Morgunblaðið - 15.12.2002, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.12.2002, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 B 15 segja að mér fannst óskaplega erfitt fyrir okkur í Alþýðubandalaginu að vinna í meirihlutanum með flokki eins og Framsóknarflokknum sem skipti um skoðun eftir því hver hringdi í þá.“ Varstu sjálf góður pólitíkus? „Njaei, ég held ég hafi nú ekki verið það. Kannski ekki síst vegna þess að ég tók ekki þátt í fyrirgreiðslupólitík. Á Íslandi merkir það að vera vondur póli- tíkus.“ Fékkstu komið einhverju til leiðar sem bætti bæjarfélagið? „Jájá, heilmiklu. Umhverfismálin snerust við í Mosfellsbæ í okkar tíð. Þetta var svo mikil subbusveit lengi, með opnum malargryfjum og óstöðv- andi ofbeit og lítt aðlaðandi umhverfi fyrir útivistarfólk; því breyttum við.“ Sitt er hvað, centrum og mið … Í Stellu í framboði fá stjórnmálin nokkuð hraklega útreið; málefnafá- tæktin mikil og mannahallærið líka, og flokkarnir sem helst keppa sín í milli bera sem næst sama vörumerkið, Centrumlistinn og Miðflokkurinn, og eru þá væntanlega sama varan. Er þessi skrípaleikur í þínum huga blá- kaldur raunveruleikinn? „Fyrst og fremst er þetta auðvitað skemmtimynd fyrir Íslendinga. En að vissu leyti er raunveruleikinn svona, já. Það má ekki taka á neinum stórmálum því þá óttast flokkarnir að missa fylgi. Yfirleitt er ekki neitt á dagskrá sem skiptir máli. Í atkvæðaleitinni eru allir að reyna að vera sem næst miðju og því eru stefnuskrár vinstri-, hægri- og miðjumanna ósköp svipaðar í það heila tekið.“ Er þinni stjórnmálaþátttöku lokið? „Neinei, það verður aldrei. En mér finnst stjórnmálin, sérstaklega í svona litlum samfélögum, of oft vinna gegn hagsmunum fólks. Þegar fólk leitar til stjórnvalda með sín mál, t.d. bara að fá að byggja bílskúr, þá er byrjað að vera með kjaft og óalmennilegheit; fólkið er sett í eins erfiða aðstöðu og lög og regl- ur leyfa í stað þess að reyna að gera því allt eins auðvelt og unnt er. Ekki síst ræðst þessi afstaða í gamalgrónu emb- ættismannakerfi sem ekki haggast ár- um og áratugum saman, burtséð frá öllum pólitískum meirihlutum. Við er- um orðin ennþá verri kerfiskarlar en Svíar voru hvað þekktastir fyrir.“ Pólitískur húmor og krúttkynslóðin Það hlýtur þá að vera nauðsynlegt fyrir stjórnmálamann að hafa húmor? „Þú verður að hafa það og líka væntumþykju til fólks, sem er að reyna að koma undir sig fótunum í lífi og atvinnu, og aðstoða það til þess en ekki bregða fæti fyrir það. Vinur minn, sem býr útí Frakklandi en rekur mark- að upp í Mosfellsdal yfir sumartímann og ræktar þar salat og kál, sem er mjög vinsæl og skemmtileg starfsemi, fær ekki að halda henni áfram nema hann setji upp eldhús og sturtu og grænmet- ið sem kemur beint upp úr jörðinni þarf að fara niður á Keldur í rannsókn. Svona er þetta samfélag orðið gelt og mannfjandsamlegt.“ Hvernig finnst þér húmor íslenskra stjórnmálamanna? „Góður, svona yfirleitt. Mér finnst þeir helvíti fyndnir Guðni Ágústsson, Steingrímur J. Sigfússon, Davíð Odds- son og Össur Skarphéðinsson svo ég taki dæmi. Þeir hafa allir góðan húmor en taka allt of alvarlega þessar reglur og lög sem þeir fá send frá Brüssel.