Morgunblaðið - 10.12.2002, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 C 47HeimiliFasteignir
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
564 1500
20 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Steinasel 246 fm einbýli, 4 svefnh.,
rúmgott eldhús með eikarinnréttingu,
parket á stofu og sjónvarpsholi, flísar á
baði. Bílskúr og geymsla um 80 fm.
Gauksás - Hf. 205 fm raðhús tilb. til
málningar að utan, fokh. að innan, 26 fm
bílskúr, mikið útsýni.
2JA TIL 4RA HERB. ÍBÚÐIR
Reynihvammur Ný 2ja herb. 60 fm
á 1. hæð, afhent máluð að innan án inn-
réttinga. V. 9,7 m. Til afh. strax.
Gnoðarvogur 130 fm miðhæð í fjór-
býli, nýleg innrétting í eldhúsi, þrjú rúm-
góð svefnherbergi, stofa með suðursvöl-
um, parket á herb. og stofu, flísalagt bað,
32 fm bílskúr.
Furugrund 2ja herb. á 1. hæð, eikar-
innrétting í eldhúsi, suðursvalir. V. 7,3 m.
Laugavegur 125 fm 4ra herb. á 3.
hæð í nýlegu lyftuhúsi, góðar innréttingar,
þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa, suð-
vestursvalir, stæði í lokuðu bílahúsi.
Barmahlíð Mikið endurnýjuð miðhæð
í þríbýli, eikarinnrétting í eldhúsi, 3 svefn-
herb., tvær stofur, merbau-parket á herb.
og stofu, 28 fm bílskúr.
Dalvegur 247 fm á götuhæð sem er
um 140 fm. Stórar innkeyrsludyr. Á efri
hæð eru skrifstofa, kaffistofa, snyrting og
geymslur. Húsnæðið er mjög vel innrétt-
að með vönduðum innréttingum. Malbik-
að bílaplan, laust strax. V. 27 m.
Vesturvör Nýtt 308 fm iðnaðarhús-
næð, stórar innkeyrsludyr, malbikuð bíla-
stæði, til afh. strax.
Sjá nánar fleiri eignir á netinu www.eignaborg.is/—
Vegna mikillar sölu síðustu daga vantar okkur allar
stærðir eigna á skrá í Kópavogi
EINBÝLISHÚS
BRÚNAVEGUR Glæsilegt og vel stað-
sett 252,6 fm einbýlishús á tveimur hæð-
um ásamt 54,8 fm bílskúr. Tvær samliggj-
andi stofur, fimm herb., eldhús, þrjú bað-
herb., fallegur gróðurríkur garður. Frábært
útsýni. Laus fljótlega.
HEIÐARGERÐI Mjög fallegt 187 fm
einbýlishús, hæð og ris ásamt 32,8 fm bíl-
skúr. Góðar stofur, sólskáli, fallegur skjól-
góður garður með verönd og heitum potti.
Ný eldhúsinnrétting, fimm herb. Fallegt
flísalagt bað. Húsið hefur verið mikið end-
urnýjað. Verð 27,9 millj.
RAUÐAGERÐI Vandað einbýlishús á
tveimur hæðum m. innb. bílskúr. Skiptist í
stofur, eldhús, sex herb., baðherb. og
snyrtingar og þvottaherb. Tvennar svalir.
Parket og flísar á gólfum. Glæsilegur garð-
ur. Eignin er laus strax.
ÞINGHÓLSBRAUT - KÓP. Vandað
einb.hús á tveimur hæðum ásamt innb. bíl-
skúr. Á efri hæð er eldhús, stofur, 4-5
herb. og bað. Svalir frá stofu. Á neðri hæð
er stórt sjónvarpsherb., 2-3 herb. baðherb.
þvottahús og geymslur. Hiti í stéttum. Stór,
afgirt og skjólgóð verönd og garður með
fallegum gróðri. Mjög vönduð eign.
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fast.sali.
Gsm 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
w w w . s t a k f e l l . i s
RAÐHÚS/ PARHÚS
HRYGGJARSEL Gott raðhús 272 fm,
tvær hæðir, kjallari og 54,6 fm tvöfaldur
bílskúr. Stofur og fimm herb., rúmgott eld-
hús með búri, mjög gott baðherbergi.
Rúmgóð gestasnyrting og þvottaherb.
Aukaíbúð er í kjallaranum. Góð áhvílandi
lán. Verð 24,5 millj.
HÆÐIR
NJÖRVASUND 4ra herb. íbúð 93 fm á
1. hæð. Skiptist í 2 samliggjandi stofur og
tvö svefnherb., eldhús og bað. Bílskúr, 28
fm fylgir eigninni. Verð 14,2 millj.
