Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 32
SUÐURNES
32 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MARGIR hópar nemenda hafa skoð-
að sýningu Gullpensilsins í Lista-
safni Reykjanesbæjar. Valgerður
Guðmundsdóttir menningarfulltrúi
segir að sýningin sé kjörið tækifæri
fyrir myndmenntakennara að kynna
fyrir nemendum sínum það helsta
sem er að gerast í málaralist á Ís-
landi.
Hópurinn sem sýnir undir hatti
Gullpensilsins er skipaður fjórtán
myndlistarmönnum og er þetta
sjötta sýning þeirra.
Myndin var tekin þegar nem-
endur úr Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja skoðuðu sýninguna. Pilt-
urinn reyndi greinilega mikið að
átta sig á mynd Ingu Þóreyjar Jó-
hannsdóttur.
Sýning Gullpensilsins í Duus-
húsum í Keflavík er opin alla daga
frá klukkan 13 til 17 og stendur til 8.
desember. Einnig er hægt að panta
heimsókn hjá menningarfulltrúa eða
safnstjóra Byggðasafns Suðurnesja.
Nemendur skoða málverkin
Keflavík
Harma ástand
í heilsugæslu
Garður
HREPPSNEFND Gerðahrepps tel-
ur að óviðunandi ástand hafi skapast
á Suðurnesjum vegna uppsagna
heilsugæslulækna og harmar það.
Í ályktun sem hreppsnefndin hef-
ur samþykkt samhljóða er skorað á
deiluaðila að finna lausn, þannig að
hægt verði að tryggja nauðsynlega
þjónustu við íbúa Suðurnesja.
SÝNING á munum úr
Poppminjasafni Íslands
hefur verið opnuð í hlið-
arsal Bókasafns Reykja-
nesbæjar í Kjarna. Safnið
tekur við munum, mynd-
um og skjölum sem tengj-
ast dægurtónlist, af öllu
landinu.
Poppminjasafn Íslands
var stofnað fyrir fjórum
árum. Opnuð var sýning á
veitingastaðnum Glóðinni
á þeim munum sem söfn-
uðust og var hún með yf-
irskriftinni Bítlabærinn
Keflavík. Sýningin var
síðan afhent Byggðasafni Suðurnesja
til varðveislu.
Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu-
maður Byggðasafnsins, segir að bæj-
aryfirvöld hafi áhuga á framgangi
safnsins og það sé á stefnuskrá núver-
andi meirihluta að tengja starfsemi
Poppminjasafnsins sameiginlegri
listamiðstöð og tónlistarskóla. Í ný-
samþykkti stefnu um þetta er gert
ráð fyrir undirbúningi og hönnun
miðstöðvarinnar á kjörtímabilinu.
„Mikilvægt er að við vinnu sem fram
fer við undirbúning slíkrar byggingar
lægi fyrir hverjar væru þarfir Popp-
minjasafnsins. Einnig að ná betri
tengslum við þá sem hafa áhuga á
uppbyggingu þessa safns,“ segir Sig-
rún Ásta um tilgang sýningarinnar
sem standa mun uppi til loka ársins.
Ákveðið hefur verið að opna heima-
síðu fyrir Poppminjasafnið og ýmsar
aðrar hugmyndir hafa komið upp í
tengslum við uppsetningu sýningar-
innar. Sigrún nefndir að skemmtilegt
geti verið að hafa einhvers konar
hljómþing þar sem saga tiltekinna
hljómsveita verði rifjuð upp í sam-
vinnu við tónlistarmennina sjálfa. Það
gæti orðið liður í því að búa til lifandi
safn sem þó liti til arfleifðarinnar eins
og sögusöfnum er ætlað að gera.
Fyrir landið allt
Sigrún leggur áherslu á að þótt
Poppminjasafn Íslands sé í Reykja-
nesbæ og óneitanlega tengt Bítla-
bænum Keflavík, vöggu popptónlist-
arinnar í landinu, sé það fyrir allt
landið. Því vilji það safna munum,
myndum og skjölum sem tengjast
viðfangsefni þess af öllu landinu. Hún
segir að ekki sé ætlunin að safna
sjálfri tónlistinni, það hafi komið í hlut
annarra, en hugsanlega yrði hægt að
koma á samvinnu sem leiddi til þess
að hægt yrði að njóta tóndæma í var-
anlegri aðstöðu safnsins. Þá gæti það
komið í hlut Poppminjasafnsins að
varðveita skrár yfir verk hljómsveita
eða höfunda dægurlaga. Fjöldi ann-
arra stórra verkefna kemur að henn-
ar mati til álita.
