Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 33
Ljósmynd/Sigurður Jónsson
VEGSTIKURNAR með Suðurlands-
vegi yfir Hellisheiði voru þvegnar síð-
astliðinn fimmtudag þegar einn af
starfsmönnum Vegagerðarinnar fór
um þær með þar til gerðri þvottavél
og eftir sátu stikurnar skínandi hrein-
ar og endurskinsmerkin á þeim gáfu
frá sér góðan glampa.
Mikil umferð er á Suðurlandsvegi
um Hellisheiði og þegar votviðrasamt
er gengur mikill úði yfir stikurnar og
vegtjara sest á þær. Endurskins-
merkin missa við það glampa sinn en
sá glampi er nauðsynlegur til að lýsa
fólki leið í myrkri og þegar dimm-
viðrasamt er.
Vegstikurn-
ar þvegnar
Hellisheiði
LIONSKLÚBBUR Hveragerðis hef-
ur fært Slökkviliði Hveragerðis sjö
eldvarnabúninga. Ævar Axelsson,
formaður Lionsklúbbsins, afhenti
Snorra Baldurssyni búningana
formlega. Við það tækifæri sagði
hann að Lionsklúbburinn hefði það
markmið að láta gott af sér leiða og
í ár var ákveðið að styrkja slökkvi-
liðið. Haldið var skemmtikvöld, þar
sem fyrirtæki bæjarins tróðu upp og
því væri þetta ekki eingöngu gjöf
frá Lionsklúbbnum, heldur bæj-
arbúum öllum.
Ævar sagði ennfremur að hann
vonaðist að sjálfsögðu til þess að
slökkviliðið þyrfti aldrei að nota
búningana, en ef til þess kæmi von-
aði hann að þeir nýttust vel. Félagar
í Lionskúbbnum eru um tuttugu
talsins, þar af eru þrjár konur.
Snorri Baldursson slökkviliðs-
stjóri þakkaði þessa rausnarlegu
gjöf og sagði fólki frá því að í raun
væru slökkviliðin um land allt orðin
allsherjarbjörgunarlið, en ekki ein-
göngu slökkvilið og þessir nýju gall-
ar væru þeim lífsnauðsynlegir.
Slökkviliðsstörf væru talin hættu-
legustu störf á friðartímum. Bún-
ingarnir sjö koma að góðum notum
og eru framleiddir af Albatros og er
tekið mið af kröfum slökkviliðs-
manna við hönnun og gerð þeirra.
Gallarnir eru gerðir úr þremur
lögum, yst er treg- eða óbrenn-
anlegt efni, því næst rakavarnarlag
og innst er vörn gegn hita, efni sem
er óbrennanlegt. Hver galli kostar á
bilinu 70–80 þúsund krónur og er
þetta því gjöf upp á rúm 600 þús-
und. Snorri sagði einnig frá því að
gallarnir sem hafa verið notaðir síð-
ustu ár komu til liðsins árið 1989. Í
þeim er ekkert rakavarnarlag og
hafa þeir gengið undir nafninu
Vespré, því þeir eru svo rakadræg-
ir. Þeir eru líka þannig að þeir
minnka í hvert sinn sem þeir blotna
eða eru þvegnir.
Þröstur Helgason, sem er hávaxn-
astur slökkviliðsmannanna, greip
fram í fyrir stjóranum, og sagði að
það væri þannig að hann fengi alltaf
fyrst gallana. Síðan gengju þeir
manna á milli þangað til þeir pöss-
uðu á þann minnsta í hópnum.
Þurfa vonandi aldrei að
nota gjöfina frá Lions
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Slökkviliðsmennirnir í nýju búningunum ásamt slökkviliðsstjóranum. Frá
vinstri, Kári, Hannes, Þröstur, Snorri, Guðni, Björgvin, Agnar og Bergþór.
Hveragerði
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 33
„Við erum að þessu til þess að við-
halda upprunalegu húsunum en
byggðin hér á Selfossi óx út frá þess-
um húsum, Selfossbæjunum, sem eru
elstu íbúðarhúsin á Selfossi,“ sagði
Erna Gunnarsdóttir sem ásamt eig-
inmanni sínum, Jóni Árna Vignissyni,
vinnur að endurbyggingu Selfossbæj-
anna, Austur- og Vesturbæjar, í upp-
runalegri mynd þeirra. Erna er fædd
í Vesturbænum og uppalin á „Hóln-
um“, eins og þau nefna bæjarstæði
Selfossbæjanna. Ætt Gunnars föður
hennar hefur setið jörðina samfellt
frá 1821 en hann er í 8. ættlið afkom-
andi Jóns Erlendssonar bónda á Sel-
fossi 1703. Gunnar bjó í Vest-
urbænum til 1966 er hann flutti í
nýbyggt hús, Selfoss I, aðeins vestar
á Hólnum. Vesturbærinn og suður-
hluti jarðarinnar er í eigu Gunnars en
Austurbærinn og norðurhluti jarð-
arinnar í eigu Ernu. Selfossjörðin er
landnámsjörð. Hana nam Þórir hers-
ir Ásason en Þórishólar sem eru aust-
an við Sjúkrahús Suðurlands eru
nefndir eftir honum.
Fyrsti áfangi uppbyggingar Sel-
fossbæjanna er endurbygging Vest-
urbæjarins, eins og húsið er nefnt,
þannig að húsið verði vel íbúðarhæft.