“ Síðustu árin hefur rutt sér til rúms ný tegund af húmor á Íslandi með fólki eins og Jóni Gnarr, Tvíhöfða, Fóst- bræðrum, Radíusbræðrum. Hvernig slær hann þig? „Vel, mjög vel. Samt finnst mér hann eldast illa. Hann er eintóna. Þetta er húmor krúttkynslóðarinnar.“ Hvað meinarðu með krúttkynslóð- inni? „Krúttkynslóðin er þessi sem núna er kringum þrítugt. Björk krútt og all- ar krúttlegu hljómsveitirnar með húf- urnar niðrí augum. Krúttkynslóðin tal- ar eins og börn og finnst ofsalega gaman bara eitthvað.“ Gúmmískóahúmorinn rótgróni Stendur þá þinn húmor nær Spaugstofuhúmornum, Kaffibrúsa- körlunum, Halla og Ladda? „Já, ég held það. Hann er meira gamaldags. Svona rótgróinn gúmmí- skóahúmor.“ Í Stellu í framboði sameinar þú full- trúa beggja þessara hópa eða kynslóða í leikhópnum – Eddu Björgvinsdóttur, Ladda, Gísla Rúnar Jónsson, Júlíus Brjánsson, Sigurð Sigurjónsson, Örn Árnason, Randver Þorláksson, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Helgu Brögu Jóns- dóttur, Þorstein Guðmundsson, Egg- ert Þorleifsson, Stefán Karl Stefáns- son, Stein Ármann Magnússon, svo einhver nöfn séu nefnd, auk Margrétar Danadrottningar? „Já, það eru allir þarna. Þetta eru allt svo fínir leikarar og mjög margir ungir sem eru góðir í gríninu. Það var ekki auðvelt að ná öllum þessum hópi inn, skipulagslega, en allir voru til í djókið.“ Og tökurnar í sumar gengu vel? „Já. Utan leikhópsins var Stella í framboði frumraun mjög margra, eins og tökumannsins (Hálfdán Theodórs- son), búningakonunnar (Rebekka Ingi- mundardóttir), leikmyndamannsins (Þorkell Harðarson), hljóðmannsins (Pétur Einarsson), tónskáldsins (Ragnhildur Gísladóttir), svo ég taki dæmi, þótt þau hafi öll unnið lengi í öðrum störfum í bransanum. Það var mjög spennandi að vinna með þeim því þau voru svo jákvæð og viljug til vinnu.“ Þú hefur annars vegar einbeitt þér að gamanmyndum (Stella í orlofi, Karlakórinn Hekla, Stella í framboði) og hins vegar að dramatískum mynd- um eftir sögum föður þíns, Halldórs Laxness (Kristnihald undir Jökli, Ungfrúin góða og Húsið). Hvort höfðar meira til þín? „Ég geri ekki upp á milli. Hins vegar er erfitt að reka kvikmyndafyrirtæki á Íslandi sem einbeitir sér einungis að al- varlegum, dramatískum myndum, því þær kosta yfirleitt miklu meira. Þá koma gamanmyndirnar til að borga upp skuldaslóðann eftir alvarlegu myndina. Í rauninni er þetta að öðru leyti sama vinnan, nema að sá sem stýrir gamanmynd verður að vera í góðu skapi frá morgni til kvölds.“ Af hvaða mynd ertu sjálf stoltust? „Mér þykir jafnvænt um þær all- ar…“ Stormarnir í kvikmyndaheiminum Það hafa leikið stormar um íslenska kvikmyndagerð undanfarna mánuði, ekki síst um Kvikmyndasjóð Íslands, sem um áramótin verður lagður niður og úr verður Kvikmyndamiðstöð Ís- lands. Meðal annars varð úthlutun til Stellu í framboði umdeild. Hvað finnst þér um þessar sviptingar allar? „Þetta var nú allt einskær pólitík. Í forystu fyrir svona stofnun verður að vera einhver sem veit eitthvað um kvikmyndir og fjármögnun þeirra. Þarna er heilmiklum peningum úthlut- að, sem koma reyndar aftur að tölu- verðu leyti til ríkisins, og það óhollasta sem til er ef einhverjir vinargreiðar eiga að ráða ferðinni. Mér fannst mjög illa farið með Þorfinn Ómarsson. Og ég vona bara að ekki verði settur í hans