Morgunblaðið - 10.12.2002, Qupperneq 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
M
IKIL uppbygging hefur
átt sér stað í bryggju-
hverfinu í Grafarvogin-
um, einkum við Nausta-
bryggju og Básbryggju og nú er svo
komið, að þeir sem fengu lóðum út-
hlutað á þessu svæði, eru langt
komnir með sínar byggingar. Út-
koman er fallegra og heillegra yfir-
bragð.
Þetta hverfi verður að mörgu leyti
mjög sérstætt. Smábátahöfnin verð-
ur snar þáttur í ásýnd hverfisins, en
hún er grjótvarin og í henni er gert
ráð fyrir sex flotbryggjum, en við
þær eiga að rúmast allt að 200 smá-
bátar.
Í bryggjuhverfinu eiga að bland-
ast saman margir þættir borgarlífs,
þannig að það verði ekki bara svefn-
hverfi, heldur verði þar fólk á ferli
allan daginn en ekki bara á kvöldin. Í
hverfinu verða því ekki eingöngu
íbúðir heldur líka verzlanir og skrif-
stofur.
Bryggjuhverfið er að mörgu leyti
hentugt fyrir íbúðarbyggð, því þar
er gott skjól, þó að hvasst sé annars
staðar. Þessu veldur staðsetningin,
en hverfið er í kvos og nýtur skjóls af
holtinu fyrir sunnan.
Tuttugu og tvær nýjar íbúðir
Einn þeirra byggingaraðila, sem
haslað hafa sér völl í Bryggjuhverfi,
er Þ.G. verktakar ehf. Við Nausta-
bryggju 1–7 er þetta fyrirtæki að
ljúka við 22 íbúða fjölbýlishús. Íbúð-
irnar eru 2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja
af stærðinni 60,4 ferm. og upp í 178,6
ferm. Þær eru afhentar fullbúnar án
gólfefna.
Sérstæði í bílageymslu fylgir
hverri íbúð og lóð og sameign verða
fullfrágengin. Þessar íbúðir eru í
sölu hjá fasteignasölunni Höfða, en
verð á þeim er frá 10,5 millj. kr. á
minnstu íbúðinni og upp í 21,9 millj.
kr. á þeirri stærstu og dýrustu.
Húsið er steinsteypt með hefð-
bundnu stál- og timburburðarvirki í
þaki, en fjórir stigagangar eru í hús-
inu og því fáar íbúðir í hverjum
stigagangi. Þak og veggir hússins
eru klæddir með viðhaldsléttu, lituðu
báruáli. Útveggir eru einangraðir að
utan með 80 mm steinullareinangr-
un. Gluggar eru timburgluggar,
klæddir að utan með áli en opnanleg
fög eru úr áli og gler er K gler.
Arkitekt hússins er Björn Ólafs,
en Björn er einnig hönnuðurinn á
bak við útlit og skipulag Bryggju-
hverfisins. Húsið hefur þrjár burstir,
en hver burst myndar í raun sjálf-
stæða einingu, sem gefur húsinu sér-
stætt og fallegt yfirbragð, auk þess
sem húsið hefur á vissan hátt frekar
yfirbragð sérbýlis en hefðbundins
fjölbýlis.
Húsinu er skilað fullbúnu að utan,
bílastæði verða malbikuð og gang-
stéttar við hús hellulagðar. Úti-
tröppur og inngangar verða með
snjóbræðslu og við íbúðir á jarðhæð
verða hellulagðar verandir. Sameign
er skilað fullfrágenginni.
Að innan skilast íbúðirnar fullbún-
ar án gólfefna, en innréttingar eru af
vandaðri gerð frá danska fyrirtæk-
inu HTH. Lögð hefur verið áherzla á
að hagræða skipulagi eldhúsanna á
sem beztan hátt með nútímahönnun í
huga.
