Morgunblaðið - 29.12.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.12.2002, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 29. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Nordic Ice og Brúar- foss koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss, Viking og Ludvig Andersen koma á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un félagsvist kl. 14, á þriðjudag samsöngur kl. 14, stjórnandi Kári Friðriksson. Árskógar 4. Á morgun kl. 9–12 opin handa- vinnustofa, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíðastofa/útskurður, opin handavinnustofa, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 búta- saumur, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–11 sam- verustund, kl. 13–16 bútasaumur. Uppl. í s. 568 5052. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á morgun kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 9 myndlist, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, fram- hald. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Á morgun kl. 8– 16 opin handavinnu- stofan, kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dalbraut 27. Á morgun kl. 9–16 handavinnustofan opin, kl. 9–12 myndlist, kl. 13–16 körfugerð, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað, kl. 10–13 versl- unin opin. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Á morgun böðun kl. 9–12, opin handavinnustofan kl. 9– 16.30, félagsvist kl. 14, hárgreiðslustofan opin 9–14. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið Hraunsel verð- ur lokað til mánudags- ins 6. janúar 2003. Áramótadansleikur verður á morgun mánu- dag kl. 20.30. Hraunbær 105. Á morgun kl. 9 postulíns- málun, perlusaumur og fótaaðgerð, kl. 10 bæna- stund, kl. 13. 30 sögu- stund og spjall, kl. 13 hárgreiðsla. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið frá kl. 17, heitt á könnunni. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun og föndur, kl. 13 spilað, kl. 13.30 ganga, fótaað- gerðir. Allir velkomnir. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9–16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15– 12 postulínsmálning, kl 9.15–15.30 alm. handa- vinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Lyfjafræð- ingur á staðnum kl. 13 fyrsta og þriðja hvern mánudag. Vitatorg. Á morgun kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15, kaffi. Gullsmárabrids - Brids- deild FEBK, Gull- smára, er komin í jóla- og áramótafrí. Árnum öllum bridsurum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar. Hittumst hress á nýju bridsári (fimmtudaginn 9. janúar kl. 12.45 á há- degi). Kvenfélag Keðjunnar. Nýársfagnaður verður laugardaginn 11. jan- úar, í sal tannlækna- félagsins, Síðumúla 35. Húsið opnað klukkan 19 með fordrykk. Konur tilkynni þáttöku fyrir 3. janúar til Oddnýjar í síma: 894 6828, Unnar Maríu í síma: 587 2444, Ingibjargar í síma: 554 4635 og Ólafar í síma: 565 8565. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Norð- urlandi: Ólafsfjörður: Blóm og gjafavörur, Aðalgötu 7. Hvamms- tangi: Verslunin Hlín, Hvammstangabraut 28. Akureyri: Bókabúð Jón- asar Hafnarstræti 108, Möppudýrin, Sunnuhlíð 12c. Mývatnssveit: Pósthúsið í Reykjahlíð. Húsavík: Blómasetrið, Héðinsbraut 1, Rauf- arhöfn: Hjá Jónu Ósk Pétursdóttur, Ásgötu 5. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minningarkortin fást nú í Lyf og heilsu, versl- unarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kostar 500 kr. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eftir- töldum stöðum á Suð- urlandi: Vestmannaeyjar: Apó- tek Vestmannaeyja, Vestmannabraut 24. Selfoss: Selfossapótek, Kjarninn. Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsamlegast hringi í síma 552-4994 eða síma 553-6697. Minning- arkortin fást líka í Há- teigskirkju við Háteigs- veg. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju, s. 520-1300 og í blóma- búðinni Holtablómið, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkj- unni. Minningakort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn, s. 555 0104 og hjá Ernu, s. 565 0152 (gíróþjónusta). Minningarkort Félags eldri borgara Selfossi. eru afgreidd á skrifstof- unni, Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, sími 482-1134, og versl- unni Íris í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stangarhyl 1, 110 Reykjavík, s. 570 5900, fax: 570 5901. Netfang: slysavarna- felagid@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum kvennadeild- ar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568- 8188. Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562-1581 og hjá Krist- ínu Gísladóttur, s. 551- 7193 og Elínu Snorra- dóttur, s. 561-5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553- 9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í síma 525-1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningakort Breið- firðingafélagsins eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni, s. 555-0383 eða 899-1161. Í dag er sunnudagur 29. desember, 363. dagur ársins 2002, Tómas- messa. Orð dagsins: Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drott- inn, lætur mig búa óhultan í náðum. (Sálm. 4, 9.) Víkverji skrifar... ÍSLENDINGAR eru miklirkeppnismenn. Fyrir utan kapp- leiki á íþróttavöllum fer fram keppni um hver er með fallegasta garðinn, sumarhúsið og lengi má telja. Í nóv- emberlok hófst keppni um jóla- skreytingar á húsum og kringum þau. Sú keppni harðnar með hverju árinu og ljósadýrðin verður æ glæsi- legri og lauslega má reikna með að kveikt sé á um 600 þúsund jólaser- íum af ýmsum gerðum og stærðum – innan- og utanhúss. Tendruð eru um 200 þúsund aðventuljós og svipað magn af ýmiskonar jólasveinum úr plasti. x x x FYRIR utan öll þessi ljós veit Vík-verji að heima hjá mönnum liggja hundruð þúsunda af jólaser- íum, sem kviknar ekki á eða aðeins að hluta. Það hefur tekið Víkverja og aðra langan tíma að leita að ónýtum perum til að ljós kvikni á seríum. Á dögunum var Víkverja bent á tæki, sem er eins og penni í laginu, sem notað er til að leita að ónýtum per- um. Þetta tæki er þarfaþing og spar- ar mikla vinnu við leitina. Vinur Vík- verja keypti inniseríu, sextíu ljósa, fyrir jólin og kom henni fyrir í glugga hjá sér. Á öðrum degi sá hann að á níu perum var ekki ljós. Þar sem aðeins tvær aukaperur fylgdu kassanum fór hann til að kaupa fleiri perur. Þegar hann bað um aukaperur sagði afgreiðslumað- ur honum að það væri betra að kaupa nýja seríu en kaupa perur. Seríur kostuðu álíka mikið og þrír pakkar með fimm perum í. Vinur Víkverja var ekki ánægður með svör afgreiðslumannsins, fannst pening- um kastað á glæ. x x x FYRIR ári var mikill skortur ájólatrjám, þannig að mikið magn af jólaseríum gekk ekki út. Kappsfullir Íslendingar voru ákveðnir í að láta það ekki endurtaka sig í ár. Það mátti lesa í frétt á bak- síðu Morgunblaðsins í gær að of- framboð hefði verið á jólatrjám fyrir þessi jól. Margir hafa hugsað sér gott til glóðarinnar – ætlað sér að þéna á jólatréssölu þetta árið. Sagt var frá því að um tíu þúsund jólatré hefðu aldrei komist út úr verslunun- um og inn í stofu landsmanna. Rætt var við borgarstarfsmann við brennu við Fossvog, sem sagði að tíu bíl- förmum af óseldum jólatrjám – rúm- lega hundrað tré í hverjum farmi – hefði verið ekið að brennunni. Lauslega reiknað, eftir að hafa lesið fréttina, þá verður kveikt í jóla- trjám fyrir um 30 milljónir króna, en ef þessi jólatré hefðu selst hefði það kostað kaupendur um 50 milljónir króna að skreyta þau, með ljósaser- íum og öðru skrauti. Íslendingar hafa því sparað hátt í hundrað millj- ónir