Morgunblaðið - 03.02.2003, Síða 1
FULLTRÚAR sveitarfélaganna Norður-Héraðs og
Fljótsdalshrepps afhentu stjórnendum Landsvirkjunar
formlega framkvæmdaleyfi vegna byggingar Kárahnjúka-
virkjunar við athöfn sem fram fór á Hótel Héraði á Egils-
stöðum í gærkvöldi.
„Þetta er mjög ánægjulegur viðburður og ákveðið skref
á þessari braut,“ segir Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráð-
herra sem var viðstödd athöfnina á Egilsstöðum í gær.
„Þetta er allt á beinu brautinni. Hver atburðurinn rekur
annan og er Alþingi um þessar mundir að fjalla um heim-
ildarlagafrumvarpið [vegna samninga við bandaríska ál-
fyrirtækið Alcoa] í nefnd.“
Hún segir ekki búið að dagsetja undirritun samninga við
Alcoa um byggingu álversins í Reyðarfirði.
Vel viðunandi niðurstaða
„Nú hafa sveitarstjórnirnar gefið leyfi til þess að hægt
sé að hefja framkvæmdir og að allt sé til reiðu af þeirra
hálfu,“ sagði Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar.
„Á síðustu árum hafa fulltrúar Landsvirkjunar og þessara
tveggja sveitarfélaga sem málið varðar unnið að samn-
ingum og heimamenn hafa auðvitað haldið fast á málum
sínum en ég held að niðurstaðan sé mjög vel viðunandi fyr-
ir báða aðila og samstarfið hefur verið með afbrigðum gott
og ég á von á að það verði áfram,“ segir Friðrik.
Afhenda framkvæmda-
leyfi fyrir Kárahnjúka
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Lands-
virkjunar, Friðrik Sophusson forstjóri og Guðgeir
Ragnarsson, oddviti N-Héraðs, með framkvæmdaleyfin.
STOFNAÐ 1913 32. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 3. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Mynddiskar
sækja á
Mynddiskalistinn og umfjöllun um
DVD-upptökutækni Fólk 31
Handboltalandsliðið tryggði sér
keppnisrétt í Aþenu Íþróttir 2/12
Frumsýn-
ingarhelgi
Tvær frumsýningar hjá Leikfélagi
Akureyrar Listir 14/Fólk 33
Ólympíu-
sæti í höfn
GEORGE W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, og Bandaríkjaþing hétu í
gær nákvæmri rannsókn á hinu
hörmulega slysi á laugardag er geim-
ferjan Kólumbía brotnaði upp í 63 km
hæð yfir jörðu er hún var að koma inn
til lendingar á Flórída. Með henni
fórst öll áhöfnin, sjö manns. Enn er
ekki vitað hvað olli harmleiknum en
getgátur um það eru komnar fram.
NASA, bandaríska geimvísinda-
stofnunin, hefur skipað nefnd óháðra
sérfræðinga til að kanna slysið og átti
hún að koma saman í dag. Hefur rík-
isstjórnin heitið því, að ekkert verði til
sparað við rannsóknina.
Varað við ónógu öryggi
Nú þegar hefur komið fram nokkur
gagnrýni á NASA og er stofnunin
sögð hafa hunsað viðvaranir um, að
öryggi ferjunnar væri ekki sem
skyldi. Breska blaðið Observer hafði
það í gær eftir Don Nelson, sem vann
áður sem tæknifræðingur hjá NASA,
að hann hefði verið búinn að biðja
Bush forseta að skerast í leikinn
vegna þess, að öryggismálin væru
ekki í lagi. Þá hefur slysið einnig sett
spurningarmerki við framtíð ISS, Al-
þjóðlegu geimstöðvarinnar, en Rúss-
ar skutu í gær upp ómannaðri ferju
með vistir til hennar. Bush forseti og
aðrir frammámenn í Bandaríkjunum
leggja hins vegar áherslu á, að slysið
muni ekki verða til að draga úr geim-
ferðaáætlununum.
Kólumbía brotnaði upp þegar hún
átti 16 mínútur eftir til lendingar á
Flórída og var þá á 20.000 km hraða.
Talið er, að rannsóknin muni ekki síst
beinast að hugsanlegum skemmdum
á hitahlífum á vinstri væng ferjunnar
en vitað er, að brot úr einangrun elds-
neytisgeymis ferjunnar skall á
vængnum rétt eftir flugtak 16. janúar
síðastliðinn.
Þjóðarsorg
Þjóðarsorg ríkir í Bandaríkjunum
vegna slyssins og einnig í Ísrael en
einn geimfaranna var ísraelskur. Var
Bush forseti mjög klökkur er hann
ávarpaði þjóð sína eftir slysið á laug-
ardag og minntist þeirra, sem létu líf-
ið. Hafa honum og Bandaríkjamönn-
um borist samúðarskeyti frá
þjóðhöfðingjum og öðrum frammá-
mönnum víða um heim.