3JA - 4 HERBERGJA
EFSTASUND Fjögurra herbergja íbúð í
risi í tvíbýlishúsi. Tvær stofur og tvö svefn-
herbergi. Lítill geymsluskúr í garði. Laus
fljótt. Verð 9.3 millj.
2 - 3JA HERBERGJA
VESTURBERG 2ja herb. íbúð 63,6 fm
á 4. h. í góðu lyftuhúsi. Stofa, svefnherb.
eldhús og bað. Austursvalir. Sameiginl.
þvottahús á hæðinni. Laus strax. Verð 7,9
millj.
BAKKASEL Gullfalleg 2ja herb. íbúð
64,2 fm á jarðhæð með sérinngangi í rað-
húsi. Nýlegar innréttingar og tæki í eldhúsi
og baði. Parket og flísar á gólfum. Sérlega
falleg eign.
HÁALEITISBRAUT 2ja herb. íbúð
70 fm í kjallara í góðu fjölbýli með sér-
inngangi. Fallegt eldhús. Rúmgóð stofa
og svefnherbergi. Parket á holi og
stofu. Áhv. 3,8 millj.
Seljendur
Sölusamningur – Áður en fast-
eignasala er heimilt að bjóða eign til
sölu, ber honum að ganga frá sölu-
samningi við eiganda hennar um
þjónustu fasteignasala á þar til gerðu
samningseyðublaði. Eigandi eignar
og fasteignasali staðfesta ákvæði
sölusamningsins með undirritun
sinni. Allar breytingar á sölusamningi
skulu vera skriflegar. Í sölusamningi
skal eftirfarandi koma fram:
Tilhögun sölu – Koma skal fram,
hvort eignin er í einkasölu eða al-
mennri sölu, svo og hver söluþóknun
er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbind-
ur eigandi eignarinnar sig til þess að
bjóða eignina aðeins til sölu hjá ein-
um fasteignasala og á hann rétt til
umsaminnar söluþóknunar úr hendi
seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld
annars staðar. Einkasala á einnig við,
þegar eignin er boðin fram í maka-
skiptum. – Sé eign í almennri sölu má
bjóða hana til sölu hjá fleiri fast-
eignasölum en einum. Söluþóknun
greiðist þeim fasteignasala, sem sel-
ur eignina.
Auglýsingar – Aðilar skulu semja
um, hvort og hvernig eign sé auglýst,
þ. e. á venjulegan hátt í eindálki eða
með sérauglýsingu. Auglýsingakostn-
aður skal síðan greiddur mán-
aðarlega samkv. gjaldskrá dagblaðs.
Öll þjónusta fasteignasala þ. m. t.
auglýsingar er virðisaukaskattskyld.
Gildistími – Sölusamningurinn er
uppsegjanlegur af beggja hálfu með
fyrirvara (hámark 30 dagar) og gera
þarf það skriflega. Ef einkasölusamn-
ingi er breytt í almennan sölusamn-
ing þarf einnig að gera það með skrif-
legum hætti. Sömu reglur gilda þar
um uppsögn.
Öflun gagna/söluyfirlit – Áður en
eignin er boðin til sölu, verður að út-
búa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal
leggja fram upplýsingar um eignina,
en í mörgum tilvikum getur fast-
eignasali veitt aðstoð við útvegun
þeirra skjala sem nauðsynleg eru.
Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk
beins útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna. Í þessum
tilgangi þarf eftirfarandi skjöl:
Veðbókarvottorð – Þau kosta nú
900 kr. og fást hjá sýslumannsemb-
ættum. Opnunartíminn er yfirleitt
milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbók-
arvottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða þing-
lýstar kvaðir eru á henni.
Greiðslur – Hér er átt við kvittanir
allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem
eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem
á að aflýsa.
Fasteignamat – Hér er um að
ræða matsseðil, sem Fasteignamat
ríkisins sendir öllum fasteignaeig-
endum í upphafi árs og menn nota
m.a. við gerð skattframtals. Fast-
eignamat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími 5155300.
Fasteignagjöld – Sveitarfélög eða
gjaldheimtur senda seðil með álagn-
ingu fasteignagjalda í upphafi árs og
er hann yfirleitt jafnframt greiðslu-
seðill fyrir fyrsta gjalddaga fasteigna-
gjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna
greiðslu fasteignagjaldanna.
Brunabótamatsvottorð – Vott-
orðin fást hjá því tryggingafélagi,
sem eignin er brunatryggð hjá. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnig þarf kvitt-
anir um greiðslu brunaiðgjalda. Ef fá
þarf nýtt brunabótamat á fasteign,
þarf að snúa sér til Fasteignamats
ríksins og biðja um nýtt brunabóta-
mat.
