Morgunblaðið - 09.11.2002, Side 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Valkostur
vandlátra – leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
TALIÐ er að 100 til 200 manns sem lokið hafa
námi í flugvirkjun hafi ekki fengið vinnu í iðn-
grein sinni, samkvæmt upplýsingum Guðjóns
Valdimarssonar, formanns Flugvirkjafélags Ís-
lands. Flestir flugvirkjanna hafa lokið námi í
Bandaríkjunum, en margir hafa einnig numið í
Svíþjóð.
Tæplega 90 skrá sig hjá félaginu
Flugvirkjafélagið hefur í auglýsingu á vefsíðu
sinni beðið alla þá flugvirkja sem lokið hafa námi,
en eru ekki starfandi í iðngreininni, að hafa sam-
band við skrifstofu félagsins og skrá sig þar. Í
gær höfðu tæplega 90 flugvirkjar skráð sig og að
sögn Guðjóns gæti þessi fjöldi farið yfir hund-
raðið á næstu dögum.
Lög Flugvirkjafélags Íslands eru þess eðlis að
til að gerast félagi þurfa viðkomandi flugvirkjar
að vera starfandi við iðngreinina. Um 380 flug-
virkjar eru skráðir í félagið, þar af eru tæplega 50
komnir á eftirlaun.
„Við erum að vonast til þess að verkefnum fyrir
flugvirkja fari að fjölga, eftir mikla ládeyðu að
undanförnu, og þá verðum við að geta svarað for-
ráðamönnum flugfélaganna sem hafa samband og
vilja mannskap, hvort sem það eru innlend eða
erlend flugfélög,“ sagði Guðjón en félagið hefur
nýlega komið á framfæri auglýsingu frá norskri
atvinnumiðlun sem er að óska eftir flugvirkjum til
starfa í Noregi frá 1. desember nk. Um er að
ræða tímabundna vinnu en möguleikar sagðir á
framtíðarstarfi.
Nám í Bandaríkjunum frá miðju
síðasta ári ekki tekið gilt
Til þessa hafa íslenskir flugvirkjar aðallega
numið í Bandaríkjunum en með gildistöku evr-
ópskra flugöryggisreglna, svonefndra JAR-
reglna, á miðju síðasta ári sagði Guðjón að þeir
sem hófu nám í Bandaríkjunum eftir þann tíma
gætu ekki fengið vinnu í Evrópu þar sem JAR-
reglurnar gilda, nema að bæta við sig námi. Þeir
gætu aðeins fengið vinnu í Bandaríkjunum. Hann
sagði að þeir sem hefðu lokið flugvirkjanáminu
vestanhafs fyrir mitt síðasta ár gætu fengið skír-
teinum sínum breytt samkvæmt gildandi JAR-
reglum.
Guðjón sagði félagið nú mælast til þess að Ís-
lendingar lærðu flugvirkjun í Evrópu og tók sem
dæmi að nú væru þrír að læra í Danmörku sem
komust á samning hjá Flugleiðum. Ljúka þeir
bóklega hluta námsins í Danmörku en verklega
hlutanum hjá Flugleiðum.
Að sögn Guðjóns eru dæmi þess að flugvirkjum
sem komist hafi á samning hjá Flugleiðum hafi
verið sagt upp að loknu sveinsprófi vegna verk-
efnaskorts. Sagði hann félagið binda vonir við
aukin verkefni á næstunni, m.a. vegna áforma
Flugleiða um að taka í notkun fleiri Boeing-þotur
í leiguflug.
Yfir hundrað flugvirkj-
ar fá ekki vinnu í faginu
Stéttarfélagið auglýsir
eftir flugvirkjum sem
ekki starfa í greininni
Einn frambjóðenda í prófkjörinu,
Vilhjálmur Egilsson, hafði gert at-
hugasemd við framkvæmd utankjör-
staðaatkvæðagreiðslunnar eftir að
hann hafði spurnir af umræddu máli
á Akranesi. Vildi hann fá leikreglur á
hreint þannig að allir frambjóðendur
sætu við sama borð varðandi at-
kvæðagreiðslu utan kjörfundar.
Jóhann Kjartansson, formaður
kjörnefndar, sagði að söfnun at-
kvæðanna hefði átt sér stað fyrir
misskilning þeirra sem að henni
stóðu og búið væri að leiðrétta hann.
