Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 40
HEILSA
40 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRJÓSTAGJÖF dregur úr líkum á nið-urgangi, þvagfærasýkingum, eyrna-bólgum og þarmabólgum hjá ung-börnum. Jafnframt er ónæmissvörun
barna sem eru á brjósti í sumum tilvikum betri
en hjá þeim börnum sem ekki eru á brjósti.
Þetta kom meðal annars fram í máli dr. Lars
Åke Hanson, barnalæknis og ónæmisfræðings
við Gautaborgarháskólann í Svíþjóð, á nám-
skeiði um brjóstagjöf sem haldið var fyrir
skömmu á vegum Endurmenntunarstofnunar
Háskóla Íslands, í samstarfi við Miðstöð heilsu-
verndar barna og Miðstöð mæðraverndar í
Heilsugæslunni og kvennadeildar vökudeild
barnadeildar Landspítala - háskólasjúkrahúss.
Dr. Hanson hefur birt fjölda greina um börn,
brjóstamjólk og ónæmisfræði. Einnig hefur
hann rannsakað og skilgreint þýðingu bjósta-
gjafar og slímhúðarvarna barnsins og hefur
hlotið mörg verðlaun fyrir rannsóknir sínar.
Fullkomin næring fyrstu
sex til tíu mánuðina
„Þekking okkar á fjölbreyttu kerfi efna í
brjóstamjólk sem veita vörn gegn sýkingum er
sífellt að aukast. Kostir þess að hafa barn á
brjósti eru ótvíræðir, brjóstamjólkin er full-
komin næring fyrstu sex til tíu mánuðina og
hún styrkir ónæmisvarnir nýburans, þær varn-
ir sem móðirin hefur fær barnið sjálfkrafa með
móðurmjólkinni.“
Dr. Hanson segir ennfremur að erlendar
rannsóknir víða í heiminum hafi sýnt fram á já-
kvæð áhrif brjóstamjólkur þegar til lengri tíma
er lítið. Talið er að brjóstagjöf dragi úr hættu á
sykursýki síðar á lífsleiðinni og minni hætta er á
ofáti hjá þeim sem fengu brjóstamjólk sem ung-
börn. Einnig segir hann rannsóknir hafa sýnt
að greindarvísitala þeirra sem hafðir eru á
brjósti sé hærri en þeirra sem ekki fengu
brjóstamjólk.
Menn greinir á um hvort brjóstagjöf minnki
líkur á ofnæmismyndun en ofnæmi af ýmsum
toga hefur hefur aukist mikið á Vesturlöndum,
að sögn dr. Hansons. „Nýleg, stór rannsókn í
Skandinavíu sýnir fram á tengsl þar á milli; að
brjóstamjólk minnki líkur á hvers kyns ofnæmi.
Hér er þó um flókin sambönd að ræða þar sem
mismunandi inntaka fæðuefna, til dæmis fitu-
sýra, getur m.a. skýrt mismunandi niðurstöður
vísindamanna í Evrópu og Ástralíu hvað þetta
varðar.“
Önnur skýring að mati dr. Hansons á auknu
ofnæmi rekur hann til of mikillar sótthreins-
unar í umhverfinu, m.a. á fæðingardeildum
sjúkrahúsa.
Mælt með brjóstagjöf í tvö og hálft ár
Börnin fái ekki rétt skilaboð frá bakteríum í
umhverfinu þegar þau kemur í heiminn því búið
er að dauðhreinsa fæðingarveg konunnar og
endaþarm. Bakteríuflóran breytist því við þetta
hjá börnum og hefur verið sýnt fram á þetta í
rannsóknum í Svíþjóð, Ítalíu og Bretlandi.
Barnið á því sem fyrst að kynnast venjulegu
umhverfi að mati dr. Hansons.