stað einhver kvikmyndagerðarmaður sem enginn nennir lengur að horfa á myndir eftir. Ég vona að þeir, sem ráða, fatti að í svona starf þarf mann sem veit hvað markaðurinn er að hugsa, veit hvernig á að fjármagna myndir, talar öll helstu tungumál sem notuð eru hér í kringum okkur, er vak- andi og flottur og ópólitískur. Þessum kröfum fullnægir hann Þorfinnur. Ég veit að kvikmyndagerðarmenn á hin- um Norðurlöndunum t.d. öfunda okkur af honum. Hann hefur staðið sig betur en nokkur annar forstöðumaður Kvik- myndasjóðs og íslenskir kvikmynda- gerðarmenn eru ákaflega ánægðir með hann og ég skil ekki afhverju er ráðist á hann og honum vikið úr starfi af því hann gleymdi einhverjum nótum í rassvasanum. Og þetta mál er enn ófrágengið. Ég hef hvergi séð afsök- unarbeiðni honum til handa. Þetta er voðalega lamandi fyrir okkar litla kvik- myndaiðnað. Við rífumst oft innbyrðis en stöndum saman sem einn maður að baki Þorfinni. Ef Vilhjálmur Egilsson hefur einhvern betri til að veita for- stöðu hvort heldur er Kvikmyndasjóði Íslands eða Kvikmyndamiðstöð Ís- lands væri fróðlegt að vita hver sá er.“ Íslenskar myndir á „broken English“? Heldurðu að breytingin yfir í Kvik- myndamiðstöðina verði til góðs? „Ég hef séð drögin að þessari nýju reglugerð og mér sýnist ýmsu þurfa að bæta við hana. Við erum eina landið sem finnst sjálfsagt að útlendingar borgi fyrir okkar kvikmyndamenn- ingu. En við verðum að búa þannig um hnútana að við getum treyst á okkar smekk og hvað við viljum gera en ekki hvað útlendingar vilja fjármagna. Ég hefði t.d. getað fengið mun meira fé í Ungfrúna góðu og Húsið ef ég hefði gert hana á ensku, en ég vildi það ekki. Við megum ekki reikna með því að út- lendingar borgi myndirnar okkar uppí 70%. Hvers konar myndir koma út úr þeirri kvörn til lengdar? Ekki íslenskar myndir, svo mikið er víst. Og stefnan er sú að ýta kvikmyndagerðarmönnum okkar í þessa átt. Viljum við að Rúrík og Bessi og Laddi tali einhverja „brok- en English“ í myndunum okkar? Ég held ekki.“ Er Stella í framboði þá algjörlega fjármögnuð á Íslandi? „Já, og það gekk tiltölulega vel. Við töluðum við fjárfestingarfyrirtæki sem fann aðila sem vildi setja pening í hana, og svo fengum við þennan umdeilda styrk frá Kvikmyndasjóði. Samtals kostar myndin í kringum hundrað milljónir. Ég er mjög ánægð með að þetta tókst svona, en býst við að erf- iðara yrði að fjármagna dramatíska mynd með sama hætti.“ Og hvað svo? Stella III? „Ekkert endilega. Ég þarf að hugsa minn gang. Það er ekki einfalt að hugsa um framtíð sína sem kvik- myndaleikstjóri á Íslandi. Ég býst við að þurfa að vinna meira fyrir aðra og vil gera fleiri heimildarmyndir. En auðvitað er ég líka með hugmyndir að leiknum bíómyndum, um eitthvað sem mig langar til að gera upp í lífinu. Þar sækja hippaárin að mér núna.“ Salomon Gustavsson, skipulagsfræðingur hjá Framkomu.is, rís upp við dogg eftir erfiða nótt: Þórhallur Sigurðsson í hlutverki sínu. Útivistarparadís Antons Skúlasonar flugstjóra: Verður að útibrennu. Táp og fjör: Lionsklúbburinn Kiddi á ferð. Stella í framboði: Skvísa úr sjónvarpinu á allan séns. Stellu? Manst’ ekki eftir mér? Salomon syngur á leiðinni í „risaverkefnið“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.