Síðan segjast þau hjón vera með í
undirbúningi endurnýjun Austurbæj-
arins. Húsin munu fá hlutverk en Sig-
ríður, systir Ernu, mun búa í Vest-
urbænum ásamt syni sínum og flytja
þangað inn næsta vor. Einnig eru á
Hólnum gripahús, fjós, hlaða og
geymsla. Fjósið er steinsteypt frá
1929.
Mjög sterkar taugar
til þessara húsa
„Ég á mjög sterkar taugar til þess-
ara húsa og staðarins hérna, eins og
við systkinin öll,“ sagði Erna.
„Skemmtilegast finnst mér að Sigríð-
ur systir mun búa í Vesturbænum
ásamt Símoni syni sínum en Símon
Jónsson byggði húsin 1897 og kona
hans hét Sigríður Sæmundsdóttir en
Símon hafði tekið við búi af Gunnari
Einarssyni sama ár og bjó á Selfossi
1925. Þannig að Símon og Sigríður
eru aftur komin í Vesturbæinn,“
sagði Erna.
Kúabúskapur var á Selfossbæj-
unum til 1966 en fjárbúskapur fram
til 1996. Húsin voru byggð árið eftir
jarðskjálftann mikla 1896 en vorið
eftir sendi Danakóngur timbur að
Eyrarbakka og voru mörg timburhús
reist það ár í stað húsa sem hrundu í
skjálftunum.
„Það eru margir sem tala um hvað
þetta sé jákvætt að eiga þessi hús og
gera þau upp og það er mjög ánægju-
legt að fá slík viðbrögð enda væri
mjög tómlegt hér ef þessi hús yrðu
rifin. Þetta er góður áfangi því húsin
eru á vissan hátt hluti af okkur systk-
inunum og það fundum við mjög vel
þegar við fórum inn í Vesturbæinn til
þess að rífa niður veggi og undirbúa
endurbygginguna. Það má á vissan
hátt segja að sál fjölskyldunnar sé í
þessum húsum. Við í fjölskyldunni
vorum búin að tala um þetta í mörg ár
og það er góð tilfinning að þetta sé
komið af stað,“ sagði Erna Gunn-
arsdóttir á Fossi en JÁ-verktakar
undir forystu Jóns Árna, manns
hennar, munu endurbyggja húsin.
Unnið er að endurbyggingu gömlu húsanna á Selfossbænum sem voru byggð eftir skjálftana 1896
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Erna Gunnarsdóttir og Jón Árni Vignisson standa við Selfossbæinn ásamt dóttur sinni Steinunni Fjólu og Símoni
Leví Héðinssyni. Símon ætlar einmitt að flytja í Vesturbæinn næsta vor ásamt Sigríði móður sinni.
„Sál fjölskyldu
okkar er í þess-
um húsum“
Selfoss
Handverk í Árborg – Sunnudag-
inn 10. nóvember verður hand-
verksmarkaður á Stað. Hefst
hann kl. 14 og stendur til kl. 18.
Þar mun að venju verða margt
fallegra og eigulegra muna.
Kvenfélagskonur láta ekki sitt
eftir liggja í handverkinu og búa
sig nú sem best þær geta undir
sinn árlega basar sem að þessu
sinni verður haldinn 30. nóv-
ember nk.
Á MORGUN
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Starfsmenn Vélgröfunnar, Sigfús Benediktsson, Þorsteinn Bjarnason,
Hreiðar Bjarnason, Ágúst Halldórsson og Jón Guðmundsson.
UMFERÐ var hleypt á nýtt hring-
torg á Selfossi í gærkvöldi, á gatna-
mótum Eyravegar, Fossheiðar og
Fossvegar. Hringtorgið bætir um-
ferðarstýringuna á þessum gatna-
mótum til mikilla muna og liðkar vel
fyrir þeirri miklu umferð sem þarna
er.
Það er Vélgrafan á Selfossi sem er
aðalverktaki við þessa framkvæmd,
sem kostar 28,5 milljónir. Kostn-
aðurinn skiptist jafnt milli Sveitarfé-
lagsins Árborgar og Vegagerðar
ríkisins. Byrjað var á verkinu í lok
ágúst og hafa 6–8 menn frá Vélgröf-
unni unnið að verkinu ásamt því að
undirverktakar koma að einstökum
verkþáttum.
Nýtt hringtorg
opnað umferð
Selfoss
LOKIÐ er næstsíðasta fyrirlestrar-
kvöldi í Húsinu á þessu hausti.
Fimmtudagskvöld næstliðið hélt
Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur
og rithöfundur, fyrirlestur um Jón
Sigurðsson forseta. Talaði hann út
frá viðhorfi Jóns til skólamála á Ís-
landi. Gerðu við-
staddir góðan
róm að máli Guð-
jóns og spunnust
umræður í lokin,
svo sem vani er.
Næsti og jafn-
framt síðasti fyr-
irlestur á þessu
hausti í Húsinu
fjallar um
skólaþróun. Fyrirlesari verður Örn
D. Jónsson. Fyrirlestrarnir eru á
fimmtudögum og hefjast kl. 8.30.
Skólamál
rædd í Húsinu
Guðjón Friðriksson
Eyrarbakki