Felicity Savage er breskur læknir við Centre
for International Child Health (CICH) við
Institute of Child Health í London. Hún starf-
aði í tæpa tvo áratugi að heilsuvernd barna í
Zambíu, Kenýa og Indónesíu en síðastliðin 10
ár hefur hún starfað við Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunina í Genf og unnið að því að efla brjósta-
gjöf og fræðslu um hana. Auk þess hefur hún
ritað bækur um heilsuvernd og næringu barna
sem hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, mælir
með að móðir gefi barni sínu eingöngu brjósta-
mjólk fyrstu sex mánuði æviskeiðsins og síðan í
tvö ár ásamt öðru fæði, að sögn dr. Savages.
Hér á landi er tæpur helmingur ungbarna ein-
göngu á brjósti við fjögurra mánaða aldur en
rúmlega 10% við sex mánaða aldur. Auk þess fá
um 60% íslenskra barna ábót með brjóstamjólk-
inni við sex mánaða aldur. Því er algengi
brjóstagjafar meiri hér á landi borið saman við
Vestur-Evrópu og Bandaríki Norður-Ameríku
en ekki Norðurlönd.
„Enginn þarf að skammast sín fyrir að gefa
barni sínu brjóst í skemmri tíma, en mikilvægt
er að konan hafi upplýst val. Mikilvægast er að
styðja ákvörðun móðurinnar varðandi brjósta-
gjöf og að hún fái nauðsynlegan stuðning ef
vandamál koma upp.“
Upplýsingar um brjóstagjöf eru því þýðing-
armiklar, konan þarf stuðning á meðgöngu, í
fæðingu og fyrstu vikurnar á eftir. Góð ráðgjöf
getur komið í veg að móður finnist barnið ekki
fá næga mjólk og að tími sé kominn til að gefa
ábót.
Farsælast að setja barn
á brjóst strax eftir fæðingu
Til þess að brjóstagjöf heppnist vel er farsæl-
ast að setja barnið strax á brjóst eftir fæðingu,
jafnvel þótt konan þurfi að gangast undir að-
gerð, því fyrsta klukkutímann er barnið vel vak-
andi og hefur mikla sogþörf en verður æ syfj-
aðra eftir því sem líður á.“
Nánast allar mæður geta gefið brjóst, að mati
dr. Savage en ef þeim finnst mjólkin ekki nægi-
lega mikil eða brjóstvörtur eru sárar þurfa þær
aðstoð. „Starf ljósmóðurinnar er afar mikil-
vægt, hún þarf að hughreysta konuna og fylla
hana sjálfstrausti. Ef konan er sannfærð um að
hún geti gefið barni sínu næga mjólk gengur
það yfirleitt eftir.“
Dr. Savage segir konur sem fara í keisara-
skurð vel geta gefið brjóst, eins og aðrar, en
þær þurfi yfirleitt meiri hjálp. Því ætti að vera
óþarfi að nota sykurvatn eða þurrmjólk í slíkum
tilvikum, að hennar mati, nema læknisfræðileg
vandamál kalli á slíka gjöf. Einnig þurfa þær
mæður sem fæða fyrir tímann mikinn stuðning
en afar mikilvægt er fyrir fyrirbura að fá móð-
urmjólkina. Fyrirburar geta tekið brjóst allt frá
34 viku meðgöngu en fæðist þeir fyrir þann
tíma þarf móðirin að mjólka sig og á meðan fær
barnið móðurmjólkina úr bolla. Dr. Savage
mælir með því að gefa ungbörnum úr bolla
fremur en pela, þar sem pelinn getur haft þau
áhrif að barnið hafni brjóstinu.
Átak Sameinuðu þjóðanna
um barnvæn sjúkrahús
Dr. Savage telur að ljósmæður og læknar hér
á landi, sem og víða annars staðar, þurfi að fá
betri upplýsingar og þjálfun um hvernig standa
eigi að málum. Spurningin er sú hvort verið sé
að gera allt sem hægt er að gera til hjálpar
mæðrum sem vilja hafa börn sín á brjósti.