Ragna Þórsdóttir hönnuður var
fengin til þess að hafa yfirumsjón
með efnisvali og útliti innan íbúð-
anna, þar á meðal innréttingum, flís-
um og tækjum. Hún segir, að til hlið-
sjónar voru hafðar stefnur og
straumar í hönnun í dag og hvernig
umhverfið gæti hentað sem flestum.
Leitazt var við að hafa útlit létt og
aðgengilegt með þarfir ólíkra heim-
ila í huga. Að sögn Ásmundar
Skeggjasonar hjá Höfða er þegar
búið að selja átta af íbúðunum. „Það
er mikið um fyrirspurnir og greini-
lega til staðar mikill áhugi á þessum
íbúðum, sem þarf ekki að koma á
óvart, þar sem um vandaðar og
skemmtilegar íbúðir að ræða í
hverfi, sem hefur mikið aðdráttarafl
fyrir marga,“ sagði Ásmundur.
Byggir húsnæði auk alhliða
verktakastarfsemi
Þorvaldur Gissurarson er enginn
nýgræðingur í húsbyggingum, en
hann hefur rekið byggingarfyrirtæki
frá árinu 1990, þegar hann stofnaði
verktakafyrirtækið Akkorð sf. ásamt
félaga sínum. Það fyrirtæki ráku
þeir saman til ársins 1994 þegar leið-
ir skildu og Þorvaldur hóf rekstur í
eigin nafni. Árið 1998 var rekstrar-
fyrirkomulaginu breytt í einkahluta-
félag enda umfang rekstrarins orðið
verulegt.
Í dag skiptist rekstur fyrirtækis-
ins milli verktakastarfsemi á útboðs-
markaði annars vegar og sölu íbúða
og atvinnuhúsnæðis hins vegar, en
svipað vægi er milli þessara þátta í
rekstrinum. Útboðsverk eru nú nær
eingöngu unnin fyrir opinbera aðila.
Fyrir Reykjavíkurborg hafa Þ.G.
verktakar t.d. byggt leikskólann Sel-
ás, sinnt endurbótum á Öldusels-
skóla og Hólabrekkuskóla og endur-
nýjað ýmis mannvirki fyrir
gatnamálastjóra ásamt fleiri verk-
efnum.
Þ.G. verktakar hafa ennfremur
sinnt margvíslegum verkefnum fyrir
Orkuveitu Reykjavíkur t.d. ýmis
verkefni á Nesjavöllum m.a. stækk-
un virkjunarinnar á árinu 2000.
Stærsta einstaka verkefni fyrirtæk-
isins til þessa er bygging nýrra höf-
uðstöðva Orkuveitunnar við Réttar-
háls í Reykjavík, en því verkefni
lýkur um áramótin.
Auk þess hafa Þ.G. verktakar
byggt fjölda íbúða og mikið af at-
vinnuhúsnæði á liðnum árum. Fram-
kvæmdir standa nú yfir við liðlega
3.000 ferm. atvinnuhúsnæði við
Lónsbraut í Hafnarfirði og ennfrem-
ur við 35 íbúða fjölbýlishús við Andr-
ésarbrunn í Grafarholti.
Um þessar mundir starfa um 50
manns á vegum Þ.G. verktaka auk
fjölda undirverktaka. Meðeigandi
fyrirtækisins er sambýliskona Þor-
valdar, Helen Neely, og sinnir hún
meðal annars fjárreiðum og reikn-
ingshaldi fyrir fyrirtækið.
Á síðustu árum hefur fyrirtækið
vaxið ört og veltan aukist jafnt og
þétt og stefnir í liðlega 1.000 millj-
ónir á þessu ári.
Þorvaldur kveðst vera bjartsýnn á
framtíðina þrátt fyrir marga óvissu-
þætti í byggingariðnaði á Íslandi.
Hann segir mikið ójafnvægi skapast
til að mynda á íbúðamarkaði þegar
lóðarúthlutanir eru háðar pólitískum
ákvörðunum og það skiptist á of-
framboð og lóðaskortur eins og verið
hefur á liðnum árum.
