Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 53
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 53
ÞAÐ er ekki laust við að pólitíska
klukkan í manni sé örlítið rugluð
þessa dagana, hún er farin að
hringja í nóvember. Skýringin á því
er prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Norðvesturkjör-
dæmi. Þetta próf-
kjör er alls ekkert
einkamál flokks-
bundinna sjálfstæð-
ismanna, það mun
hafa áhrif á íbúa
kjördæmisins hvort
sem fálkinn hangir yfir hjónarúminu
eður ei. Því er mikilvægt að við fylkj-
um okkur að baki fulltrúa okkar.
Einar Kristinn Guðfinnsson hefur
verið fyrsti þingmaður Vestfjarða
síðastliðin tvö kjörtímabil og er hann
yngsti þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi. Baráttu-
mál Einars hafa að miklu leyti lotið
að hefðbundnum hagsmunamálum
sjávarbyggðanna en jafnframt hefur
hann beitt sér í réttindamálum er
varða alla þjóðina. Sérstaklega er ég
hreykinn af nýlegri þingsályktun-
artillögu um réttarstöðu samkyn-
hneigðs fólks sem Einar var flutn-
ingsmaður að.
Við höfum tækifæri til að eignast
framtíðarleiðtoga í nýju kjördæmi.
Nýtum það í prófkjörinu á laug-
ardag.
Klukknahljóm
Kristinn Hermannsson,
viðskiptafræðingur, skrifar:
Í DAG legg ég störf mín sem al-
þingismaður í ykkar dóm í prófkjöri
Samfylkingarinnar. Prófkjöri sem
allir Reykvíkingar á kosningaaldri,
sem skrá sig í Samfylkinguna, geta
tekið þátt í.
Ég hef í starfi mínu sem þingmað-
ur jafnt innan Alþingis sem utan
staðið vörð um hagsmuni almenn-
ings, einkum þeirra sem af einhverj-
um ástæðum eru háðir samhjálp hins
opinbera. Ég hef einnig barist fyrir
hagsmunum Reykjavíkur, m.a. á
sviði samgöngumála, en oft skortir
sárlega á að þingmenn Reykvíkinga
gæti hagsmuna borgarinnar í þess-
um málaflokki. Ég hef lagt framför-
um í mennta- og menningarmálum
lið, nú síðast með því að krefjast
jafnstöðu ríkisháskóla í samkeppni
við ríkisstyrkta einkaháskóla.
Nú þarf ég á Reykvíkingum að
halda. Ef þú, lesandi góður, telur
mikilvægt að ég beiti kröftum mín-
um áfram á Alþingi bið ég þig um að
taka þátt í prófkjöri Samfylkingar-
innar í Þróttarheimilinu í Laugardal
í dag – og kjósa mig í þriðja sæti.
Kæru
Reykvíkingar
Eftir Ástu Ragnheiði
Jóhannesdóttur
Höfundur er þingmaður
Reykjavíkur.
„Nú þarf ég
á Reykvík-
ingum að
halda.“
ÍSLENDINGAR eru rík þjóð.
Við höfum verið talin á meðal
fimm ríkustu þjóða veraldar og
stundum erum við jafnvel sögð
ríkasta þjóð í heimi. Ég efast ekki
um að þessi góða útkoma fyrir Ís-
land á við góð hagfræðileg rök að
styðjast. Galdurinn við stjórnmál
að mínu mati er hins vegar ekki sá
að koma vel út á hagfræðipapp-
írum, sem er vissulega mikilvægt,
heldur fremur að sjá til þess að
hagfræðitölurnar skili sér til al-
mennings í formi góðra lífsgæða.
Það að Ísland sé ríkasta land í
heimi skiptir í raun litlu máli ef
stjórnmálamenn hafa ekki dug eða
andríki til þess að nýta þann auð
og þá velsæld til þess að skapa öll-
um almenningi viðunandi lífsskil-
yrði. Það er hlutverk stjórnmála-
manna. Þess vegna eru stjórnmál
ekki síður mikilvæg þegar vel
gengur. Þá snýst málið um að nýta
möguleikana.
Dapurlegt ástand
Skoðum nú hvernig möguleik-
arnir hafa verið nýttir á Íslandi
með tilliti til almannahagsmuna.
Hér eru okurvextir í bankakerfinu
og verðtrygging á lánum sem á
ekki sinn líka á Vesturlöndum.
Bankar skila methagnaði ár eftir
ár en almenningur sligast undan
afborgunum á vöxtum og verðbót-
um. Verð á matvælum og lífsnauð-
synjum er með því allra hæsta sem
þekkist í okkar heimshluta. Ástæð-
an liggur fyrst og fremst í him-
inhárri skattheimtu á neysluvör-
um. Á sama tíma búa um 11
þúsund einstaklingar, ef ekki
fleiri, við fátæktarmörk og verða
út undan í ríkidæminu, ekki síst
vegna þess að ríkisstjórnin hefur
séð ástæðu til þess að hækka álög-
ur á lágtekjufólk, en reynir nú um
þessar mundir með fremur aumk-
unarverðum hætti að halda því
fram að hún hafi ekki gert það.