Átak Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um
barnvæn sjúkrahús (Baby-Friendly Hospital
Initiative), er ein leið til þess að koma á al-
mennu samkomulagi. „Stefnan er sú að gera öll
sjúkrahús barnvæn en nú þegar hafa um 15.000
sjúkrahús í um 140 löndum tekið upp starfs-
reglur barnsvæns sjúkrahúss. Til að mynda
hafa allar fæðingarstofnanir í Svíþjóð fengið
slíka viðurkenningu og fjöldi annarra í Evrópu,
Bandaríkjunum og öðrum heimsálfum. Árang-
urinn hefur ekki látið á sér standa, því brjósta-
gjöf hefur aukist víða, meðal annars í Bretlandi
og Svíþjóð.“
Til þess að gera sjúkrahús barnvænt, sam-
kvæmt skilgreiningu Barnahjálpar Sameinuðu
þjóðanna, þarf að fara fram þarfagreining á
stöðu hvers sjúkrahúss hvað varðar stuðning
við brjóstagjöf. Í stuttu máli fjallar það um að
stjórnendur sjúkrahússins taki ákvörðun um að
stefna að því að fá viðurkenningu frá Barna-
hjálp SÞ um að þeirra sjúkrahús sé skilgreint
barnvænt sjúkrahús. Felst það fyrst í að fram-
kvæma sjálfsmat á mismunandi verklags-
reglum sjúkrahússins hvað varðar stuðning við
brjóstagjöf. Er þá stuðst við hin alþjóðlegu s.k.
tíu skref til velheppnaðrar brjóstagjafar. Hvert
skref hefur síðan ýmis undirmarkmið sem einn-
ig þarf að huga að.
Þegar stjórnendur hafa unnið þessa forvinnu
er síðan hægt að fara fram á óháð mat á stöðu
brjóstagjafar á viðkomandi fæðingarstofnun og
fá niðurstöðu um hvort það uppfylli allar þær
kröfur sem eru settar samkvæmt þessum al-
þjóðlega staðli. Þetta krefst því verulegs átaks
af hálfu alls starfsfólks, hvort sem það eru
stjórnendur, fagfólk eða aðrir starfsmenn. Enn
sem komið er hefur engin fæðingarstofnun á Ís-
landi unnið skipulega til að fá slíka viðurkenn-
ingu.
Kostir brjósta-
gjafar ótvíræðir
Morgunblaðið/Kristinn
Lars Åke Hanson og Felicity Savage töluðu á málþingi um brjóstagjöf.
Barnvæn sjúkrahús hafa þann tilgang m.a. að styðja brjóstagjöf mæðra svo hún verði ánægjuleg fyrir móður
og barn. Hrönn Marinósdóttir hitti læknana Lars Åke Hanson og Felicity Savage sem segja brjóstagjöf
afar mikilvæga því hún verndi gegn ýmsum sýkingum í frumbernsku en einnig síðar á ævinni.
hrma@mbl.is
„Ég mælist síendurtekið með of háan blóðsyk-
ur. Ég hef nú í nokkra mánuði verið á lyfi sem
heitir glucophage. Læknirinn segir að ég sé
með insúlínþol sem muni þróast í sykursýki af
tegund 2 og bætti við nýju lyfi sem heitir
avandia.
Hvað er insúlínþol og hvernig virkar þetta
nýja lyf?“
SVAR Af upplýsingum þínum aðdæma ert þú þegar kominn
með sykursýki af tegund 2. Að öðrum kosti
væri læknirinn þinn ekki að setja þig á með-
ferð með þessum lyfjum.
