Morgunblaðið - 15.12.2002, Qupperneq 22
22 B SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
„ÞAÐ er ekki síst fjölþjóðlegt and-
rúmsloftið í borginni sem heillar
mig,“ segir Bryndís Hólm sem ný-
lega skrapp í frí til Miami á Flór-
ída ásamt vinkonu sinni Kolbrúnu
Sævarsdóttur. „Ég var sannfærð
um að Miami væri skemmtileg
borg að heimsækja ekki síst vegna
þess að ég hafði lesið margt spenn-
andi um borgina og heyrt vel af
henni látið. Auk þess hafði ég horft
á nokkrar kvikmyndir þar sem
heillandi senur voru teknar í borg-
inni eins og til dæmis í Birdcage og
Something about Mary.“ Bryndís
segir að það hafi verið frábært að
fara í tíu daga ferð til Miami. Flug-
leiðir fljúga tvisvar í viku til Or-
lando á Flórída og þær hafi pantað
hótel á Miami og leigt sér bíl í viku
í gegnum flugfélagið. Þær voru
fjóra tíma að aka frá Orlando til
Miami. „Það er auðratað á þessum
slóðum og í rauninni bein braut frá
Orlando til Miami og varla hægt að
villast.“
Stóð borgin undir væntingum?
„Já, hún er yndisleg. Ég hef far-
ið víða, bæði um Bandaríkin og
Evrópu, en þetta er skemmtileg-
asti staður sem ég hef komið til.
Borgin er lífleg, litrík og mannlífið
fjölbreytilegt en Miami er undir
sterkum áhrifum frá Karíba-hafinu
og Suður-Ameríku.“ Bryndís segir
að hótelið hafi verið við ströndina
en þegar þær voru ekki að sleikja
sólina hafi þær verið duglegar að
ganga um borgina.
Art Deco-hverfið heimsótt
„Miami skiptist niður í mörg
skemmtileg hverfi sem við vorum
duglegar að þræða og skoða.
Uppúr stendur Art Deco-hverfið
en í því er hin fræga gata Ocean
drive þar sem öll hótel og veitinga-
hús eru í pastellitum og neonskilti
áberandi.“ Hún segir að á Ocean
drive leggi frægt fólk leið sína til
að sýna sig og sjá aðra og þangað
sæki líka þeir sem eru að reyna að
komast áfram í leiklistar- eða tón-
listarheiminum.
„Það var mjög sérstakt að koma
á þessa götu og fylgjast með mann-
lífinu og líflegu andrúmsloftinu því
lífsgleðin er svo mikil og fólk hálf-
vegis dansar eftir götunni.“ Það er
um að gera að nýta sér ferðaþjón-
ustuna í borginni en boðið er upp
skipulagðar ferðir um hin ýmsu
hverfi.
Þar sem stjörnurnar búa
Stöllurnar fóru t.d. í siglingu í
kringum Miami en að sögn Bryn-
dísar eru allskyns skoðunar- og
skemmtiferðir í boði á sjó enda
mikil snekkju- og bátamenning í
borginni.
„Við sigldum í kringum Miami
og framhjá eyjunni Star Island.
Þar búa bandarísku stjörnurnar,
leikarar, tónlistarfólk og þeir sem
hafa efnast ríkulega í viðskiptum.
Húsin eru í spænskum stíl, þetta
eru miklar villur sem kosta gjarn-
an á bilinu einn og hálfan til tvo
íslenska milljarða. Meðal hús-
eiganda á Star Island eru Madonna
og Sylvester Stallone.
Þegar siglt er framhjá eyjunni
sést miðborg Miami í bakgrunni
með sínum háhýsum og andstæð-
urnar eru sláandi, ríkulegar vill-
urnar og háhýsin.“ Þegar Bryndís
er spurð hvort kíkt hafi verið í búð-
ir segir hún að það sé ekki annað
hægt í Miami því þarna séu versl-
Uppáhaldsborgin hennar er Miami á Flórída
Eitt af glæsihúsunum sem eru á Star Island en meðal
íbúa á eyjunni eru Madonna og Sylvester Stallone.
Bryndís Hólm ásamt vinkonu sinni, Kolbrúnu Sævarsdóttur,
á News Café á Ocean Drive á Miami á Flórída.
Gestir þurfa að vera í að minnsta kosti 2 metra fjarlægð frá krókódílunum.
Fólk nánast
dansaði eftir
götunni
Eftir að hafa séð nokkrar heillandi senur í kvikmyndum
þar sem Miami kom við sögu ákvað Bryndís Hólm að
skella sér þangað í frí. Hún varð ekki fyrir vonbrigðum.
N
OKKRUM dögum fyrir jól ætlar Elín Birna Krist-
insdóttir að fara til Kanaríeyja ásamt eiginmanni
sínum Ólafi Péturssyni og börnunum þeirra sem eru fjögur.
„Við fórum í fyrravetur til Kanaríeyja og loftslagið
átti mjög vel við okkur. Vinnu okkar vegna eigum
við erfitt með að taka frí á sumrin og það er erfitt að vera að
taka börnin úr skóla til að fara í frí. Þess vegna ákváðum við
að fara um jólin. Við verðum í tvær vikur og börnin þurfa ekki
að taka frí í skólanum.“ Elín Birna segir að þau hafi keypt flug
hjá Úrvali-Útsýn og leitað sjálf að gistingu á Netinu.