Hússjóður – Hér er um að ræða yf-
irlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýsingu
húsfélags um væntanlegar eða yf-
irstandandi framkvæmdir. Formaður
eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að út-
fylla sérstakt eyðublað Félags fast-
eignasala í þessu skyni.
Afsal – Afsal fyrir eign þarf að
liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er
hægt að fá ljósrit af því hjá viðkom-
andi sýslumannsembætti og kostar
það nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheimildin
fyrir fasteigninni og þar kemur fram
lýsing á henni.
Kaupsamningur – Ef lagt er fram
ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að
leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það
er því aðeins nauðsynlegt í þeim til-
vikum, að ekki hafi fengist afsal frá
fyrri eiganda eða því ekki enn verið
þinglýst.
Eignaskiptasamningur – Eigna-
skiptasamningur er nauðsynlegur, því
að í honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og hvernig af-
notum af sameign og lóð er háttað.
Umboð – Ef eigandi annast ekki
sjálfur sölu eignarinnar, þarf umboðs-
maður að leggja fram umboð, þar
sem eigandi veitir honum umboð til
þess fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
Yfirlýsingar – Ef sérstakar kvaðir
eru á eigninni s. s. forkaupsréttur,
umferðarréttur, viðbyggingarréttur o.
fl. þarf að leggja fram skjöl þar að lút-
andi. Ljósrit af slíkum skjölum fást yf-
irleitt hjá viðkomandi fógetaembætti.
Teikningar – Leggja þarf fram
samþykktar teikningar af eigninni.
Hér er um að ræða svokallaðar bygg-
ingarnefndarteikningar. Vanti þær má
fá ljósrit af þeim hjá byggingarfull-
trúa.
Kaupendur
Þinglýsing – Nauðsynlegt er að
þinglýsa kaupsamningi strax hjá við-
komandi sýslumannsembætti. Það er
mikilvægt öryggisatriði. Á kaupsamn-
inga v/eigna í Hafnarfirði þarf áritun
bæjaryfirvalda áður en þeim er þing-
lýst.
Greiðslustaður kaupverðs – Al-
gengast er að kaupandi greiði afborg-
anir skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
Greiðslur – Inna skal allar greiðslur
af hendi á gjalddaga. Seljanda er
heimilt að reikna dráttarvexti strax
frá gjalddaga. Hér gildir ekki 15 daga
greiðslufrestur.
Lánayfirtaka – Tilkynna ber lán-
veitendum um yfirtöku lána.
Lántökur– Skynsamlegt er að gefa
sér góðan tíma fyrir lántökur. Það
getur verið tímafrekt að afla tilskil-
inna gagna s. s. veðbókarvottorðs,
brunabótsmats og veðleyfa.
Afsal – Ef skjöl, sem þinglýsa á,
hafa verið undirrituð samkvæmt um-
boði, verður umboðið einnig að fylgja
með til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingarsam-
vinnufélög, þarf áritun bygging-
arsamvinnufélagsins á afsal fyrir
þinglýsingu þess og víða utan
Reykjavíkur þarf áritun bæjar/
sveitarfélags einnig á afsal fyrir þing-
lýsingu þess.
Samþykki maka – Samþykki maka
þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og
veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan
býr í eigninni.
Gallar – Ef leyndir gallar á eigninni
koma í ljós eftir afhendingu, ber að
tilkynna seljanda slíkt strax. Að öðr-
um kosti getur kaupandi fyrirgert
hugsanlegum bótarétti sakir tómlæt-
is.
Gjaldtaka
Þinglýsing – Þinglýsingargjald
hvers þinglýsts skjals er nú 1.200 kr.
Stimpilgjald– Það greiðir kaupandi
af kaupsamningum og afsölum um
leið og þau eru lögð inn til þinglýs-
ingar. Ef kaupsamningi er þinglýst,
þarf ekki að greiða stimpilgjald af af-
salinu. Stimpilgjald kaupsamnings
eða afsals er 0,4% af fasteignamati
húss og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri
milljón.
Skuldabréf – Stimpilgjald skulda-
bréfa er 1,5% af höfuðstóli (heildar-
upphæð) bréfanna eða 1.500 kr. af
hverjum 100.000 kr. Kaupandi greiðir
þinglýsingar- og stimpilgjald útgef-
inna skuldabréfa vegna kaupanna, en
seljandi lætur þinglýsa bréfunum.
Stimpilsektir– Stimpilskyld skjöl,
sem ekki eru stimpluð innan 2ja mán-
aða frá útgáfudegi, fá á sig stimp-
ilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr-
ir hverja byrjaða viku. Sektin fer þó
aldrei yfir 50%.
