Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 30
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
30 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
KARLAKÓRINN Stefnir efnir í
kvöld til hagyrðingamóts og
skemmtikvölds í Hlégarði í Mos-
fellsbæ. Mótið er með nýstárlegu
sniði því hagyrðingarnir sem mæta
til leiks syngja allir í kórum á höf-
uðborgarsvæðinu og nágrenni.
Að sögn Höskuldar Þráinssonar í
karlakórinum Stefni, sem heldur
utan um dagskrána, var upp-
haflega hugmyndin að vera með
atvinnuhagyrðingamót eða fá
stjórnmálamenn til að taka þátt í
því. Jón Kristinn Cortes, sem
stjórnar karlakórnum Þröstum,
kom þá með hugmynd um að leiða
saman hagyrðinga úr hinum ýmsu
kórum og þannig fæddist hug-
myndin.
Þeir sem þátt taka koma úr
Þröstum og Stefni en einnig úr
Skagfirsku söngsveitinni, Karla-
kór Kjalarness og Söngbræðrum í
Borgarfirði.
Einn hagyrð-
ingur kemur frá
hverjum kór en
tveir frá Stefni
þar sem hann er
á heimavelli.
Höskuldur segir
að kórarnir búi
yfir ágætum
hagyrðingum og
nefnir í þessu
sambandi að
sömu menn fáist oft á tíðum við
þýðingar á textum og textasmíði
fyrir sína kóra. Þátttakendur hafa
fengið í hendur yrkisefni og ein-
hverja fyrriparta úr vísum þannig
að þeir ættu að hafa óljósan grun
um hvað bíður þeirra í kvöld.
Viðurkenningar fyrir
bestu botna úr sal
Þá fær salurinn einnig að
spreyta sig og veittar verða við-
urkenningar fyrir bestu botna úr
sal við eftirfarandi fyrriparta:
Haustið
Nú er kominn nóvember.
Napurt leggst þá yfir húmið.
Við veislulok
Sólin skín í austurátt,
eðalvínið þrotið.
Höskuldur segir að þótt kepp-
endur mæti æfðir til leiks verði
alltaf til botnar á staðnum.
Dagskráin hefst á því að karla-
kórinn Stefnir syngur nokkur lög
en að því búnu stíga hagyrðingar á
svið og láta fjúka í kviðlingum. Þá
verður stiginn dans við undirleik
Stórsveitar Stefnis sem skipuð er
tíu kórfélögum, þar á meðal Hösk-
uldi, sem er titlaður aðalritari
sveitarinnar og söngvari.
Þá er einnig fyrirhugað að
kynna Braga, nýtt óðfræðiforrit,
sem er ætlað að leiðbeina byrj-
endum og lengra komnum við
vísnagerð.
Hagyrðingamót karlakóra haldið í Hlégarði í kvöld
Sólin skín í austurátt,
eðalvínið þrotið …
Mosfellsbær
Höskuldur
Þráinsson
TILBOÐ hafa verið opnuð í jarð-
vinnu við nýja 60 rýma hjúkrunar-
álmu við Hrafnistu í Reykjavík en
lægsta tilboð átti Arnarverk ehf.
Ráðgert er að hefja framkvæmdir í
þessum mánuði og er stefnt að því
að taka húsið í notkun um mitt ár
2004.
Heildarkostnaður við verkið er
áætlaður um 800 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir að heilsugæslustöð
fyrir Voga- og Heimahverfi fái að-
stöðu í nýja húsinu.
Kostnaðaráætlun vegna jarð-
vinnu við hjúkrunarálmuna hljóðaði
upp á 16,5 milljónir kr. og var til-
boð Arnarverks tæpar 11 milljónir
eða 65% af kostnaðaráætlun.
Byggingin verður þrjár hæðir
með kjallara og samtals um 5.700
fermetrar að flatarmáli. Það er
teiknistofa Halldórs Guðmundsson-
ar sem sá um hönnun bygging-
arinnar. Ráðgert er að taka fyrstu
skóflustunguna að byggingu húss-
ins um miðjan mánuðinn.