á að kaupa ekki jólatré. Þeir sem fluttu inn trén hefðu getað spar- að mikinn pening í flutningskostnað, nokkra tugi milljóna. x x x VÍKVERJI telur að landgræðslu-menn ættu nú að grípa í taum- ana og óska eftir banni á innflutningi á jólatrjám. Nær væri að gróður- setja tíu þúsund jólatré hér á landi en að flytja þau til landsins til að brenna þeim. Víkverji bíður þó spenntur eftir gamlárskvöldi, þegar ilmurinn af brennandi greni berst inn eftir Fossvogsdalnum. LÁRÉTT: 1 þroti, 4 hvítleitar, 7 moðreyks, 8 greinilegt, 9 nóa, 11 sjá eftir, 13 kunna skil á, 14 diskagrind, 15 illt, 17 tryggur, 20 gljúf- ur, 22 látna, 23 eins, 24 seint, 25 heyið. LÓÐRÉTT: 1 baggi, 2 slátrar, 3 svara, 4 lýður, 5 kvæði, 6 nagdýr, 10 óreiðu, 12 upplag, 13 skynsemi, 15 hraknings, 16 tómið, 18 slitið sundur, 19 spillt, 20 vegur, 21 ófríð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 utangátta, 8 skalf, 9 teppa, 10 afl, 11 rúður, 13 arður, 15 höggs, 18 skúta, 21 kák, 22 loðna, 23 eflir, 24 hræðilegt. Lóðrétt: 2 trauð, 3 nafar, 4 áætla, 5 tapið, 6 Æsir, 7 barr, 12 urg, 14 rok, 15 héla, 16 góðir, 17 skarð, 18 skell, 19 út- læg, 20 aurs. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 AÐ afloknum tiltektum fyr- ir jólin, sunnudaginn 22. desember, ákváð húsmóðir- in á heimilinu að panta pitsu því ekki var afgangs orka í matargerð. Eins og ávallt var pöntuð pitsa hjá Papinos í Hafnar- firði og eins og svo oft áður var pöntuð pepperoni- pitsa. Eldri sonurinn var send- ur að ná í góðgætið en aðrir biðu hungraðir heima. En mikil urðu vonbrigðin þegar pitsan kom, jú, vissu- lega var þetta pepperoni- pitsa, en hún var ekki venjuleg því á pitsunni var a.m.k. tvöfaldur skammtur af pepperoni og í miðjunni var fljótandi olíupollur. Ekki leist fjölskyldunni á en þar sem allir voru svangir var ákveðið að prófa að borða þetta. En eins og við mátti búast var þetta ekki lystugt og gáfust flestir upp á átinu. Ákvað því húsmóðirin að hringja og kvarta því enn voru allir svangir og ekkert í ísskápnum sem elda mátti í fljótheitum. Hjá Papinos varð fyrir svörum ung stúlka og full- yrti hún að húsmóðirin hefði pantað tvöfaldan skammt af pepperoni. Ekki kannaðist húsmóðirin við það, enda hafði hún oft pantað pepperoni-pitsu áð- ur og allaf fengið venjuleg- an skammt af pepperoni á sína pitsu. Stúlkan sagðist ekki hafa heimild til að bæta skaðann en bauð hús- móðurinni að panta sér aðra pitsu og fengi hún þá afslátt – sem hún ekki þáði. Lauk samtalinu með að húsmóðirin lagði á enda orðin sár, ekki vegna þess að hún væri ekki beðin af- sökunar á mistökunum eða boðin önnur pitsa, heldur fyrir að vera ásökuð um ósannsögli. En eitt er víst, húsmóð- irin mun snúa sér annað næst þegar panta á pitsu. 301253-5759. Dýrahald Simbi ennþá týndur SIMBI týndist frá Löngu- mýri í Garðabæ í sumar. Hann er rauður og loðinn. Hans er sárt saknað. Allar upplýsingar vel þegnar í síma 565 6519 eða 847 6671. Fundarlaun. Hefur einhver séð Gosa? GOSI týndist frá Háaleitis- braut 135 aðfaranótt 3. des- ember sl. Gosi er rúmlega fimm ára gamall húsköttur, hvítur og grábröndóttur. Hann er afar auðþekkj- anlegur á nefinu sínu sem er alveg dökkt. Mikið óveð- ur var nóttina sem hann hvarf og hugsanlegt að hann hafi skriðið inn ein- hvers staðar til að leita sér skjóls. Gosi er ákaflega blíður köttur og er hans sárt saknað. Þeir sem vita um afdrif Gosa eru vinsamlega beðnir að hringja í síma 568 8646 eða 693 2211. Tapað/fundið Hvít perlufesti týndist HVÍT perlufesti tapaðist f. utan Smáralind um kl 21, 20. desember síðastliðinn. Hún er u.þ.b. tveggja til þriggja cm breið. Hennar er sárt saknað. Skilvís finn- andi hafi samband í 431 1865 eða 861 3056. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Ólystug pitsa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.