Morgunblaðið - 15.12.2002, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 B 21
ferðalög
Rússland
Tvær ferðir á næsta ári
Ferðaskrifstofan Bjarmaland
skipuleggur tvær ferðir til Rúss-
lands næsta sumar. Flogið verður
til Moskvu og höfuðborg landsins
skoðuð. Þaðan verður farið með
járnbrautarlest til St. Pétursborgar
þar sem mönnum gefst kostur á að
kynnast borginni við Finnskaflóa.
Ferðirnar verða tveggja vikna lang-
ar og í fréttatilkynningu frá
Bjarmalandi kemur fram að lögð sé
áhersla á sögu Rússaveldis, auk
menningar og lista.
Aðalfararstjóri er Haukur Hauks-
son sem í mörg ár hefur dvalið í
Rússlandi og nágrannalöndum, og
er því flestum hnútum kunnugur
þar um slóðir. Rússland er fornt
menningarríki, frægt fyrir ballett
og tónlist, bókmenntir og kirkjulist.
Margt er þar að skoða: vetrarhöll
keisaranna – sem nú hýsir Hermi-
tage-listasafnið, Péturs- og Páls-
virkið þar sem keisararnir eru
grafnir, Kreml, Rauða torgið, graf-
hýsi Lenins, Novodevitsi (meyjar-)
klaustrið og prúttmarkaðinn Izmai-
lovo. Siglt verður eftir Moskvuánni
og Ostankino-sjónvarpsturninn
sem er 540 m á hæð skoðaður. Far-
ið verður í sveitaferð til klaust-
urborgarinnar þekktu Sergeiev
Posad sem áður hér Zagorsk.
Nánari upplýsingar eru á
www.austur.com eða hjá að-
alfararstjóra Hauki Haukssyni í
síma: 848 44 29 Sendið fyr-
irspurnir á: bjarmaland@strik.is
ÞÝSKALAND hefur um árin dreg-
ið til sín ferðamenn og af samtals
skráðum 327 milljón gistinóttum
árið 2001, eiga Þjóðverjar sjálfir
289 og útlendingar 38. Af erlendum
ferðamönnum í Þýskalandi, eru
Hollendingar jafnan fjölmennastir,
en þeir voru skráðir fyrir 5,5 millj-
ónum gistinátta í fyrra. Í öðru sæti
eru Bandaríkjamenn og í því þriðja
eru Bretar. Norðurlandabúar voru
í fyrra skráðir fyrir um 3,5 millj-
ónum gistinótta, þar af notuðu Ís-
lendingar rúmlega 47 þúsund gisti-
nætur. Árið 1990 voru Íslendingar
skráðir fyrir 80 þúsund gistinótt-
um og fimm árum síðar hafði hlut-
fallið farið niður í 25 þúsund.
„Mitt markmið er að hækka
hlutfallið hjá Íslendingum upp í 80
þúsund gistinætur á ný áður en ég
fer á eftirlaun eftir þrjú ár,“ segir
Íslandsvinurinn Knut Haenschke,
forstöðumaður Ferðamálaráðs
Þýskalands á Norðurlöndunum og í
Eystrasaltslöndunum. „Ég geri
mér hinsvegar grein fyrir því að
ferðaframboðið er allt annað og
meira en það var fyrir tólf árum.
Frankfurt keppir ekki við Miðjarð-
arhafssólina eða borgir á við Lond-
on, París og Kaupmannahöfn, en
hún er fullkominn fyrsti viðkomu-
staður inn í miðja Evrópu og ekki
þarf að ferðast langt út frá borg-
inni þangað til komið er til staða
eins og Würzburg, Heidelberg,
Freiburg, Stuttgart og fjölda bæja
sem sérhæfa sig í heilsulindum.
Farþegar Flugleiða geta nú keypt
lestarmiða til hvaða áfangastaðar
sem er innan Þýskalands um leið
og flugmiðinn er keyptur og því er
hægt að halda áfram för með lest-
um beint frá flugstöðinni.
Í fyrrahaust kynntu þýsk ferða-
málayfirvöld í samvinnu við Flug-
leiðir borgarferðir til Stuttgart,
München og Kaiserslautern þar
sem fólk gat blandað saman versl-
un, menningu og knattspyrnu und-
ir fararstjórn fjögurra kunnra ís-
lenskra knattspyrnumanna, sem
allir hafa leikið í þýsku deildinni,
en eftir voðaatburðina í New York
11. september sl. og efnahagsnið-
ursveiflu á Íslandi, var ákveðið að
fresta þessum fyrirætlunum þar
tilsíðar.
Heilsuferðir með menningarívafi
Auk þess eru uppi hugmyndir
um að bjóða upp á heilsuferðir í
heilsulindir með verslunar- og
menningarívafi, bjór- og vínsmökk-
unarferðum. „Ég sé fyrir mér að
með því að blanda þessu tvennu
saman, væru slíkar borgarferðir
sniðnar fyrir bæði kynin. Á meðan
karlinn fer á völlinn, fer konan á
snyrtistofuna og lætur dúlla við
sig. Saman geta pörin svo notið
menningar, verslunar, veitinga-
staða og vínsmökkunar,“ segir
Knut.
Knut, sem nú er 58 ára að aldri,
hefur starfað allan sinn starfsaldur
við ferðaþjónustu, en frá 1986 hjá
þýska ferðamálaráðinu. Aðsetur
hans er nú í Kaupmannahöfn, en
hefur áður verið í Amsterdam og
New York. Þegar þýski ferðamála-
frömuðurinn er inntur eftir því
hvers vegna hann láti ekki bara ís-
lenska markaðinn eiga sig í ljósi
þess hve fámennur hann er, svarar
hann því til að líklega megi rekja
það til persónulegrar væntum-
þykju til lands og þjóðar.
Íslendingar og Þjóðverjar
um margt líkir
„Á meðan Ísland tilheyrir mínu
sölusvæði, finnst mér mjög eðlilegt
að sækja Ísland heim einu sinni til
tvisvar á ári og heilsa upp á ís-
lenska ferðaþjónustuaðila. Íslend-
ingar og Þjóðverjar eru um margt
mjög líkir og alltaf má ná betri ár-
angri með því að vinna betur“, seg-
ir Knut sem reiknast til að Íslands-
ferðirnar séu orðnar yfir 50 talsins.
„Ég veðja hinsvegar á Eystrasalts-
löndin þrjú, þar sem íbúar eru um
sjö milljónir, sem vaxandi framtíð-
armarkað. Þar er fólk að sjá pen-
inga í fyrsta skipti og er nú mjög
tilbúið að fara að njóta lífsins.“
Borgarferðir fyrir bæði kyn
Morgunblaðið/Ómar
Kastalinn í Nürnberg í Suður-Þýskalandi.Knut Haenschke
Húfur - um jólin
Brekka húfur frá 1.290 kr.
Brekka vettlingar frá 1.490 kr.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1550 og 545 1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
94
42
12
/2
00
2
Um jól og/eða áramót!
Notalegt, látlaust og náttúrulegt hátíðarhald um jól og/eða áramót
í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp í friðsæld og gefandi stemmningu
sem skapast við sérstakar aðstæður.
Veljið íslenskt
Ferðaþjónustan Reykjanesi við Ísafjarðardjúp,
sími 456 4844 - rnes@rnes.is