Morgunblaðið - 15.12.2002, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 B 19
ÞAÐ er töluvert um vín frá Bordeaux á sér-listanum, mörg þessara vína eru ekkertsérstök, sum eru alveg ágæt og nokkureru virkilega góð. Góð Bordeaux-vín eru
ekki ódýr en þau standa vel undir verði. Best er að
kaupa vín frá traustu víngerðarhúsi og góðum ár-
gangi. Flestir þeir árgangar sem nú eru í umferð
eru ágætir og í raun eru einu árgangarnir sem þið
ættuð að varast frá síðasta áratug árin 1991 og
1992 en þá voru aðstæður í Bordeaux ekki upp á
marga fiska. Auðvitað voru framleidd góð vín inni
á milli en flest voru þau fremur þunn. Sömuleiðis
var árið 1994 ekkert sérstakt. Öll árin þar á eftir
hafa hins vegar verið góð. Chateau les Ormes de
Pez (2.790 kr.) er vín frá nyrsta bænum í Médoc,
St. Estephe sem klikkar aldrei. Nú er árgang-
urinn 1997 í sölu, sem var ágætur í Médoc, ekki
árgangur til að geyma lengi, þetta vín er fínt til
neyslu núna eða næstu fimm árin eða svo. Kaffi,
tóbak og sedrusviður í nefi, þægilegur ilmur, vínið
þægilegt og allt að því tilbúið. Frá Pessac-
Léognan, suður af Bordeaux, kemur vínið Chat-
eau Larrivet-Haut-Brion (3.580 kr.). Þetta er eitt
af fáum góðum vínum sem hægt er að fá frá hinum
afskaplega góða árgangi 1996. Appelsínubörkur
og kaffi, ávöxtur farinn að þorna aðeins í munni.
Þarf varla að geyma mikið lengur.
Ástralir framleiða mörg góð vín, mjög frá-
brugðin þeim evrópsku enda veðurfar jafnt sem
víngerðarmenning gjörólík. Áströlunum tekst
ekki hvað síst vel upp með frönsku þrúgurnar
Shiraz (Syrah) og Cabernet Sauvignon þegar
rauðvín eru annars vegar.
Meðal mjög góðra Shiraz-vína sem í boði eru
má nefna Orlando-Wyndham Bin 555 (1.490 kr.).
Sæt eik og hindberjasulta, súkkulaði, mikið vín.
Frá Penfold’s kemur Kalimna Bin 28 Shiraz 1998
(2.330 kr.). Þykk amerísk eik tekur á móti, mjúk
berjaangan, vínið enn ungt og tannískt en mýkist
um leið og það er drukkið með mat. Fínt nú en
mun batna enn frekar á 2–3 árum. Peter Leh-
mann, baróninn frá Barossa, framleiðir magnaðan
Shiraz sem heitir Stonewell og er 1995 árgang-
urinn nú í sölu (3.490 kr.). Dökkt, vanillusykur og
berjasulta, feitt og gífurlega stórt og bragðmikið í
munni. Lehmann framleiðir einnig undursamlegt
vín sem heitir Mentor (3.090 kr.) og er framleitt
úr þrúgunum Cabernet Sauvignon, Merlot, Mal-
bec og Shiraz. Það er mjúkt, heitt og bragðmikið
og Cabernet og Shiraz-þrúgurnar renna þarna
saman á stórkostlegan hátt. Algjört konfekt. Ef
menn kjósa hreinræktaða Bordeaux-blöndu er
Lindeman’s vínið Pyrus (2.970 kr) góður kostur.
Plómusulta, mikil vanilla, stórt og mikið vín með
mikilli fágun. Og ef það er hreinn Cabernet sem
heillar gerast þau áströlsku ekki mikið betri en
Wynn’s John Riddoch (4.890 kr.).
Annar stórkostlegur Cabernet Sauvignon er
hið kaliforníska Joseph Phelps 1998 (4.640 kr.) frá
Napa-dalnum.
Fyrir þá sem eru til í ævintýri er Chateau Mus-
ar 1995 (2.690 kr.) frá Beeka-dalnum í Líbanon
spennandi kostur. Þetta er vín sem fyrir löngu er
búið að vinna sér tryggan sess áhangenda í vín-
heiminum. Farið að sýna þroska í lit, olía, sultaður
sætur rabarbari í nefi í bland við fjósalykt, svolítið
villt, stórt og flott. Í raun vín sem á sér engan sinn
líka. Vín sem maður annaðhvort elskar eða hatar,
það er ekki hægt að vera hlutlaus. Ódýrari og
minni útgáfa frá Serge Hochar er Hochar 1998
(1.690 kr.). Krydd og hesthús, sýnir töluverðan
þroska í lit og bragði, sýrumikið og feitt. Ekki síð-
ur forvitnilegt vín.
