Morgunblaðið - 09.11.2002, Page 28
ERLENT
28 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„Ó, GUÐ minn góður, þetta er hann.
Hann hefur fundið mig!“ hrópaði
fyrrverandi eiginkona Johns Allens
Muhammads 23. október þegar hún
sá mynd af honum í sjónvarpi nokkr-
um klukkustundum áður en hann
var handtekinn, grunaður um 21
skotárás í sex ríkjum og Wash-
ington-borg.
Eiginkonan fyrrverandi, Mildred
Muhammad, 42 ára, færði sig síðan
nær sjónvarpinu og starði á mynd-
ina. „John, hvað kom fyrir þig?“
spurði hún.
Skömmu síðar komu lög-
reglumenn á heimili hennar í Clint-
on í Maryland, fluttu hana og börn
hennar á leynilegan stað og yf-
irheyrðu hana: Hafði hún talað við
hann? Vissi hún hvað hann var að
gera? Vissi hún að hann ætti vopn?
Myndi hann reyna að myrða hana?
Hún svaraði síðustu spurningunni
játandi, kvaðst vera viss um að hann
myndi reyna að myrða hana.
Frá því að þau skildu fyrir þremur
árum hafði hún búist við því að hann
myndi birtast á heimili hennar og
miða byssu á hana. Hann hafði hótað
að myrða hana og hún vissi að hann
væri maður sem stæði við orð sín.
„Ég er viss um að hann
hafði mig í sigtinu“
Þetta kom fram í viðtali Mildred
Muhammad við blaðamann The
Washington Post þar sem hún lýsti
sambandi sínu við eiginmanninn
fyrrverandi. Líklegast þekkir eng-
inn hann betur en hún þar sem
hjónaband þeirra stóð í tólf ár, þau
ráku saman bílaverkstæði, áttu sam-
an þrjú börn og gengu í gegnum
mjög erfiðan skilnað.
Hún hitti hann síðast í Wash-
ington-ríki 4. september í fyrra þeg-
ar hún fékk fullt forræði yfir börn-
um þeirra, sem eru nú 9, 10 og 12
ára, og leyfi til að fara þaðan án þess
að skýra honum frá því hvar þau
dveldu.
Nú er Mildred sannfærð um að
Muhammad hafi farið á Washington-
svæðið til að myrða hana. „Ég er
viss um að hann hafði mig í sigtinu,“
sagði hún. „Hann gerði þetta að yf-
irlögðu ráði í því skyni að láta líta út
fyrir að ég væri fórnarlamb
[óþekkts raðmorðingja fyrir til-
viljun] til að hann gæti komið sem
sorgmæddur faðir og tekið börnin.“
„Þau dóu öll vegna mín,“ sagði
hún um fórnarlömb raðmorðingj-
ans.
Hún kvaðst finna til með John Lee
Malvo, 17 ára unglingi sem grun-
aður er um að hafa tekið þátt í rað-
morðunum. Hún hefur aldrei hitt
hann.
„Lífi hans var lokið um leið og
John heilsaði honum,“ sagði hún.
„Hann vissi það bara ekki.“
Frá því að Muhammad og Malvo
voru handteknir hafa eiginkonan
fyrrverandi og börn hennar verið í
einangrun. Börnin hafa ekki gengið
í skóla.
Sneri heim
gerbreyttur maður
Mildred kvaðst hafa hugsað til
eiginmannsins fyrrverandi þegar
morðin voru framin en ekki talið að
hann væri morðinginn. „Ég hélt að
hann vildi aðeins ná mér og hvers
vegna ætti hann að myrða einhverja
aðra?“
Mildred og John Muhammad
gengu í hjónaband 1988 og bjuggu í
Washington-ríki þar sem hann
gegndi herþjónustu. Hann tók þátt í
Persaflóastyrjöldinni 1991 og sneri
heim gerbreyttur maður.
Hann sagði Mildred að farið hefði
verið illa með blökkumenn í hern-
um. Hann kvaðst hafa verið sakaður
um að hafa kastað íkveikjusprengju
inn í tjald og síðan verið járnaður á
höndum og fótum. Þegar gefin
hefðu verið viðvörunarmerki til að
vara hermennina við hugsanlegri
gasárás hefði hann ekki fengið
neina gasgrímu. Þegar hann komst
að því að þetta var aðeins æfing
fannst honum að hann hefði verið
auðmýktur.
„Þegar hann kom heim var hann
mjög reiður maður,“ sagði Mildred
Muhammad. „Ég þekkti hann ekki.
Sá maður sem ég þekkti var skilinn
eftir í Sádi-Arabíu.“
Hjónin snerust til íslamstrúar árið
1997 og tveimur árum síðar slitnaði
upp úr hjónabandinu. Hann yfirgaf
fjölskylduna í september 1999 og
Mildred óskaði eftir skilnaði þremur
mánuðum síðar.
„Börnin eru aldrei
og hvergi óhult“
Mildred segir að John hafi rænt
börnunum í mars árið 2000 og hún
hafi ekki fengið þau aftur fyrr en
einu og hálfu ári síðar, 4. september
í fyrra, þegar lögreglan fann þau.
