyrirtæki um-
komulaus án
afskipta lífeyr-
issjóðanna
Að minnsta kosti 14% skráðra hluta-
bréfa hér á landi í eigu lífeyrissjóða
Morgunblaðið/Jim Smart
Mikið fjölmenni sótti haustráðstefnu Félags löggiltra endurskoðenda.
BÚNAÐARBANKINN hefur
ákveðið að lækka vexti óverð-
tryggðra útlána um 0,50 pró-
sentustig. Jafnframt verða vext-
ir verðtryggðra útlána lækkaðir
um 0,2% Lækkun innlánsvaxta
verður á bilinu 0–0,5 prósentu-
stig, mismunandi eftir ein-
stökum innlánsformum bank-
ans. Þessar breytingar á
vaxtakjörum Búnaðarbankans
eru í kjölfar ákvörðunar banka-
stjórnar Seðlabankans sl. mið-
vikudag um lækkun stýrivaxta
um 0,50 prósentustig. Breyting-
arnar taka gildi 11. nóvember
næstkomandi.
Óverðtryggð útlánakjör Bún-
aðarbankans hafa þá lækkað um
4,95 prósentustig frá nóvember-
byrjun 2001 þegar núverandi
vaxtalækkunarferli hófst.
Óverðtryggð innlánskjör hafa
hins vegar lækkað minna eða á
bilinu 0,95–4,52 prósentustig,
mismunandi eftir einstökum
innlánsreikningum. „Til viðbót-
ar hefur Búnaðarbankinn
ákveðið að lækka verðtryggð út-
lánakjör um 0,2 prósentustig.
Kjör verðtryggðra innláns-
reikinga lækka heldur minna
eða á bilinu 0,1–0,2 prósentustig
fyrir utan lífeyrisbók sem áfram
mun bera 6,5% verðtryggða
vexti. Ákvörðunin er tekin í ljósi
þeirrar þróunar sem átt hefur
sér stað nú í haust á markaði, en
þar hefur ávöxtunarkrafa verð-
tryggðra skuldabréfa verið að
síga niður á við. Búnaðarbank-
inn er þá búinn að lækka verð-
tryggð vaxtakjör útlána um 0,5
prósentustig frá því að núver-
andi vaxtalækkunarferli hófst,“
að því er segir í tilkynningu frá
bankanum.
Búnaðar-
bankinn
lækkar
vexti
Í FORSÍÐUGREIN nýjasta tölublaðs fjármála-
tímaritsins Euromoney er þeirri spurningu velt
upp, hvort feðgarnir Björgólfur Thor Björg-
ólfsson og Björgólfur Guðmundsson séu hent-
ugir eigendur Landsbanka Íslands.
Hafskipsmálið er rakið, en Björgólfur eldri
var forstjóri Hafskips hf., sem varð gjaldþrota í
desember 1985. Þá er fjallað um viðskipti feðg-
anna og Magnúsar Þorsteinssonar í Rússlandi.
Raktar eru deilur þeirra við Ingimar Ingimars-
son og Bernard Lardner um fyrirtækið Baltic
Bottle Plant, sem í fyrra var selt Heineken fyrir
41 milljarð króna.
Yfirlýsing frá Samson
Samson ehf. sendi í gær frá sér yfirlýsingu í
tilefni umfjöllunar Euromoney:
„Í grein í nóvemberhefti breska tímaritsins
Euromoney, sem kom út í gær, er fjallað í löngu
máli um Landsbanka Íslands hf., kaup Samson
ehf. á hlut ríkisins í bankanum og einstök verk-
efni sem eigendur Samson hafa fengist við á
umliðnum árum. Á óvart kemur að tímarit sem
þetta fjalli um málin með þessum hætti. Í grein-
inni er að finna fjölmargar rangfærslur og er
þar farið afar frjálslega með staðreyndir.
Greinin, sem á að vera upplýsandi, skilur les-
andann eftir með áleitnar spurningar. Vakna
því eðlilega efasemdir um ærlegan tilgang
greinarhöfundar og/eða heimildarmanna hans.
Rétt er að geta þess að höfundur greinarinnar
talaði lítillega við Björgólf Thor Björgólfsson
og Björgólf Guðmundsson en ræddi ekki við þá
um þau efnisatriði greinarinnar sem mesta at-
hygli hafa vakið í íslenskum fjölmiðlum.
Samson lætur nú skoða einstök atriði grein-
arinnar og telur ekki rétt að senda frá sér frek-
ari yfirlýsingar að svo komnu máli.
Fréttastofa Útvarps birti í hádeginu í dag
viðtal við Ingimar Hauk Ingimarsson arkitekt
þar sem hann greindi frá samskiptum sínum við
aðstandendur Samson um miðjan síðasta ára-
tug. Af því tilefni vill Samson taka fram að þau
mál sem hann drepur á hafa verið rekin fyrir
dómstólum. Vilji Ingimar Haukur Ingimarsson
arkitekt taka þessi mál upp á ný á þeim vett-
vangi verður honum mætt þar. Þar sem Ingi-
mar Haukur hefur nú ákveðið að reka mál þessi
í fjölmiðlum á Íslandi og erlendis vilja aðstand-
endur Samson taka fram að hingað til hafi þeir
ekki látið undan sífelldum hótunum Ingimars
Hauks Ingimarssonar arkitekts og ætla ekki að
taka upp á því nú þó svo Samson eigi í við-
kvæmum viðskiptasamningum við einkavæð-
inganefnd ríkisstjórnarinnar sem eru á loka-
stigi.
Eignarhaldsfélagið Samson ehf.“
Samson segir grein í Euro-
money fulla af rangfærslum