Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 57
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 57
EINAR Kristinn Guðfinnsson al-
þingismaður og formaður sjáv-
arútvegsnefndar Al-
þingis, hefur fyrir
löngu getið sér orð
sem mjög dugmikill
þingmaður sem eftir
er tekið. Hann hefur
með verkum sínum
sýnt að hann er
traustsins verður.
Reynsla hans af störfum að sjáv-
arútvegsmálum er margþætt, sem
stjórnandi og forystumaður í fé-
lagsstarfi sjávarútvegsins, meðal
annars sem formaður Fiskifélags Ís-
lands um árabil. Þessi reynsla hefur
nýst honum vel á vettvangi stjórn-
málanna. Þar hefur hann komið fram
sem kraftmikill og harður málsvari
byggðanna og sjávarútvegsins, en
einnig maður sem hefur getað tryggt
niðurstöðu í ágreiningsmálum og
haft skilning á ólíkum sjónarmiðum.
Slíkir menn ná árangri og þurfum
við að tryggja Einari Kristini Guð-
finnssyni ótvíræðan stuðning í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í Norð-
vesturkjördæmi þann 9. nóvember
nk.
Harður málsvari
sjávarútvegsins
Skarphéðinn Gíslason, skipstjóri og for-
maður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins
Bylgjunnar á Vestfjörðum, skrifar:
ÉG styð Sigrúnu Grendal í próf-
kjöri Samfylkingarinnar og hvet
ykkur til hins sama. Sigrún er
atorkusöm ung kona
og hefur ávallt gefið
sig alla í þau verk-
efni sem hún tekur
sér fyrir hendur.
Hún er hreinskiptin
og heiðarleg og kem-
ur til dyranna eins
og hún er klædd. Ég er sannfærð um
að Sigrún yrði góður fulltrúi Sam-
fylkingarinnar á komandi kosn-
ingavetri. Sigrún hefur sannað sig
sem baráttumanneskja þar sem hún
fór fyrir tónlistarkennurum í kjara-
baráttu þeirra á síðastliðnu ári. Þar
sýndi hún áræði og þrautseigju sem
vakti athygli. Sigrún er talsmaður
lista, menningar- og menntamála
ásamt því að hafa mikinn áhuga á
byggða- og umhverfismálum. Henni
er annt um fólk og vill jafna lífskjör
og bæta lífsskilyrði aldraðra, ör-
yrkja og sjúkra.
Sigrún Grendal býður sig fram í
5.–6. sæti í prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík og ég er sann-
færð um að hún mun reynast verð-
ugur fulltrúi allra kynslóða á
vettvangi stjórnmála. Ég skora á
Samfylkingarfólk að veita Sigrúnu
brautargengi í prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík 9. nóvember
næstkomandi.
Styðjum
Sigrúnu Grendal
í 5.–6. sæti
Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir skrifar:
VALDIMAR Leó Friðriksson er
sannur verkalýðsmaður og framtíð-
arforingjaefni. Hann hef unnið lengi
að málefnum fatl-
aðra. Laun hjá
stuðningsfulltrúum
og þroskaþjálfum
hafa verið skamm-
arlega lág. Valdimar
hefur með krafti og
seiglu vakið upp ný
viðhorf í launamálum fólks sem
vinnur á sambýlum, dagvist og
vinnustöðum fatlaðs fólks. Valdimar
„vísitölutryggir“ laun starfsmanna
við gæði vinnunnar. Það hefur sýnt
sig á sambýlum- og vinnustöðum
fatlaðra að gott starfsfólk helst
lengur í vinnu ef launin eru góð,
sem gerir það að verkum að bæði
aðstandendum og þjónustuþegum
líður betur. Valdimar situr í stjórn
SFR og er í samningarnefnd um
launamál á stofnunum.
Valdimar er framkv.stj. Aftureld-
ingar og formaður UMSK, sem er
bandalag 26 íþróttafélaga. Í huga
Valdimars er manneskja alltaf nr.
eitt. Valdimar mun sinna vel eldri
borgurum, hann mun berjast gegn
einelti og beita sér gegn eit-
urlyfjum.
Valdimar gefur kost á sér í fjórða
sætið. Samfylkingarmaður góður,
vonandi veitir þú honum stuðning.
Valdimar í
fjórða sætið
Jan Agnar Ingimundarson
deildarstjóri skrifar:
ÉG get ákaflega stoltur og glaður
mælt með því við Samfylkingarfólk í
Suðurkjördæmi að kjósa Björgvin
G. Sigurðsson í 2. sæti í prófkjörinu
9. nóvember. Hann
er ungur maður sem
hefur unnið gott
starf, hvort heldur
er sem talsmaður
Grósku, ritstjóri
Stúdentablaðsins,
varaþingmaður á Al-
þingi eða framkvæmdastjóri Sam-
fylkingarinnar undanfarin þrjú ár.
Yngsti framkvæmdastjóri stjórn-
málaflokks á Íslandi.