Það sér hver heilvita maður að
skattur á mánaðarlaun sem eru
innan við 100 þúsund krónur er
pólitískt hneyksli og sömuleiðis að
persónuafsláttur sé látinn standa í
stað um áratugaskeið. Röksemdin
fyrir álögunum á lágtekjufólk er
hins vegar alltaf sú að hér séu
ekki til peningar. Í þeirri rökræðu
er niðurstöðunum sem segja að við
séum ríkasta þjóð veraldar yfir-
leitt stungið undir stól.
Breytum til
Öll þessi dæmi sýna að það er
löngu orðið tímabært að efla veg
heilbrigðrar skynsemi og réttlætis
á Íslandi. Tækifærin til að skapa
fagurt og réttlátt mannlíf eru fyrir
hendi. Sjaldan hefur verið jafn
mikil þörf á nýrri hugsun og nýrri
nálgun á brýn stjórnmálaleg við-
fangsefni. Það er á þeim grund-
velli sem ég tel mig eiga erindi á
Alþingi Íslendinga. Þess vegna
sem ég bið um atkvæði þeirra fjöl-
mörgu kjósenda sem vilja breyt-
ingar í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar í dag.
Gerum betur
Eftir Jakob Frímann
Magnússon
„Tækifærin
til að skapa
fagurt og
réttlátt
mannlíf eru
fyrir hendi.“
Höfundur er frambjóðandi í flokks-
vali Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Í DAG fer fram prófkjör Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík. Ákveðið var
að þátttaka skyldi bundin við flokks-
félaga, að því er mér
skilst einkum vegna
þeirrar tilhneigingar
opinna prófkjara að
fara út í öfgar hvað
varðar auglýsinga-
mennsku og tilheyr-
andi kostnað. Und-
anfarnar vikur hafa landsmenn orðið
rækilega varir við væntanlegt próf-
kjör, og virðast sumir frambjóð-
endur keyra kosningabaráttu sína
eins og um opið prófkjör væri að
ræða. Lítið hefur farið fyrir Guð-
rúnu Ögmundsdóttur í öllu þessu
auglýsingaflóði. Hún hefur hins veg-
ar vakið verðskuldaða athygli fyrir
störf sín á Alþingi sl. fjögur ár, og í
borgarstjórn Reykjavíkur árin á
undan, og tekið þar á ýmsum þjóð-
þrifamálum, ekki síst jafnrétt-
ismálum hvers konar, og verið öfl-
ugur málsvari ýmissa
minnihlutahópa. Ég bið fólk að
gleyma ekki Guðrúnu Ögmunds-
dóttur í öllu auglýsingaflóðinu og
sýna það í verki að fleira skiptir máli
en fjöldi milljóna sem eytt er í að
koma sjálfum sér á framfæri.
Kjósum Guðrúnu Ögmundsdóttur
í 4. sæti í prófkjörinu.
Hennar rödd
er ómissandi
Kristín A. Árnadóttir, sviðsstjóri þróunar-
og fjölskyldusviðs, skrifar:
NÚ er svo komið í íslenskum
stjórnmálaflokki að það er hægt að
gerast félagsmaður ,,í trúnaði“. – Og
ég er félagi í þessum
stjórnmálaflokki. Ég
veit ekki hverjir eru
mínir flokksfélagar –
af því sumir þeirra
eru skráðir ,,í trún-
aði“.
Hið lýðræðislega
val meðal félagsmanna í Samfylking-
unni um það hverjir skuli fylgja mál-
efnum okkar eftir og vera verkmenn
okkar hugmynda – það val hefur
snúist upp í andhverfu sína. Ég er
virkilega vonsvikinn. Mér líður eins
og ég hafi verið plataður. Flokk-
urinn minn, sem ætlaði að fara nýjar
leiðir í íslenskri pólitík, hefur fallið á
grundvallaraprófi í stjórnmálum –
hann kann ekki lýðræðisleg vinnu-
brögð. Á ég að treysta honum til að
stjórna samfélaginu?
Félagsmaður
,,í trúnaði“
Garðar Vilhjálmsson, stjórnmálafræðingur
og félagi í Samfylkingunni, skrifar:
Á ALÞINGI er mikið talað og
þannig á það að vera. Hins vegar
brennur við að þingmenn hlusti
ekki hver á annan og jafnvel ekki á
þjóðina. Við sem
styðjum Einar Karl
Haraldsson til fram-
boðs teljum löngu
tímabært að Reyk-
víkingar eignist
talsmann á Alþingi,
sem geri sér grein
fyrir nauðsyn þess að þar verði
mótuð sérstök borgarstefna.
Einar Karl leggur höfuðáherslu
á að við breytum afstöðu okkar til
höfuðborgarinnar. Við þurfum að
líta á hana sem helstu auðlind
landsmanna vegna þess að framtíð
okkar veltur að verulegu leyti á því
hvernig okkur tekst að byggja upp
alþjóðlega samkeppnishæft borg-
arsamfélag á Reykjavíkursvæðinu.