Einnig getur hið síbreytilega og
óstöðuga efnahagsumhverfi gert
mönnum í greininni erfitt fyrir og
nægir þar að nefna þætti eins og
vexti, gengi gjaldmiðla, afföll hús-
bréfa, fasteignaverð o.s.frv. Alltaf er
þó þörf fyrir mannvirkjagerð og nú
til dags verða byggingarfyrirtæki að
vera í stakk búin til að mæta kröfum
markaðarins.
„Markaðurinn knýr til að mynda á
um sífellt styttri byggingartíma og
aukinn framkvæmdahraða í hvers
konar mannvirkjagerð,“ segir Þor-
valdur. „Þetta á ekki sízt við hjá op-
inberum aðilum þar sem svigrúm er
oft mjög lítið innan þess tímaramma
sem gefinn er fyrir hvert verk.“
Bryggjuhverfið fær
heillegra yfirbragð
Við Naustabryggju 1–7 eru Þ.G. verktakar ehf. að ljúka við 22 íbúða fjölbýlishús. Íbúðirnar eru 2ja, 3ja, 4ra og fimm her-
bergja af stærðinni 60,4 ferm. og upp í 178,6 ferm. Þær eru afhentar fullbúnar án gólfefna. Sérstæði í bílageymslu fylgir
hverri íbúð og lóð og sameign verða fullfrágengin. Þessar íbúðir eru í sölu hjá fasteignasölunni Höfða, en verð á þeim er
frá 10,5 millj. kr. á minnstu íbúðinni og upp í 21,9 millj. kr. á þeirri stærstu og dýrustu.
Morgunblaðið/Kristinn
Þorvaldur Gissurarson húsasmíðameistari og Ásmundur Skeggjason hjá fast-
eignasölunni Höfða, þar sem íbúðirnar eru til sölu. Myndin er tekin fyrir framan
fjölbýlishúsið Naustabryggju 1–7.
Að innan skilast íbúðirnar fullbúnar án gólfefna. Innréttingar eru af vandaðri
gerð frá danska fyrirtækinu HTH.
Fjölbýlishúsið hefur þrjár
burstir, en hver burst
myndar í raun sjálfstæða
einingu, sem gefur hús-
inu sérstætt og fallegt yf-
irbragð. Magnús Sig-
urðsson kynnti sér nýjar
íbúðir Þ.G. verktaka við
Naustabryggju.
Efnisyfirlit
Ás ........................................ 5 16-17
Ásbyrgi ..................................... 5 21
Berg .............................................. 37
Bifröst ........................................... 19
Borgir ................................... 24-25
Eign.is ........................................... 13
Eignaborg .................................... 47
Eignalistinn ................................. 15
Eignamiðlun ....................... 22-23
Eignanaust ................................... 15
Eignaval .......................................... 3
Fasteign.is .................................. 48
Fasteignamarkaðurinn ............. 18
Fasteignamiðlunin .................... 20
Fasteignamiðstöðin .................... 7
Fasteignasala Mosfellsbæjar . 24
Fasteignasala Íslands ................. 5
Fasteignastofan ........................... 7
Fasteignaþing ............................... 9
Fjárfesting .................................. 46
Fold ................................................ 31
Foss ................................................ 41
Frón .............................................. 45
Garður .......................................... 22
Garðatorg ...................................... 11
Gimli ................................................ 8
Heimili ......................................... 22
Híbýli ............................................ 15
Hóll ................................................. 12
Hraunhamar ........................ 38-39.
Húsakaup .................................... 30
Húsavík ........................................ 43
Húsið ........................................... 27
Húsin í bænum ............................ 10
Höfði ............................................. 29
Höfði, Hafnarfirði ...................... 28
Kjöreign ....................................... 34
Laufás ........................................... 32
Lundur .................................. 44-45
Lyngvík ......................................... 10
Miðborg ........................................... 6
Remax – Þingholt .................... 33
Skeifan ............................................ 4
Smárinn ....................................... 27
Stakfell ........................................ 47
Valhöll ..................................... 14-15
101 Reykjavík ............................. 35