Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 26
Rappari reynir fyrir
sér í jólamyndagerð
Friday After Next
með Ice Cube
frumsýnd hér-
lendis um helgina
MJÖG margar álitlegar kvikmyndir
eru meðal þeirra 54 sem keppa um
Óskarsverðlaunin sem besta er-
lenda myndin en bandaríska kvik-
myndaakademían hefur nú birt
lista yfir gild framlög. Hafið eftir
Baltasar Kormák er íslenska fram-
lagið en allar hinar myndirnar eru
enn ósýndar hérlendis.
Meðal þeirra sem taldar eru eiga
góða möguleika eru 8 konur eftir
Frakkann Francois Ozon, Hetja
eftir Zhang Yimou frá Kína, Gosi
eftir Roberto Benigni frá Ítalíu sem
áður hefur hreppt verðlaunin fyrir
Lífið er dásamlegt, Hús flónanna
eftir Rússann Andrei Konchal-
ovsky, Bollywoodmyndin Devdas
eftir Sanjay Leela Bhansali, mexí-
kanska myndin Glæpur föður Am-
aro eftir Carlos Carrera, ísraelska
myndin Brotnir vængir eftir Nir
Bergman, Út eftir Japanann Hid-
eyuki Hirayama, Elddansarinn eft-
ir Jawed Wassel frá Afganistan, svo
einhverjar séu nefndar.
Norrænu framlögin eru, auk
Hafsins, Elska þig að eilífu eftir
Susanne Bier frá Danmörku, Mað-
ur án fortíðar eftir Aki Kaurismäki
frá Finnlandi, Þjófurinn, þjófurinn
eftir Trygve Allister Diesen frá
Noregi og Lilja 4-Ever eftir Lukas
Moodysson. Einkum þykja myndir
Kaurismäkis og Moodyssons sterk-
ar en teljast trúlega of djarfar í
efnistökum fyrir akademíuna. Val
hennar er hins vegar eins óútreikn-
anlegt og jafnan áður en tilkynnt
verður um myndirnar fimm sem fá
tilnefningar til Óskarsverðlaunanna
í febrúar.
Hörð keppni um óskarstilnefningar
fyrir bestu erlendu myndina 2002
Reuters
No Man’s Land: Í fyrra vann þessi bosníska stríðsádeila Ósk-
arsverðlaunin sem besta erlenda myndin.
NÚ þykir líklegt að leikkonan Drew Barrymore
komi til liðs við Adam Sandler í rómantísku gam-
anmyndinni 50 First Kisses, sem gerð verður á
næsta ári og fjallar um mann sem verður ástfanginn
af minnislausri konu og þarf því að endurnýja tilfinn-
ingar hennar reglulega. Þau Barrymore og Sandler
slógu saman í gegn fyrir fjórum árum með The Wedd-
ing Singer, sem blés nýju lífi í feril þeirrabeggja.
Barrymore til liðs við Sandler á ný
Saman á ný: Sandler og Barrymore í The Wedd-
ing Singer.
LEIKARINN Jon Favreu
gerist æ umsvifameiri sem
leikstjóri en hann er að hefj-
ast handa við gamanmynd
með Will Ferrell (Saturday
Night Live) í aðalhlutverki.
Myndin heitir Elf og fer
Ferrell þar með hlutverk
manns sem frá blautu
barnsbeini elst upp hjá álf-
um á norðurpólnum. Þegar
hann veldur óafvitandi
fjaðrafoki í álfabyggðinni er
hann sendur til New York til
að kynnast blóðföður sín-
um, sem James Caan leik-
ur. Auðvitað veldur hann
ekki minna fjaðrafoki í stórborginni en hjá álfunum.
Meðal annarra leikara í þessari gáfulegu sögu eru
Mary Steenburgen, Bob Newhart og Ed Asner.
Álfaleg saga hjá Favreu
Will Ferrell: Álfur út
úr hól í New York.
