Morgunblaðið - 11.03.2003, Side 2
ÍBÚÐALÁNASJÓÐI gefst núkostur á að koma betur tilmóts við fólk sem misst hefureignir sínar á nauðungarsölu
þar sem virði húseignarinnar hefur
ekki nægt til að greiða upp áhvílandi
lán Íbúðalánasjóðs.
Með nýrri reglugerð um meðferð
krafna Íbúðalánasjóðs sem glatað
hafa verðtryggingu er Íbúðalánasjóði
gert kleift að afskrifa hluta þeirra
skulda sem viðkomandi einstaklingur
skuldar sjóðnum eftir nauðungarsölu.
Kröfur Íbúðalánasjóðs teljast hafa
glatað veðtryggingu annars vegar
þegar sjóðurinn kaupir fasteign við
nauðungarsölu og kröfur sjóðsins eru
hærri en matsverð hennar við upp-
boð, og hins vegar þegar aðrir kaupa
fasteign við nauðungarsölu og kröfur
sjóðsins sem hvíla á fasteign fást ekki
að fullu greiddar af söluverði hennar.
Þess ber að geta að kröfur Íbúða-
lánasjóðs sem glatað hafa veðtrygg-
ingu bera hvorki vexti né verðtrygg-
ingu.
Hingað til hafa skuldarar ekki
fengið fyrirgreiðslu að nýju, hvorki
ný lán né heimild til yfirtöku eldri
lána, fyrr en að skuld við Íbúðalána-
sjóðs hefur verið að fullu greidd.
Greiða skal helming kröfunnar
Með hinni nýju reglugerð getur
skuldari nú hvenær sem er greitt inn
á kröfuna og er Íbúðalánasjóði heim-
ilt að koma til móts við skuldara við
hverja greiðslu með því að fella niður
af kröfunni til viðbótar sömu fjárhæð
og greidd var. Með því er krafa að
fullu greidd þegar skuldari hefur
greitt helming hennar.
Að liðnum 5 árum frá nauðung-
arsölu er stjórn Íbúðalánasjóðs heim-
ilt að afskrifa kröfur, sem glatað hafa
veðtryggingu enda sýnt að skuldari
hafi ekki haft og hafi ekki fjárhags-
getu til að greiða helming kröfunnar
vegna ófyrirséðra eða óviðráðanlegra
atvika.
Þess ber að geta að við nauðung-
arsölu skal Íbúðalánasjóður tilkynna
skuldara bréflega um niðurstöðu
uppgjörs á nauðungarsölunni um leið
og frumvarp um úthlutun á söluverði
eða verðmat íbúðar liggur fyrir. Í til-
kynningu skal meðal annars gera
grein fyrir möguleika á greiðslu kröf-
unnar og útilokun frá fyrirgreiðslu
sjóðsins.
Hins vegar skal Íbúðalánasjóður
ekki aðhafast frekar við innheimtu
kröfu nema sjóðurinn telji að krafa
hafi orðið til vegna saknæmra at-
hafna eða meintra brota á lána-
reglum, enda fellur heimild sjóðsins
til niðurfellingar niður við slík brot.
Heimildir Íbúðalánasjóðs til
afskrifta skulda rýmkaðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grafarvogur
Markaðurinn
eftir Hall Magnússon,
sérfræðing stefnumótunar og
markaðsmála Íbúðalánasjóðs/
hallur@ils.is
2 B ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir
mbl.is/fasteignir/fastis
habil.is/fastis
OPIÐ 9-18
3JA HERBERGJA
LAUGATEIGUR-RIS Vorum að fá í
einkasölu góða 3ja herb. risíbúð í fjórbýli á
þessum vinsæla stað. Nýl. kirsuberjainn-
réttingar í eldhúsi. Parket. Björt íbúð. Áhv.
um kr. 5,5 millj. húsbréf.
LAUFENGI Í einkasölu mjög góða 3ja
herb. íb. á 2. h. Í litlu nýl. fjölb. með sérinn-
gangi af svölum. Austursvalir úr stofu.
Barnvænt hverfi m.a. stutt í skóla. SANN-
GJARNT VERÐ: 10,8 millj.
4 - 6 HERBERGJA
SKIPASUND - LAUS FLJÓTL.
Vorum að fá í einkasölu mjög góða 4ra herb.
Íb. á jarðhæð í góðu steyptu þríbýli með sér-
inngangi. Stofa, borðstofa og 2 svefnherb.
Nýleg eikarinnrétting í eldhúsi. Gluggar og
gler endurn. Áhv. um 4,1 millj. Byggsj. rík.
LAUS FLJÓTLEGA.Verð 12,4 millj.
SÓLTÚN
Vorum að fá í einkasölu góða 4ra herb.
íbúð ofarlega í nýlegu lyftuhúsi. Sérinn-
gangur af svölum. Þvottahús á hæðinni.