Skipulagsgjald – Skipulagsgjald er
greitt af nýreistum húsum. Af hverri
byggingu, sem reist er, skal greiða
3‰ (þrjú pro mille) í eitt sinn af
brunabótavirðingu hverrar húseignar.
Nýbygging telst hvert nýreist hús,
sem virt er til brunabóta svo og við-
byggingar við eldri hús, ef virðing-
arverð hinnar nýju viðbyggingar nem-
ur 1/5 af verði eldra hússins. Þetta á
einnig við um endurbætur, sem
hækka brunabótavirðingu um 1/5.
Húsbyggjendur
Lóðaumsókn – Eftir birtingu aug-
lýsingar um ný byggingarsvæði geta
væntanlegir umsækjendur kynnt sér
þau hverfi og lóðir sem til úthlutunar
eru á hverjum tíma hjá byggingaryf-
irvöldum í viðkomandi bæjar- eða
sveitarfélögum – í Reykjavík á skrif-
stofu borgarverkfræðings, Skúlatúni
2. Skilmálar eru þar afhentir gegn
gjaldi, ef tilbúnir eru. Umsækjendur
skulu fylla út nákvæmlega þar til gert
eyðublað og senda aftur til viðkom-
andi skrifstofu. Í stöku tilfelli þarf í
umsókn að gera tillögu að húshönn-
uði en slíkra sérupplýsinga er þá get-
ið í skipulagsskilmálum og á umsókn-
areyðublöðum.
Lóðaúthlutun – Þeim sem út-
hlutað er lóð, fá um það skriflega til-
kynningu, úthlutunarbréf og þar er
þeim gefinn kostur á að staðfesta út-
hlutunina innan tilskilins tíma, sem
venjulega er um 1 mánuður. Þar koma
einnig fram upplýsingar um upphæðir
gjalda o.fl. Skilyrði þess að lóðaút-
hlutun taki gildi eru að áætluð gatna-
gerðargjöld o.fl. séu greidd á réttum
tíma. Við staðfestingu lóðaúthlutunar
fá lóðarhafar afhent nauðsynleg
gögn, svo sem mæliblað í tvíriti, svo
og hæðarblað í tvíriti og skal annað
þeirra fylgja leyfisumsókn til bygg-
ingarnefndar, auk frekari gagna ef því
er að skipta.
Gjöld – Gatnagerðargjöld eru mis-
munandi eftir bæjar- og sveit-
arfélögum. Upplýsingar um gatna-
gerðargjöld í Reykjavík má fá hjá
borgarverkfræðingi en annars staðar
hjá byggingarfulltrúa. Að auki koma
til heimæðargjöld. Þessi gjöld ber að
greiða þannig: 1/10 innan mánaðar frá
úthlutun, síðan 30% sex mánuðum
eftir úthlutun, 30% tólf mánuðum
eftir úthlutun og loks 30% átján
mánuðum eftir úthlutun.
Framkvæmdir – Áður en unnt er
að hefjast handa um framkvæmdir
þarf framkvæmdaleyfi. Í því felst
byggingaleyfi og til að fá það þurfa
bygginganefndarteikningar að vera
samþykktar og stimplaðar og eft-
irstöðvar gatnagerðargjalds og önnur
gjöld að vera greidd.
Einnig þarf að liggja fyrir bréf um lóð-
arafhendingu, sem kemur þegar
byggingarleyfi er fengið og nauðsyn-
legum framkvæmdum sveitarfélags
er lokið, svo sem gatna- og holræsa-
framkvæmdum.
Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir stað-
setningarmæling bygginga á lóð en
þá þarf einnig byggingarleyfi að liggja
fyrir, lóðarafhending að hafa farið
fram og meistarar að hafa skrifað
upp á teikningar hjá byggingarfull-
trúa. Fylla þarf út umsókn um vinnu-
heimtaugarleyfi til rafmagnsveitu og
með þeirri umsókn þarf að fylgja
byggingarleyfi, afstöðumynd sem
fylgir byggingarnefndarteikningu og
umsókn um raforku með undirskrift
rafverktaka og húsbyggjanda.
Umsækjanda er tilkynnt hvort hann
uppfyllir skilyrði rafmagnsveitu og
staðfestir þá leyfið með því að greiða
heimtaugargjald. Fljótlega þarf að
leggja fram sökklateikningar hjá
byggingarfulltrúa og fá þær stimpl-
aðar en að því búnu geta fram-
kvæmdir við sökkla hafist. Þá þarf út-
tektir á ýmsum stigum framkvæmda
og sjá meistarar um að fá bygginga-
fulltrúa til að framkvæma þær.
Minnisblað