Framkvæmdir
við hjúkrunar-
álmu Hrafn-
istu að hefjast
Reykjavík
ELDRI borgarar í Garðabæ og
nemendur í 6. bekk í Flataskóla
skemmtu sér saman í skólanum í
gær og spiluðu félagsvist. Gestunum
var boðið upp á kaffi og meðlæti sem
nemendur höfðu sjálfir bakað í heim-
ilisfræði.
Þá hlýddu eldri borgarar á sam-
söng yngri barna. Að sögn aðstand-
enda skólans er von til þess að hér
verði framvegis um árlegan viðburð
að ræða.
Gamlir og ungir spiluðu
saman félagsvist
Garðabær
Morgunblaðið/Jim Smart
NÝTT orkureikninga- og innheimtu-
kerfi var tekið í notkun hjá Hitaveitu
Seltjarnarness í haust. Kerfið nefn-
ist ORKA og er þjónustað af hug-
búnaðarfyrirtækinu Vigor, dóttur-
fyrirtæki TölvuMynda, og er
sérhannað fyrir hitaveitur. Kerfið
heldur utan um viðskipta- og notk-
unarsögu heitavatnsnotenda, m.a.
hvenær lesið var af mælum, hver
notkunin er, meðaltalsnotkun, mæla-
skipti, flutningar, hverjir eru greið-
endur (viðskiptamenn) reikninganna
og greiðslufyrirkomulag. Það er fyr-
irtækið Skyggnir hf. sem hýsir kerf-
ið.
Í kjölfar forritaskiptanna hafa
verið teknir upp annars konar A-
gíróseðlar/orkureikningar sem eiga
að vera mun skýrari og skilmerki-
legri en áður. Fyrsta reikningstíma-
bil með nýju seðlunum er fyrir sept-
ember – október 2002, með eindaga
11. nóvember nk.
Í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ
er einnig á það minnt að út er kom-
inn bæklingur sem gefur góð ráð
með ofnastillingar o.fl.
Nýtt inn-
heimtukerfi
tekið í notkun
Seltjarnarnes
HREFNA Haraldsdóttir, foreldra-
ráðgjafi hjá landssamtökunum
Þroskahjálp, segir atferlismótun á
borð við þá sem notast hefur verið
við í Lækjarskóla í Hafnarfirði til
þess fallna að börn með frávik af
ýmsu tagi fái í sumum tilfellum óbeit
á námi og ýti undir kvíða hjá þeim.
Hún segir að aðferðir eins og að
refsa börnum með gulum og rauðum
spjöldum og láta þau sitja inni í frí-
mínútum geti jafnvel leitt til þess að
þau verði hrædd við að mæta í skól-
ann.
Hrefna hefur unnið mikið með for-
eldrum fatlaðra barna og einnig
barna með ýmiss konar frávik sem
stunda nám í almennum grunnskól-
um.
„Mér finnst allt of algengt að hinn
almenni skóli hrökkvi í baklás ef
barn er með einhver frávik,“ segir
hún.
Hrefna segist hafa heyrt víða,
bæði frá kennurum og sérfræðing-
um og foreldrum, að í gangi sé alda í
grunnskólum hvað snertir atferlis-
mótun. „Ég hrökk illilega við þau tíð-
indi enda er atferlismótun mjög
vandmeðfarin aðferð og nauðsynlegt
að þeir sem henni beiti búi yfir mik-
illi þekkingi og viðhafi vönduð vinnu-
brögð.“
Hún segir mjög auðvelt að mis-
túlka atferlismótun og taka ákveðna
hluti hennar úr samhengi þannig að
hún verður samhengislaus. Hún seg-
ir það alveg ljóst að þeir sem líði fyr-
ir ranga atferlismótun séu börn með
frávik, bæði misþroska börn, börn
með athyglisbrest og ofvirk börn.
Verulegt áhyggjuefni sé ef kenn-
arar séu farnir að beita þessum að-
ferðum þegar næg þekking á henni
er jafnvel ekki fyrir hendi.
