Morgunblaðið - 15.12.2002, Side 23
anamiðstöðvar á hverju strái og
víða hægt að gera góð kaup.
„En það er ekki alls staðar ódýrt
og þarna eru mjög dýrar og flottar
verslanir fyrir þá sem kjósa að
kaupa þekktar merkjavörur. Það
er líka einstaklega gaman að fara
til Coconut Grove að versla, en það
er sjarmerandi lítill miðbær í út-
hverfi Miami með skemmtilegum
göngugötum.“
Hefur Miami sérstöðu í matar-
gerð?
„Maturinn er engu líkur á Miami
því borgin er leiðandi í nýjungum í
matargerð. Mikilla áhrifa gætir frá
Karíba-hafinu, Suður-Ameríku og
sérstaklega frá Kúbu. Þeir sem eru
áhugasamir um slíka matargerð
ættu endilega að fara í hverfið litlu
Havana. Þar eru veitingastaðir á
hverju strái, þeir eru ódýrir en
maturinn frábær.“ Bryndís segir
að þrír staðir standi uppúr eftir
ferðina. „Á lúxushótelinu Delano á
Miami er veitingastaður sem okkur
fannst einstakur. Hann heitir Blue
Door og þar er verðið svipað og á
flottustu veitingastöðum á Íslandi.
Þar er hægt að fá steikur, kjúkling
og fiskrétti en hótelið hefur getið
sér gott orð fyrir sjávarrétti. Þetta
er rómantískur og huggulegur
staður.
China grill er skemmtilegur veit-
ingastaður. Það má eiginlega segja
að þetta sé stemmningsstaður.
Tónlistin yfirgnæfir allt og fólk
byrjar á því að fara á barinn og
þar dansa barþjónarnir eiginlega.
Yfirleitt er mikið að gera og aust-
urlenskur matur í boði í bland við
allskonar annarskonar matargerð,
sushi, rétti frá Miami og svo fram-
vegis.
Þriðji staðurinn er News café
sem er frægur staður á Ocean
drive í Art Deco-hverfinu. Sá stað-
ur öðlaðist frægð eftir að Gianni
Versace var myrtur. Heimili hans
er stutt frá veitingahúsinu og hann
var nýkominn úr morgunkaffi af
þessu veitinghúsi þegar hann var
skotinn til bana. Á News café fá
gestir gott kaffi og léttan mat, eins
og samlokur og salöt. Það sem ger-
ir staðinn sérstaklega aðlaðandi er
staðsetningin en hann er á þessari
vinsælu götu við ströndina og út-
sýnið frábært.“ Bryndís segir að
áhugafólk um byggingarlist njóti
hverrar mínútu í borginni. „Miami
er ekki hefðbundin bandarísk borg
þegar byggingarstíll er annarsveg-
ar.
Þarna ægir öllu saman, háhýsa-
menningu, spænskum húsum og
klassískum bandarískum bygging-
um.“
Krókódílarnir meinlausir
Bryndís og Kolbrún lögðu líka
leið sína í Everglades-þjóðgarðinn.
„Hann hefur upp á margt að
bjóða, fjölskrúðugt dýralíf og villta
náttúru.
Everglades er gífurlega stór
þjóðgarður og þar er t.d. hægt að
sigla um síkin og taka reiðhjól á
leigu og skoða hluta garðsins þann-
ig.
Þarna búa ýmsar dýrategundir
sem eru í útrýmingarhættu og okk-
ur Íslendingunum þótti áhugavert
að sjá krókódílana sem eru í síkj-
unum víða um garðinn og eru að
sögn starfsfólks garðsins alveg
meinlausir.“
Bryndís segir að lokum að Miami
sé tvímælalaust borg sem hægt sé
að mæla með að heimsækja.
Þessi mynd er að sögn Bryndísar einkennandi fyrir Miami.
Athyglisverðar slóðir sem
nýtast vel þegar skipuleggja á
frí til Miami: www. see-
southflorida.com og www.see-
miami.com
Slóð þjóðgarðsins er: www.-
everglades.com
Bryndís segir að Ocean Drive sé mjög skemmtileg gata við ströndina.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 B 23
ferðalög
/T
ei
kn
in
g:
H
al
ld
ór
Ba
ld
ur
ss
on
Se
nn
ko
ma jólin
Njóttu aðventun
nar
í m
iðb
æn
um
Opinn í dag frá 13.00 – 22.00.
Kerti, jólaskraut, hlæjandi húfur,
ljúffengar heimagerðar sultur
og margt fleira.
Jólamarka›urinn
á Lækjartorgi
Dagskrá á
Jólamarka›num
14.00: Bjarni Karlsson prestur í
Laugarneskirkju flytur
hugleiðingu og
tónlistarmennirnir
Tómas R. Einarsson,
Gunnar Gunnarsson
og Þorvaldur Þorvaldsson
flytja fallega jólasálma
15.00: Hljómsveitin Santiago
leikur lög af nýútkomnum
geisladisk sínum Girl
20.00: Eyjólfur Krisjtánsson leikur
og syngur fyrir markaðsgesti
Dagskrá í
Hressingarskálanum
15.00: Barnastund
16.00: Guðrún Helgadóttir
les upp úr nýútkominni
bók sinni Öðruvísi dagar
16.30: Danssýning í garðinum
17.00: Léttir söngvar