„Mér finnst fólk sýna þessari hug-
mynd áhuga. Ég er viss um að ef okk-
ur tekst að búa til gott safn á þessu
sviði muni það vekja mikla athygli,“
segir Sigrún Ásta Jónsdóttir.
Sigrún Ásta Jónsdóttir við Bítlabæjarskiltið.
Keflavík
Sýna muni úr Poppminjasafni Íslands
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Tekur við munum
af öllu landinu
ALLIR fulltrúar í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar hafa ritað undir
áskorun um að stjórnvöld leiti allra
leiða til að ljúka tvöföldun Reykja-
nesbrautar sem allra fyrst og kanni
þegar þann möguleika að semja við
verktaka um að ljúka framkvæmd-
inni á sömu einingarverðum og feng-
ust við opnun tilboða í fyrsta áfanga.
Steinþór Jónsson bæjarfulltrúi
lagði fram bókunina á bæjarstjórn-
arfundi í vikunni. Þar kemur einnig
fram að bæjarfulltrúar leggja
áherslu á að öryggisþættir verði ráð-
andi við val á slitlagi brautarinnar til
framtíðar.
Fyrr í vikunni voru opnuð tilboð í
breikkun 8,6 kílómetra kafla Reykja-
nesbrautar, sem er fyrsti áfangi tvö-
földunar úr Hvassahrauni til Njarð-
víkur. Lægstu tilboð voru um 62% af
kostnaðaráætlun, 616 milljónir mið-
að við malbikað slitlag og 673 millj-
ónir steypt. Í greinargerð með bók-
un Steinþórs kemur fram að í ljósi
þessarar niðurstöðu verði að telja
allar ytri aðstæður fyrir hagstæðum
niðurstöðum óvenju góðar um þess-
ar mundir. Gera megi ráð fyrir því að
heildarkostnaður við allt verkið, það
er að segja 24 kílómetra vegalend
með fimm mislægum gatnamótum,
verði ekki yfir 2,2 til 2,5 milljörðum
kr. og sé hönnunarkostnaður Vega-
gerðarinnar þar meðtalinn. Sparn-
aður þjóðfélagsins við heildarfram-
kvæmdina geti numið allt að einum
milljarði.
„Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
telur því mikilvægt í ljósi þessarar
hagstæðu niðurstöðu að flýta fram-
kvæmdum sem kostur er,“ segir í
bókuninni.
Vilja flýta
tvöföldun
brautar-
innar
Reykjanesbraut
Reisa ekki
styttu af
Hljómum
Reykjanesbær
MEIRIHLUTINN í bæjarstjórn
Reykjanesbæjar vísaði frá tillögu
fulltrúa Framsóknarflokksins um að
efna til samkeppni um gerð styttu af
Hljómum í tilefni af 40 ára starfs-
afmæli hljómsveitarinnar á næsta
ári.
Stytta af Hljómum var á stefnu-
skrá Framsóknarflokksins við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar. Kjart-
an Már Kjartansson, bæjarfulltrúi
flokksins, rökstuddi tillögu sína með-
al annars með því að meðlimir hljóm-
sveitarinnar hafi löngum haldið nafni
sveitarfélagsins á lofti og verið góð
auglýsing fyrir það kraftmikla tón-
listar- og menningarstarf sem þrifist
hafi um áratugaskeið í Bítlabænum
eins og sveitarfélagið, fyrst Keflavík
og síðar Reykjanesbær, hafi löngum
verið kallað.
Við umræður í bæjarstjórn lagði
Árni Sigfússon bæjarstjóri til að til-
lögu Framsóknarflokksins yrði hafn-
að, þar sem í nýsamþykktri stefnu
Reykjanesbæjar fyrir árin 2002 til
2006 væri gert ráð fyrir að undirbún-
ingur að verkefni tengdu tónlistar-
miðstöð og poppminjasafni yrði
kominn á skrið eftir 2 til 3 ár. Til-
lagan gæti hentað í tengslum við
uppbyggingu slíkrar miðstöðvar, en
ótímabært væri að taka afstöðu til
hennar nú og standa að samkeppni á
næsta ári eins og tillagan gerði ráð
fyrir.