Kennarar óöruggir við
að taka á börnum með frávik
Hrefna segir að skoða verði ofan í
kjölinn hvernig kennaranáminu sé
háttað og hversu mikill tími fari í það
hjá kennaranemum að læra að fást
við börn með frávik.
„Ég skynja oft óöryggi hjá kenn-
Foreldraráðgjafi hjá landssamtökunum Þroskahjálp
hefur efasemdir um spjaldanotkun í Lækjarskóla
Getur leitt til þess að
börn fái óbeit á námi
Hafnarfjörður urum og hvernig þeir eigi að mæta
þessum börnum,“ segir Hrefna. Hún
segir að því miður sé það svo að börn
með frávik af ýmsu tagi verði oft
kvíðin þegar þau finna að þau ráða
illa við það sem verið sé að bjóða
þeim.
„Þau ráða líka oft mjög illa við frí-
mínútur til að mynda og fá lítinn
stuðning í frímínútum. Það er hörð
veröld úti á skólalóðinni.“
Hrefna segir nauðsynlegt að skoð-
að verði nánar hvernig skólayfirvöld
geti komið til móts við börn með mis-
munandi þarfir og komið þeim til
þroska. Í lögum sé skýrt á um það
kveðið, að öll börn eigi að njóta sömu
réttinda.
Hún nefnir meðal annars í þessu
sambandi að bekkir í grunnskólum
séu of stórir og nær útilokað að einn
kennari ráði við að kenna bekk þar
sem nokkur börn séu með frávik.
Hún undirstrikar að lokum nauðsyn
þess að náin samvinna sé á milli
heimila og skóla og að æskilegt sé að
fjölga fagstéttum innan skólans til að
taka á ólíkum sérþörfum barna.
Dagskrá þingsins verður sem hér segir:
• Kl. 13:30 Þingsetning - Markús Örn Antonsson, stjórnarformaður ÞFÍ.
• Kl. 13:35 Hátíðarávarp
„Framtíðarsýn um samstarf þjóðræknisfélaganna“
- Sigrid Johnson, forseti Icelandic National League
of North America.
• Kl. 14:00 Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur við undirleik
Guðríðar St. Sigurðardóttur, píanóleikara.
Þær munu einnig segja frá tónleikaferð sinni vestur um haf.
• Kl. 14:25 Ávarp - Eiður Guðnason, aðalræðismaður Íslands í Winnipeg.
• Kl. 14:30 Heimildarmynd um líf afkomenda
íslenskra innflytjenda vestra um 1940.
• Kl. 14:50 „Heim í átthagana 2004”
- Davíð Gíslason, Árborg, Manitoba, segir frá
væntanlegri heimsókn Vestur-Íslendinga til Íslands 2004.
• Kl. 15:10 Fyrirlestur Viðars Hreinssonar, bókmenntafræðings,
um Stephan G. Stephansson í tilefni
af útkomu ritverks um skáldið.
• Kl. 15:30 Kynning Vesturfarasetursins á Hofsósi á
margmiðlunarverkefninu „An Interactive Heritage Journey” -
Wincie Jóhannsdóttir, menningar- og fræðslustjóri
Vesturfarasetursins.
• Kl. 16:00 Ferðasaga og myndasýning sr. Björns Jónssonar
frá ferð til Vesturheims sumarið 2002.
• Kl. 16:30 Myndræn kynning á ungmennaskiptum Snorraverkefnisins.
Ásta Sól Kristjánsdóttir, verkefnisstjóri, og
Tricia Signý McKay. Almar Grímsson,
formaður Snorrasjóðsins, kynnir.
• Kl. 17:00 Þingslit og léttar veitingar.
ÞJÓÐRÆKNISÞING 2002
Stjórnin
Þjóðræknisfélag Íslendinga stendur fyrir þjóðræknisþingi
í Borgartúni 6 í dag laugardaginn 9. nóvember
og hefst þingið kl. 13:30. Þingið er öllum opið.