Samband yrði haft við starfsmenn
viðkomandi fyrirtækis og þeim gef-
inn kostur á að kjósa á kjörfundi í
dag ef þeir vildu. Sagði Jóhann at-
kvæðin hafa verið um 60 talsins. Seg-
ir hann að í gær hafi 800–1.000 kosið
utan kjörfundar í kjördæminu öllu.
Vilhjálmur Egilsson segist í aðal-
atriðum sáttur við ákvörðun kjör-
dæmaráðs, en langt í frá sé að öll
kurl séu komin til grafar.
„Ég hef enga ástæðu til að ætla að
svo sé, í ljósi þess hvernig þetta mál
hefur borið að, og að þeir skyldu ekki
leggja spilin strax á borðið þegar
þetta kom upp,“ segir hann. „Það er
stórkostlega óeðlilegt hvernig að
þessu var staðið.“
Einar Oddur Kristjánsson þing-
maður Sjálfstæðisflokks og fram-
bjóðandi í kjördæminu, segist hafa
heyrt um óvarlega meðhöndlun kjör-
gagna á Akranesi, en segist treysta
því að allt verði gert til að eyða tor-
tryggni.
„Ég tel það höfuðatriði fyrir þetta
prófkjör og fyrir flokkinn í framtíð-
inni.“
Deilan leyst
með ógildingu
60 atkvæða
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokksins í prófkjöri Norðvesturkjör-
dæmis, sem fram fer í dag, ákvað í samráði við frambjóðendur á
fundi í Borgarnesi í fyrrakvöld að ógilda um 60 utankjörstaða-
atkvæði sem safnað var saman í fyrirtæki á Akranesi og gefa við-
komandi stuðningsmönnum færi á að kjósa á kjörstöðum í dag.
Umdeild utankjörstaðakosning sjálf-
stæðismanna í Norðvesturkjördæmi
ÞAÐ var handagangur í öskjunni í barnafatadeild
Hagkaupa í gær. Margir gripu tækifærið þegar
verslunin auglýsti lækkað verð á barnafatnaði í tvo
daga, sem nemur álögðum virðisaukaskatti. Með
þessu vildu Hagkaup taka undir þingsályktun-
artillögu Páls Magnússonar, varaþingmanns Fram-
sóknarflokksins, um afnám 24,5% virðisaukaskatts á
barnafatnaði.
Morgunblaðið/RAX
Líflegt í barnafatadeildinni
SELKJÖT er í hávegum haft hjá
Breiðfirðingum og á átthagamóti
eyjamanna í kvöld verður meðal
annars framreitt lostæti úr 35 til 40
selum. Guðmundur Ragnarsson,
matreiðslumaður á Veitingahúsinu
Lauga-Ási, hefur undirbúið þessa
árlegu veislu síðan hún byrjaði fyr-
ir sjö árum og hann segir að sel-
kjötið dragi að. „Fyrsta árið mættu
um 40 manns, en þetta hefur spurst
út, gestum hefur fjölgað með
hverju árinu og nú gerum við ráð
fyrir fullu húsi eða 160 manns.“
Að sögn Guðmundar matreiðir
hann selkjötið eftir kúnstarinnar
reglum. „Ég tek hryggvöðvana og
fer með þá eins og nautalundir.
Kjötið er sérstaklega mjúkt enda
segir fólk gjarnan að það hafi aldr-
ei upplifað annað eins. Grillað sel-
kjöt bragðast eins blanda af hrein-
dýrakjöti og góðum svartfugli.“
Hann segir ekkert lýsisbragð af
kjötinu þegar það hafi fengið rétta
meðhöndlun.
Selkjötið
heillar
Breiðfirð-
inga
Morgunblaðið/Sverrir
Guðmundur Ragnarsson reiknar með að um 160 manns borði selkjöt í dag.
KSÍ, Knattspyrnusamband Íslands,
fær 50.000 svissneskra franka, um
þrjár milljónir króna, frá Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA, til
þess að berjast gegn kynþátta-
fordómum utan vallar sem innan á
næstu tólf mánuðum.
UEFA ætlar að leggja alls fram
2,6 milljónir svissneskra franka, um
156 milljónir króna, til þess að berj-
ast gegn kynþáttafordómum í
knattspyrnu á næstu tólf mánuðum
og verður peningunum skipt jafnt á
milli 52 aðildarþjóða.
Morgunblaðið/Kristinn
Moussa Dagnogo, KR-ingur, varð
fyrir barðinu á kynþáttafordómum.
3 milljónir
frá UEFA
UEFA berst gegn / C1