Suðursvalir. Húsið er steinað að utan og
því væntanl. Viðhaldslaust á næstu árum.
Verð 14,9 millj.
BARÐASTAÐIR - BÍLSKÚR Mjög
góð og vel skipulögð 4-5 herbergja íbúð á
2. hæð í litlu nýlegu fjölbýli ásamt um 28
fm bílskúr. Sjónvarpshol, góð stofa m.
suð-vestursvölum, 3 góð herb. Vandaðar
innr. úr hunangseik. Þvottah. í íb. Flísar og
parket á gólfi. Hús er steinað að utan með
marmarasalla. Eign fyrir vandláta.
SUÐURNES
EINBÝLI Í HÖFNUM Vorum að fá í
sölu lítið einbýli á einni hæð ásamt um 30
fm bílskúr. Húsið skiptist í stofu, 2-3 herb.,
baðh. og eldhús m. nýl. innréttingu. Út-
sýni. Friðsælt og fjölskylduvænt umhverfi.
Aðeins 5-10 mín. akstur til Reykjanesbæj-
ar. Áhv. um 3,5 m. húsbréf. Ásett verð 7,4
millj.
2ja HERBERGJA
LJÓSHEIMAR-LYFTUHÚS
Vorum að fá í einkasölu mjög góða 2ja
herbergja íbúð í þessum vinsælu húsum.
Endurnýjuð eldhúsinnrétting. Austursvalir.
Íbúðin er nýlega öll máluð. Ákv. sala. Verð
9,5 millj.
LAUGAVEGUR Vorum að fá í sölu
fallega og mikið endurnýjaða 2ja herbergja
íbúð í góðu steinhúsi ofarlega á Laugaveg-
inum. Íb. snýr að mestu frá Laugav. Parket
á gólfum. Bílastæði. Áhv. um 5,5 millj.
langtímalán. Ákv. sala.
VESTURBÆR - LAUS Vorum að fá
í einkasölu litla og huggulega 2ja herbergja
íbúð á 1. hæð í litlu fjölb. Nýl. parket á
gólfi. Áhv. um 2,7 millj. húsbr. Góð stað-
setning. Laus strax. Verð 5,9 millj.
FOSSVOGUR-SKIPTI Vorum að fá
í einkasölu fallega litla 2ja herbergja íbúð á
jarðhæð í litlu fjölbýli. Parket. Timburver-
önd í suður. BEIN SALA EÐA SKIPTI Á
STÆRRI ÍBÚÐ EÐA RAÐHÚSI Í BÚ-
STAÐAHVERFI.
VANTAR EIGNIR
Á SKRÁ
PERSÓNULEG,
TRAUST OG
ÁBYRG ÞJÓNUSTA
TÆPLEGA 20 ÁRA
STARFSREYNSLA
BREIÐHOLT Vorum að fá í einkasölu
góða 4ra herb. íb. á 3. hæð í lyftuhúsi.
Gott sjónvarpshol. Endurn. baðh. Suður-
svalir. Verð 11,4 millj.
HÆÐIR
KAMBSVEGUR-BÍLSKÚR Vorum
að fá í einkasölu fallega efri sérhæð ásamt
bílskúr í góðu þríbýli á þessum vinsæla
stað. Stórt hol, stofa og borðstofa, 3
svefnherbergi, eldhús og endurnýjað bað-
herb. Parket og flísar (nýtt parket í stofu).
Nýlegt þak. Endurn. lagnir. Góður garður.
28 fm bílskúr. LAUS STRAX. ÁKVEÐIN
SALA.
SÓLTÚN - GLÆSIÍBÚÐ Mjög
vönduð um 121 fm íbúð á efstu hæð í ný-
legu lyftuhúsi ásamt stæði í bílsk. Flísar á
baðh., vandað parket á öðru. Suðursvalir.
Hagstæð langtímalán tæpar 10 millj. Ásett
verð 19,9 millj.
HÁTÚN - BÍLSKÚR
Vorum að fá í einkasölu mjög fallega mikið
endurnýjaða 4ra herbergja efri sérhæð í
tvíbýli ásamt bílskúr. Stofa í suður, 3
svefnh. Nýl. eldhúsinnrétting. Parket og
flísar á gólfi. Geymsluris. Möfgul. að lyfta
risi. Áhvílandi um 6,7 millj. byggsj og hús-
bréf. Verð 14,9 millj.
EINB.- PAR-
RAÐHÚS
BYGGÐARENDI-EINBÝLI
Glæsilegt einbýlishús á þessum vinsæla
stað, innarlega í botnlangagötu. Húsið
sem er á 2 hæðum er með nýlegri vand-
aðri eldhúsinnréttingu, nýl. endurnýjuðum
baðherbergjum og gufubaði. Stofur með
fallegu útsýni og suðursvölum. Gólfefni er
parket og flísar, að mestu nýlegt. Fallegur
garður. Ásett verð 39,0 millj..