Bandaríkjamenn syrgja geimfarana sjö sem fórust með geimferjunni Kólumbíu
Reuters
Grant Johns, sjö ára gamall, huggar fjögurra ára gamla systur sína við minningarreit, sem komið var upp við
aðalstöðvar NASA í Houston í Texas. Hefur áhafnar Kólumbíu verið minnst með þeim hætti um öll Bandaríkin.
Líkur á að ferjan
hafi skaddast
alvarlega strax
í flugtaki
Washington. AP, AFP.
Sundraðist/12
Viðamikil rannsókn er
þegar hafin á slysinu
FULLTRÚAR Landsvirkjunar og
ítalska verktakafyrirtækisins
Impregilo S.p.A hafa farið yfir alla
þætti tilboðs Impregilo í tvo stærstu
verkþætti Kárahnjúkavirkjunar, að
sögn Friðriks Sophussonar.
„Við erum að vonast til að geta
lagt fram á stjórnarfundi nk. föstu-
dag tillögu um að taka tilboðinu og
gera tiltekna samninga sem þá ættu
að liggja fyrir. Ef stjórn fyrirtæk-
isins samþykkir það, ætti að vera
hægt að gefa út leyfisbréf í næstu
viku. Þá gæti Impregilo byrjað að
undirbúa framkvæmdir en auðvitað
er ekki hægt að hefja sjálfar fram-
kvæmdirnar fyrir austan fyrr en
skrifað hefur verið undir rafmagns-
samninginn og aðra samninga sem
málið varðar, og það verður varla
gert fyrr en eftir að Alþingi hefur
afgreitt heimildarlagafrumvarpið,“
segir Friðrik. ,,Á þessari stundu sé
ég ekkert sem kemur í veg fyrir að
hægt sé að gera við þá samninga.“
Samið verði
við Impregilo
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, og jafnaðarmanna-
flokkur hans biðu mikinn ósigur í
kosningum í tveimur sam-
bandslöndum í gær, Neðra-Sax-
landi og Hessen. Er litið á úrslitin
sem alvarlega viðvörun til ríkis-
stjórnarinnar en henni er kennt um
bágt ástand í þýskum efnahagsmál-
um.
Í Hessen bar Roland Koch, for-
sætisráðherra og leiðtogi kristi-
legra demókrata í sambandsland-
inu, sigur úr býtum og voru horfur
á að flokkur hans fengi hreinan
meirihluta, rúmlega 50% atkvæða.
Þar fékk flokkur Schröders innan
við 30% sem er það minnsta sem
hann hefur fengið eftir stríð.
Í Neðra-Saxlandi, heimaríki
Schröders, bentu tölur til að jafn-
aðarmenn fengju um 33% atkvæða,
fengu 47,9% í kosningunum 1998,
en kristilegir demókratar virtust
ætla að fá rúmlega 48%. Þeir munu
því taka við stjórn þar og líklega í
samstarfi við frjálsa demókrata.
Ljóst er að þýskir kjósendur eru
að refsa Schröder fyrir ástandið í
efnahagsmálunum, mikið atvinnu-
leysi og nýlegar skattahækkanir.
Schröder
bíður mik-
inn ósigur
Berlín. AFP.
♦ ♦ ♦
VACLAV Havel lét í gær af emb-
ætti forseta Tékklands en ekki hillir
enn undir, að þingið geti komið sér
saman um eftirmann hans. Óttast
margir, að það geti dregist jafnvel
mánuðum saman og leitt til stjórn-
arskrárkreppu í landinu.
Havel ávarpaði þjóðina í síðasta
sinn en með forsetavaldið fara nú
tveir menn, Vladimir Spidla, for-
sætisráðherra Tékklands, og Lub-
omor Zaoralek, forseti þingsins.
Hefur þinginu mistekist í tvígang
að velja eftirmann Havels og þykir
það sýna vel það tómarúm, sem rík-
ir við brottför hans. Ekki er sjáan-
legur neinn maður með það sið-
ferðilega vægi, sem Havel hefur, og
sumir spá því, að það geti tekið
þingið nokkra mánuði að velja nýj-
an forseta.
Vilja breyta stjórnarskrá
Æ fleiri leggja nú til, að forsetinn
verði kjörinn í almennum kosning-
um en það kallar á stjórnarskrár-
breytingu, sem tekið getur hálft ár
að koma í gegn.
Þótt vinsældir Havels hafi dvínað
nokkuð meðal landa hans á síðari
árum, gera þeir sér grein fyrir því,
að erfitt verður að fylla það skarð,
sem hann lætur eftir sig:
„Það skiptir einu hver verður
kjörinn, sá hinn sami mun aldrei
hafa þau áhrif og þá stöðu, sem
Havel hefur haft,“ sagði í tékkneska
dagblaðinu Lidove Noviny í gær.
Tékkland
án forseta
Prag. AFP.