Mildred fór þá með börnin til Clint-
on í Maryland með leynd en vinir
hennar í Washington-ríki sögðu
henni að John væri staðráðinn í að
finna hana.
Mildred segir að John hafi tvisvar
sinnum hótað henni lífláti áður en
hún flutti til Clinton. „Þú færð ekki
að ala upp börnin mín,“ sagði hann.
„Þú ert orðin óvinur minn og ég ætla
þess vegna að drepa þig.“
Nú segist Mildred skilja skila-
boðin í bréfi sem raðmorðinginn
skildi eftir nálægt vettvangi eins
morðanna. „Börnin eru aldrei og
hvergi óhult,“ sagði í bréfinu og
Mildred telur að þetta hafi verið
skilaboð til sín, að hún fengi ekki að
ala upp börnin þeirra.
„Þau dóu öll vegna mín“
The Washington Post
Mildred Muhammad, fyrrverandi
eiginkona Johns Muhammads, sem
grunaður er um raðmorðin í Wash-
ington-borg og nágrenni.
Fyrrverandi eiginkona meints rað-
morðingja á Washington-svæðinu í
Bandaríkjunum lýsir sambandi þeirra
The Washington Post.
’ Hann gerði þetta til að geta
komið sem sorg-
mæddur faðir
og tekið börnin. ‘
„ÞEIR köstuðu gasi í dag, ég
brenndist öll í framan,“ segir Hall-
gerður Thorlacius, þroskaþjálfi frá
Reykjavík, í
samtali við
Morgunblaðið,
en hún er nú
stödd sem
sjálfboðaliði á
vegum félags-
ins Íslands-
Palestínu við
hjálparstarf í
Palestínu. Var
hún í alþjóð-
legum hópi
hjálparstarfsmanna sem reyndi á
miðvikudag að standa í vegi fyrir
því að vinnuflokki ísraelskra her-
manna yrði ágengt með að fella ólíf-
utré í eigu palestínskra þorpsbúa,
en trén eru felld þar sem verið er að
byggja rammgerðan vegg sem skil-
ur að Ísrael og yfirráðasvæði Pal-
estínumanna á Vesturbakkanum.
„Þeir [Ísraelar] eru að byggja
vegg í kringum Vesturbakkann,
sem þeir kalla öryggisvegg; þeir
eru að höggva trén hjá bændunum
og byggja þennan vegg í kringum
þorpin,“ segir Hallgerður. Ísraelar
geri þetta í þeim yfirlýsta tilgangi
að vernda ísraelska borgara fyrir
sjálfsmorðsárásum herskárra Pal-
estínumanna og öðrum hryðjuverk-
um. „Þeir eru að reyna að fangelsa
íbúa Vesturbakkans á bak við
þennan vegg,“ segir hún.
En í raun og veru snýst þetta að
sögn Hallgerðar líka að miklu leyti
um yfirráð yfir hinum takmörkuðu
vatnsuppsprettum svæðisins. „Þeir
eru að taka vatnið frá fólkinu. Og
þeir eru í raun að einangra þorpin,
eins og þetta þorp sem ég er í núna,
það heitir Falami,“ segir Hallgerð-
ur. „Við vorum hérna að reyna að
stoppa þá [ísraelsku hermennina],
við gátum ekki hindrað þá í að
höggva trén. Þeir saga þau niður
með vélsög. Einn sagar, sex alvopn-
aðir hermenn standa í kringum
hann. Um 100 m frá veggnum
byggja þeir rafmagnsgirðingu. Þar
á milli er gaddavírsgirðing. Þeir
eru að loka fólkið hérna inni og taka
landið þeirra. Og fólkið grætur
hérna fyrir framan trén, sem eru á
þeirra landi,“ segir Hallgerður, öll í
uppnámi eftir átök dagsins.
„Við erum þeirra vernd,“ segir
Hallgerður um hlutverk alþjóðlegu
hjálparstarfsmannanna, sem þarna
eru á meðal óbreyttra Palestínu-
manna. „Þeir köstuðu gasi í dag, ég
brenndist öll í framan. Alls konar
gasi, táragasi og ég veit ekki hverju
öðru, og hljóðbombum. Þeir hikuðu
ekki við það,“ segir hún um þær að-
ferðir sem ísraelsku hermennirnir
beittu til að geta unnið við „girðing-
arvinnu“ sína í friði.
Segir hún hermennina ekki vilja
að hinir erlendu gestir setji sig í
hættu. „En svo hótuðu þeir að
skjóta gúmmíkúlum að okkur. Þeir
hefðu gert það hefðum við ekki
bakkað aðeins. En þeir notuðu gas-
ið alveg miskunnarlaust, og þessar
andstyggilegu hljóðbombur. Við
óttuðumst mest að þegar þeir voru
að saga niður trén myndu þorpsbú-
ar þyrpast á ólífuakurinn. Og þá
hefðu þeir skotið á fólkið. Við stóð-
um þess vegna og vernduðum þau.
