Morgunblaðið - 09.11.2002, Blaðsíða 61
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 61
2. SUNNUDAGUR í nóvember hef-
ur lengi verið tileinkaður kristni-
boði í kirkjum landsins. Svo hefur
einnig ávallt verið í Hallgríms-
kirkju.
Að þessu sinni verður dagskráin
þannig, að dagurinn hefst á
fræðslumorgni kl. 10.00, eins og
venja er. Þar talar Karítas Krist-
jánsdóttir cand theol um bréfabók
Valgerðar Jónsdóttur biskupsfrúar
í Skálholti forðum undir yfirskrift-
inni „Verði á mér og þeim Guðs
vilie“, en bréfabók frú Valgerðar
er einstök heimild um persónu og
trúarlegar hugleiðingar konu á
fyrri öldum.
Í messunni kl. 11.00 mun sr. Sig-
urður Pálsson prédika og þjóna
fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú
Hróbjartssyni. Hópur úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngur og
organisti verður Douglas A.
Brotchie. Í messunni verður tekið á
móti gjöfum til Sambands ísl.
kristniboðsfélaga, sem starfrækir
kristniboð og hjálparstarf í Eþíópíu
og Kenýa. Eftir messu verður boðið
upp á súpu og brauð á vægu verði,
en öll innkoman rennur beint til
kristniboðs.
Kl. 12.30 verður Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson fréttamaður með stutt
erindi, þar sem hann sem frétta-
maður skoðar hjálparstarf og
kristniboð, en hann hefur ferðast
um Afríku, sérstaklega Kenýa og
kynnt sér starf kristniboðsins þar.
Yfirskrift erindisins er: „En ég get
ekki gert neitt.“ Eftir erindið verð-
ur viðstöddum gefinn kostur á að
spyrja Þorstein spurninga.
Áhugahópur Hallgrímskirkju um
kristniboð og hjálparstarf mun að-
stoða við messuna og dagskrána í
safnaðarsalnum.
Dagur fjölskyldunnar
í Hafnarfjarðarkirkju
NÆSTI sunnudagur, 10. nóvember,
verður helgaður fjölskyldunni í
Hafnarfjarðarkirkju.
Dagurinn byrjar með fjölskyldu-
guðsþjónustu kl. 11.00. Þá samein-
ast báðir sunnudagaskólarnir í
kirkjunni og allir leiðtogarnir taka
þátt, en tveir sunnudagaskólar eru
starfræktir í Hafnarfjarðarsókn.
Sunnudagaskólarútan ekur eins og
venjulega en auk þess fer strætis-
vagn frá Hvaleyrarskóla kl.10.55
og heim aftur frá kirkjunni
kl.12.10.
Í fjölskylduguðsþjónustunni
verður farið í leiki, sungið, hlegið,
hlustað á glærusögu og tekið á
móti brúðuleikhúsinu rétt eins og
venjulega. Allir fá límmiða í bæk-
urnar sínar. Leiðtogarnir skipa
hljómsveit sem leikur undir söng
og prestur er sr. Þórhallur Heim-
isson. Ekki má heldur gleyma
barnakórnum sem kemur í heim-
sókn og syngur undir stjórn Helgu
Loftsdóttur.
Eftir fjölskylduguðsþjónustuna
heldur hátíðin áfram í safnaðar-
heimilinu þar sem boðið verður upp
á nammi og hressingu.
Kvöldið er helgað fjölskyldum
fermingarbarnanna. Kl. 20.30 hefst
gospelmessa og allir sem hafa
áhuga á gospeltónlist eru velkomn-
ir. Sungin verða þekkt gospellög.
Söngur og tónlist eru í umsjón
kirkjukórsins undir stjórn Antoniu
Hevesi. Auk þeirra leikur Lázló
Hevesi með á saxófón. Prestar eru
sr. Þórhallur Heimisson og sr. Þór-
hildur Ólafs.
Eftir gospelmessuna bjóða ferm-
ingarbörn öllum kirkjugestum til
veglegrar veislu. Börnin leggja til
veisluföngin. Slíkar veislur ferm-
ingarbarna eru árlegur viðburður í
Hafnarfjarðarkirkju og þykja hin-
ar flottustu sem um getur.
Fjölmennum í Hafnarfjarðar-
kirkju á degi fjölskyldunnar og eig-
um saman ljúfar stundir í faðmi
Guðs, vina og fjölskyldunnar.
Lofgjörð á
Kristniboðsdaginn
í Hjallakirkju
Á SUNNUDAGINN bjóðum við fólk
velkomið í lofgjörðarguðsþjónustu
kl. 11, en þá er kristniboðsdagurinn
haldinn hátíðlegur í kirkjum lands-
ins. Ragnar Gunnarsson prédikar,
en hann starfaði sem kristniboði í
Afríku um nokkurra ára skeið.