Björgvin er fulltrúi okkar unga
fólksins og ég skora á kjósendur í
flokksvalinu að tryggja framgöngu
hans. Hann hefur sett okkar mál á
oddinn: íbúðir fyrir ungt fólk, vaxta-
laus húsnæðislán fyrstu ár eftir út-
skrift, hækkun námslána og mark-
vissa menntabyltingu. Svo dæmi séu
tekin.
Tryggjum Björgvini öruggt sæti.
Björgvin er maður
unga fólksins
Kári Þorleifsson skrifar:
SJÁLFSTÆÐISMENN í hinu
nýja Norðvesturkjördæmi munu
ganga til prófkjörs hinn 9. nóv-
ember og velja frambjóðendur til
Alþingiskosninga
næsta vor.
Einar Oddur
Kristjánsson al-
þingismaður er góð-
ur fulltrúi sjálf-
stæðismanna í hinu
nýja kjördæmi.
Hann hefur sýnt það með störfum
sínum að hann hefur viljann til
verka og afl til framkvæmda. Það
skiptir almenning máli að fulltrúar
hans á Alþingi hafi mannkosti,
vilja og ekki síst persónuleg áhrif
til að vinna kjördæmi sínu vel.
Einar Oddur er slíkum kostum
búinn. Hann hefur víðtæka reynslu
á mörgum sviðum þjóðlífsins og
það jarðsamband við samfélagið
sem margur þingmaðurinn vildi
hafa. Á Alþingi hefur Einar Oddur
unnið ötullega fyrir landsbyggðina,
m.a. að bættum samgöngum og að
málefnum sjávarútvegs og land-
búnaðar eins og alþjóð veit og sjá
má á heimasíðu hans www.ein-
aroddur.is. Einar Oddur Krist-
jánsson verður einn af öflugustu
alþingismönnum hins nýja kjör-
dæmis svo og þjóðarinnar allrar,
njótum krafta hans áfram og styðj-
um hann til Alþingis.
Styðjum
Einar Odd
Sigurbjörn Svavarsson skrifar:
ÉG hvet allt Samfylkingarfólk,
sem ann lýðræði og frjálsræði, til að
kjósa Birgi Dýrfjörð í prófkjörinu 9.
nóvember.
Birgir hefur í
mörg ár verið ötull
talsmaður þess að al-
þýða manns standi
sjálf upp móti kúgun
og óréttlæti hvernig
sem það birtist.
Menn gætu haldið
að slík hugsun væri gamaldags og úr
tísku. Birgir er hvorki gamaldags né
úr tísku. Hann er í anda með yngstu
mönnum sem ég þekki.
Kvótakerfið er sú kúgun og mis-
rétti, sem hann hefur hvað hat-
rammast barist á móti.
Og nú er gjafakvótinn að renna
inn í fá útgerðarfyrirtæki, sem
stækka sífellt.
Síðan er farið að tala um að út-
lendingar fái e.t.v. að fjárfesta í slík-
um fyrirtækjum. Slíkt gæti auðveld-
lega gerst í einkavæðingaræði
núverandi ríkisstjórnar, sem segir
þá að hinn „heilagi markaður“ krefj-
ist þess.
Þá hafa Íslendingar misst end-
anlega auðlind þjóðarinnar.
Móti slíku hefur Birgir barist
manna hraustlegast.
Kjósum því mann, sem þorir að
hafa skoðun og berjast af alefli fyrir
henni.
Birgi Dýrfjörð
í sjötta sæti
Pétur Jónsson, fyrrv. borgarfulltrúi, skrifar.
ALLIR geta verið sammála um að
stjórnmálamenn þurfi að vera dug-
legir, góðum gáfum gæddir, hafa
skýra framtíðarsýn
og ekki skemmir fyr-
ir að hafa smá kímni-
gáfu.
Hjá okkur í Sam-
fylkingunni í Suður-
kjördæmi er flokks-
val að ganga í garð.
Ég leyfi mér að fullyrða það að allir
frambjóðendurnir fylla öll þau skil-
yrði sem ég nefndi að ofan, og þess
vegna er valið skemmtilega erfitt.
Einn frambjóðenda vil ég þó
nefna sérstaklega, Björgvin G. Sig-
urðsson, alvöru nútíma jafn-
aðarmann. Björgvin er gríðarlega
duglegur maður með skarpa fram-
tíðarsýn og ekki síst kraft til þess að
fylgja henni eftir. Þrátt fyrir ungan
aldur hefur Björgvin verið mjög
áberandi í pólitíkinni undanfarin ár
og allir sem einhvern tíma hafa
heyrt í honum vita að hér er magn-
aður maður á ferð.
Málið er einfalt, Björgvin í annað
sætið.
Björgvin í
öruggt sæti
Sigurjón Sveinsson, formaður Uj í Hvera-
gerði, skrifar:
Nýr ilmur frá FIORUCCI
w
w
w
.fo
rval.is