Þau grétu. Gamlar konur hágrétu.“
Hallgerður segir vera tíu daga
frá því hún kom þarna á vettvang
og segist ætla sér að vera nokkrar
vikur í viðbót. „Nærvera okkar [al-
þjóðegu hjálparstarfsmannanna]
er mikilvæg núna á meðan ólífu-
uppskeran stendur yfir,“ segir hún.
„Við erum í raun mannlegur skjöld-
ur fyrir fólkið.“
Landtökumenn
hættulegastir
Mesta ógnin sem óbreyttir íbúar
þessara palestínsku þorpa á Vest-
urbakkanum standa frammi fyrir
að sögn Hallgerðar er ekki nær-
vera ísraelsku hermannanna, held-
ur landtökumenn gyðinga sem
þarna valsa um með alvæpni. „Á
hverjum einasta degi koma land-
tökumennirnir, vopnaðir. Þeir
sparka í fólk og lemja, hrinda og
hrækja á fólk. Og skjóta fólk.
Skjóta palestínska bændur við að
tína ólífur af sínum eigin ólífu-
trjám,“ fullyrðir Hallgerður.
Að hennar mati eykur veggurinn
sem Ísraelar eru að reisa líkur á
sjálfsmorðsárásum frekar en hitt.
Stemningin meðal hinna fátæku
íbúa palestínsku sveitaþorpanna
þarna sé þannig. „Fólkið hérna
segir: Okkur langar öll að gera
sjálfsmorðsárás. Við höfum ekkert
að lifa fyrir, allt er tekið frá okkur.“
„Þeir hótuðu að
skjóta gúmmíkúlum“
Íslenzkur sjálf-
boðaliði sinnir
hjálparstarfi
í Palestínu
Hallgerður
Thorlacius
MÚSLIMASTÚLKA biður bænir
fyrir utan al-Aqsa-moskuna á Must-
erishæð í Jerúsalem í gær, við upp-
haf föstumánaðar múslima, Ramad-
an. Um 50.000 múslimar komu þar
saman af þessu tilefni; ísraelsk yf-
irvöld losuðu um ferðabann og
hleyptu eldri borgurum af Vest-
urbakkanum til Jerúsalem. Um
2.000 lögreglumenn höfðu gætur á
öllu.
Ramadan er níundi og helgasti
mánuðurinn í hefðbundnu tungl-
almanaki múslima. Þá neyta þeir
hvorki matar, drykkjar eða kynlífs
svo lengi sem dagsbirtu nýtur.
Reuters
Við upp-
haf föstu-
mánaðar HREYFLAR Fokker 50-skrúfuþot-
unnar, sem fórst í Lúxemborg á mið-
vikudag og 20 manns með henni,
misstu skyndilega afl og stöðvuðust
síðan alveg, er vélin var í aðflugi.
Þetta kemur fram í bráðabirgðanið-
urstöðum rannsóknarinnar á slysinu
sem skýrt var frá í gær.
Í skýrslu frá rannsakendum slyss-
ins segir, að ekki væri enn unnt að
kveða upp úr um það með vissu hvað
hefði orsakað hið skyndilega afltap
hreyflanna, en þær upplýsingar sem
tekizt hefði að ná úr flugritum vél-
arinnar staðfestu, að „hreyflarnir
töpuðu skyndilega afli í aðfluginu og
stöðvuðust síðan alveg“. Skýringa á
þessu sé enn leitað.
Luxair-slysið
Hreyflarnir
stöðvuðust
Lúxemborg. AFP.
BREZK stjórnvöld vörðust í gær
þrýstingi á að breyta áformum sín-
um um að deila fullveldisyfirráðum
yfir Gíbraltar með Spáni, en íbúar
brezku krúnunýlendunnar höfnuðu
þeirri hugmynd með nærri 99%
greiddra atkvæða í allsherjarat-
kvæðagreiðslu sem fram fór í
fyrradag.
„Við höfum alltaf sagt að það
verður engu nýju fyrirkomulagi
þvingað upp á Gíbraltarbúa án
þess að þeir geti sagt hug sinn til
þess í atkvæðagreiðslu og við það
verður staðið,“ sagði talsmaður
Tony Blair forsætisráðherra. At-
kvæðagreiðslan var haldin í óþökk
stjórnvalda í Lundúnum og Madr-
íd.
Gíbraltarbúar hafna
spænskum yfirráðum
Bretastjórn
vill halda
í áformin
Lundúnum, Gíbraltar. AFP, AP.
BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin
CNN skýrði frá því í fyrrakvöld að
hryðjuverkasamtökin al-Qaeda
hefðu lýst sprengjutilræðinu á eyj-
unni Balí í Indónesíu í síðasta
mánuði á hendur sér.
CNN sagði að al-Qaeda hefði
lýst því yfir að samtökin hefðu
staðið fyrir árás á „næturklúbba
og vændishús“ í Indónesíu á vef-
síðu sem samtökin hefðu oft notað
til að lýsa hryðjuverkum á hendur
sér. Yfir 190 manns biðu bana í til-
ræðinu.
Indónesía
Tilræðið
sagt verk
al-Qaeda
Hong Kong. AFP.
♦ ♦ ♦