Morgunblaðið - 09.11.2002, Síða 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 81
ÞEGAR breiðskífan Ensími með samnefndri hljómsveit
kom út um daginn voru liðin þrjú ár síðan síðast hafði
heyrst frá sveitinni á plasti og eflaust margir talið hana
af. Það er öðru nær, Ensími lifir góðu lífi eins og heyra
má á skífunni nýju og einnig á útgáfutónleikum sem
verða í næstu viku.
Hrafn Thoroddsen, sem er fremstur meðal jafningja í
Ensími, segir að undanfarin ár hafi verið nokkuð sér-
kennileg hjá sveitinni; þeir félagar sögðu skilið við Skíf-
una eftir aðra breiðskífu sína og næsta árið fór meira og
minna í að greiða úr lausum endum vegna þeirra sam-
starfsslita. „Á meðan á því stóð gerðum við nánast ekk-
ert í tónlist, nema að við tókum upp sjö lög sem eins-
konar kynningu fyrir Airwaves á síðasta ári sem síðan
voru lögð í bleyti. Í vor ákváðum við svo að taka upp
þráðinn, skella okkur í hljóðver og gera þetta bara sjálf-
ir.“
Hrafn segir að það hafi gengið bráðvel að taka músík-
ina upp og þeir hafi komist að því að það er ekkert svo
flókið að gera þetta sjálfir, ekki síst þar sem þeir eru í
aðstöðu til að taka allt upp í eigin plássi. „Þegar maður
þarf ekki að vera að borga fimmþúsundkall á tímann
fyrir stúdíó getum við eytt eins miklum tíma og við vilj-
um í hlutina, þess vegna verið tvo daga að ná réttu hljóði
í einn hljóðnema,“ segir hann.
Út í hött að gera
útgáfusamning hérlendis
Þeir þeir voru búnir að taka skífuna upp leigðu þeir
Eddu síðan útgáfuréttinn og Edda sá því um framleiðsl-
una, dreifingu og kynningu að einhverju leyti. „Við er-
um náttúrulega að stússast í kynningunni jafnmikið eða
meira en Edda eins og íslenskar hljómsveitir geru venju-
lega, það er bara þannig að hljómsveitirnar hér heima
eru miklu betur inni í hlutunum en útgáfurnar og með
miklu betri sambönd.
Það kostar í sjálfu sér ekki neitt að taka plötu upp í
dag og mér finnst því út í hött að vera að gera útgáfu-
samning við fyrirtæki hér heima; það eina sem maður
græðir á því er einhverjir hundraðþúsundkallar í kynn-
ingu sem maður þarf hvort eð er að vinna sjálfur að
miklu leyti og borga svo sjálfur á endanum, því það er
tekið af plötusölunni. Fyrir þetta láta menn útgáfurétt-
inn að tónlistinni og við gátum ekki hugsað okkur það, en
það er hins vegar mjög þægilegt að leigja útgáfuréttinn
eins og við gerum til Eddu, við eigum þá upptökurnar
áfram og getum gert það við þær sem okkur sýnist.“
Eins og Hrafn nefnir er býsna þægilegt fyrir hljóm-
sveit að hafa eigin hljóðver, en það hefur einnig ókost í
för með sér: „Það er gott að geta leyft sér meira og hafa
meiri tíma, en pressan er ekki bara minni, hún getur
verið of lítil, það þarf að ljúka við verkið einhvern tím-
ann,“ segir hann og kímir. „Við áttuðum okkur skyndi-
lega á því að við vorum búnir að vera fullrólegir, farnir
að dunda en hættir að vinna. Við hertum því á okkur og
segja má að megnið af vinnunni við plötuna hafi verið
unnið í júlí og ágúst.“
Viðloðandi leti
Hrafn segir að þeir félagar hafi tekið fram kynning-
arupptökurnar þegar stóð til að ganga frá breiðskífu og
fimm þeirra laga hafi ratað inn á plötuna, en hitt er allt
nýsamið í sumar. „Það má segja að þetta sé sama vinnu-
ferlið og áður nema að því leyti að við erum meira með
puttana í þessu, en fengum síðan Adda 800 til að hljóð-
blanda af sinni alkunnu snilld; það var gott að fá önnur
eyru að þessu, þegar maður er búinn að hlusta mörg
hundruð sinnum á sama lagið veit maður ekkert.“
Aðspurður hvað taki nú við þegar skífan er komin út
svarar Hrafn að bragði: „Svo sitjum við bara og horfum
hver á annan,“ en bætir síðan við af meiri alvöru: „Nú
tekur bara við vinna við að kynna plötuna,“ segir hann
en tekur dræmt í það að kynna eigi plötuna af krafti úti.
„Það vill loða leti við þessa hljómsveit,“ segir hann, en
bætir svo við að það kosti mikið fé að kynna sig úti og
menn þurfi að leggja ýmislegt á sig og standi ekki síst
frammi fyrir því að þurfa jafnvel að fórna ýmsu hér
heima ef þeir ætli að ná árangri ytra.
Útgáfutónleikar skífunnar verða á Gauknum 14. nóv-
ember næstkomandi og Hrafn segir að til standi að
renna í gegnum plötuna, „en svo koma örugglega gaml-
ar lummur í uppklappinu“.
Ensími með Ensími
Ensími heldur útgáfutónleika næsta fimmtudag.
Morgunblaðið/Kristinn
alltaf á föstudögum
Yfir 43.000 áhorfendur
Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 2 og 4.
HJ Mbl
1/2 HK DV
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10.10. B.i. 12. Vit 444
Ó.H.T. Rás2
1/2
SV. MBL
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Vit 441. Sýnd kl. 2. Vit 441.
Kvikmyndir.com 1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
SV. MBL
DV
Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 453
Stundum er það sem að
þú leitar að.. þar sem þú
skildir það eftir.
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50 og 8. B.i. 12. Vit 433 Sýnd. kl. 4. B.i. 12. Vit 433 Sýnd kl. 8. Vit 455 Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit 448
Sýnd kl. 1.40, 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 461 Sýnd kl. 2, 4, 8 og 10. Vit 461Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Vit 474 Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Vit 474
1/2
Kvikmyndir.is
MBL
Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 429
ÁLFABAKKI AKUREYRI ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Bráðskemmtileg rómantísk gamanmynd sem hefur fengið frábærar viðtökur
og er nú þegar orðin vinsælasta mynd Reese Witherspoon frá upphafi vestanhafs.
E I N N I G S Ý N D Í L Ú X U S V I P
Sýnd í lúxussal kl. 4, 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 475
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK AKUREYRI
Frábær grínhasar með hinum eina
sanna Jackie Chan.
Frá framleiðendum Men in Black og
Gladiator
Sjáið
Jackie Chan
í banastuði
1/2
Kvikmyndir.is
1/2
HK. DV
Kvikmyndir.com
KEFLAVÍKAKUREYRI
ÁLFABAKKI KEFLAVÍK
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 448
AUK
ASÝ
NING
kl.
9
AUK
ASÝ
NING
kl.
11.1
5
Sýnd kl. 4, 8 og 10. Vit 461
LIÐAMÍN
Er ætlað öllum þeim
sem reyna mikið á liðina
eða þjást af stirðleika,
verkjum og þreytu í
liðum.
Í Liðamíni er efni sem
endurnýjar brjósk auk
þess sem í því er eitt
algengasta byggingar-
efnið í liðbrjóski. Bæði
þessi efni hamla bólgu-
myndun og eru talin
v inna gegn sl i tg igt .
M A G N A
LÝSI hf www.lysi.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
N
M
0
5
7
5
3
/s
ia
.i
s