EFTIR mörg mögur ár
hefur leikferill Dennis
Quaid heldur betur tekið
fjörkipp og gengi hans hef-
ur hækkað til muna í Holly-
wood. Þar ræður trúlega
mestu velgengni mynd-
arinnar The Rookie. Leik-
stjóri hennar, John Lee
Hancock, hefur nú ráðið
Quaid í annað aðal-
hlutverkanna í næstu mynd sinni The Alamo, sem
fjallar um hina sögufrægu orustu um samnefnt virki
og eftirleik hennar. Hitt aðalhlutverkið leikur Billy
Bob Thornton. Næstu myndir Dennis Quaids eru
Far From Heaven, Cold Creek Manor og The Day
After Tomorrow.
Quaid á fleygiferð
Dennis Quaid: Loks-
ins á uppleið.
Í NÆSTA mánuði hefjast tökur í London á nýrri
mynd breska leikstjórans Michaels Winterbottom
(24 Hour Party
People, Jude).
Hún heitir Code
46 og er eins
konar ástarsaga
úr framtíðinni þar
sem ástarsam-
band karls og
konu kemst í upp-
nám þegar á daginn kemur að konan var klónuð úr
erfðaefni frá móður elskhuga síns og minnir við-
fangsefnið nokkuð á þýsku myndina Blueprint sem
Hilmir Snær Guðnason leikur í ásamt Frönku Pot-
ente. Í aðalhlutverkunum eru Tim Robbins og
Samantha Morton.
Hæpnar ástir Robbins og Mortons
Tim Robbins: Klónuð ástkona.
HANN lagði ekki út á leiklist-arbrautina fyrr en hannvar orðinn 29 ára gamall.
Nú er Gabriel Byrne, 52 ára að aldri,
í hópi fremstu leikara Írlands
ásamt vinum sínum Stephen Rea,
Liam Neeson og Colm Meaney sem
hann kynntist þegar þeir unnu
saman í Project-leikflokknum í
Dyflinni um 1980, ásamt leikstjór-
unum Jim Sheridan og Neil Jordan.
Þessir félagar hafa haldið hópinn
síðan og þeir Sheridan stóðu m.a.
saman að gerð Óskarsverðlauna-
myndarinnar In the Name Of the
Father (1993).
Byrne fæddist í Dyflinni, einn
sex barna hjúkrunarkonu og
starfsmanns Guinnessbrugghúss-
ins. Hann átti, að eigin sögn,
venjulega æsku en minnist þess
að á sumrin hafi hann verið fasta-
gestur í kvikmyndahúsunum, ekki
síst þegar vestrar og Hitch-
cockmyndir voru á boðstólum, og
farið síðan út á engi og leikið þar
atriði úr myndunum með sjálfum
sér. Samt var leiklistin ekki fram-
tíðarstarf í huga piltsins heldur
kaþólskur prestskapur og trúboð.
Hann var sendur í þeim tilgangi í
skóla á Englandi. Hann var rek-
inn úr honum að fjórum árum
liðnum fyrir reykingar. Þá var
hann sextán ára, en síðar sagði
Byrne frá því að einn kennaranna
hefði misnotað sig kynferðislega.
Sams konar sögur hafa Pierce
Brosnan og margir fleiri haft að
segja. Þegar Byrne skýrði frá at-
burðinum opinberlega kvaðst
hann ekki gera það til að ná sér
niðri á viðkomandi manni, heldur
til að benda á þær hörmungar sem
hljótist af þeirri afstöðu kirkj-
unnar að prestar hennar megi
ekki lifa kynlífi og ekki kvænast.
Hann kaus sjálfur aðra leið og
áður en hann hóf nám að nýju
vann hann fyrir sér með ýmsum
hætti – sem starfsmaður í graf-
hýsi, við pípulagnir og matreiðslu
á skyndibitastað. Í University
College í Dyflinni lagði Byrne
stund á fornleifafræði og málfræði
og þegar hann hafði útskrifast
starfaði hann í þrjú ár sem forn-
leifafræðingur og svo sem
spænsku- og gelískukennari við
kaþólskan stúlknaskóla í fjögur
ár. Á seinna tímabilinu tók hann
þátt í áhugamannaleiksýningu og
viðstaddur var leikari einn frá
Abbey-leikhúsinu fræga sem
hvatti hann til að leggja leiklistina
fyrir sig. Hann gerðist leikari við
Project-leikflokkinn og var síðan
ráðinn til Abbey-hússins, auk þess
sem hann tók að leika í vinsælli
írskri sjónvarpssyrpu, Bracken.