Meirihluti sjálfstæðismanna felldi
tillögu Framsóknarflokksins en
fulltrúar minnihlutans greiddu henni
atkvæði.
Hyggjast
stofna Mann-
gildissjóð
Reykjanesbær
STOFNAÐUR verður Manngildis-
sjóður Reykjanesbæjar í byrjun
næsta árs, samkvæmt nýsamþykktri
stefnu meirihlutans í bæjarstjórn.
Leitað verður samstarfs við fyrir-
tæki.
Nefndir á vegum bæjarins úthluta
styrkjum af ýmsu tagi, svo sem til
menningar og lista, íþrótta og tóm-
stundastarfs. Gert mun ráð fyrir því
að fjárframlög til þessara verkefna
fari nú í gegnum Manngildissjóð og
hlutverk hans gert víðtækara. Auk of-
antalinna verkefna er honum ætlað að
veita stuðning við verkefni á sviði
fræðslu, félagsþjónustu og fjölskyldu-
og forvarnarmála. Þannig mun sjóðn-
um ætlað að sinna verkefnum sem
Þróunarsjóði grunnskóla var ætlað,
samkvæmt stefnuskrá Sjálfstæðis-
flokksins fyrir síðustu kosningar.
Í samþykktum sjóðsins verður gert
ráð fyrir deildaskiptingu. „Með sjóðn-
um er sameinað átak til stuðnings
verkefnum í þágu mannræktar og
aukins manngildis í Reykjanesbæ,“
eins og tekið er til orða í stefnuyfirlýs-
ingunni.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Hluthafafundur Kaldbaks
fjárfestingarfélags hf.
verður haldinn mánudaginn
9. desember 2002 á Hótel KEA
og hefst kl. 16.00
Dagskrá fundarins verður:
1. Tillaga um að hækka hlutafé félagsins um allt að kr. 110.675.000
að nafnvirði með útgáfu nýrra hluta sem notaðir verða í skiptum fyrir
allt útgefið hlutafé Hlutabréfasjóðs Íslands hf., í tengslum við samruna
Kaldbaks fjárfestingarfélags hf. og Hlutabréfasjóðs Íslands hf., í
samræmi við samrunaáætlun, dags. 3. október 2002. Lagt mun
verða til að forgangsréttur eldri hluthafa til nýrra hluta við
hlutafjáraukningu þessa falli niður skv. heimild í 3. mgr. 34. gr. laga
nr. 2/1995. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og með sömu
réttindi og aðrir hlutir í félaginu.
2. Tillaga um að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hlutafé
félagsins um allt að kr. 266.000.000 að nafnvirði með útgáfu nýrra
hluta. Stjórn félagsins leggur það til að forgangsréttur hluthafa til
nýrra hluta við hlutafjáraukningu þessa falli niður skv. heimild í 3. mgr.
34. gr. laga nr. 2/1995. Hinir nýju hlutir skulu vera í sama flokki og
með sömu réttindi og aðrir hlutir í félaginu. Heimild stjórnar félagsins
til hlutafjárhækkunar þessarar fellur niður í apríllok 2004
3. Tillaga stjórnar um aðrar nauðsynlegar breytingar á samþykktum
Kaldbaks fjárfestingarfélags hf. sem leiða af framangreindum tillögum.
4. Tillögur um nauðsynlegar breytingar á samþykktum félagsins
vegna fyrirhugaðrar rafrænnar skráningar hlutabréfa félagsins hjá
Verðbréfaskráningu Íslands hf. í samræmi við ákvæði laga nr.
131/1997 um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
5. Önnur mál löglega upp borin.
Gögn vegna hluthafafundarins þ.m.t. vegna fyrirhugaðs samruna
liggja frammi á skrifstofu félagsins og á heimasíðu þess.
Akureyri þann 9. nóvember 2002.
Stjórn Kaldbaks fjárfestingarfélags hf.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111