Musar hefur stundum verði líkt við vínin frá
Rón þótt ég sé því ekki alveg sammála. Þau
standa þó alltaf fyrir sínu. Toppframleiðandi sem
er „nýr á lista“ er Louis Bernard. Vínið Chateau-
neuf du Pape 1999 (2.620 kr.) er góður kostur.
Ilmur þungur og djúpur, kryddaður ávöxtur undir
niðri, sviðinn eik, tannín og öflugur ávöxtur í
munni, skemmtilega stórt og mikið. Lakkrís áber-
andi, sólþurrkuð ber í lokin. Enn betra er Hermi-
tage 1998 (3.870 kr.) Leður og fjós, kirsuber og
krydd, virkilega opið og aðgengilegt í nefi, sem
munni, tannínin ekki of gróf.
Hvað hvítvín varðar eru einnig nokkrir mjög
góðir kostir á sérlistanum. Elsass hefur lengi ver-
ið í uppáhaldi og nýjung á árinu eru stórvínin frá
Domaine Weinbach. Til dæmis Riesling Grand
Cru Schlossberg Cuvée Ste Catherine 1999 (3.400
kr.) Mikill sætur og framandi ávöxtur, fágað og
fínlegt í munni, þurrt, með löngu steinefnakenndu
bragði.
Gewurztraminer Cuvée Laurence 2000 (3.750
kr.) er annað dúndur hvítvín, sætur blóma og
kryddilmur, mildur og fágaður. Þurrt og sætt í
senn, með löngu arómatísku bragði, blóm og ilm-
jurtir í fyrirúmi. Gengur með nánast öllu, þetta
vín er svo gott.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Vín á sérlista.
Vín
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
Vín vikunnar
matur@mbl.is
Lesendur eru hvattir til að senda
sælkerum hugmyndir, at-
hugasemdir eða ábendingar. Um
getur verið að ræða ábendingar
um áhugavert efni, atburði eða
uppákomur, stuttar sögur tengd-
ar efninu eða þá óskir um að eitt-
hvað sérstakt verði tekið fyrir. Ef
efni er sent með ósk um birtingu
áskilur Morgunblaðið sér rétt til
að velja og hafna, stytta og
breyta. Netfang sælkerasíðunnar
er matur@mbl.is.
LÍTIL kökumót úr áli eru notuð undir
flotkerti og sett við hvert glas, einnig
má þeim raða eftir endilöngu borðinu
og fá þannig röð af ljósum, notið hug-
myndaflugið. Ofan á vatninu fljóta
einnig granateplafræ og greninálar.
Grenigreinum og rauðri rós hefur
verið snúið utan um hnífapörin með
vír (sætt ef á endum hans eru litlar
gylltar eða rauðar kúlur).
Lítill gullmálaður gifsengill hangir
utan á glasi hvers og eins. Auðvelt er
að búa sér til litla gifsmuni með þar til-
gerðum mótum sem fást í fönd-
urverslunum og mála svo t.d. gyllta.
Festið einn enda snúru í gifsmótið
þegar engillinn er steyptur, þannig má
fest hinn endann við það sem verkast
vill til skrauts.
Hugmynd að borð-
skreytingu um jólin
Sálmar í gleði!
Geisladiskur með 27 lofgjörðarsálmum úr
Sálmabókinni í flutningi Schola cantorum undir stjórn
Harðar Áskelssonar.
Lofsyngið Drottni
Dýrlegi Jesús
Víst ertu Jesús, kóngur klár
Lofið vorn Drottin
Þú, mikli Guð
Guð faðir, himnum hærri
Sé Drottni lof og dýrð
Mikli Drottinn
Ég á mér hirði
Ég veit um himins björtu borg
Nú gjaldi Guði þökk
Stjörnur og sól
Syngið Drottni sól og máni
Nú skrúða grænum
Leið mig, Guð
Lofa, sál mín, lofa Drottin
Lof sé þér, Guð
Upp, skapað allt
Dag í senn
Þú ert Guð sem gefur lífið
Ó, Guð, ég veit hvað ég vil
Fögur er foldin
Englar hæstir
Ó, ást, sem faðmar allt!
Þér lof vil ég ljóða
Drottinn, ó, Drottinn vor
Son Guðs ertu með sanniLaugavegi 31, sími: 552 1090
Sálmar í gleði fást í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31,
stórmörkuðum og í öllum helstu
hljómplötuverslunum um allt land
Í
P
O
K
A
H
O
R
N
IN
U