Hún vakti mikla athygli á honum
og kvikmyndahlutverkin tóku að
berast, fyrst smá, eins og í mið-
aldaævintýri Johns Boorman Ex-
calibur (1981), þar sem hann lék
föður Artúrs konungs, Hanna K
og The Keep (báðar 1983), en að-
alhlutverkið í þeim prýðilega póli-
tíska samsæristrylli The Defence
Of the Realm (1985), þar sem
hann gerði rannsóknarblaða-
manni á hálum ís fín skil, braut
endanlega ísinn og hlutverkin
stækkuðu. Myndirnar voru þó
misjafnar: Gothic (1986) var
dæmigerð blanda af snilld og del-
eringu frá Ken Russell, Hello Again
mislukkuð gamanmynd (1987) og
Siesta (1987) brokkgengt furðu-
verk sem þó kynnti Byrne fyrir
leikkonunni Ellen Barkin. Þau giftu
sig skömmu síðar, eignuðust tvo
syni en skildu 1993, sama ár og
þau léku saman í fallegri írskri
fjölskyldumynd, Into the West,
sem Byrne framleiddi að auki. Árið
1990 gekk hann fyrst að ráði í aug-
un á Hollywood þegar hann lék
írskan glæpon í flókinni og sér-
viskulegri glæpamynd Coen-
bræðra, Miller’s Crossing.
Síðasta áratug hefur Gabriel
Byrne leikið í að meðaltali þremur
bíómyndum á ári, auk sjónvarps-
verka og leikhúsvinnu. Þær hafa
verið mismerkilegar, Little Wo-
men (1994) var bærileg bók-
menntaleg „kvennamynd“, Dead
Man (1995) kyndugur vestri frá
Jim Jarmusch, The Usual Suspects
(1995) einhver snjallasti og flókn-
asti krimmi allra tíma og Smilla’s
Sense Of Snow (1997) frekar mis-
hæðótt kvikmyndun á skáldsögu
Peters Höeg, svo dæmi séu tekin.
Kaþólikkinn Byrne gerði sér lítið
fyrir árið 1999 og lék fyrst prest
sem rannsakar dularfull kross-
festingarsár á ungri stúlku í
Stigmata og svo djöfulinn sjálfan í
hasartryllinum End Of Days með
Arnold Schwarzenegger. Báðar þessar
myndir áttu aðeins athyglisverða
spretti en Byrne sjálfur var traust-
ur að vanda.
Hann virðist svolítið mistækur í
verkefnavali og stjarna hefur
hann ekki orðið og verður tæpast
úr þessu; til þess skortir hann
sanna útgeislun. En hann verður
áfram myndarprýði, hann Gabriel
Byrne.
Enginn erkiengill
Þungbúinn augnsvipurinn fer létt með
að lýsa, hvort heldur sem er, döprum
huga eða ógnvekjandi nærveru, en
skarpleitt og myndarlegt andlit írska
leikarans Gabriels Byrne hefur löngum
fært honum annars konar og al-
vörugefnari hlutverk en hæfa innsta
eðli hans, að því er hann segir sjálfur,
þ.e. gamansemi og lífsgleði. Hann hef-
ur sterka stöðu hvenær sem hann birt-
ist á myndfletinum og gildir það sjálf-
sagt líka um hrollvekjuna Ghost Ship
sem frumsýnd er hérlendis um helgina.