GARÐABÆR - Á EINNI HÆÐ
Vorum að fá í sölu mikið endurnýjað ein-
býlishús á einni hæð um 125 fm ásamt um
40 fm bílskúr. Húsið er bæði endurnýjað
að utan sem innan. Möguleiki á sólskála.
Góð staðsetning á skjólgóðum stað. Stutt
í skóla og þjónustu. Verð 20,4 millj.
ÁSBÚÐ-GBÆ Vorum að fá í sölu gott
um 250 fm einbýlishús að mestu á einni
hæð með tvöf. Innb. bílskúr með háar inn-
keyrsludyr. Góð suðurverönd og garður.
Fallegt útsýni. Stutt í skóla og leikskóla.
Ákv. sala.
Í SMÍÐUM
GRAFARHOLT-EINBÝLI Vorum
að fá í einkasölu glæsilegt um 246 fm ein-
býli á tveimur hæðum með innb. góðum
bílskúr. Mögul. að hafa séríb. á jh. Stofa,
borstofa og 6-7 herbergi. Fallegt útsýni.
Afh. fljótl. Fokh. að innan og fullfrág. að
utan. Teikn. á skrifstofu. Verð 19,9 millj.
ATVINNUHÚSNÆÐI
MIÐBORGIN Til sölu eða leigu um
110 fm skrifstofuhæðí nýl. lyftuhúsi. Laus
strax.
BORGARTÚN-LEIGA Til leigu um
370 og 170 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð
í góðu húsi við Borgartún. Leigist saman
eða í tvennu lagi. Möguleiki á stærri hluta.
Uppl. á skrifst.
MIÐHRAUN-GARÐABÆ Vorum
að fá í einkasölu nýlegt um 1160 fm hús-
næði sem er sérhannað fyrir heildsölu.
Húsnæðið er á einni hæð með um 8 metra
lofthæð auk lítils millilofts fyrir skrifstofur.
Góð aðkoma og bílaplan. Nánari uppl.
veitir Haukur Geir.
Haukur Geir Garðarsson
viðskiptafr. og lögg.
fasteignasali
Efnisyfirlit
Ás .......................................... 28—29
Ásbyrgi ........................................... 5
Bakki ............................................ 22
Berg .............................................. 30
Bifröst ............................................. 3
Borgir ............................................ 21
Eign.is .......................................... 35
Eignaborg .................................... 39
Eignalistinn ................................. 12
Eignamiðlun ....................... 22—23
Eignaval ........................................ 31
Fasteign.is ................................... 10
Fasteignamarkaðurinn .......... 6—7
Fasteignamiðlunin ....................... 4
Fasteignamiðstöðin ................. 47
Fasteignasala Mosfellsbæjar . 37
Fasteignasala Íslands ................. 2
Fasteignastofan ........................ 40
Fasteignaþing ............................. 27
Fjárfesting .................................. 45
Fold ................................................. 11
Foss .............................................. 46
Garður .......................................... 26
Garðatorg ..................................... 41
Gimli .............................................. 18
101 Reykjavík ............................. 34
Heimili .......................................... 29
Híbýli ............................................ 44
Hóll .......................................... 16—17
Hraunhamar ....................... 24—25
Húsakaup .................................... 48
Húsavík ........................................ 43
Húsið ............................................. 14
Hús.is .............................................. 3
Húsin í bænum ........................... 42
Höfði ................................................ 9
Höfði, Hafnarfirði ........................ 8
Kaupendaþjónusta .................... 44
Kjöreign ........................................ 13
Laufás .......................................... 20
Lundur .................................. 32—33
Lyngvík .......................................... 19
Miðborg ........................................ 36
Óðal & Framtíðin .......................... 7
Skeifan .......................................... 15
Smárinn ........................................ 14
Stakfell ......................................... 17
Valhöll .................................. 38—39
Vönduð, amerísk ilmkerti hafaverið seld í glerkrukkum með
skrúfuloki. Þessi kerti eru nokkuð
dýr, en endast ótrúlega lengi.
Lokin á sumum krukknanna eru
með lausum toppi, þ.e. fyrst er
plata lögð ofan á krukkuna og síð-
an er lokað með því að skrúfa nið-
ur að henni. Þessar krukkur eru
kjörnar til að endurnýta, t.d. sem
nálapúða og hirslu undir tvinna og
fleira smálegt.
Nálapúðinn er gerður úr svampi
sem þakinn er taubút. Stífur pappi
er sniðinn í sömu stærð og lokið
og hann límdur undir það til að fela
fráganginn á tauinu í nálapúðan-
um.
Krukka undan kerti getur orðið að
skemmtilegum nálapúða.
Kerta-
krukka und-
ir smádótið