Morgunblaðið - 09.11.2002, Qupperneq 39
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 39
LEIKRITIÐ Með vífið í lúkunum
verður sýnt í 60. sinn á Stóra sviði
Borgarleikhússins annað kvöld,
laugardagskvöld. Þá er einnig von
á tuttuguþúsundasta áhorfandan-
um.
Með Vífið í lúkunum var frum-
sýnt vorið 2001 og er því á fjöl-
unum þriðja leikárið í röð. Nokkur
mannaskipti hafa orðið í sýning-
unni á þessum tíma, en með aðal-
hlutverkin fara þau Helga Braga
Jónsdóttir, Steinn Ármann Magn-
ússon, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og
Eggert Þorleifsson.
Með vífið í
lúkunum í
60. skipti
Kasa-hópurinn kemur fram á Tí-
brár-tónleikum í Salnum í Kópa-
vogi nk. sunnudag. Á verkefna-
skránni er tónlist undir
yfirskriftinni Sköpunargleði hins
unga Beethovens. Eins og yf-
irskriftin gefur til kynna verða
flutt verk sem Ludwig van
Beethoven samdi ungur að árum
og heyrast ekki oft. Flytjendur
eru Nína Margrét Grímsdóttir, pí-
anó, Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla,
Helga Þórarinsdóttir, lágfiðla, og
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló.
„Fyrst spilum við sónötu nr. 2 í
A-dúr. Þetta er ein af hans fyrri
sónötum og er hún ekki mjög stór
í sniðum. Hún er létt músíklega
og indæl áheyrnar. Svo spilum við
Kvartett fyrir píanó og strengi
ópus 16 í Es-dúr. Ég held að
Beethoven hafi verið 26 ára gam-
all þegar hann samdi verkið.
Hann var mjög praktískur því
hann skrifaði verkið bæði fyrir
píanó og strengi sem kvartett og
fyrir píanó og blásturshljóðfæri
sem kvintett og þannig er verkið
betur þekkt og oftar flutt. Ég er
ekki viss að verkið hafi heyrst
mjög oft í strengjaútgáfunni.
Kvartettinn var að miklu leyti
saminn undir áhrifum frá Kvint-
ett í Es-dúr fyrir blásturshljóð-
færi og píanó eftir Mozart.
Beethoven heillast mjög af því
verki og sjálfur var Mozart mjög
ánægður með það verk.“
Í upphafi tónleikanna flytur
Karólína Eiríksdóttir tónskáld
stutt og hnitmiðað erindi um tón-
leikana. Meðan á þeim stendur
verður tónsmiðja fyrir börn
þriggja ára og eldri í umsjón Sig-
ríðar Pálmadóttur lektors við
Kennaraháskólann. Sjónum
barnanna verður beint að tón-
skáldinu Beethoven og þau fá
ásláttarhljóðfæri til að leika á og
fá að hlusta á tónlist.
„Okkur finnst skemmtilegt að
fjölskyldan geti komið og allir fá
eitthvað við sitt hæfi. Ég veit ekki
til þess að almennt sé boðið upp á
skapandi barnagæslu á tónleikum
eins og við ætlum að gera.“
Tónleikarnir hefjast kl. 16 og
standa yfir til kl. 17 án hlés. Frítt
kaffimeðlæti í boði Kökuhornsins
verður frá kl. 15.30 og aðgangs-
eyrir verður 1.500 kr. og 1.200
kr. fyrir aldraða og námsmenn.
Sköpunargleði hins
unga Beethovens
Morgunblaðið/Jim Smart
Kasa-hópurinn. Sigrún Eðvaldsdóttir, Nína Margrét Grímsdóttir, Bryndís
Halla Gylfadóttir og Helga Þórarinsdóttir.
Ari Trausti Guðmundsson hlaut í ár Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir Vegalínur sem
er frumraun hans á sviði sagnagerðar. Í umsögn dómnefndar sagði meðal annars: „Vegalínur
geymir einstaklega lifandi og myndrænar sögur.“ Sérlega læsileg bók sem koma mun
lesendum skemmtilega á óvart.
Ari Trausti
Guðmundsson
Til hamingju
Ari Trausti!
Bókmenntaverðlaun
Halldórs Laxness 2002
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
93
17
11
/2
00
2