Árni Þórarinsson
SVIPMYND
Gabriel Byrne
segir Írland og írskar ræt-
ur sér afar mikilvæg. Og
það fer í taugarnar á hon-
um þegar Bandaríkja-
menn eða Englendingar
eru fengnir til að leika Íra í
bíómyndum. „Til er hell-
ingur af hæfileikaríkum
írskum leikurum og leik-
konum sem aldrei fá tæki-
færi.“ Hann nefnir Ang-
ela’s Ashes sem dæmi en
myndin er byggð á upp-
vaxtarsögu Írans Franks McCourt. „En er hún írsk kvikmynd?
Leikstjórinn er Englendingur – Alan Parker. Fjármagnið er ekki
írskt. Bandaríkjamaður skrifaði handritið. Framleiðandinn er Am-
eríkani. Skoskur leikari leikur föðurinn og ensk leikkona móðurina.“
ÆVINTÝRAMYNDIN Treasure
Planet, sem frumsýnd verður um
hátíðarnar, er teiknuð Disney-
útgáfa af Treasure Island eftir Ro-
bert Louis Stevenson. Munurinn á
þessari útgáfu og öllum hinum er
að Treasure Planet gerist í geimn-
um með tilheyrandi geimverum og
geimfurðum. Sagan segir frá Jim
Hawkins og ferð hans umhverfis
alheiminn sem káetudrengur um
borð í risastóru og tignarlegu
geimskipi. Hann hefur vingast við
kokk skipsins, John Silver, sem er
vélmenni, gæddur miklum per-
sónutöfrum. Jim og hinir í áhöfn-
inni þurfa að berjast við margar af
hættunum í geimnum, svo sem
sprengistjörnur, svarthol og
grimma geimstorma. En einn dag-
inn kemst Jim að því að vinur hans
John Silver er í raun og veru slótt-
ugur geimræningi með uppreisn í
huga. Handritið var í höndum
Barry Johnson, en leikstjórar voru
Ron Clements og John Musker.
Í grimmri
geimveröld
Í MYNDINNI The Good Girl, sem
væntanlega verður frumsýnd hér-
lendis í byrjun nýs árs, leikur
Jennifer Aniston þrítuga kassa-
stúlku í stórmarkaði í Texas. Hún
heitir Justine og er orðin dauðleið
á innihaldslausu lífi sínu, stein-
geldu starfi og
er þar að auki
búin að fá nóg af
eiginmanninum,
dáðlausum
húsamálara,
sem slæpist um
á kvöldin með
þrælskökkum
félögum. Just-
ine telur sig sjá
ljós í myrkrinu
er hún uppgötvar annan kassa-
starfsmann hjá fyrirtækinu, hinn
unga og ásjálega Holden. Hann er
reyndar ekkert ýkja gáfaður og á
að auki við áfengisvandamál að
stríða. Um hríð er þó loksins gam-
an að lifa og skötuhjúin svala fýsn-
um sínum hvar sem þau fá því við
komið uns ástarsambandið rústar
hreinlega lífi ungu konunnar sem
segja má að hafi verið nógu slæmt
fyrir. Með önnur aðalhlutverk fara
Mike White, Jake Gyllenhaal,
John C. Reilly, Deborah Rush og
Zooney Deschane. Leikstjóri er
Miguel Arteta.
Lengi getur
vont versnað
The Good Girl:
Jennifer Aniston
ekki svo góð.
INDVERSK kvikmyndagerð færist sífellt í aukana
og nú stendur fyrir dyrum gerð stórmyndar sem
verður sú dýrasta sem Bollywood hefur framleitt.
Myndin, sem mun kosta 13 milljónir dollara, verður
tekin í fimm löndum með alþjóðlegum stjörnum í
leikhópnum en aðalhlutverkið leikur indverska of-
urstirnið Amitabh Bachchan. Leikstjórinn heitir
Ram Gopal Varma en myndin er sögð alþjóðleg
pólitísk spennumynd. Dýrasta mynd Bollywood til
þessa er Devdas, sem var heimsfrumsýnd á Cann-
eshátíðinni í vor og hefur nú gefið af sér 34 millj-
ónir dollara.
Þakið hækkað í Bollywood