Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 59
FRÆNDI minn og góðkunningi Þor-
kell Valdimarsson, sonur Valdimars
Þórðarsonar, kaupmanns (Silli og
Valdi), hringdi til mín fyrir allmörg-
um árum, og kvaðst í nafni föður síns
ætla að gefa húsið á horni Ægisgötu
og Vesturgötu, það var kallað Bolsa-
bær eða Alþýðan, en það var heimili
Ottós Þorlákssonar, sem var fyrsti
forseti Alþýðusambands Íslands,
Karolínu Siemsen, konu hans og
nafnkunnra barna þeirra, Hendriks,
Jafets og þeirra systkina. Gjöfin var
til minningar um veru Valdimars í
jafnaðarmannafélagi Ólafs Friðriks-
sonar. Valdimar var þar kjörinn í hjól-
reiðanefnd og utanbæjarnefnd á sín-
um tíma. Þegar Þorkell kvaðst ætla
að gefa Alþýðubandalaginu húsið þá
gerði ég þá athugasemd að það ætti
hann ekki að gera. Þorkell spurði
„Hversvegna ekki?“ Ég sagði „Al-
þýðubandalagið er litföróttur flokkur
og ekkert á það að treysta, eitt í dag
og annað á morgun.“ „Hverjum á ég
þá að gefa húsið?“ spurði Keli. Ég
svaraði „Gefðu MFA, Menningar- og
fræðslusamtökum alþýðu, húsið, það
eru ekki flokkspólitísk samtök en þau
varðveita sögu verkalýðsbaráttu á Ís-
landi.“ „Þá geri ég það,“ svaraði Þor-
kell og svo var ljósmyndari kallaður á
vettvang og við staðfestum gjöfina
með handabandi eins og myndin ber
með sér.
Á myndinni sjáumst við Þorkell
takast í hendur, meðal viðstaddra
þekki ég Björn Blöndal, sem lengi var
starfsmaður hjá Pétri Snæland, aðrir
eru Reykvíkingar sem voru viðstadd-
ir gjörninginn.
Gjöfinni fylgdi skjöldur sem átti að
setja á húsið þegar MFA hefur veitt
því viðtöku. Skjöldurinn mun vera
týndur nú. Enda var húsinu ekki
breytt í minjasafn eins og fyrirhugað
var, heldur selt Þorsteini Jónssyni
listfræðingi. Alþýðusambandið notaði
andvirðið og breytti því í steinsteypu
inni á Grensásvegi.
Þegar 50 ár voru liðin frá því að
fyrsta kröfugangan í Reykjavík var
farin, efndi MFA til sýningar á
Laugavegi í Rúblunni, sem svo var
kölluð. Þar voru sýndar myndir og
gögn frá starfi verkalýðsins, m.a. ljós-
mynd sem tekin var af fyrstu kröfu-
göngunni í Reykjavík. Nú er þessi
ljósmynd og gögnin öll týnd og tröll-
um gefin. Nefndin sem stóð fyrir sýn-
ingunni var skipuð vaskleikamönnum
sem eru enn á lífi, þeir voru Helgi
Skúli Kjartansson sagnfræðingur,
Baldur Óskarsson stjórnmálamaður,
Ólafur Hannibalsson, skrifstofustjóri
Alþýðusambandsins þá, Hjörleifur
Sigurðsson listmálari og Snorri Jóns-
son, var þá forseti Alþýðusambands
Íslands.
Nú finnst ekkert af þessum gögn-
um og hindrar það mjög rannsókn á
sögu verkalýðshreyfingarinnar í
Reykjavík.
Þessari mynd fylgir kveðja til full-
trúa á nýlokinni ráðstefnu Alþýðu-
sambands Íslands. Þeir þyrftu að
hyggja betur að sögu alþýðusamtaka.
P.S. Það er umhugsunarefni þeim
sem áhuga hafa á verkalýðsmálum að
Morgunblaðið skuli beðið að minnast
þess að 70 ár eru liðin nú í dag, 9. nóv-
ember, síðan bardaginn mikli var háð-
ur á bæjarstjórnarfundi í Góðtempl-
arahúsinu og hrundið kaup-
lækkunarherferð bæjarstjórnar-
meirihlutans á hendur verkamönnum
í atvinnubótavinnu. Svo mjög hefur
dregið úr þreki stéttasamvinnupost-
ula ASÍ og „Eflingar“ að þeir orka
ekki framar að minnast merkra at-
burða eigin sögu.
Nefna má að Hendrik Ottósson var
einn hinn djarfasti dagsbrúnarmanna
er vörðust kylfuhöggum lögreglu-
manna þennan dag. Hann mun vera
fyrirmynd Þórðar gamla halta í sögu
Halldórs Kiljans Laxness frá þessum
Brávallabardaga þennan dag. Fræg-
astur bardagamanna á orustuvelli var
þó Héðinn Valdimarsson er rétti stól-
fætur út um glugga Gúttó og gekk
vasklega fram í fylkingarbrjósti.
Þegar Bolsabær
var gefinn
Þing ASÍ fyrir síðustu helgi varð Pétri
Péturssyni tilefni til að rifja upp atvik
sem hann telur sýna skeytingarleysi
alþýðusamtaka fyrir sögu sinni.
Höfundur er þulur.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Glæsibæ, 28. okt. 2002. 22 pör
Meðalskor 216 stig
Árangur N-S
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 269
Magnús Halldórss. - Þorsteinn Laufdal 258
Óskar Karlss. - Guðlaugur Nielsen 244
Árangur A-V
Kristján Ólafss. - Ólafur Gíslas. 280
Þórólfur Meyvantss. - Halla Ólafsd. 257
Jóhann M. Guðmunds. - Hjálmar Gíslas. 241
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 31. október. 22 pör. Með-
alskor 216
Árangur N-S
Albert Þorsteinss. - Bragi Björnss. 267
Björn E Péturss. - Hilmar Ólafss. 243
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 237
Árangur A-V
Eysteinn Einarss. - Kristján Ólafss. 289
Óskar Karlss. - Guðlaugur Nielsen 270
Sigurleifur Guðjónss. - Guðm. G. Guðm. 242
Þann 28. október lauk hinu árlega
minningarmóti um Jón Hermannss.
fyrsta keppnisstjóra hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Það er í síðasta skipti sem þetta mót
er haldið, en í haust eru 10 ár liðin
frá stofnun deildarinnar
Að venju var spiluð tvímennings-
keppni og stóð keppnin yfir í 6 mánu-
daga. Aðeins 5 bestu umferðir hvers
spilara giltu.
Árangur efstu manna varð þannig:
Magnús Oddss. 1272
Júlíus Guðmundss. - Rafn Kristjánss. 1229
Kristján Ólafss. 1213
Björn E. Péturss. 1201
Eysteinn Einarss. 1200
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Alltaf á þriðjudögum
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 59