Í stað þess að vera hornreka í op-
inberri stefnumótun þarf Reykja-
vík að vera í fyrirrúmi þegar línur
eru lagðar á Alþingi og í ráðu-
neytum.
Einar Karl hefur víðtæka
reynslu í stjórnmála- og félags-
málastarfi og hefur lært að hlusta.
Þeir sem kunna að hlusta eru oftar
en ekki ráðagóðir. Við þurfum á
þannig manni að halda á Alþingi.
Og Einar Karl er maðurinn.
Einar Karl
í 4. sæti
Anton Helgi Jónsson, skáld, skrifar:
Í FLOKKSVALI Samfylking-
arinnar í Suðvesturkjördæmi 9. nóv-
ember nk. velur flokksfólk þær kon-
ur og karla sem það vill að leiði
flokkinn á komandi
kjörtímabili.
Að mörgu ber að
hyggja, þegar fólk
velur fólk. Traust og
heilindi eru orð sem
koma í huga mér.
Rannveig Guð-
mundsdóttir hefur sýnt og sannað að
þar fer traust kona með hjartað á
réttum stað. Hún hefur beitt sér af
alefli í velferðarmálum um árabil,
fyrst í bæjarstjórn Kópavogs, síðan
á Alþingi. Jafnframt hefur Rannveig
beitt sér mjög á sviði utanríkis- og
umhverfisverndarmála.
Hún er einn fárra þingmanna
Samfylkingarinnar sem hafa þorað
að taka einarða afstöðu gegn virkj-
anastefnu núverandi ríkisstjórnar
og talað fyrir sjónarmiðum nátt-
úruverndar.
Samfylkingarfólk. Kjósum Rann-
veigu í 1. sætið í flokksvalinu á laug-
ardaginn – tryggjum forystu sterkr-
ar konu í kjördæmi okkar.
Rannveigu
í 1. sætið!
Ása Richardsdóttir, Kópavogi, skrifar:
VIÐ sjálfstæðismenn í Norð-
vesturkjördæmi göngum í dag til
kosninga, þ.e.a.s nú er sú stund
runnin upp að við
þurfum að gera upp
við okkur hverjir
eiga að vera í for-
ystu fyrir okkur
næstu fjögur árin.
Það liggur ljóst fyr-
ir, að Einar Krist-
inn Guðfinnsson, 1. þingmaður
Vestfjarða, er mjög góður val-
kostur í þessu prófkjöri.
Þrátt fyrir að vera aðeins 46
ára, og yngstur þeirra þingmanna
sem í framboði eru í þessu próf-
kjöri, hefur Einar öðlast gífurlega
reynslu á sviði stjórnmálanna.
Eftir tæplega tólf ára þingsetu,
þar af átta sem 1. þingmaður
Vestfjarðakjördæmis, hefur Einar
sannarlega skipað sér í forystu-
sveit flokksins. Hann þarf á öfl-
ugum stuðningi að halda í dag til
þess að geta starfað þar áfram.
Það er ekki sjálfgefið fyrir stjórn-
málaflokk að eignast heiðarlegan
og traustan liðsmann sem Einar
Kristinn er. Sýnum í verki að við
kunnum að meta slíka eiginleika
og tryggjum Einari sæti í fram-
varðasveit flokksins næstu fjögur
árin.
Einar Kristinn –
góður kostur
Kristján Jónsson, sem situr í stjórn SUS
fyrir Norðvesturkjördæmi, skrifar:
Í RÚMLEGA tvo áratugi hef ég
starfað að málefnum fatlaðs fólks
á Íslandi. Sú reynsla hefur veitt
mér innsýn í kjör, lífsaðstæður og
möguleika þeirra til virkrar þátt-
töku í samfélaginu.
Þetta hefur fært
mér sanninn um að
barátta fyrir vel-
ferðarsamfélagi þar
sem hver og einn
fái notið sín er ekki
fagurgali heldur
snýst um möguleika fjölda fólks á
að lifa mannsæmandi lífi.
Þeir sem höllum fæti standa
eiga mikið undir stjórnmálamönn-
um, en það eru ekki allir stjórn-
málamenn sem helga sig þeim
málum. Mér hefur raunar fundist
sem þeim hafi farið fækkandi hin
síðari ár. Umræða um velmegun
hefur verið fyrirferðarmeiri en
umræða um velferð. Raunveru-
leikinn í dag er ótrúleg velmegun
fárra útvaldra og átakanlegur
skortur á velferð hjá fjölda fólks
sem minna má sín í þessu sam-
félagi.
Rannveig Guðmundsdóttir er
stjórnmálamaður sem hefur aldrei
misst sjónar á þeim grundvall-
aratriðum sem skipta máli fyrir þá
sem eiga sitt undir samfélagslegri
þjónustu. Skilningur hennar,
reynsla, áhugi og dugur í velferð-
armálum verðskulda að hún leiði
lista Samfylkingarinnar í Suðvest-
urkjördæmi í næstu alþingiskosn-
ingum.
Ég kýs Rannveigu
Kristján Sigurmundsson, þroskaþjálfi,
skrifar:
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111