Tónlistin verður í höndum Þor-
valdar Halldórssonar en hann hef-
ur farið víða um kirkjur síðustu ár
og leikið og sungið á sinn einstaka
hátt. Tónlistin verður því með létt-
ara sniði og jafnvel eitthvað sungið
á afrísku.
Verið hjartanlega velkomin í
Hjallakirkju.
Sr. Hreinn Hjartar-
son kveður Fella- og
Hólakirkju
SUNNUDAGINN 10. nóvember
næstkomandi verður guðsþjónusta
kl. 14:00 í Fella- og Hólakirkju þar
sem sr. Hreinn Hjartarson kveður.
Sr. Hreinn lét af störfum sem sókn-
arprestur Fellasóknar 1. nóvember
síðastliðinn en þar hafði hann þjón-
að frá árinu 1975.
Í guðsþjónustunni á sunnudaginn
þjóna, auk sr. Hreins, sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson, sóknar-
prestur í Hólabrekkusókn, og Lilja
G. Hallgrímsdóttir djákni. Org-
anisti kirkjunnar Lenka Mátéova
leikur á orgelið og stjórnar kirkju-
kórnum. Lovísa Sigfúsdóttir syng-
ur einsöng. Eftir guðsþjónustuna
bjóða sóknarnefndir Fella- og
Hólabrekkusafnaða upp á kaffiveit-
ingar í safnaðarheimili kirkjunnar.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Kvöldsamvera
í Fríkirkjunni
UM allan heim er fólk sem býr við
fátækt og margs konar vanlíðan
líkamlega sem og andlega. Í gegn-
um tíðina hafa Íslendingar reynt að
hjálpa þessu fólki með ýmsu móti.
Við höfum sent kristniboða til
starfa í Afríku, þar sem þeir vinna
að alhliða fræðslu, hjúkrun, heilsu-
vernd og mörgum öðrum þjóð-
þrifaverkefnum. Samhliða þessum
verkefnum er trúin á Jesú Krist
boðuð bæði í orði og verki.
Árlega er einn dagur kirkjuárs-
ins helgaður kristniboði. Í ár er það
næstkomandi sunnudagur 10. nóv-
ember. Þann dag verður kvöld-
samvera haldin í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Ræðumaður kvöldsins
er Ragnar Gunnarsson, kristniboði
og starfsmaður SÍK (Samband ís-
lenskra kristniboðsfélaga).
Mætum öll og eigum saman fal-
lega og þægilega kvöldstund við
kertaljós. Í lok stundarinnar verð-
ur fólki gefið tækifæri á að styrkja
íslenskt kristniboðastarf með gjöf
til SÍK.
Tónlist verður að venju undir
umsjón og stjórn Carls Möller og
Önnu Sigríðar Helgadóttur. Allir
hjartanlega velkomnir.
Safnaðarstarf Fríkirkjunnar –
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson.
Digraneskirkja á
kristniboðsdegi
GIDEONMENN og kvöldstund með
Þorvaldi Halldórssyni.
Í messu kl. 11 á kristniboðsdeg-
inum koma Gideonmenn í heim-
sókn. Þeir hafa náð þeim merka
áfanga að dreifa 300 þúsund Nýja
testamentum meðal Íslendinga.
Á sunnudagskvöld kl. 20.30 verð-
ur svo kvöldstund með söngv-
aranum Þorvaldi Halldórssyni.
Hún mun fjalla um kristniboð. Þar
mun séra Magnús Björn Björnsson
prédika, en einnig mun boðið upp á
lofgjörðarstund, fyrirbænir og
samfélag um heilaga kvöldmáltíð.
Dómkirkjan – Skag-
firska söngsveitin
VIÐ guðsþjónustuna í Dómkirkj-
unni kl. 11 á sunnudaginn verða
góðir gestir í heimsókn. Skagfirska
söngsveitin í Reykjavík syngur við
messuna og frumflytur m.a. sálm
(Miskunnarbæn) eftir söngstjórann
Björgvin Þ. Valdimarsson og séra
Hjálmar Jónsson. Organisti er Mar-
teinn H. Friðriksson dómorganisti.
Séra Hjálmar predikar og þjónar
fyrir altari.
Að venju er barnastund á kirkju-
loftinu þar sem Hans G. Alfreðsson,
María Ellingsen og unglingar úr
Æskulýðsfélagi kirkjunnar sjá um
helgistund með söng, lestri og leik.
