Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 24
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N/
SI
A.
IS
T
O
Y
19
32
4
1
1/
20
02
Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S. 570 5300 • www.arctictrucks.is
markaður jeppamannsins
RX-1 er kominn, ert þú tilbúinn?
YAMAHA er komið í Arctic Trucks
MEIRI HRAÐI
hraðskreiðari en SRX
Á LAUGARDAG FRÁ 12-16 OG SUNNUDAG
FRÁ 13-16 Í ARCTIC TRUCKS
KOMDU OG SJÁÐU RX-1
VÉLSLEÐA ÁRSINS 2003
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gær einróma mjög
harðorða ályktun um Írak en í henni
eru Saddam Hussein Íraksforseta
gerðir tveir kostir, að afvopnast eða
taka afleiðingunum ella. Enginn
efast um, að með því sé átt við hern-
aðaraðgerðir. Er litið á samþykkt
ályktunarinnar sem sigur fyrir
Bandaríkin og athygli vakti, að Sýr-
lendingar greiddu henni atkvæði en
margir bjuggust við, að þeir myndu
sitja hjá.
Samkvæmt tillögunni fær Íraks-
stjórn vikufrest til að fallast á álykt-
unina og skilmála hennar og innan 30
daga á hún að vera búin að upplýsa
allt varðandi áætlanir sínar um
efna-, lífefna- og kjarnorkuvopn.
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlits-
nefndar SÞ, sagði í gær, að nokkrir
eftirlitsmenn yrðu sendir til Íraks
innan 10 daga en þeir og aðrir eft-
irlitsmenn hafa 45 daga til að búa sig
undir eftirlitsstörfin. Tveimur mán-
uðum eða 60 dögum síðar eiga þeir
að gefa öryggisráðinu skýrslu um
þau og samvinnu Íraksstjórnar.
Samkvæmt ályktuninni eiga eftir-
litsmennirnir að fá „skilyrðis- og tak-
markalausan“ aðgang að öllum stöð-
um, þar á meðal að höllum Saddams
en Írakar bönnuðu hann við fyrra
eftirlit.
Átta vikna
samningaþóf
Samningaviðræður um ályktunina
hafa staðið í átta vikur en saman
gekk í gær þegar Bandaríkjamenn
komu til móts við þær áhyggjur
Frakka, að ályktunin gæti falið í sér
sjálfkrafa heimild til hernaðarað-
gerða. Frakkar hafa krafist tveggja
ályktana, einnar um eftirlitið og ann-
arrar um refsiaðgerðir ef þörf kref-
ur.
Auk þess sem Saddam Hussein er
gefið „síðasta tækifæri“ til að starfa
með vopnaeftirlitsmönnunum, er
opnað fyrir afnám refsiaðgerða gegn
Íraksstjórn, það er að segja fari hún
eftir ályktuninni í einu og öllu.
Í ályktuninni, sem samþykkt var í
gær, er ekkert minnst á aðra ályktun
um refsiaðgerðir, sem er sigur fyrir
Bandaríkjamenn, en Frakkar fá þó
dálítið fyrir sinn snúð. Öryggisráðið
mun aðeins ræða hugsanleg brot
Íraka á skilmálum ályktunarinnar á
grundvelli skýrslu frá eftirlitsmönn-
unum sjálfum. Í fyrri ályktanadrög-
um var öllum heimilt að krefjast
slíkrar umræðu hvenær sem væri og
var litið á það sem opna leið fyrir
Bandaríkjamenn til að hefja hernað-
araðgerðir í kjölfarið.
Athygli vakti, að fulltrúi Sýrlands,
eina arabaríkisins í öryggisráðinu,
greiddi ályktuninni atkvæði en hann
hafði farið fram á, að atkvæða-
greiðslunni yrði frestað fram yfir
fund utanríkisráðherra arabaríkj-
anna í Kairó um helgina. Þá var líka
búist við, að hann myndi sitja hjá.
Sýrlenska fréttastofan SANA sagði
hins vegar í gær, að Colin Powell, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
hefði sent Faruq al-Shara, sýr-
lenskum kollega sínum, orð og beðið
hann að styðja þessa tilraun til að
gefa Íraksstjórn færi á að ljúka mál-
inu með friðsamlegum hætti.
Öryggisráð SÞ samþykkti einróma nýja ályktun um Írak
Saddam fær „síðasta
tækifæri“ til að afvopnast
Athygli vakti
stuðningur
Sýrlandsstjórnar
við ályktunina
AP
Frá atkvæðagreiðslunni í öryggisráðinu. Yst til vinstri er Fayssal Mekdad, sendiherra Sýrlands hjá SÞ, þá breski
fulltrúinn, Jeremy Greenstock, og síðan John Negroponte, fulltrúi Bandaríkjanna.
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
EINN fjögurra manna sem ákærðir voru í vik-
unni í Bandaríkjunum fyrir að hafa lagt á
ráðin um að útvega hægrisinnuðum skæru-
liðahóp í Kólumbíu vopn fyrir andvirði 2,2
milljarða íslenzkra króna, er fyrrverandi
þingmaður á danska þinginu, eftir því sem
upplýst var í dönskum fjölmiðlum í gær.
Uwe Jensen, 66 ára gamall Dani sem nú
hefur bandarískan ríkisborgararétt, var í hópi
fjögurra manna sem bandarískir alríkislög-
reglumenn handtóku í Texas fyrr í vikunni,
eftir 13 mánaða langa rannsókn. Hinir hand-
teknu eru sakaðir um að hafa ætlað að koma
fimm flutningagámum fullum af vopnum í
hendur AUC-skæruliða í Kólumbíu.
Jensen sat um tíma á danska Þjóðþinginu
fyrir Framfaraflokk Mogens Glistrups.
Vopnasmygl í
Bandaríkjunum
Fyrrverandi danskur þingmaður ákærður
Kaupmannahöfn. AFP.
RONALD K. Noble, yfirmaður
alþjóðalögreglunnar Interpol,
telur að hryðjuverkaforinginn
Osama bin Laden sé enn á lífi.
Þá bendi upplýsingar til þess
að hryðjuverkasamtök hans, al-
Qaeda, séu að undirbúa um-
fangsmikla hryðjuverkaárás.
Noble sagði í viðtali við
franska blaðið Le Figaro sem
birtist í gær að þrátt fyrir víð-
tæka leit væri ekki vitað hvar
bin Laden væri niðurkominn en
ekkert benti til þess að hann
væri látinn. „Osama bin Laden
er á lífi,“ sagði Noble.
Noble sagði einnig að Inter-
pol, sem hefur höfuðstöðvar í
Lyon í Frakklandi, hefði rann-
sakað fjárhag bin Ladens og
komist að þeirri niðurstöðu að
hann ætti enn um 280–300
milljónir dala í reiðufé á banka-
reikningum víðs vegar um
heiminn. Sú upphæð svarar til
25 til 28 milljarða króna.
Noble fjallaði um hryðju-
verkin á Balí, í Jemen og
Moskvu í viðtalinu og sagði að
hryðjuverkahópar væru greini-
lega að senda vestrænum ríkj-
um þau skilaboð að baráttunni
gegn hryðjuverkum væri langt
í frá lokið.
Hann sagði að leyniþjónust-
ur væru sammála um að al-
Qaeda væri að undirbúa nýja
hryðjuverkaárás sem beindist
ekki aðeins að Bandaríkjunum
heldur nokkrum öðrum löndum
samtímis.
„Osama
bin Lad-
en er á
lífi“
Yfirmaður Int-
erpol segir al-
Qaeda undir-
búa frekari
hryðjuverk
París. AFP.