Kom það betur út en að kaupa pakkaferð?
„Það var ekki ástæðan heldur einfaldlega að ferðaskrifstofur
hér heima sem við leituðum til gátu ekki útvegað íbúð fyrir
okkur sex sem okkur líkaði.Við förum ekki mikið út á kvöldin
með börnin og viljum njóta þess að vera í rólegheitum með
krakkana, spila saman, grilla og hafa það notalegt. Því skiptir
miklu máli að hafa huggulega og rúmgóða íbúð sem okkur líð-
ur vel í.“
Funduð þið góða íbúð á Netinu?
„Í fyrra leituðum við á Netinu að íbúð og þá vorum við mjög
heppin. Við lentum á fimm stjörnu hóteli sem stóð alveg und-
ir þeirri stjörnugjöf. Þetta var hótel eins og maður sér í bíó-
myndum, stór og flott móttaka þar sem allt var klætt marm-
ara, upphitaðar laugar við hótelið, heitur pottur, rennibraut
fyrir krakkana og gestir þurftu ekki að berjast um sólbekki
eins og víða þekkist. Íbúðin okkar var á jarðhæð, hún var loft-
kæld, við fengum ný handklæði á hverjum degi, þvotturinn
var þveginn fyrir okkur og þrifið alla daga. Baðherbergin voru
marmaraklædd með nuddbaðkari.
Í íbúðinni voru tvö sjónvarpstæki, huggulegur garður fylgdi
henni með garðhúsgögnum og legubekkjum. Hótleið bauðst
til að sækja fólk á flugvöllinn og fara með það í lok dvalar. Eini
gallinn sem við sáum á þessari gistingu var að við máttum
ekki grilla.“
En hvað kostaði vika á svona hóteli fyrir fjölskylduna?
„Við borguðum hundrað þúsund krónur fyrir vikuna.“
Verðið þið á sama hóteli?
„Nei við vorum frekar sein að panta í ágúst því íbúðagisting á
Kanaríeyjum var meira og minna upppöntuð um jólin.
Við fundum samt hótel í sama hverfi og síðast, en hverfið er
nýlegt og heitir Maspalomas Sonnenland. Þetta er nýlegt hót-
el samkvæmt þeim upplýsingum sem við höfum aflað okkur.
Það er með upphituðum laugum, nuddpotti og við fáum íbúð
á jarðhæð. Að þessu sinni borgum við um 70.000 krónur fyr-
ir vikuna, þ.e. fyrir okkur sex.“
Hvernig ætlið þið að halda upp á jólin á Kanaríeyjum?
„Við ætlum að minnsta kosti að hafa með okkur humar að
heiman og ef íbúðinni fylgir góður ofn ætlum við að kaupa
kalkún úti og elda eins og við erum vön að gera hér heima. Ef
ofninn er lélegur grillum við bara.
Við ætlum ekki að taka jólapakkana með okkur, krakkarnir fá
peninga og nú verður farið í búðaráp á Kanarí, sem er nýtt
fyrir þeim, því venjulega sniðgöngum við búðir á ferðalögum
okkar.“ Elín Birna segir að venjulega fari fjölskyldan í kirkju á
aðfangadagskvöld og þau ætla að athuga hvort ekki sé
messa í einhverri kirkju á Kanaríeyjum.
Verður annað en humar í ferðatöskunum sem minnir á
jólin heima?
„Við ætlum að taka með okkur lítið gervijólatré og jólaseríur
og playstation-tölvuna fyrir krakkana.“
Hafið þið farið víða um eyjarnar?
„Nei. Við reynum sem mest að hafa það rólegt og slaka á
með börnunum, lesa, spila, fara í göngutúra og hafa það
notalegt saman.
Við tókum bíl í þrjá daga síðast og fórum þá t.d í Sioux city,
sem er kúrekaþorp. Þar eru kúrekar og indíánar og ýmsar
uppákomur sem tengjast þeim, bankarán sett á svip, bardag-
ar og svo framvegis. Við heimsóttum líka vatnsleikjagarð og
krakkarnir kunnu vel að meta það.“
Borða jólahumarinn á Kanaríeyjum
Það verður lítið jólatré í ferðatöskunni hennar Elínar Birnu Kristinsdóttur, jólaseríur og playstation-tölva. Fjölskyldan ætlar að eyða jólunum á Kanaríeyjum.
Elín Birna ásamt eiginmanninum Ólafi Péturssyni og Elínu
Ósk. Baðslopparnir fylgdu íbúðinni.
Fjölskyldan fór einnig í fyrravetur til Kanaríeyja. Hér eru
börnin Anna Margrét, Eyþór Ingi, Elín Ósk og Valberg Snær.
Elín Birna segir að fjölskyldan kunni að meta að vera í rólegheitum,
spila, lesa og fara í göngutúra eftir ströndinni.
Hvert ertu að fara?
Slóðir sem nýtast áhugasömum: http://www.palm-
oasis.com/
5 stjörnu sem Elín Birna og fjölskylda var á í
fyrra:
www.jp-holidays.com.
Tölvupóstfang: res@jp-holidays.com