Insúlínþol eða insúlínviðnám, eins og það
er oftar nefnt, er þýðing á enska orðinu „ins-
ulin resistance“ og táknar að næmi í frumum
fyrir áhrifum insúlíns sé minnkað. Eins og
kunnugt er þá er insúlin hormón, sem gegn-
ir lykilhlutverki í sykurefnaskiptum lík-
amans. Þegar við borðum brotnar maturinn
niður í minni einingar, m.a. í þrúgusykur
(glúkósa) í meltingarveginum og berst þaðan
út í blóðrásina. Til þess að sykurinn, sem er
einn aðalorkugjafi líkamans, komist inn í
frumurnar, t.d. vöðvafrumur, og nýtist þeim,
þarf insúlín að vera til staðar. Insúlínið binst
viðtökum í frumuhimnu og verkar þá eins og
lykill, sem hleypir sykrinum inn.
Þegar um insúlínviðnám er að ræða verð-
ur erfiðara fyrir insúlínið að sinna þessu
hlutverki sínu og þá getur orðið truflun á
sykur-, fitu- og próteinefnaskiptum.
Líkaminn reynir að yfirvinna insúl-
ínviðnámið með því að auka framleiðslu in-
súlíns. Þannig getur insúlín í blóði mælst
mjög hátt í byrjun hjá fólki með insúl-
ínviðnám. Til lengdar þá virðist sem frum-
urnar í brisinu, sem framleiða insúlín, eigi
erfitt með að halda uppi dampinum. Viðkom-
andi fær það sem er kallað „skert sykurþol“,
sem síðan getur þróast yfir í sykursýki ef
ekkert er að gert.
Fyrir utan sykursýki geta fylgifiskar in-
súlínviðnáms m.a. verið háþrýstingur og
blóðfitubrengl ásamt aukinni hættu á hjarta-
og æðasjúkdómum.
Orsakaþættir insúlínviðnáms eru erfðir,
hreyfingarleysi, óhollt mataræði, offita, sér-
lega sú sem safnast á kviðinn („góða gamla
ístran“ er orðin „tifandi tímasprengja“!!) )
svo og reykingar.
Þættir, sem draga úr insúlínviðnámi, þ.e.
bæta næmi fyrir verkun insúlíns í frumum,
eru megrun, bætt mataræði og líkamsrækt.
Nokkur lyf, sem notuð eru við tegund 2
sykursýki, verka einmitt þannig að þau
draga úr insúlínviðnámi. Þar á meðal eru
þessi tvö lyf, sem þú nefnir, þ.e. glucophage
og avandia. Þú spyrð sérstaklega um verkun
hins síðarnefnda.
Avandia (rósíglítazón) tilheyrir nýlegum
flokki sykursýkilyfja, sem kallast thiazolid-
inedíon eða glítazon-lyf. Annað lyf í þessum
flokki er actos (pioglítazón). Þessi lyf auka
næmi fyrir insúlíni og þá um leið upptöku
sykurs í lifur, vöðva og fitufrumur. Þau
lækka blóðsykur og geta haft hagstæð áhrif
á blóðfitur og blóðþrýsting. Enn sem komið
er má einungis nota þessi lyf sem viðbót-
armeðferð við önnur sykursýkilyf þó ekki
með insúlíni.
Of hár blóðsykur
eftir Ástráð Hreiðarsson
Líkaminn reynir að yfirvinna
insúlínviðnámið með því að
auka framleiðslu insúlíns.
Þannig getur insúlín í blóði
mælst mjög hátt í byrjun hjá
fólki með insúlínviðnám. Til
lengdar þá virðist sem frum-
urnar í brisinu, sem fram-
leiða insúlín, eigi erfitt með
að halda uppi dampinum.
...........................................................
persona@persona.is
Höfundur er læknir á Landspítalanum.
Lesendur Morgunblaðsins
geta komið spurningum
varðandi sálfræði, félagsleg
og vinnutengd málefni til sér-
fræðinga á vegum persona.is.
Senda skal tölvupóst á
persona@persona.is og
verður svarið jafnframt birt
á persona.is.