Kvennakirkjan í
Langholtskirkju
KVENNAKIRKJAN heldur guð-
þjónustu í Langholtskirkju sunnu-
daginn 10. nóvember kl. 20.30.
Umfjöllunarefnið verður femín-
isminn. Guðfræðineminn Jóhanna
Magnúsdóttir prédikar og leggur
m.a. út af kvennabaráttutextanum
um brauð og rósir sem sunginn
verður í messunni.
Látinnar Kvennakirkjukonu,
Svövu Bernharðsdóttur, verður
minnst. Kór Kvennakirkjunnar
leiðir sönginn við undirleik Aðal-
heiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir
verður kaffi í safnaðarheimilinu.
Fimmtudaginn 14. nóvember
verður síðdegisboð í Þingholts-
stræti 17, klukkan 17.30 til 19. Þóra
Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur
talar um hið gullgóða gildi slök-
unarinnar og kennir konum að
slaka og hvílast. Nú er tækifærið til
að bæta hversdagslífið og læra að-
ferð við að slaka á í dagsins önn.
Kópavogskirkja –
kvennakór
KVENNAKÓR Kópavogs syngur í
messu í Kópavogskirkju sunnudag-
inn 10. nóvember kl. 11. Kórinn var
stofnaður fyrir um ári og hefur
starfað af miklum þrótti. Tugir
kvenna eru í kórnum en honum
stjórnar Natalía Chow. Það er
áhugavert fyrir kirkjugesti að fá
tækifæri til þess að hlusta á kórinn
en auk þess að taka þátt í almenn-
um safnaðarsöng mun kórinn
syngja nokkur verk að prédikun
lokinni.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Kökubasar
Kvenfélags
Laugarneskirkju
KVENFÉLAG Laugarneskirkju
heldur kökubasar til styrktar
orgelsjóði kirkjunnar sunnudaginn
10. nóv. Hafa kvenfélagskonur frá
upphafi gengið fremst í hópi alls
safnaðarfólks til styrktar orgel-
smíðinni og sýna nú enn hug sinn í
verki. Nú er kjörið tækifæri til að
næla sér í góða sunnudagstertu
strax að lokinni messu og sunnu-
dagaskóla kl. 11:00 og bjóða svo til
sín fólki í eftirmiðdaginn.
Svo vill til að þennan sama
sunnudag er kristniboðsdagurinn,
en vegna kökubasarsins munum við
fresta samskotum til kristniboðsins
um eina viku og gefa safnaðarfólki
þá kost á að láta fé af hendi rakna
til þess góða málefnis.
Áhrif atvinnumissis
á líðan fólks
MIÐVIKUDAGINN 13. nóvember
kl. 13:30 stendur kærleiksþjón-
ustusvið Biskupsstofu fyrir
fræðslu- og umræðufundi í Hall-
grímskirkju um atvinnumissi –
áhrif hans á líðan fólks og hvernig
skynsamlegt er að bregðast við.
Á fundinum mun Höskuldur Frí-
mannsson rekstrarhagfræðingur
halda fyrirlestur með yfirskriftinni
„Að láta draumana rætast – Hvað
vilt þú fá út úr lífinu?“ Höskuldur
hefur unnið sem ráðgjafi fyrir-
tækja, hópa og einstaklinga. Meðal
verkefna sem hann hefur unnið við
er að greina stöðu mála, leita að
nýjum möguleikum og tækifærum,
þegar fólk stendur á krossgötum.
Fundarstjóri er Bryndís Valbjarn-
ardóttir guðfræðingur.
Allir velkomnir. Boðið verður
upp á kaffi og kleinur.
Kristniboðs-
dagurinn í
Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/ÓmarHallgrímskirkja.
Hallgrímskirkja. Bréfabók bisk-
upsfrúar á fræðslumorgni næst-
komandi sunnudag.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9,
Kópavogi. Samkoma í dag kl. 11-
12.30. Lofgjörð, barnasaga, prédik-
un og biblíufræðsla þar sem ákveð-
ið efni er tekið fyrir, spurt og svarað.
Á laugardögum starfa barna- og ung-
lingadeildir. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir hjartanlega velkomnir.
Biblíufræðsla alla virka daga kl. 10,
13 og 22 á FM 105,5.
Kristniboðssalurinn Háaleitisbraut
58. Nytjamarkaður frá kl. 14 til 18.
Búsáhöld, fatnaður, leikföng, bækur
og margt fleira, bæði notað og nýtt.
Allur ágóði fer til að styrkja kristni-
boðið. Komið og gerið góð kaup og
styrkið kristniboð í leiðinni.
Safnaðarstarf